Bændablaðið - 01.11.2018, Page 44

Bændablaðið - 01.11.2018, Page 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 201844 Fyrir skömmu var keyrt nýtt kynbótamat fyrir afurðir og frumutölu í nautgriparæktinni en með notkun mælidagalíkans bætist mun örar við afurðaupplýsingar dætra nautanna en áður þegar notast var við mjaltaskeiðslíkan. Fagráð í nautgriparækt fundaði í kjölfarið og tók ákvörðun um hvaða naut verða í dreifingu sem reynd naut á komandi mánuðum. Að þessu sinni var hægt að taka afstöðu til nánast allra nauta sem fædd voru árið 2013. Þannig hefur mælidagalíkanið flýtt afkvæmadómi nautanna um nánast eitt ár og munar um minna með tilliti til erfðaframfara. Fagráð ákvað að eftirtalin naut yrðu áfram í notkun: Fossdal 10040, Stólpi 11011, Skalli 11023, Bakkus 12001, Pipar 12007, Loki 12071, Sjarmi 12090, Dúett 12097, Polki 12099, Jörfi 13011, Víkingur 13017 og Hálfmáni 13022. Ákveðið var að setja fimm naut í dreifingu að lokinni afkvæmaprófun og eru þau öll fædd 2013. Þetta eru; Kakali 13009, Bárður 13027, Ýmir 13051, Steri 13057 og Lurkur 13084. Þau reyndu naut sem áfram eru í notkun hafa öll orðið traustan og sterkan dóm og hafa til að bera kosti sem geta nýst ræktunarstarfinu vel. Hér á eftir fer örstutt lýsing á helstu kostum þeirra og göllum en nánari upplýsingar um nautin er að finna í nautaskrám og á nautaskra.net. Fossdal 10040 frá Merkigil í Eyjafirði (f. Glæðir 02001, mf. Hamar 94009) er búinn að vera í dreifingu um nokkurt skeið en þetta er naut sem gefur miklar og skapgóðar mjólkurkýr með frábæra júgurgerð og mjög vel setta spena. Hins vegar er fituhlutfall í mjólk dætra hans fremur lágt og mjaltir þeirra undir meðallagi. Heildareinkunn 106. Stólpi 10011 frá Litla-Ármóti í Flóa (f. Lykill 02003, mf. Stíll 04041) verður áfram til notkunar en hann hefur haldið sinni sterku stöðu. Dætur hans eru mjólkurlagnar og júgurhraustar en fituhlutfall í mjólk er fremur lágt og mjaltir í tæpu meðallagi. Heildareinkunn 107. Skalli 11023 frá Steinnýjarstöðum á Skaga (f. Gyllir 03007, mf. Fontur 98027) státar áfram af góðu mati en dætur hans eru mjög mjólkurlagnar með góða júgurgerð og úrvalsgott skap. Efnahlutföll í mjólk eru hins vegar neðan meðallag. Heildareinkunn 106. Bakkus 12001 frá Auðsholti í Hrunamannahreppi (f. Ófeigur 02016, mf. Frami 05034) er með eitt hæsta mat nauta í landinu öllu. Dætur hans eru stórar afurðakýr með góðar mjaltir og frábært skap (með alhæstu nautum) en spenar eru grannir og gleitt settir. Heildareinkunn 113. Pipar 12007 frá Espihóli í Eyjafirði (f. Gyllir 03007, mf. Flói 02029) er efnahlutfallanaut þar sem dætur hans eru góðar afurðakýr með sérlega há efnahlutföll í mjólk. Þær státa af góðri byggingu, sterkri júgurgerð, vel settum spenum og góðum mjaltaeiginleikum. Heildareinkunn 108. Loki 12071 frá Bakka á Kjalarnesi (Birtingur 05043, mf. Þröstur 00037) hefur styrkt sína stöðu. Dætur hans eru mjólkurlagnar með ákaflega góða júgur- og spenagerð og góðar mjaltir sem skipar honum meðal hæstu nauta í mati. Heildareinkunn 110. Sjarmi 12090 frá Hrepphólum í Hrunmannahreppi (f. Koli 06003, mf. Laski 00010) heldur sinni gríðarsterku stöðu og kemur næstur Bamba 08049 í röð hæstu nauta í