Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 21 Eurostat sýnir vel áhrif húsnæðisliðar á vextina Fjölþjóðlegar stofnanir eins og Eurostat, hagstofa Evrópu, rýna töluvert í íslenskar hagtölur og nota þær m.a. í samanburðarútreikningum um vaxtamál. Þar kemur skýrt fram hvernig húsnæðisliðnum er leyft að bjaga skuldastöðu íslenskra heimila í gegnum neysluvísitölu, þvert á það sem þekkist í ríkjum Evrópusambandsins. Þar er útlistuð reiknuð árleg verðbólga í öllum Evrópu- sambandsríkjunum, auk Noregs, Sviss og Íslands. Það er þó greinilega eftir allt annarri formúlu en Seðlabanki Íslands og Hagstofan leyfa sér að nota. Eurostat notar samræmda neysluvísitölu (Harmonised Index of Consumer Prices - HICP), líkt og hér er gert, en innihald vísitölunnar er greinilega ekki það sama. Samkvæmt Eurostat hefur ríkt verðhjöðnun á Íslandi en ekki verðbólga undanfarin misseri. Húsnæðisþátturinn í neysluverðsútreikningum hér á landi gerir það hins vegar að verkum að íslenskir skuldarar hafa verið að greiða margfalt meiri vaxtakostnað en ætti að vera ef Íslendingar nytu sömu kjara og flestar aðrar Evrópuþjóðir. Verðtryggingin á stórum hluta húsnæðislána gerir hlutina svo enn verri. Húsnæðisliðurinn hækkar nefnilega neysluverðsvísitöluna sem notuð er til að reikna út verðtryggingu ofan á vextina. Þetta hleðst svo allt saman ofan á höfuðstól sem hækkar og hækkar, í það minnsta fram yfir miðjan greiðslutíma lánanna. Niðurstaðan er því sú að lánagreiðendur greiða jafnvel margfalt húsverð fyrir íbúðir sínar á lánstímanum og mörg fyrirtæki sligast undan vaxtabyrði. Þetta hefur síðan keðjuverkandi áhrif á allt verðlag. Gróði lánveitenda verður aftur á móti stjarnfræðilegur. Seðlabanki Íslands segir okkur að verðbólgan um síðustu mánaðamót hafi verið 2,6% og þá aukist um 0,3 prósentustig á milli mánaða. Er þá að sjálfsögðu reiknað samkvæmt séríslenskri hagspeki með húsnæðisliðinn inni í jöfnunni, sem önnur Evrópulönd gera ekki. Stýrivextirnir, sem nú má ekki kalla annað en meginvexti, eru 4,25% og hafa ekkert breyst síðan 18. apríl. Lengst af á síðustu misserum hafa þeir reyndar verið yfir 5%. Þannig bætist 2,6% verðbólga ofan á 4,25% stýrivexti. Þetta reikna bankarnir svo líka ofan á öll verðtryggðu lánin sem skilar þeim auðvitað mun meiri gróða en ef húsnæðisliðurinn væri ekki inni í vísitölu neysluverðs. Samanburðurinn við útlönd versnar því stöðugt vegna uppsöfnunar á höfuðstól hjá þeim sem eru með verðtryggð lán. Reynir á þolrifin Þessi staða hefur mjög reynt á þolrif þjóðfélagsins og þúsundir fjölskyldna hafa lent í vandræðum og fjölmargar orðið gjaldþrota með tilheyrandi félagslegum vandamálum. Samt berja þeir sem ferðinni ráða enn hausnum við stein og keyra þessar hundakúnstir í vaxtaútreikningum yfir allan almenning án þess að skeyta nokkuð um alvarleika málsins fyrir borgarana. Væntanlega er ofurtrú og tryggð við úreltar hagfræðikenningar frekar en eitthvað annað sem ræður þessu feigðarflani. Allavega er vart hægt að trúa því að illvilji ráði þarna för. Ofan á allt þetta þá var verðlag einkaneyslu heimila í 37 Evrópuríkjum sem Eurostat hefur tekið til skoðunar hæst á Íslandi árið 2017. Það var 66% yfir meðaltali ESB28. Í fjórum af sex undirliðum var verðlag hæst á Íslandi. Undantekningarnar eru annars vegar matur og drykkur og hins vegar farartæki. Verðlag á mat og drykk var hæst í Sviss, þar á eftir kom Noregur og Ísland var í þriðja sæti. Verðlag á farartækjum var hæst í Danmörku, þar á eftir komu Noregur og Ísland. Blikur á lofti Með haustinu munu verkalýðsfélög fara að blása í herlúðra vegna komandi kjarasamninga. Það þarf enginn að efast um að eins og staðan er nú, verður látið sverfa til stáls. Þá gildir einu þó Íslendingar hafi það að meðaltali skrambi gott samkvæmt öllum exel-reiknilíkönum. Fólki er einfaldlega ofboðið vegna launasjálftöku toppa í fyrirtækjum og stofnunum samfélagsins svo ekki sé talað um ofurgjörninga í launa- og arðgreiðslum sem þekkjast í einkageiranum. Það að stjórnandi sveitarfélags og þjónn almennings sé jafnvel að