Bændablaðið - 19.07.2018, Qupperneq 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 21
Eurostat sýnir vel áhrif
húsnæðisliðar á vextina
Fjölþjóðlegar stofnanir eins og
Eurostat, hagstofa Evrópu, rýna
töluvert í íslenskar hagtölur og nota
þær m.a. í samanburðarútreikningum
um vaxtamál. Þar kemur skýrt fram
hvernig húsnæðisliðnum er leyft
að bjaga skuldastöðu íslenskra
heimila í gegnum neysluvísitölu,
þvert á það sem þekkist í ríkjum
Evrópusambandsins.
Þar er útlistuð reiknuð árleg
verðbólga í öllum Evrópu-
sambandsríkjunum, auk Noregs,
Sviss og Íslands. Það er þó
greinilega eftir allt annarri formúlu
en Seðlabanki Íslands og Hagstofan
leyfa sér að nota. Eurostat
notar samræmda neysluvísitölu
(Harmonised Index of Consumer
Prices - HICP), líkt og hér er gert, en
innihald vísitölunnar er greinilega
ekki það sama. Samkvæmt Eurostat
hefur ríkt verðhjöðnun á Íslandi
en ekki verðbólga undanfarin
misseri. Húsnæðisþátturinn í
neysluverðsútreikningum hér á
landi gerir það hins vegar að verkum
að íslenskir skuldarar hafa verið að
greiða margfalt meiri vaxtakostnað
en ætti að vera ef Íslendingar
nytu sömu kjara og flestar aðrar
Evrópuþjóðir. Verðtryggingin
á stórum hluta húsnæðislána
gerir hlutina svo enn verri.
Húsnæðisliðurinn hækkar nefnilega
neysluverðsvísitöluna sem notuð
er til að reikna út verðtryggingu
ofan á vextina. Þetta hleðst svo
allt saman ofan á höfuðstól sem
hækkar og hækkar, í það minnsta
fram yfir miðjan greiðslutíma
lánanna. Niðurstaðan er því sú
að lánagreiðendur greiða jafnvel
margfalt húsverð fyrir íbúðir sínar
á lánstímanum og mörg fyrirtæki
sligast undan vaxtabyrði. Þetta
hefur síðan keðjuverkandi áhrif
á allt verðlag. Gróði lánveitenda
verður aftur á móti stjarnfræðilegur.
Seðlabanki Íslands segir
okkur að verðbólgan um síðustu
mánaðamót hafi verið 2,6% og þá
aukist um 0,3 prósentustig á milli
mánaða. Er þá að sjálfsögðu reiknað
samkvæmt séríslenskri hagspeki
með húsnæðisliðinn inni í jöfnunni,
sem önnur Evrópulönd gera ekki.
Stýrivextirnir, sem nú má
ekki kalla annað en meginvexti,
eru 4,25% og hafa ekkert breyst
síðan 18. apríl. Lengst af á síðustu
misserum hafa þeir reyndar verið
yfir 5%. Þannig bætist 2,6%
verðbólga ofan á 4,25% stýrivexti.
Þetta reikna bankarnir svo líka
ofan á öll verðtryggðu lánin sem
skilar þeim auðvitað mun meiri
gróða en ef húsnæðisliðurinn væri
ekki inni í vísitölu neysluverðs.
Samanburðurinn við útlönd versnar
því stöðugt vegna uppsöfnunar á
höfuðstól hjá þeim sem eru með
verðtryggð lán.
Reynir á þolrifin
Þessi staða hefur mjög reynt á
þolrif þjóðfélagsins og þúsundir
fjölskyldna hafa lent í vandræðum
og fjölmargar orðið gjaldþrota
með tilheyrandi félagslegum
vandamálum. Samt berja þeir sem
ferðinni ráða enn hausnum við
stein og keyra þessar hundakúnstir
í vaxtaútreikningum yfir allan
almenning án þess að skeyta
nokkuð um alvarleika málsins
fyrir borgarana. Væntanlega er
ofurtrú og tryggð við úreltar
hagfræðikenningar frekar en
eitthvað annað sem ræður þessu
feigðarflani. Allavega er vart hægt
að trúa því að illvilji ráði þarna för.
Ofan á allt þetta þá var
verðlag einkaneyslu heimila í 37
Evrópuríkjum sem Eurostat hefur
tekið til skoðunar hæst á Íslandi árið
2017. Það var 66% yfir meðaltali
ESB28.
Í fjórum af sex undirliðum
var verðlag hæst á Íslandi.
Undantekningarnar eru annars
vegar matur og drykkur og hins
vegar farartæki.
Verðlag á mat og drykk var hæst
í Sviss, þar á eftir kom Noregur og
Ísland var í þriðja sæti. Verðlag á
farartækjum var hæst í Danmörku,
þar á eftir komu Noregur og Ísland.
Blikur á lofti
Með haustinu munu verkalýðsfélög
fara að blása í herlúðra vegna
komandi kjarasamninga. Það þarf
enginn að efast um að eins og staðan
er nú, verður látið sverfa til stáls. Þá
gildir einu þó Íslendingar hafi það að
meðaltali skrambi gott samkvæmt
öllum exel-reiknilíkönum. Fólki
er einfaldlega ofboðið vegna
launasjálftöku toppa í fyrirtækjum
og stofnunum samfélagsins svo
ekki sé talað um ofurgjörninga
í launa- og arðgreiðslum sem
þekkjast í einkageiranum. Það að
stjórnandi sveitarfélags og þjónn
almennings sé jafnvel að taka fyrir
klukkutíma fundarsetu í stofnun
sveitarfélagsins mánaðarlaun
verkakonu, er eitthvað sem engin
hugsandi manneskja getur sætt
sig við. Því munu næstu vikur og
mánuðir skera úr um hvort þeir
sem ráða stefnunni í fjármálastjórn
landsins séu tilbúnir til að hlusta
á almenning í landinu sem er
misboðið. Einnig hvort þeir eru
tilbúnir til að brjóta odd af oflæti
sínu og viðurkenna misgjörðir
síðustu áratuga í vaxta- og
verðtryggingarmálum.