mati. Dætur Sjarma eru gríðarmiklar og skapgóðar mjólkurkýr með úrvalsgóða júgurgerð og góðar mjaltir. Heildareinkunn 114. Dúett 12097 frá Egilsstaðakoti í Flóa (f. Birtingur 05043, mf. Dúllari 07024) er einkum afurðanaut þar sem dætur hans eru mjólkurlagnar með há efnahlutföll í mjólk og góðar mjaltir. Byggingareiginelikar þeirra eru um meðallag án þess að um áberandi galla sé að ræða. Heildareinkunn 108. Polki 12099 frá Brúnastöðum í Flóa (f. Koli 06003, mf. Spotti 01028) bætir fyrst og fremst júgur- og spenagerð en dætur hans skarta af frábærri júgurgerð og einstaklega vel settum spenum sem eru í nettari kantinum. Polki er með hæstu nautum hvað júgur- og spenagerð snertir. Heildareinkunn 105. Jörfi 13011 frá Jörfa í Borgarbyggð (f. Birtingur 05043, mf. Skurður 02012) er gott alhliða naut en dætur hans eru gallalitlar en aftur á móti með frábæra júgur- og spenagerð sem auk þess eru ákaflega vel settir. Jörfi er meðal alhæstu nauta í mati fyrir júgur. Heildareinkunn 107. Víkingur 13017 frá Syðri- Knarartungu í Breiðuvík (f. Birtingur 05043, mf. Ingjaldur 04011) bætir sína stöðu en dætur eru gríðarlega mjólkurlagnar og skapgóðar. Byggingareiginleikar eru hins vegar nærri meðallagi og til galla verður að telja fremur langa spena og lágt fituhlutfall í mjólk. Heildareinkunn 111. Hálfmáni 13022 frá Brjánsstöðum í Grímsnesi (f. Vindill 05028, mf. Laski 00010) er afurðanaut umfram allt annað en dætur hans eru gríðarmiklar mjólkurkýr með há verðefni í mjólk. Hálfmáni er með næsthæsta mat allra nauta fyrir fitu% nú. Mjaltir og skap eru hvoru tveggja gott en bygging er nærri meðallagi án áberandi kosta eða galla. Heildareinkunn 110. Í hóp reyndra nauta í dreifingu koma nú fimm ný naut, öll fædd árið 2013 eins og áður sagði. Þessi naut eru: Kakali 13009 frá Engihlíð í Vopnafirði (f. Birtingur 05043, mf. Skurður 02012) sem gefur miklar mjólkurkýr með góð efnahlutföll í mjólk og mikla júgurhreysti. Þetta naut sækir mikinn styrk, eins og aðrir synir Birtings, í góða júgur- og spenagerð en mjaltir og skap eru í meðallagi þó lítið sé um galla í mjöltum. Heildareinkunn 107. Bárður 13027 frá Villingadal í Eyjafirði (f. Baldi 06010, mf. Laski 00010). Hér er á ferðinni alhliða naut sem gefur mjólkurlagnar kýr með há efnahlutföll í mjólk, góða júgur- og spenagerð og frábært skap þar sem ekki hefur verið merkt við skapgalla hjá neinni kú í mjaltaathugun. Heildareinkunn 107. Ýmir 13051 frá Klauf í Eyjafirði (f. Baldi 06010, mf. Laski 00010) er alhliða naut þar sem dætur hans eru mjólkurlagnar og júgurhraustar auk þess að skarta frábærri júgur- og spenagerð ásamt úrvalsgóðum mjöltum og skapi. Ýmir er með alhæstu nautum hvað júgurhreysti, júgurgerð og skap varðar. Til galla verður að telja lágt próteinhllutfall í mjólk. Heildareinkunn 108. Steri 13057 frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum (f. Koli 06003, mf. Aðall 02039). Steri kemur inn sem eitt af hæstu nautum í mati enda dætur hans með afbrigðum mjólkurlagnar og raunar er Steri hæsta naut landsins hvað þann eiginleika varðar. Hlutföll verðefna í mjólk eru há. Hvað aðra eiginleika snertir er Steri meðalnaut og t.d. eru mjaltir undir meðallagi og júgur mættu vera betur