Bændablaðið - 19.07.2018, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 20184
FRÉTTIR
Komið hefur í ljós að E.coli
bakteríur sem geta myndað
eiturefni og valdið alvarlegum
sýkingum eru hluti af örveruflóru
sauðfjár og nautgripa hér á landi.
Fyrstu niðurstöður skimunar
á vegum Matvælastofnunar
benda til að salmonella sé fágæt
í svínakjöti á markaði. Hvorki
salmonella né kampýlóbakter
hafa greinst í kjúklingasýnum í
skimununum sem nú standa yfir.
Evrópskar rannsóknir sýna að
tíðni ýmissa sjúkdómsvaldandi
örvera er að aukast hratt í
afurðagefandi dýrum í Evrópu.
Þetta er mikið áhyggjuefni þar sem
rannsóknir hafa gefið vísbendingu
um að slæmar bakteríur geta borist
í gegnum afurðir í menn.
Matvælastofnun í samvinnu við
Heilbrigðieftirlit sveitarfélaga hóf
skimun á sjúkdómsvaldandi örverum
í kjöti hér á landi fyrr á þessu ári. Til
stendur að skima bæði innlent og
innflutt kjöt.
Á árunum 2014 til 2015
vann Kristrún Sigurjónsdóttir
MS-verkefni við Háskóla Íslands
í samvinnu við Matís, Mast og
Heilbrigðiseftirlitið. Tekin voru
sýni úr umhverfi, saur nautgripa
og sauðfjár og af kjöti og skimað
var fyrir afbrigði E. coli baktería,
sem geta myndað eiturefni sem
kallast STEC. Í ljós kom að gen
sjúkdómavaldandi baktería finnast í
saur nautgripa og sauðfjár hérlendis.
Einnig greindust genin í kjöti og
hrámjólk.
Í framhaldi af því þótti ástæða
til að skoða nánar tilvist og tíðni
STEC í kjöti af nautgripum og
sauðfé á markaði þar sem líklegt er
að bakterían sé hluti af náttúrulegri
örveruflóru íslenskra nautgripa og
sauðfjár og svo hafi verið um langt
skeið.
Meinvirknigen í lamba- og
nautakjöti
Mast hefur lokið skimun á 111
kjötsýnum á markaði, 56 af
kindakjöti og 55 af nautagripakjöti.
Alls reyndust 23 sýni af kindakjöti
og 9 sýni af nautgripakjöti innihalda
eitt eða fleiri meinvirknigen og
sum einnig bindigenið sem þarf
til að sýking geti átt sér stað. 47
sýni af nautagripakjöti voru af
íslenskum uppruna og 8 af erlendum
uppruna. Eitt sýni af nautgripakjöti
með erlendan uppruna innihélt
meinvirknigen.
Í tilkynningu frá Matvælastofnun
segir að algeng sjúkdómseinkenni
vegna STEC-sýkinga séu
niðurgangur en í alvarlegum
tilfellum getur sjúkdómurinn leitt
til nýrnaskaða. Tíðni alvarlegra
sjúkdómstilfella af völdum STEC
er lág hér á landi.
Saurbakteríu í meltingarvegi
Svava Liv Edgarsdóttir,
fagsviðsstjóri neytendaverndar hjá
Matvælastofnun, segir að sýnin
sem hafi verið rannsökuð séu
tilviljanaúrtök úr verslunum.
„STEC er samheiti yfir E. coli
bakteríur sem geta myndað eiturefni
og valdið sýkingum. E. coli eru
saurbakteríur sem eru náttúrulega til
staðar í meltingarvegi dýra og manna
og gegna þar ákveðnu hlutverki.
Hluti þessara E. coli baktería
mynda eiturefni. Sermisgerðin O157,
svokölluð hamborgarabaktería, er
best þekkt og mest rannsökuð og
þekkt fyrir það að hún getur valdið
mjög alvarlegum sýkingum og
í verstu tilfellum nýrnabilun og
lífshættulegu ástandi.
Undanfarin ár hefur verið farið
að skima eftir öðrum sermistýpum
en O157 sem valdið hafa alvarlegum
sýkingum á borð við nýrnabilun.
Eins og O26, O111 og O145.“
Skimað fyrir fimm algengustu
sjúkdómsvöldunum
Að sögn Svövu hefur í skimunar-
verkefninu sem nú stendur yfir
verið skimað fyrir fimm algengustu
O-týpunum sem geta valdið
sýkingum og athugað hvort þær
finnist í kjöti á markaði hér.
„Undanfarin ár hafa sýkingar af
þessum völdum verið núll til þrjár á
ári og í mörgum tilfellum hafa þær
verið raktar til útlanda en einnig er
talið að um innlend smit hafi verið
að ræða.“
Svava segir að smitleiðir í kjöti
séu margar en að í mörgum tilfellum
eigi hún sér stað við fláningu eða
innanúrtöku sláturdýra ef gripirnir
eru ekki nógu hreinir þegar þeir
koma inn til slátrunar og ef ekki er
gætt fyllsta hreinlætis.
„Til þess að geta myndað
eiturefni þurfa O-sermisgerðirnar að
hafa í sér svokölluð meinvirknigen.