Elítan hlusti á fólkið
Hingað til hafa menn verið gjarnir
á að taka gagnrýni á þessi mál
sem persónulegar árásir. Víst
er að samfélagsmiðlar hafa ekki
hjálpað til með oft og tíðum afar
ljótri, óvæginni og órökstuddri
umræðu og dylgjum. Vegna þess
hafa menn víða hrokkið í vörn og
hnyklað vöðva. Ef menn settust
hins vegar niður og litu raunsætt
á málin án þess að láta einstök
trúarrit hagfræðikenninga stýra
för, þá þyrfti íslensk hagstjórn
ekki að horfa fram á óánægjubylgju
rísa við sjóndeildarhringinn.
Bandaríkjamenn hafa líka þurft
að stíga slíkar öldur. Þar var ekki
hlustað á fólkið sem stóð utan
ráðandi elítu landsins. Þess vegna
uppskáru menn eins og þeir sáðu
til og sitja nú uppi með forseta
sem hefur ruglað svo í stjórnkerfi
heimsins að menn vita vart sitt
rjúkandi ráð.
Stofnanir sem ætlað var að hafa
hemil á hagkerfi heimsins
Samkvæmt gögnum Alþjóðabankans
(The World Bank) eru lán gegnum
gangandi með innbyggða trygginga-
skilmála af einhverju tagi. Á Íslandi
hafa menn í æ ríkari mæli byggt
á veðtryggingum í fasteignum.
Alþjóðabankinn vinnur mjög náið
með þróunarlöndum, enda eitt af yf-
irlýstum markmiðum hans að draga
úr fátækt. Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
er aftur á móti ætlað að halda stöð-
ugleika í alþjóðlega peningakerfinu
og er með inngrip í peningastjórn
ríkja eftir því sem þurfa þykir.
Þjóðir heims geta hins vegar ekki
fengið að ganga að Alþjóðbankanum
nema gerast fyrst aðilar að
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ísland
var aðili að þeim fimm stofnunum
sem mynduðu Alþjóðabankann þann
27. desember 1945.
Umdeild afskipti
Aðkoma Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að
vandamálum sem upp hafa komið
er mjög umdeild. Þykja kröfur
þeirra ekki alltaf vera í tak við
hagsmuni íbúa og hafa þessar
stofnanir þráfaldlega verið sakaðar
um að gæta fyrst og
fremst hagsmuna
fjármálaaflanna. Þannig
var t.d. hart gengið eftir
því eftir efnahagshrunið
á Íslandi að Íslendingar
samþykktu afarkosti
vegna svokallaðra
Icesave-samninga útibús
gamla Landsbankans í
London, þrátt fyrir að
vitað væri að það yrði
öllum almenningi mjög
dýrkeypt. Það var fyrst
og fremst fyrir harða
afstöðu þáverandi
forseta, Ólafs Ragnars
Grímssonar, að þjóðin
fékk að kjósa um hvort
hún vildi samþykkja
þá hörðu skilmála eða
ekki. Þrátt fyrir gífuryrði og hótanir
um að hér færi allt til fjandans
ef ekki yrði gengið að þessum
skilmálum, þá hefur það ekki ræst.
Heldur er staðan nú þvert á móti
mun betri en ætla mætti ef allur sá
skuldaklafi af völdum einkaaðila
í bankageiranum væri á herðum
þjóðarinnar. Aftur á móti hafa sumar
aðrar þjóðir, vegna sinnar stöðu
í milliríkjasamningum, neyðst til
að fara að kröfum Alþjóðabankans
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Staða margra þeirra landa er enn
hörmuleg. Nægir þar að nefna
Grikkland, Spán og Ítalíu. Óánægja
magnast og þar myndast góður
jarðvegur fyrir öfgahreyfingar til
hægri og vinstri.
BETA SUMARTILBOÐ
ekki bara gott verð...
7865E
Kr. 8.874.-
7816G
Kr. 6.900.-
7863
Kr. 8.060.-
7200BKK
Kr. 7.485.-
7216BKK
Kr. 7.854.-
Öll sumartilboðin frá Beta má sjá á heimasíðu Iðnvéla: www.idnvelar.is
0,00 5,00 10,00 15,00 20,00 25,00
Sviss
Finnland
Þýskaland
Frakkland
Slóvakía
Danmörk
Litháen
Austurríki
Tékkland
Belgía
Spánn
Ítalía
Holland
Svíþjóð
Eistland
Noregur
Lettland
Portúgal
Bretland
Slóvenía
Rúmenía
Malta
Pólland
Írland
Serbía
Búlgaría
Grikkland
Króatía
Ungverjaland
Bosnía Herzegovina
Kosovo
Albanía
Ísland
Macedonía
Rússland
Moldova
Hvíta Rússland
Úkraína
Heimild: NUMBEO Bændablaðið / HKr.