borin. Heildareinkunn 113. Lurkur 13084 frá Torfum í Eyjafirði (f. Kambur 06022, Ófeigur 02016) er alhliða naut þar sem dætur hans hafa til að bera mjólkurlagni með góðum hlutföllum verðefna, góða júgurgerð og góðar mjaltir og skap. Heildareinkunn 106. Reynt að horfa til fjölbreytni Við val þessara nauta hefur verið reynt að horfa til fjölbreytni í ætterni svo sem kostur er enda eru þessi 17 naut synir níu nautsfeðra. Upplýsingar um þessi fimm naut eiga að vera komnar til bænda á prentuðum spjöldum. Nautsfeður til notkunar næstu mánuði verða þeir Bakkus 12001, Sjarmi 12090, Hálfmáni 13022 og Steri 13057. Menn eru beðnir að huga sérstaklega að júgurgerð væntanlegra nautsmæðra ef nota á Stera en með það skal ekki leynt fara að dætur hans mættu gjarna skarta betur bornum júgrum. Þessar vikurnar er verið að kaupa nautkálfa undan nokkrum nautum. Þar hefur einkum verið um að ræða syni Lúðurs 10067 en einnig hafa boðist kálfar undan Strák 10011, Skalla 11023 og Skelli 11054. Þeir þrír eru hins vegar mun lægri í mati nú en þegar þeir voru í hópi nautsfeðra og því ljóst að undan þeim verður aldrei keyptur mikill fjöldi. Þá er þess beðið að synir Bakkusar og Sjarma fari að líta dagsins ljós og í fyllingu tímans munu synir Hálfmána og Stera bætast í þann hóp er sóttir verða til bænda til notkunar í kynbótastarfi íslenska kúastofnsins. Hæstu naut Sem fyrr trónir Bambi 08049 á toppnum með hæstu eildareinkunn allra nauta eða 116. Næstur kemur Sjarmi 12090 með 114 og svo þeir Bakkus 12001 og Steri 13057 með 113. Af þeim matadorum sem horfnir eru úr notkun stendur Úlli 10089 í 112, Dropi 10077 er með 111 ásamt Birtingi 05043. Úranus 10081 hefur aðeins dalað og er með 110, Lúður 10067 hefur haldið sínu með 110 og Gýmir 11007 hefur bætt í og er einnig með 110. Koli 06003 stendur enn fyrir sínu með 110 og skammt undan eru Baldi 06010, Sandur 07014 og Aðall 02039 með 109. Bolti 09021 er með 108 sem og Klettur 08030. Athyglisvert er að Salómon 04009 hefur styrkt sína stöðu og stendur nú í 108. Til fróðleiks þá hafa hinir miklu ættfeður Laski 00010 og Stígur 97010 nú 104 og 103 í einkunn. Miklar framfarir Ef litið er heilt yfir kynbótamatið má sjá hve framfari í júgur- og spenagerð hafa orðið miklar á undanförnum árum. Nú stendur mönnum til boða hópur nauta sem gefa öfluga og góða júgurgerð og slök spenagerð er að verða fátíð. Helsti gallinn eru gleitt settir framspenar en þó eru mörg góð naut í boði sem geta lagað eða bætt spenastöðu. Þá er greinilegt að mjaltir fara batnandi og áhrif þess að mjaltadómur byggir nú að verulega leyti á beinum mælingum að koma fram. Án efa munum við sækja hratt fram hvað mjaltir snertir á komandi árum. Tilkoma mælidagalíkans bæði flýtir og styrkir kynbótamatið og eykur þannig á efðaframfarir. Nú er staðan að verða sú að útlitsdómur og afurðamat haldast nokkuð í hendur, þ.e. afurðamat kúnna liggur fyrir á svipuðum tíma og nægur fjöldi dætra hefur verið útlitsdæmdur. Áhyggjuefni er hins vegar að skil á mjaltaathugun hafa dalað. Ég bið menn að huga að því og fylla mjaltaathugun samviskusamlega út og skila. Þarna sækjum við verulega mikilvægar upplýsingar sem standa undir stórum hluta einkunnar fyrir mjaltir og