Byrjað er að skima eftir STEC
meinvirknigenum, ef þau finnast
er bakterían einangruð og reynt
að týpugreina hana sem tekst
ekki alltaf. Einnig er skimað
fyrir ákveðnum bindigenum sem
hjálpa bakteríunni að bindast við
meltingarveg manna og dýra og auka
þannig sýkingahættuna.“
Yfirborðsbaktería
„E. coli er yfirborðsbaktería sem fer
ekki inn í kjöt. En sé kjöt hakkað, eins
og til dæmis í hamborgara, blandast
bakterían í auknum mæli við kjötið.
Við góða eldun drepast bakteríurnar
en ekki ef hamborgararnir eru ekki
nógu vel eldaðir. Auk þess sem gæta
verður að krossmengun úr hráu kjöti
í önnur matvæli.“
Skimun á svínakjöti
Fyrstu niðurstöður skimunar
benda til að salmonella sé fágæt
í svínakjöti á markaði hér á landi.
Í frétt frá Matvælastofnun
segir að miklar forvarnir séu
viðhafðar hérlendis við eldi og
slátrun svína til að koma í veg
fyrir að afurðir svínakjöts fari á
markað sem síðar meir geta sýkt
neytendur af salmonellu. Tekin
eru sýni við slátrun til að fylgjast
með ástandi afurða og sannreyna
fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
mengun við slátrun.
Tíðni salmonellumengunar
við slátrun svína hefur verið lág
undanfarin ár, ef undanskilin er
snögg aukning á árinu 2009, 11,2%.
Síðan hefur tíðnin haldist lág og var
0,5% árið 2017.
Fyrir skömmu sendi Mat-
vælastofnun frá sér tilkynningu
vegna gruns um salmonellumengun
í spænsku svínakjöti eftir að
salmonella greindist í sýni. Kjötið
hefur verið innkallað.
Skimun á salmonellu og
kampýlóbakter í alifuglakjöti
Hvorki salmonella né
kampýlóbakter hafa greinst í
kjúklingasýnum í skimununum
sem nú standa yfir.
Mikill árangur hefur náðst í
baráttu við salmonellu frá síðustu
aldamótum. Á árunum 2005–
2007 greindist engin salmonella í
alifuglum og lengi tókst að halda
tíðni smits um eða undir 1%. Árið
2010 jókst tíðni salmonellu talsvert
í kjúklingaeldi, en þá þurfti að
innkalla 3,6% sláturhópa vegna
þess að salmonella greindist í þeim.
Síðan þá hefur dregið úr tíðninni
og var 0,1% sláturhópa innkallaður
árið 2017.
Í dag er krafist vottorða um
sýnatöku vegna salmonellu með
erlendu kjöti og gerð krafa um
að það hafi verið fryst í 30 daga.
/VH
Sumarlokun hjá BÍ
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands í
Bændahöllinni við Hagatorg verða
lokaðar vegna sumarleyfa dagana
23. júlí til 13. ágúst. Símaþjónusta
verður veitt eftir sem áður.
Bændablaðið heldur sínu striki
og kemur næst út 2. ágúst.
Svava Liv Edgarsdóttir, fag sviðs-
stjóri neytendaverndar hjá Mat-
vælastofnun.
sem geta myndað eiturefni og valdið
Greinaflokkur
um vottanir og
merkingar
Í fyrravetur ákvað fagráð matvæla
hjá Íslandsstofu að taka sérstaklega
til umfjöllunar vottanir og upp-
runamerkingar matvæla. Oddný
Anna Björnsdóttir var fengin til
verksins og skilaði ítarlegri skýrslu
um stöðu mála. Hún mun í næstu
Bændablöðum birta pistla sem unnir
eru upp úr verkefni Íslandsstofu þar
sem fjallað verður um vottanir og
upprunamerkingar frá ýmsum sjón-
arhornum. Fyrsta greinin er birt á
bls. 42 hér í blaðinu.
Íslandsstofa taldi þörf á því að
kortleggja vottanir og fjalla m.a. um
eðli þeirra, staðlagerð, staðlaeigend-
ur og gildi faggildingar. Markmiðið
væri að auka verðmæti íslenskra
matvæla og hjálpa fyrirtækjum og
öðrum matvælaframleiðendum að
fóta sig í frumskógi ólíkra vottana
og átta sig á virði þeirra í markaðs-
starfi.
Oddný Anna starfar sem ráðgjafi
en hún er menntaður viðskipta-
fræðingur. Hún hefur m.a. verið
deildarstjóri hjá Össuri á Íslandi
og í Kaliforníu, framkvæmdastjóri
heildsölunnar Yggdrasils og sér-
fræðingur hjá Krónunni. Nýlega
festu hún og eiginmaður hennar
kaup á jörðinni Gautavík í Berufirði
þar sem þau reka fyrirtæki sitt,
Geisla hönnunarhús, og hyggjast
stunda blandaðan búskap. /TB
Oddný Anna Björnsdóttir.
