Bændablaðið - 19.07.2018, Side 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 20186
Nokkur umfjöllun hefur orðið síðustu daga
um eignarhald á jörðum í ljósi vaxandi
áhuga erlendra auðmanna á kaupum á
landi hérlendis. Á árum áður voru frekari
skilyrði í lögum hérlendis um ráðstöfun og
nýtingu bújarða, en þau voru flest afnumin
árið 2004.
Fyrir því voru vissulega ákveðin rök –
Alþingi á þeim tíma vildi að viðskipti með
jarðir væru eins og með aðrar fasteignir og
ekki mætti takmarka rétt jarðeigenda til að
hámarka virði eigna sinna. En þar sem við
erum undir EES-reglur sett að meira eða
minna leyti, þá þýddi það um leið að réttindi
allra á EES-svæðinu til að kaupa bújarðir
hérlendis eru nákvæmlega þau sömu og okkar
eigin. Einstaklingar og fyrirtæki utan EES sem
vilja eignast jarðir þurfa sérstakt leyfi eins og
mikið var rætt þegar kínverskur auðmaður
hugðist kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Ekkert
varð af því en sú jörð var síðan seld breskum
auðmanni án þess að nokkur leyfi þyrfti til.
Jarðir séu áfram í rekstri og áfram í
byggð
En málið snýst alls ekki um hvaðan
eigendurnir koma, heldur hvað þeir gera.
Verkin tala. Það er og verður mikilvægast
fyrir samfélög sveitanna að jarðir séu áfram
í rekstri og áfram í byggð, hver sem fer með
eignarhaldið.
Að gott ræktunarland sé ekki tekið með
óafturkræfum hætti undir óskylda starfsemi
án þess að nokkur fái rönd við reist.
Að byggðin sé nægilega sterk til að ráða
við sameiginleg samfélagsleg verkefni svo
sem fjallskil og annað sambærilegt. Það hefur
mikla þýðingu.
Jarðeigendum sem taka jarðir úr
landbúnaðarnotum og hafa lítinn áhuga á að
taka þátt í sameiginlegum verkefnum hefur
fjölgað verulega og það hefur áhrif. Síðan
eru líka eigendur sem nálgast málin með allt
öðrum hætti og leggja mikið af mörkum inn í
samfélagið. Það er eins misjafnt og mennirnir
eru margir, en eignarhald og áherslur geta
breyst með skjótum hætti. Auðmenn, íslenskir
sem erlendir, geta misst áhugann eða eignirnar
sem lenda þá í höndum einhverra sem hafa
kannski ekki önnur markmið en að mjólka
út eins mikla peninga og hægt er á sem allra
skemmstum tíma.
Það er því frekar spurningin um hvort
samfélag okkar geti sameinast um að setja
einhver almenn skilyrði sem myndu ná bæði
til okkar sjálfra og annarra. Það yrði engin
séríslensk uppfinning því að margvísleg
skilyrði gilda um eignarhald og viðskipti með
bújarðir í nágrannalöndum okkar. Það er engri
þjóð sama um sína matvælaframleiðslu og
þess vegna er ekki litið á viðskipti sem þessi
sömu augum og önnur.
Möguleikar til matvælaframleiðslu
séu ekki eyðilagðir
Ræktunarland sem hverfur umhugsunarlaust
undir annað verður ekki svo auðveldlega
tekið aftur. Tilgangurinn er þá einfaldlega að
tryggja að möguleikar til matvælaframleiðslu
séu ekki eyðilagðir og að byggðirnar
séu nægilega sterkar til að standa undir
samfélaginu á hverjum stað. Sveitarfélögin
sem fara með skipulagsvaldið eru þarna í
lykilhlutverki. Sum hafa rætt þetta nú þegar
en þar þarf meira að koma til.
Hins vegar þarf líka að ræða fleiri þætti.
Landbúnaðurinn glímir við harðari samkeppni
en áður í kjölfar nýs tollasamnings við
ESB sem tók gildi 1. maí sl. auk þess sem
langvarandi hátt gengi krónunnar hefur grafið
undan innlendri framleiðslu – ekki bara í
landbúnaði.
Vissulega nýtur landbúnaðurinn stuðnings
í gegnum búvörusamninga og tollvernd, svo
langt sem hún nær. Gengið hefur veikt hana
gríðarlega mikið. Okkar afurðafyrirtæki eru
núna að keppa við fyrirtæki sem eru sum
hver 100 sinnum stærri eða meira. Þetta er
ekki lengur einangraður markaður. Þetta
eykur á óvissuna í greininni og veikir
framleiðsluviljann sem alltaf þarf að vera
fyrir hendi.
Aðstæður þurfa að taka mið af stöðunni
sem uppi er hverju sinni
Ég efa það ekki að íslenskir neytendur eru
mjög velviljaðir landbúnaði og vilja að hér
sé stunduð matvælaframleiðsla bæði til lands
og sjávar, en aðstæður þurfa að taka mið af
stöðunni sem uppi er hverju sinni – svo að
uppskeran verði góð. Það er best fyrir landið
og fólkið.
Erfiðleikar hjá nágrönnum okkar
Bændur eiga allt sitt undir sól og regni eins og
við þekkjum – því sem landið gefur. Það hafa
verið misjafnar aðstæður hérlendis í sumar.
Heyskapur hefur gengið vel á Norður- og
Austurlandi og útlit fyrir mikinn og góðan
heyfeng. Hingað til hefur staðan verið heldur
verri á Suður- og Vesturlandi vegna mikilla
rigninga. Lítið hefur verið um þurrk og tún
eru sums staðar orðin illfær vegna bleytu ofan
í kaupið. Það horfir vonandi til betri vegar
núna í vikunni.
