Bændablaðið - 01.11.2018, Page 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 201822
Bjarni Jónsson rafmagns-
verkfræðingur tekur undir álit
Peter T. Örebech um orkupakka
Evrópusambandsins númer
þrjú. Hann sagði m.a. í stuttu
erindi á fundi í Háskóla Íslands
mánudaginn 22. október að
það einkenndi umræðuna
hjá þeim sem vildu innleiða
orkumarkaðslagabálk ESB á
Íslandi að hann sé sárameinlaus
og feli í sér litlar breytingar frá
örðum orkubálkinum sem nú er í
gildi og verði áfram í gildi í EFTA
löndunum.
„Þar til illu heilli meirihluti
alþingismanna kann að fremja það
afdrifaríka glappaskot að samþykkja
þriðja orkumarkaðslagabálkinn á
Íslandi í stað þess að hafna honum.“
Allur orkugeirinn undir reglur
EES-samningsins
„Afdrifaríkasta breytingin með
þriðja orkumarkaðslagabálki ESB
er sú að með innleiðingu hans
færist allur orkugeirinn undir reglur
EES samningsins um innri markað
Evrópska efnahagssvæðisins.
Sem þýðir að frelsin fjögur munu
eftir þessa innleiðingu gilda um
orkugeirann, en svo er ekki nú. Það
sést best á því að ESA, eftirlitstofnun
EFTA, hefur enga athugasemd gert
við það þó hér ríki gjaldskrárkerfi á
almenna markaðnum fyrir rafmagn.
Nýtt embætti „Landsreglara“
og stofnun orkukauphallar
Í kjölfar þessarar innleiðingar
verður trúlega stofnað nýtt
embætti, hugsanlega innan vébanda
Orkustofnunar, en samt verður það
að vera óháð boðvaldi orkumálastjóra
og annarra íslenskra yfirvalda og á að
vera óháð íslenskum hagsmunaaðilum
samkvæmt raforkumarkaðstilskipun
200972 EB.
Embættið hefur verið nefnt
„Landsreglari“, sem þýðing á
enska heitinu „National regulatory
authority“. Lýtur það boðvaldi
ESA og ACER, orkustofnunar
ESB, sem er undir beinni stjórn
framkvæmdastjórnar ESB.
Landsreglarinn verður þannig
eins konar handbendi ESB innan
íslenska orkugeirans og mun m.a.
fá það hlutverk að fylgja eftir
raunverulegri markaðsvæðingu
á raforkuviðskiptum á Íslandi að
forskrift ESB.
Sú markaðsvæðing felur í
sér stofnun orkukauphallar þar
sem öll raforkuviðskipti utan
langtímasamninga munu fara fram.
Þar með talin spákaupmennska með
afleiður orkuviðskipta fram í tímann
eins og tíðkast í kauphöllum.
Það er stórvarasamt við íslenskar
aðstæður að innleiða viðskiptalíkan
með raforku sem sniðið er að
gjörólíkum raforkumarkaði. Þar
munar mest um mikinn fjölda
raforkubirgja á mörkuðum ESB
sem skapar grundvöll fyrir frjálsa
samkeppni með raforku, en hérlendis
verður aldrei annað en fákeppni á
því sviði upp á teningnum sem
skapar hættu á markaðsmisnotkun í
orkukaupum hérlendis.“
Reist á áreiðanlegu aðgengi
að hráorku
„Orkuviðskiptalíkan ESB er reist
á áreiðanlegu aðgengi að hráorku
sem er aðallega jarðefnaeldsneyti,
en á Íslandi er hráorkan háð
duttlungum náttúrunnar. Úrfelli og
snjóbráð fyrir vatnsaflsvirkjanir og
vökvastreymi inn í gufuforðabúr
jarðgufuvirkjananna. Svo ekki sé
minnst á truflanavald á borð við eldgos
og jarðskjálfta. Þessar tvær tegundir
virkjana á Íslandi eru eðlisólíkar og
hafa ólíkt kostnaðarmynstur sem
skapar þeim ójafna samkeppnisstöðu.
Innbyrðis svipuð samkeppnisstaða
á orkumarkaði er hins vegar eitt
af skilyrðum fyrir því að frjáls
samkeppni á raforkumarkaði verði
notendum til hagsbóta.“
Gæti leitt til orkuskorts
„Langtíma raforkuskortur hér lendis
getur t.d. orðið vegna ótæpilegrar
notkunar á takmörkuðu miðlunarvatni
með skammtíma gróðasjónarmið í
huga. Eða vegna þess að fjárhagslegi
hvatinn til nýrra virkjana er of lítill
svo að nýjar virkjanir halda ekki í
við aukna raforkuþörf í landinu. Af
þessum sökum öllum og fleirum
mun frjáls markaður leiða til hærra
raforkuverðs á Íslandi en ella. Hann
skapar líka meiri hættu á alvarlegum
orkuskorti en þyrfti að vera ef viðhöfð
væri samræmd orkulindastjórnun.“
Hækkun orkuverðs
„Hækkun raforkuverðs og raforku-
skortur skerðir lífskjör almennings
og rýrir samkeppnisstöðu landsins
svo verulega að fælt getur fjárfesta
frá og dregið úr atvinnusköpun.