taka fyrir klukkutíma fundarsetu í stofnun sveitarfélagsins mánaðarlaun verkakonu, er eitthvað sem engin hugsandi manneskja getur sætt sig við. Því munu næstu vikur og mánuðir skera úr um hvort þeir sem ráða stefnunni í fjármálastjórn landsins séu tilbúnir til að hlusta á almenning í landinu sem er misboðið. Einnig hvort þeir eru tilbúnir til að brjóta odd af oflæti sínu og viðurkenna misgjörðir síðustu áratuga í vaxta- og verðtryggingarmálum. Elítan hlusti á fólkið Hingað til hafa menn verið gjarnir á að taka gagnrýni á þessi mál sem persónulegar árásir. Víst er að samfélagsmiðlar hafa ekki hjálpað til með oft og tíðum afar ljótri, óvæginni og órökstuddri umræðu og dylgjum. Vegna þess hafa menn víða hrokkið í vörn og hnyklað vöðva. Ef menn settust hins vegar niður og litu raunsætt á málin án þess að láta einstök trúarrit hagfræðikenninga stýra för, þá þyrfti íslensk hagstjórn ekki að horfa fram á óánægjubylgju rísa við sjóndeildarhringinn. Bandaríkjamenn hafa líka þurft að stíga slíkar öldur. Þar var ekki hlustað á fólkið sem stóð utan ráðandi elítu landsins. Þess vegna uppskáru menn eins og þeir sáðu til og sitja nú uppi með forseta sem hefur ruglað svo í stjórnkerfi heimsins að menn vita vart sitt rjúkandi ráð. Stofnanir sem ætlað var að hafa hemil á hagkerfi heimsins Samkvæmt gögnum Alþjóðabankans (The World Bank) eru lán gegnum gangandi með innbyggða trygginga- skilmála af einhverju tagi. Á Íslandi hafa menn í æ ríkari mæli byggt á veðtryggingum í fasteignum. Alþjóðabankinn vinnur mjög náið með þróunarlöndum, enda eitt af yf- irlýstum markmiðum hans að draga úr fátækt. Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er aftur á móti ætlað að halda stöð- ugleika í alþjóðlega peningakerfinu og er með inngrip í peningastjórn ríkja eftir því sem þurfa þykir. Þjóðir heims geta hins vegar ekki fengið að ganga að Alþjóðbankanum nema gerast fyrst aðilar að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ísland var aðili að þeim fimm stofnunum sem mynduðu Alþjóðabankann þann 27. desember 1945. Umdeild afskipti Aðkoma Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að vandamálum sem upp hafa komið er mjög umdeild. Þykja kröfur þeirra ekki alltaf vera í tak við hagsmuni íbúa og hafa þessar stofnanir þráfaldlega verið sakaðar um að gæta fyrst og fremst hagsmuna fjármálaaflanna. Þannig var t.d. hart gengið eftir því eftir efnahagshrunið á Íslandi að Íslendingar samþykktu afarkosti vegna svokallaðra Icesave-samninga útibús gamla Landsbankans í London, þrátt fyrir að vitað væri að það yrði öllum almenningi mjög dýrkeypt. Það var fyrst og fremst fyrir harða afstöðu þáverandi forseta, Ólafs Ragnars Grímssonar, að þjóðin fékk að kjósa um hvort hún vildi samþykkja þá hörðu skilmála eða ekki. Þrátt fyrir gífuryrði og hótanir um að hér færi allt til fjandans ef ekki yrði gengið að þessum skilmálum, þá hefur það ekki ræst. Heldur er staðan nú þvert á móti mun betri en ætla mætti ef allur sá skuldaklafi af völdum einkaaðila í bankageiranum væri á herðum þjóðarinnar. Aftur á móti hafa sumar aðrar þjóðir, vegna sinnar stöðu í milliríkjasamningum, neyðst til að fara að kröfum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Staða margra þeirra landa er enn hörmuleg. Nægir þar að nefna Grikkland, Spán og Ítalíu. Óánægja magnast og þar myndast góður jarðvegur fyrir öfgahreyfingar til hægri og vinstri. BETA SUMARTILBOÐ ekki bara gott verð... 7865E Kr. 8.874.- 7816G Kr. 6.900.- 7863 Kr. 8.060.- 7200BKK Kr. 7.485.- 7216BKK Kr. 7.854.- Öll sumartilboðin frá Beta má sjá á heimasíðu Iðnvéla: www.idnvelar.is 0,00 5,00 10,00 15,00 20,00 25,00 Sviss Finnland Þýskaland Frakkland Slóvakía Danmörk Litháen Austurríki Tékkland Belgía Spánn Ítalía Holland Svíþjóð Eistland Noregur Lettland Portúgal Bretland Slóvenía Rúmenía Malta Pólland Írland Serbía Búlgaría Grikkland Króatía Ungverjaland Bosnía Herzegovina Kosovo Albanía Ísland Macedonía Rússland Moldova Hvíta Rússland Úkraína Heimild: NUMBEO Bændablaðið / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.