Hægir á fjölgun
ferðamanna
Ferðamálastofa gaf nýverið út tölur
um fjölda ferðamanna hingað til
lands. Í þeim kemur fram að brott-
farir erlendra farþega frá Íslandi
um Keflavíkurflugvöll í júní hafi
verið rúmlega 234 þúsund talsins
sem eru 12 þúsund fleiri farþegar
en á sama tímabili í fyrra. Hins
vegar er fjölgunin hlutfallslega
minni á milli ára en mörg undan-
farin ár, eða 5,4%.
Af þeim farþegum sem hingað
komu voru flestir frá Bandaríkjunum,
eða um 40% heildarfarþegafjöldans,
og hefur þeim fjölgað um 29,1% á
milli ára. Þjóðverjum fækkar veru-
lega og sömuleiðis farþegum frá
Norðurlöndunum.
Íslendingar leita í auknum mæli út
fyrir landsteinana, en um 71 þúsund
Íslendingar fóru utan í júní, sem er
14,4% fleiri en í júní 2017. Frá ára-
mótum hefur brottförum Íslendinga
fjölgað um 11,7% miðað við sama
tímabil í fyrra. Sennilega hefur veð-
urfarið og Heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu karla haft sitt að segja í
þeim efnum. /BR
Örveruskimun í kjöti á íslenskum markaði:
Sjúkdómsvaldandi bakteríur eru hluti
af örveruflóru sauðfjár og nautgripa
Sala á jörðum til erlendra auðmanna veldur ugg :
Búseta verði áfram tryggð til
sveita við sölu á bújörðum
Undanfarið hefur verið fjallað
um kaup erlendra aðila á jörðum
víða um land. M.a. fjallaði
Bændablaðið um kaup breska
auðmannsins James Ratcliffe á
jörðum í Vopnafirði og meirihluta
Grímsstaða á Fjöllum.
Félag sem keypti nýverið 75%
hlut í Hótel Kötlu í Mýrdalshreppi er
í eigu bandarísks fjárfestingafélags.
Þá á Svisslendingurinn Rudolf
Walter Lamprecht nokkrar jarðir
í Mýrdalshreppi þar sem m.a. eru
mikil vatnsréttindi og veiðiréttindi
í Kerlingardalsá og Vatnsá.
Þessi kaup eru gerð í skjóli
regluverks sem er greinilega
mjög ólíkt því sem tíðkast t.d. í
Danmörku. Þrátt fyrir að Danir séu
hluti af Evrópusambandinu þá hafa
þeir sett ströng skilyrði fyrir kaupum
á bújörðum þar í landi.
Stjórn Bænda -
samtaka Íslands
vill að stuðlað
verði að því að
það sé ábúð á sem
flestum jörðum
og þar sé stunduð
einhvers konar
starfsemi sem
kallar á að fólk sé á staðnum sem
tekur þátt í samfélaginu á svæðinu.
Herða skal tökin
Þrátt fyrir að ráðamenn á Íslandi telji
að ekki sé hægt að setja sérstakar
reglur um aðila innan EES þá telur
Einar Ófeigur Björnsson, fulltrúi
Bændasamtakanna í starfshópi
um endurskoðun laga um kaup
erlendra aðila á bújörðum, eðlilegt
að það fylgi því einhverjar kvaðir
að kaupa og eiga jörð. Það sé þó of
langt gengið að hafa ábúðarskyldu,
en hann sjái fyrir sér að einhvers
konar rekstrarskyldu yrði komið á.
Það sé þó heppilegast að bændur eigi
jarðir sínar sjálfir sem víðast. Einar
segir það áhyggjuefni ef eignarhald
jarða fer að færast á færri hendur.
„Það er kannski í lagi í fyrstu
kynslóð en svo kemur nýtt fólk og
ný sjónarmið sem ekki er sjálfgefið
að séu hagstæð þeim sem búa á
svæðinu. Það gæti verið ástæða til
að setja fjöldatakmarkanir á einstaka
aðila um það hvað þeir megi eiga
margar jarðir og einnig mætti huga að
einhvers konar hámarki sem einstakir
aðilar gætu átt í ferkílómetrum. “
Jörð er ekki bara jörð
Magnús Leópoldsson fasteigna-
sali, sem hefur komið að jarðasölu
í áratugi, segir að nauðsynlegt
sé að skilgreina nýtingu jarða og
svæða þannig að hægt sé að tryggja
viðeigandi búsetu. Land sem hentar
til búskapar ætti að vera nýtt sem
slíkt, og jarðir sem henti ekki sem
slíkar ættu að skilgreinast á annan
hátt. Í því samhengi þurfi að hugsa
um almannahagsmuni. Þau viðskipti
sem stunduð hafa verið undanfarið
hafa ýtt undir umræðu um jarðaverð
bújarða. Magnús segir að seljendur
setji oft óraunhæfan verðmiða
á jarðir og slái svo hressilega af
verðinu þegar fram líður. Hann
segir jarðaverð ekki vera að lækka,
það sé nokkuð stöðugt. Verðið hafi
smátt og smátt verið að hækka eftir
efnahagshrunið og sé um það bil
að ná því verði sem það var fyrir
hrun. /BR/HKr.
Einar Ófeigur
Björnsson.