Í versta tilviki munu orkukræf
fyrirtæki neyðast til að leggja upp
laupana við mikinn óstöðugleika
á raforkumarkaði hérlendis. Þótt
frjáls samkeppni gagnist stórum
eldsneytiskerfum vel eru ýmis
slæm dæmi um markaðsvæðingu í
afmörkuðum vatnsorkukerfum. Það
sem hins vegar þarf að innleiða hér
til að ná þjóðhagslega hagkvæmustu
nýtingu á orkulindum er samræmd
orkulindastjórnun á öllum
helstu virkjunum landsins óháð
eignarhaldi.“
Landsvirkjun skipt upp vegna
markaðsráðandi stöðu
„Nú sér Landsvirkjun að miklu
leyti um þennan þátt, en aðeins
fyrir sínar virkjanir, sem anna um
80% af markaðnum. Slík samræmd
auðlindastjórnun þvert á fyrirtæki er
óleyfilegt opinbert markaðsinngrip
samkvæmt samkeppnisreglum
innri markaðar EES. Svo að bestu
orkulindanýtingu verður ekki
komið við eftir innleiðingu þriðja
orkumarkaðslagabálks ESB.“
Hvað mun gerast með
eignarhald orkufyrirtækjanna á
Íslandi eftir innleiðingu þriðja
orkumarkaðslagabálksins?
„Prófessor Peter T. Örebech
hefur sýnt fram á það í lögfræðilegri
greiningu sinni á lagalegri greiningu
Birgis Tjörva Péturssonar lögmanns
til iðnaðarráðherra, að fjórfrelsi
EES markaðarins tekur gildi
um allan orkugeirann í EFTA
löndunum þremur, nema um
einokunarstarfsemina í flutningum
og dreifingu, um leið og þriðji
orkumarkaðslagabálkurinn hefur
verið innleiddur. Þetta þýðir t.d. að
um leið og orkufyrirtæki eða hlutar úr
þeim verða til sölu, þá koma erlendir
kaupendur innan EES jafnt til greina
sem innlendir.
Það má ganga út frá því
sem vísu að ESA muni gera
athugasemd við ríkisstjórnina út af
yfirgnæfandi stærð Landsvirkjunar
á frjálsum raforkumarkaði á
Íslandi. Hugsanlegur ágreiningur
á milli ríkisstjórnarinnar og ESA
út af leyfilegri markaðshlutdeild
mun lenda hjá EFTA dómstólnum
sem mun dæma samkvæmt
samkeppnislögum Evrópuréttarins.
Þá mun Landsvirkjun í kjölfarið
væntanlega verða skipt, hugsanlega í
tvennt eða þrennt. Hvað verður þá um
afhendingarskuldbindingar gömlu
Landsvirkjunar er óljóst.“
Landsvirkjun færi líklega
í eigu erlendra aðila
„Við sölu á hlutum úr Landsvirkjun
munu einhverjar virkjanir og
samsvarandi orkunýtingarréttur
fyrirtækisins lenda hjá nýjum
eigendum. Í þeim hópi er líklegt að
finna megi stórt erlent orkufyrirtæki.
Þessari stöðu mála í orkugeiranum
hefur verið líkt við það að hleypa
stóru evrópsku útgerðarfyrirtæki inn
í landhelgina og sá samanburður er
ekki að ófyrirsynju.“
Fullyrðingar hraktar
Í tveimur greinargerðum íslenskra
lögmanna til iðnaðarráðherra og í
málflutningi ráðherra og ráðuneyta
hefur verið fullyrt, að í viðskiptum
með raforku á Íslandi muni ýmis
mikilvæg ákvæði EES samningsins
um innri markaðinn, t.d. um
bann við magntakmörkunum,
ekki gilda fyrr en komið hefur
verið á samtengingu íslenska
raforkukerfisins við umheiminn.
Þetta hrekur prófessor Örebech
rækilega í greiningu sinni á hluta
af greinargerð Birgis Tjörva
Péturssonar lögmanns.
Öll ákvæði EES samningsins
um viðskipti og fjármagnsflutninga
munu taka gildi um raforkugeirann
íslenska strax og Alþingi samþykkir
þriðja orkumarkaðslagabálkinn.
