Bændablaðið - 01.11.2018, Qupperneq 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 2018 23
Vigdís Hauksdóttir, lögfræðing-
ur, fyrrverandi alþingismaður
og núverandi borgarfulltrúi í
Reykjavík, hélt einnig tölu á
fund inum í HÍ. Hún sagði ljóst
að um gríðarlegt valdaframsal
yrði að ræða ef Alþingi samþykkti
orkupakka 3.
Sagði hún ljóst að það væru
ákveðin öfl sem hömuðust í því hér
á landi að einkavæða Landsvirkjun.
Innleiðing þessa orkupakka væri
mikilvægur hlekkur í því dæmi.
„Það hefur hér verið sýnt fram á
hvernig ESB vinnur, en þetta hefur
verið kallað „spægipylsuaðferðin“.
Fyrst kemur pakki 1, svo kemur
pakki 2, síðan pakki 3, jafnvel pakki
4 og í þessu felst meira og meira
valdaafsal fyrir ríkin þrjú sem eru
í EFTA.
Þetta er þvert á stjórnarskrá okkar
þótt stjórnarskrá Noregs sé aðeins
með öðrum hætti. Norðmenn hafa
breytt sinni stjórnarskrá í þá veru að
þeir viðurkenna valdaframsal vegna
reglugerða sem þarf að taka upp í
gegnum EES réttinn. Hér er þetta
ekki hægt. Þegar það er verið að taka
ákvörðun um svona hluti, eins og
þessi orkupakki 3 felur í sér, þá er
það skýrt brot á stjórnarskrá. Þá er
sagt, þetta hefur verið gert áður og
það er komið frumkvæði að slíku.
Einnig að þetta sé ekkert meira en
síðast og svo framvegis.
Hér er verið að leggja til stofnun
sem yfirtekur að mestu leyti yfirráð
okkar yfir orkumálunum. Áður hafa
komið upp mál þar sem er verið að
framselja dómsvald úr landi. Það
var mjög hörð umræða um það á
þarsíðasta þingi að mig minnir.“
Mikilvægt að standa í lappirnar
„Svona smám saman bresta varnirnar
okkar og það er ég ósátt við. Þess
vegna er mikilvægt að við stöndum
í lappirnar í þessu máli því hér er
verið að fjalla um náttúruauðlindir
Íslands. Ef það verður eitthvað sem
skortir í nánustu framtíð, þá eru það
náttúruauðlindir og þau gæði sem
þær gefa hverri þjóð sem þær hafa.
Orkuskortur er fyrir löngu orðinn
viðvarandi í ríkjum ESB. Það var
haldin þjóðaratkvæðagreiðsla í
Svíþjóð á síðustu öld um það hvort
ekki ætti að loka kjarnorkuveri í
Svíþjóð 2012. Eftir því sem ég best
veit er ekki enn búið að loka því.
Það er gríðarlegur orkuskortur í
ríkjum Evrópusambandsins og þar
eru gömul orkuver sem er verið
að loka vegna mengunar og það er
sá raunveruleiki sem við stöndum
frammi fyrir. – Hvert er þá gott að
líta? – Jú, til þess ríkis sem hefur
gnógt af fallvötnum og tækifærum
til að framleiða hreina orku sem svo
mikil eftirspurn er eftir, í stað þess
að framleiða orkuna með kolum,
olíu, gasi og jafnvel kjarnorku.
Við stöndum því á svo breyttum
tímamótum og þetta hefur verið
að gerast mun hraðar en við gátum
ímyndað okkur.“
Íslandi yrði skylt að tryggja
þurfandi ríkjum ESB orku
Vitnaði Vigdís einig í Lissabon-
sáttmálann sem væri í raun
stjórnarskrá Evrópusambandsins
og væri hafin yfir öll innri lög ríkja
sambandsins. Þar væri sérstakur 21.
bálkur og 194. grein um orkumál
sem segði m.a:
„Með tilliti stofnunar og starfsemi
innri markaðarins og með skírskotun
til þarfarinnar á að varðveita og bæta
umhverfið, skal stefna sambandsins
í orkumálum miða að því í anda
samstöðu meðal aðildarríkjanna, að
tryggja starfsemi orkumarkaðarins,
tryggja öryggi orkuafhendingar í
sambandinu, auka orkunýtni og
orkusparnað og stuðla að þróun
nýrra og endurnýjanlegra orkugjafa
og að stuðla að sameiningu orkuneta.
