Bændablaðið - 01.11.2018, Síða 36

Bændablaðið - 01.11.2018, Síða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 201836 Bergur Jónsson og Olil Amble hlutu tvær viðurkenningar síðastliðna helgi þegar ræktunarbúið Ketilsstaðir / Syðri- Gegnishólar var kjörið ræktunarbú ársins 2018 á ráðstefnunni Hrossarækt. Um kvöldið hlutu þau svo viðurkenningu á Uppskeruhátíð hestamanna fyrir ræktun keppnishrossa. Mynd/Páll Imsland Hrossaræktarbúið Ketilsstaðir /Syðri-Gegnishólar var kjörið hrossaræktarbú ársins á ráðstefnunni Hrossarækt 2018 sem fram fór síðastliðinn laugardag. Það er óhætt að segja að Bergur Jónsson og Olil Amble reki eitt farsælasta hrossaræktarbú landsins en það hefur þrisvar sinnum áður hlotið titilinn, árin 2010, 2012 og 2015, auk þess að hafa átt nær fast sæti á lista yfir tilnefnd hross á síðasta áratug. Í ár komu fimmtán hross frá búinu fram í kynbótadóm, og þrettán þeirra hlutu fyrstu einkunn. Fjórtán þeirra voru sýnd hérlendis og náðu 8 þeirra þátttökurétti á Landsmóti. Meðaleinkunn þeirra 14 hrossa sem náðu 8 í aðaleinkunn eftir aldursleiðréttingu var 8,26, meðaleinkunn sköpulags var 8,29 og meðaleinkunn kosta 8,23. Þá hlaut Djörfung frá Ketils- stöðum heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og 1. sæti og er því handhafi Glettubikarsins í ár. Djörfung er 14 vetra gömul, er undan Álfasteini frá Selfossi og Framkvæmd frá Ketilsstöðum. Fimm afkvæmi hennar hafa hlotið fullnaðardóm og komu fjögur þeirra til dóms á árinu. Útreikningar við mat á ræktunarbúum ársins Gögnin sem liggja til grundvallar við val á ræktunarbúi ársins eru dómar allra fulldæmdra hrossa á viðkomandi ári, með IS í sínu fæðingarnúmeri, þ.e. fædd á Íslandi. Þá liggja og allar kynbótasýningar í heiminum undir. Aðeins hæsti dómur hvers grips telur með. Öll hross telja þar sem viðkomandi ræktandi er tilgreindur, þ.e. hross sem telja til stiga eru stundum ekki lengur í eigu viðkomandi ræktenda/bús. Fyrsta sían sem lögð er á gögnin er að a.m.k. fjögur hross frá búi hafi hlotið fullnaðardóm á árinu. Önnur sían að a.m.k. 2 þeirra hafi náð 8,00 í aðaleinkunn. Aðaleinkunnir hrossanna eru þá leiðréttar fyrir aldri og kyni líkt og gert er við útreikning á kynbótamatinu. Við útreikning á meðaleinkunn sýndra hrossa og samantekt á fjölda hrossa er aðeins horft til hrossa frá hverju búi sem ná 8,00 í aðaleinkunn (sem búið er að leiðrétta fyrir aldri og kyni) – lágmark er fjögur hross. Þá er búum raðað upp eftir fjölda sýndra hrossa og leiðréttum aðaleinkunnum. Stig þessara þátta eru lögð saman fyrir hvert bú og raðað eftir skori. Auk þess telja heiðurs- og fyrstu verðlaunagripir ræktenda, á sýningarárinu, til stiga við útreikning. Fagráð í hrossarækt tilnefnir á hverju ári tólf efstu búin til þessarar viðurkenningar og þegar það liggur fyrir hver þessi bú eru, eru þau metin og raðað að nýju innbyrðis eftir meðaleinkunn og fjölda hrossa svo endanleg röðun náist fram. Hér er yfirlit yfir árangur þeirra tólf búa sem tilnefnd voru fyrir árið 2018. Berg Anna Dóra Markúsardóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson stunda hrossarækt að Bergi á Snæfellsnesi. Fjögur hross voru sýnd frá búinu í ár og var meðaleinkunn þeirra 8,49. Meðaleinkunn sköpulags var 8,41 og meðaleinkunn kosta var 8,54. Fet Karl Wernersson og fjölskylda stendur að ræktunarbúinu Feti. Fimmtán hross liggja til grundvallar mati Fagráðs en meðaleinkunn þeirra er 8,16. Meðaleinkunn sköpulags er 8,24 og meðaleinkunn kosta er 8,11. Hæst dæmda hrossið frá Feti í ár er Sigyn sem stóð efst í 5 vetra flokki hryssa á Landsmóti. Auk þess hlaut Arndís frá Feti heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, en hún og Sigyn eru sammæðra, báðar undan heiðurs- verðlaunahryssunni Vigdísi frá Feti. Garðshorn á Þelamörk Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius rækta hross á Garðshorni á Þelamörk. Fjögur hross voru sýnd frá búinu í ár og var meðaleinkunn þeirra 8,42. Meðaleinkunn sköpulags var 8,38 og meðaleinkunn kosta var 8,44. Hæst dæmda hross búsins í ár er Adrían sem sigraði flokk 5 vetra stóðhesta á Landsmóti. Móðir Adríans, HROSS&HESTAMENNSKA Afkvæmastóðhesturinn Óskasteinn frá Íbishóli. Knapi er Guðmar Magnússon. Nafn Sköpulag Kostir Aðaleink. Hugmynd 8,13 8,86 8,57 Stúdent 8,43 8,63 8,55 Hugrökk 7,96 8,52 8,3 Framsýn 8,56 7,98 8,21 Aradís 8,3 8,15 8,21 Gígur 8,44 8 8,18 Dugur 8 8,2 8,12 Stinni 8,22 8,03 8,11 Örvænting 8,02 7,98 8 Álfaklettur 8,65 8,45 8,53 Álfgrímur 8,58 8,37 8,45 Huldumær 8,16 8,52 8,38 Ljósálfur 8,39 7,85 8,07 Stillir 8,22 7,7 7,91 Ketilsstaðir / Syðri-Gegnishólar Nafn Sköpulag Kostir Aðaleink. Berg Nafn Sköpulag Kostir Aðaleink. Kolka 8,1 8,34 8,25 Gerpla 8,36 8,27 8,31 Kilja 8,33 8,33 8,33 Brana 8,35 8,1 8,2 Njörður 8,19 7,71 7,9 Sigyn 8,48 8,62 8,56 María Hlín 8,31 7,87 8,05 Mekkín 8,46 8,24 8,33 Gefn 8,27 8,06 8,14 Malín 7,92 8,28 8,14 Vakning 8,01 8,05 8,04 Andri 8,14 7,85 7,97 Fenrir 8,33 8,39 8,37 Dröfn 8,18 7,83 7,97 Dáð 8,13 7,68 7,86 FET Nafn Sköpulag Kostir Aðaleink. Adrían 8,63 8,63 8,63 Arya 8,4 8,47 8,44 Kastor 8,21 8,41 8,33 Neptúnus 8,27 8,26 8,26 Garðshorn á þelamörk Nafn Sköpulag Kostir Aðaleink. Steinsholt Nafn Sköpulag Kostir Aðaleink. Hamarsey Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum og Bergur Jónsson. Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is Lukkudís frá Bergi á Fjórðungsmóti 2017. Knapi er Viðar Ingólfsson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.