Starfræksla millilandasæstrengs
skiptir engu máli fyrir þá gildistöku
út af fyrir sig.“
Synjun Alþingis á leyfisveitingu
vegna sæstrengs yrði marklaus
„Ráðherra iðnaðarmála hefur
boðað framlagningu frumvarps
til laga um að afgreiðsla
leyfisumsókna um lagningu og
tengingu sæstrengs skuli verða
háð staðfestingu Alþingis. Það er
mjög til marks um fullveldisafsalið
til ESB sem felst í innleiðingu
þriðja orkumarkslagabálksins, að
synjun Alþingis á leyfisveitingu
Orkustofnunar og Landsreglarans
fyrir þessum streng, mun ekki hafa
nein lagaleg áhrif um niðurstöðu
málsins í Evrópurétti.
Þess má geta að Evrópugerð
númer 347-2013, felur í sér
samræmingu á mati EES
landanna á leyfisumsóknum á
orkuflutningsmannvirkjum milli
landa. Þar er m.a. kveðið á um að
samþykkja beri verkefnið ef það
er samfélagslega hagkvæmt og
samfélag í þessu sambandi er allt
Evrópska efnahagssvæðið. Það
má þess vegna búast við að öll
verkefni sem ACER hefur á annað
borð samþykkt inn á skrá ESB um
verkefni sameiginlegra hagsmuna
hljóti samþykki Landsreglara og
orkustofnunar viðkomandi lands.
Þess má geta að þrátt fyrir
mikinn kostnað og vafasama
fjárhagslega arðsemi styrkveitinga
er IceLink sæstrengurinn milli
Íslands og Bretlands enn inni á
þessari verkefnaskrá sameiginlegra
hagsmuna ESB.“
Meirihluti Norðmanna myndi
fagna synjun Alþingis
Í niðurlagi erindis síns á fundinum í
Háskóla Íslands sagði Bjarni:
„Áhætta Íslendinga af þessum
innleiðingum er margfalt meiri
en að hafa innleiðingu þriðja
orkumarkaðalagabálksins og þar
með allra fylgifiska hans sem hafa
komið frá Brussel og munu koma.
Meirihluti Norðmanna myndi fagna
synjun Alþingis því samningsstaða
Norðmanna er sterk við gerð
sérsamninga við ESB um gas- og
raforkuvirkjanir.”
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur:
Samþykkt þriðja orkumarkaðslagabálks
ESB yrði afdrifaríkt glappaskot
Bjarni Jónsson rafmagns verk fræð ingur á fundi í HÍ. Mynd / HKr.
Hugmyndir um lagningu
rafstrengs milli Íslands og
Bretlands hafa verið uppi á
borðinu í það minnsta á annan
áratug. Þetta verkefni fékk fyrir
nokkrum árum nafnið IceLink
og breskir ráðamenn hafa sótt
fast að það verði að veruleika.
Breska blaðið The Telegraph
birti frétt um það í júní sl. að
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra Íslands, hafi farið
fram á það við bresk yfirvöld
að samið yrði um fast orkuverð
til langs tíma vegna áforma um
sæstreng milli landanna. Haft er
eftir Bjarna að verkefnið þurfi að
fara í gegnum margar hindranir,
[pass a lot of hurdles] sem
vörðuðu m.a. umhverfismál og
skipulagsmál áður en það fengist
samþykkt. Einnig hafði blaðið
það eftir fjármálaráðherranum
að verkefnið muni nota íslensk
eldfjöll til að framleiða orku fyrir
bresk heimili.
Miðað við þessa frétt er leynt
og ljóst unnið að framgangi
málsins bæði af hálfu íslenskra
og breskra stjórnvalda.
Þessi mynd af verði raforku birtist í breska blaðinu The Telegraph í
janúar 2017 í tengslum við ítarlega úttekt á mögulegum sæstreng frá
Íslandi til Bretlands. Samvæmt þessu má ætla að raforkuverð á Íslandi
geti hækkað verulega. Bannað yrði að mismuna orku kaupendum hvorum
á sínum enda sæstrengsins IceLink um leið og hann yrði tengdur við
orkunet Evrópu. Það sama gerðist að mati norska lagaprófessorsins
Peter T. Örebech við innleiðingu orkupakka 3 jafnvel þó enginn strengur
af markaðsverði í Evrópu. Það getur þýtt að orkuverð til íslenskra
stjórnvöld hefðu hreinlega ekkert með það að segja, heldur ACER,
orkustofnun ESB.
Fjármálaráðherra vill fast verð
á raforku um sæstreng
ACER (Agency for the
Cooper ation of Energy Regu-
lators), sem er orkustofnun
Evrópusambandsins (ESB) hóf
starfsemi í Ljubljana í Slóveníu
árið 2011.
Hún hefur sett sæstreng
á milli Íslands og Bretlands
á verkefnaskrá sína undir
nafninu Ice Link. Aðstandendur
verkefnisins eru sagðir
Landvirkjun, Landsnet og
National Grid Interconnector
Holdings Ltd.
ACER – Agency for the Cooperation
of Energy Regulators og IceLink