einkunn fyrir gæðaröð. Það er einkunn sem margir horfa til og án mats eða röðunar á dætrum nautanna verður hún markleysa ein. NAUT 2018 Reynd naut Nautastöðvar BÍ sem fyrirhugað er að nota sæði úr haustið 2018 Nafn og nr. Mjólk Fitu% Prótein% Afurðir Frjósemi Frumutala Gæðaröð Skrokkur Júgur Spenar Mjaltir Skap Ending Kynbótaeinkunn Hæð dætra Fossdal - 10040 109 84 96 107 95 116 92 98 117 98 89 102 116 106 5,8 Stólpi - 11011 116 82 92 110 105 115 90 94 98 105 90 105 114 107 5,6 Skalli - 11023 114 87 95 109 90 104 100 107 105 104 101 114 104 106 5,3 Bakkus - 12001 114 97 108 121 110 90 115 105 101 97 115 127 111 113 5,4 Pipar - 12007 105 121 112 112 97 104 99 106 113 110 112 96 98 108 5,4 Loki - 12071 111 99 109 116 105 86 96 104 117 104 112 94 113 110 5,5 Sjarmi - 12090 125 90 100 120 89 114 113 105 112 124 109 112 100 114 5,4 Dúett - 12097 115 115 121 115 100 94 101 99 102 103 109 97 111 108 5,9 Polki - 12099 102 106 110 104 90 104 107 103 124 123 98 95 109 105 5,6 Kakali - 13009 119 109 101 109 95 121 109 101 113 105 101 90 112 107 5,6 Jörfi - 13011 112 111 109 107 97 102 98 108 128 109 103 104 100 107 5,8 Víkingur - 13017 133 87 104 120 106 103 104 105 106 91 97 109 114 111 5,9 Hálfmáni - 13022 128 124 109 119 91 97 113 99 101 110 107 113 99 110 5,8 Bárður - 13027 113 114 107 106 90 100 112 101 122 107 105 127 108 107 5,8 Ýmir - 13051 122 100 84 101 94 127 121 104 127 110 115 121 100 108 5,8 Steri - 13057 135 115 109 126 100 102 94 107 103 113 89 106 100 113 5,8 Lurkur - 13084 112 106 106 108 108 93 118 102 114 98 110 112 100 106 5,8 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður í nautgriparækt mundi@rml.is Staða nautanna í október 2018 Bækur Ljóðabókin Homo economicus I eftir Sigfús Bjartmarsson Homo economicus I er heiti nýrrar ljóðabókar Sigfúsar Bjartmarssonar, en hann var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir síðustu ljóðabók sína, Andræði, sem kom út árið 2004. Í tilkynningu útgefandans MTH útgáfu segir: „Homo economicus I“ eru ljóðmæli sem fjalla um gleðileikinn íslenska fram að hruni og þessa manntegund sem aðhyllist frjálshyggju og markaðstrú. Einum kann að finnast ljóðin háð og spott, öðrum öfugmæli, þriðja skopstæling, fjórða oflof og þar með níð – en eitt er ljóst að aldrei áður hefur hinu íslenska „hagmenni“ verið gerð viðlíka skil í bundnu máli. Í þessu fyrra bindi hefur orðið íslenska afbrigði tegundarinnar og kallast „hólmsteinn!“ Ljóðmæli hans hljóta að teljast trúarlegur kveðskapur enda upphafin og innblásin af þeim ógnar sannfæringarkrafti sem brenglaði dómgreind mektarfólks og gáfnaljósa í aðdraganda hrunsins.“ Lakir dílar lækka menn en stórir stækka Þú skalt vinur, varast þá sem veðja á rangan hest. Í flokksins góða félagsskap færðu hollu ráðin best. Þú skalt huga helst að þeim hagnaði sem telur. Aldrei gerast einn af þeim sem uppá þína selur. Þú skalt kallinn, koma þér í klíkurnar sem telja, kallanna sem kompaníin kaupa flest og selja. Upp, upp, upp þín sál og allt þitt ríka geð. Okkar maður öruggt lán ekkert minnst á veð. * * * Æ skal gjöf til gjalda gróðafélögum sínum. Í feitra galta fláningu er feikna stuð á mínum.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.