Bændablaðið - 01.11.2018, Qupperneq 10

Bændablaðið - 01.11.2018, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 201810 FRÉTTIR Markaðsstofa sauðfjárbænda, Icelandic Lamb, gerði á dögunum samstarfssamning við Hönnun- ar miðstöð Íslands – og telst þessi samningur vera númer 200 í röð þeirra samstarfs samninga sem Icelandic Lamb hefur gert. Tilefnið var að Hönnunarmiðstöð Íslands fagnar tíu ára afmæli sínu á þessu ári. Að sögn Ninju Ómarsdóttur, verkefnisstjóra hjá Icelandic Lamb á sviði ullarafurða, var Hönnunar- miðstöðinni færð gjöf í tilefni afmælisins. „Við gáfum Sindrastólinn með G.Á. húsgögnum, sem framleiðir hann. Sindrastóllinn er klassísk hönnun og nýlega kominn aftur í framleiðslu í tilefni 50 ára afmælis hans – en hann var hannaður 1962 af Ásgeiri Einarssyni. Viðskiptavinir geta valið þá gæru og litaafbrigði sem þeir vilja á sinn stól sem gerir hvern stól einstakan.“ Mikilvægt að tengja bændur betur við hönnuðina Ninja segir mikilvægt að tengja bændur betur við hönnunarferlið og hönnuðina. „Hönnuðirnir taka við hrávöru bændanna sem mikil vinna hefur farið í að framleiða. Það er allra hagur að vel takist til í öllu ferlinu sem á sér stað svo að virðisaukningin geti orðið sem mest, að hönnunarvara í háum gæðaflokki verði til – og seld hérlendis eða erlendis,“ segir Ninja. Verðmætasköpunin í íslenskri hönnun Hönnunarmiðstöð Íslands er kynningar- og upplýsingamiðstöð fyrir íslenska hönnun á Íslandi og erlendis og er meginhlutverk hennar að efla skilning þjóðarinnar á mikilvægi hönnunar fyrir samfélagið og íslenskt efnahagslíf og benda á þá miklu verðmætasköpun sem getur falist í íslenskri hönnun fyrir þjóðfélagið allt. Hönnunarmiðstöð stuðlar að framgangi íslenskra hönnuða erlendis, enda felast þar stór tækifæri fyrir íslenska hönnun og framleiðsluvörur. Hönnunarmiðstöðin er í eigu Arkitektafélags Íslands, Félags húsgagna- og innanhússarkitekta, Félags íslenskra landslagsarkitekta, Félags vöru- og iðnhönnuða, Leirlistafélags Íslands, Fata- hönnunarfélags Íslands, Textíl- félagsins, Félags íslenskra gullsmiða og Félags íslenskra teiknara. Hönnunarmiðstöð Íslands er rekin fyrir fjárframlög frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneyti. /smh Þau skemmtilegu tímamót urðu á síðasta fundi sveitarstjórnar Mýr- dals hrepps að þar tók yngsti sveitar- stjórnarfulltrúi í sögu sveitarfélagsins sæti, Ástþór Jón Tryggva son, sem er aðeins 19 ára gamall. Það skemmtilega er að mamma hans, Ragnheiður Högnadóttir, 55 ára, sat líka fundinn. Bæði eiga þau sæti í sveitarstjórninni sem fulltrúar L-lista framtíðar í Mýrdalshreppi. /MHH Skipuleggjendur hæstánægðir með fyrstu REKO-afhendingarnar á Akranesi og í Kópavogi: Matvælaframleiðendur afhentu vörur sínar milliliðalaust til neytenda – Næstu afhendingar verða 3. og 17. nóvember Fyrsta afhending úr svokölluðum REKO-hópum, sem eru starf- ræktir á Facebook, var laugar- daginn 13. október. Um milliliða- laus viðskipti er að ræða á milli smáframleiðenda matvæla – eða bænda – við neytendur. Um tvo hópa er að ræða; REKO Vesturland og REKO Reykjavík – og áttu neytendur stefnumót við framleiðendurna á bílaplani Krónunnar á Akranesi annars vegar og á bílaplani Krónunnar í Lindum Kópavogs hins vegar. Meðlimir í þessum hópum sem voru mættir á afhendingarstaðinn höfðu þá þegar lagt inn pantanir hjá framleiðendunum og greitt fyrir með rafrænum hætti. Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, var í hópi neytenda sem hafði lagt inn pöntun í Reykjavíkurhópnum og var mættur til að taka við vörum úr hendi framleiðanda síns. Hann ræddi við framleiðendur og aðra þá sem voru mættir á svæðið. Að sögn skipuleggjendanna gekk afhendingin hratt og vel fyrir sig og fóru neytendur, framleiðendur og skipuleggjendur ánægðir heim. Smáframleiðendurnir færast ofar í virðiskeðjunni Tilgangurinn með REKO er að efla nærsamfélagsneyslu og færa framleiðendur og kaupendur nær hver öðrum; gera matarhandverki og heimavinnslu hærra undir höfði og færa smáframleiðendur ofar í virðiskeðjunni. REKO er tekið úr sænsku og er stytting á „vistvænir og heiðarlegir viðskiptahættir“. Fyrir- myndin kemur frá Finnlandi og hefur verið að ryðja sér til rúms á Norðurlöndunum og á meginlandi Evrópu. Matarauður Íslands – í samvinnu við Bændasamtök Íslands – hefur unnið að því að koma REKO-hugmyndafræðinni af stað hér á landi og eru fleiri hópar að myndast um land allt. Næstu afhendingar í nóvember Næsta afhending REKO Vestur- lands verður 3. nóvember við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundar firði milli klukkan 11 og 12. Þar næst verður afhending 17. nóvember á bílaplani Krónunnar á Akranesi milli klukkan 11 og 12 og sama dag verður afhending hjá REKO Reykjavík á bílaplani Krónunnar í Lindum milli klukkan 14 og 15. Sérstakur viðburður er stofnaður í kringum hvern afhendingardag innan hvers REKO-hóps og bjóða framleiðendur vörur sínar til sölu með stöðufærslu inn í viðburðinum. Áhugasamir senda þeim svo skilaboð þar sem þeir tilgreina hvað þeir vilji kaupa; annaðhvort með athugasemdum við færslurnar eða í einkaskilaboðum. Vörur eru ekki til sölu á staðnum því þetta er eingöngu afhending á fyrirfram pöntuðum og greiddum vörum – en ekki markaður. Allir matvælaframleiðendur með starfsleyfi hafa leyfi til að selja vörur sínar í gegnum þessa hópa. /smh Arnheiður Hjörleifsdóttir er bóndi á Bjarteyjarsandi á Hvalfjarðarströnd og kom færandi hendi á bílastæði Krónunnar á Akranesi. Ánægðir neytendur með vörur sínar á Akranesi. Myndir / REKO Akranes Frá afhendingu Sindrastólsins. Grétar Árnason, eigandi G.Á. húsgagna, Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb og Sara Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands. Sindrastóllinn er sígild íslensk hönnun Ásgeirs Einarssonar sem aftur er kominn í framleiðslu. Nítján ára í sveitarstjórn í Mýrdalshreppi: Situr með mömmu sinni á sveitarstjórnarfundum Icelandic Lamb gerði samstarfssamning við Hönnunarmiðstöðina: Tenging bænda við hönnuðina n ar 56-30-300 gýsiláaugSm Af sveitarstjórnarfundi í Mýrdalshreppi, talið frá vinstri: Ragnheiður Högnadóttir og sonurinn, Ástþór Jón Tryggvason, þá Drífa Bjarnadóttir og Einar Freyr Elínarson oddviti og Ingi Már Björnsson. Arnheiður Hjörleifsdóttir, stjórnandi REKO Reykjavík, og Hlédís Sveins- dóttir, stjórnandi REKO Akranes, við Krónuna á Akranesi.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.