– Þarna liggur þetta allt fyrir.“
Sagði Vigdís það klára skyldu
ríkja í ESB að skaffa öðrum ríkjum í
sambandinu orku ef þau skorti orku.
Benti hún einnig á að í ESB
viðræðunum sem fram fóru við
íslensk stjórnvöld fyrir nokkrum
árum hafi ESB verið búið að lofa
íslenskum stjórnvöldum hagstæðu
láni til að leggja sæstreng – ef þau
bara gengju í sambandið.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra
húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr.
577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til:
viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa
menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og
mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.
sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í
samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016
um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í
byggð.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar,
menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis
fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna
á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2018. Umsóknir sem berast
eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af
hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit
um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og
varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir
Gagnasafn) og á Húsverndarstofu í Borgarsögusafni
Reykjavíkur/Árbæjarsafni.
Suðurgötu 39,101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2019
Öll verð eru í íslenskum krónum með vsk. og birtast með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur.
Tilboð gilda á meðan að birgðir endast.
gildir frá 15.10.-15.12.2018
Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is
SKOÐIÐ FLEIRI VORTILBOÐ FRÁ HOLZMANN Á
HEIMASÍÐU IÐNVÉLA: WWW.IDNVELAR.IS
WP20H
WP30PLUSWP20H WP30PLUS
verkstæðispressur WP20H & WP30PLUS
WP20H WP30PLUS
slag 190 mm 160 mm
þrýstingur 20 t 30 t
vinnusvæði 0-988 mm 166-1126 mm
stærð 850x1800 mm 780x750x1838 mm
þyngd 93 / 120 kg 170 / 206 kg
55.600,- 131.100,-
rafmagnshjól EKR20M
32.600,-
rafhlöðu borvél AKS45IND
23.500,-
tifsög DKS21PRO
20.467,-
rennibekkur tré D300F
55.000,-
rennibekkur og rennijárnasett
TILBOÐ
H AU S T
3 fasa - 1500/2200 W
20 m kapall
18 V - 2 lithium-ion rafhlöður
RAG - import export ∙ Helluhraun 4 220-Hafnarfjörður
Tel + 354 565-2727 ∙ Mobile + 354 892 7502 ∙ Email: rafn@rag.is
We are Fliegl.
Öflugar vélar.
Þarfnast lítils viðhalds.
SELDU HRYSSUR TIL LÍFS
Hrossabændur
óska eftir hryssum
Mega vera þriggja til fimmtán vetra
Sækjum frítt á Suður-, Vestur- og Norðurland.
Greiðum 25.000 kr. án vsk. fyrir hryssuna.
Upplýsingar: hryssa@isteka.com eða í síma 581 4138.
Geymið auglýsinguna!
Hryssur eru greiddar eftir reikningi og eftir umskráningu
í WorldFeng.
Valdaframsal vegna orkupakka 3
er skýrt brot á stjórnarskrá
– segir lögfræðingurinn og fyrrverandi alþingismaður, Vigdís Hauksdóttir
Vigdís Hauksdóttir. Mynd / HKr.
„Með lögleiðingunni framselur
Alþingi orkustofnun ESB, ACER
(Agency for the Cooperation of
Energy Regu lators), úrslitavald
yfir raforku flutnings málum
landsins.
Í ACER ræður hreinn meiri-
hluti fulltrúa ESB ríkjanna
ákvarðana tökunni, en Ísland mun
aðeins eiga þar áheyrnarfulltrúa.
Við ákvarðanatökur, er varða
hagsmuni Íslands, hallar mjög
á Ísland í þessari fjölþjóðlegu
stofnun.“
/Úr umsögn BJ við drögum að
frumvarpi til laga um breytingar
á orkulögum og lögum um
Orkustofnun (innleiðingu til-
skipunar og viðlagaákvæði).
Með innleiðingu orkupakka 3 framselur
Alþingi ACER úrslitavald