Hins vegar hafa nágrannar okkar á
Norðurlöndunum átt við allt annan vanda
að stríða því þar hafa verið miklir þurrkar.
Svo rammt kveður að því að tala má um
uppskerubrest. Bændur hafa jafnvel þurft að
slátra búpeningi vegna fóðurskorts. Það er
sárt að þurfa að gera slíkt og við hugsum til
kollega okkar við þessar aðstæður. Leitað
hefur verið eftir möguleikum á því að kaupa
hey hérlendis. Ég hvet alla bændur sem eru
aflögufærir með hey, eða sjá fram á það, til
að láta vita af sér til Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins. Það er eðlilegt og sjálfsagt að
hjálpa okkar norrænu kollegum eftir því sem
fært er. Það hafa þeir gert þegar á hefur bjátað
hérlendis, eins og í Eyjafjallajökulsgosinu
fyrir fáum árum.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.500 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.250 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Vegir íslenskra dómstóla virðast með
öllu órannsakanlegir. Allavega eru
niðurstöður dómara í hverju málinu á
fætur öðru er varðar hag almennings í
landinu ekki í neinum takti við nokkuð
sem kalla má réttlæti til handa venjulegu
fólki.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa
vakið athygli á nýföllnum dómi hins nýja
Landsréttar. Samkvæmt honum virðist
mega krefja skuldara um greiðslu skuldar
þótt kröfuhafi geti ekki framvísað frumriti
skuldabréfsins. Samkvæmt dómnum er nóg
að hafa afrit skuldabréfs og að líkur séu á
því að kröfuhafinn hafi einhvern tímann
haft frumrit skuldabréfsins undir höndum,
jafnvel þegar svipta á fólk lífsstarfi sínu.
Mikið var rætt um og margstaðfest í
fjölmiðlum að mikill fjöldi veðskuldabréfa
var seldur erlendum bröskurum á
fjármálasviði í kjölfar efnahagshrunsins á
„spottprís“. Kaupendur voru einkum sagðir
vogunarsjóðir og bankar í Hollandi sem
keyptu skuldabréf af íslensku bönkunum
á brot af nafnvirði bréfanna, framvísuðu
þeim svo hjá skattayfirvöldum í Hollandi
og fengu út á það skattaafslátt. Síðan
munu bréfin að stærstum hluta hafa verið
afskrifuð. Íslensku bankarnir eru, allavega
í einhverjum tilvikum, samt sagðir hafa
haldið áfram að innheimta samkvæmt
nafnvirði upphaflegu bréfanna.
Þegar íslenskir skuldarar komust á
snoðir um þetta voru bankarnir krafðir um
að leggja fram frumrit gagnanna. Varð þá
uppi fótur og fit í bankakerfinu. Það sem átti
að vera sjálfsagt mál að fá að skoða frumrit
skuldabréfa, varð allt í einu að stórmáli. Nú
hefur þessi dæmalausi Landsréttur tekið
ómakið af bönkunum. Þeir þurfa sko ekki
að sýna nokkrum manni einhver frumrit
gagna, aðeins ljósrit. Skuldari getur því
ekki á nokkurn hátt vitað hvort bankinn
eigi lengur umrædd frumgögn, eða sé fyrir
löngu búinn að selja þessa pappíra, en haldi
svo áfram að rukka samkvæmt ljósriti.
Dómurinn Landsréttar er ávísun á
stórfellda réttaróvissu eins og Hagsmuna-
samtök heimilanna benda réttilega á. Farið
verður fram á áfrýjun til Hæstaréttar.
Í þessu máli er öllu réttlæti snúið á hvolf
og réttarríkið Ísland í raun afskrifað og
siðferði í viðskiptum hent út í hafsauga.
Með honum er allri sönnunarbyrði snúið
við. Nú þarf bankinn ekki lengur að sanna
að hann eigi skuldabréf sem sannar réttmæti
fjárkröfu á hendur skuldara. Heldur þarf
skuldari nú að geta sannað að hann sé ekki
skuldari að kröfu sem lögð er fram í formi
einhvers ljósrits.
Hvernig í veröldinni Landsréttur
getur sniðgengið Konungstilskipun frá 9.
febrúar 1798 sem enn er í gildi á Íslandi
vekur furðu. Þar er kveðið á um skyldu
lánardrottins til þess að skila frumriti
skuldabréfs ef útgefandi skuldabréfsins
borgar allan höfuðstól þess. Þá er kveðið
á um skyldu lánardrottins til að „hafa við
höndina frumrit skuldabréfsins“ og árita
það þegar afborgun af höfuðstól er reidd
af hendi. Konungstilskipunina má nálgast
á vefsíðu Alþingis á þessari slóð: http://
www.althingi.is/lagas/140b/1798092.html
Ein helsta forsendan að baki
tilskipuninni var sú að tryggja rétt bæði
útgefanda skuldabréfsins (skuldara), sem
og rétt framsalshafa, þ.e. þess sem kaupir
skuldabréfið af upprunalegum kaupanda
þess. Þannig gat síðari framsalshafi treyst
því að sú staða sem rituð var á skuldabréfið
væri rétt og eins gat skuldari treyst því
að síðari framsalshafi kræfi hann ekki um
greiðslu sem þegar hefði verið innt af hendi
ef skuldabréfið var áritað um hana.
Konungstilskipunin hefur ekki verið
numin úr íslenskum lögum. /HKr.
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: Rekstur og markaðsmál: tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Bjarni Rúnarsson br@bondi.is – Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – augl@bondi.is
Vefur blaðsins: www.bbl.is bbl@bondi.is
Prófarkalestur. Guðrún Kristjánsdóttir –
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Sindri Sigurgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
sindri@bondi.is
Land og fólkDómsatlaga gegn
réttlæti í landinu
Mynd / Hörður Kristjánsson