Bændablaðið - 19.07.2018, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 7
Iðandi mannlíf í Víðidal
Þrátt fyrir dumbung og stöku vætu virtust
ungir sem aldnir skemmta sér konunglega
á Landsmóti hestamanna.
Sólin lét sjá sig við setningu hátíðarinnar
en þar riðu í braut tugur reiðmanna ásamt
fákum sínum, m.a. fulltrúar hestamannafélaga
landsins, sem eru 44 talsins, ásamt nokkrum
fyrirmönnum, svo sem ráðherrum og
formönnum hestatengdra samtaka.
Bændur gerðu hlé á störfum sínum
til að renna til borgarinnar og njóta
hátíðarinnar, maður er jú manns gaman.
Áhorfendabrekkurnar voru svo þétt setnar yfir
hinum ýmsu dagskráliðum, en keppt var bæði
í gæðingakeppni og kappreiðum, sem mörgum
þótti gaman af. /ghp
Fyrir hreina tilviljun komst ég að því að Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum hefði á aflíðandi
vetri gert reisu sína suður til Gísla í
Miðási. Þar var þá saman kominn hópur
syrgjandi hestamanna til erfidrykkju
eftir afrekshestinn Dala-Jarp. Öl var
á borðum svona til að hefta mönnum
harminn.
Undir borðum flutti Jóhannes
Dala-Jarpi erfiljóð líkt og tíðkast þá
gersemi eru til grafar borin. Með ærnum
eftirgangsmunum komst ég yfir eintak af
„Dánarskrift Dala-Jarps“:
Fyrst í maí þá fæddur var‘ann
fljótt af öllum trippum bar‘ann
háreistur með harðan svip.
Ekki hafði í manna minni
maður litið nokkru sinni
eigulegri úrvalsgrip.
Það var mikið augnayndi
er í hlýjum sunnan vindi
hann í stóði fremstur fór.
Hikaði ekki á hörðu grjóti,
hentist lóðrétt upp í móti,
fagurjarpur foli stór.
Fór um sveitir flokkur manna,
fjáður vel með ágirnd sanna,
báru fé á eigandann.
Aurunum var illt að hafna,
ýmsar skuldir þurfti að jafna
og bjargráð fyrir búandmann.
Þar var hann við túnhlið tekinn,
teymdur, dreginn, þvældur, rekinn,
öll þó væri gatan greið.
Því klárinn var með kergju sanna,
og kæti nýju eigendanna
dvínaði er á daginn leið.
Á suðurlandið sendur var‘ann,
síst menn ætluðu að spar‘ann,
landsmótsár í vændum var.
Öllum þar hann ofjarl reyndist,
með einhverfu og tregðu greindist
og dæmdur loks til dauða var.
Hjá eigendunum illt var skapið,
allir vildu minnka tapið
og gera á málum gleggri skil.
Þeir átu‘ann svo með húð og hári
og hétu því, á næsta ári
betur mundi takast til.
Afdrif Jarps þau alveg sanna
auðnuleysi þeirra manna
sem yfirlæti ætla sér.
En vindgangur mun verða snarpur
er vekringurinn Dala-Jarpur
í iðrum þeirra frýsa fer.
Það var ekki síður harmsefni, þegar í maí
síðastliðnum spurðist andlát Gunnars
Egilson á Grund í Eyjafirði. Gunnar var
hestamaður af lífi og sál, og samferðafólki
mikill og sannur gleðigjafi.
Jóhannes á Gunnarsstöðum orti við
þá andlátsfregn:
Nú er Gunnar fallinn frá,
finn ég það með sanni
hve er einstök eftirsjá
að þeim heiðursmanni.
Litlu síðar barst svo andlátsfregn
skólabróður okkar Jóa, Sturlu
Sigtryggssonar, bónda í Keldunesi. Sturla
var afreksmaður að upplagi og einstakur
vinur. Eftir Sturlu orti Jóhannes:
Dauðinn ekki svifaseinn
svöðuljáinn brýnir.
Hverfa sjónum einn og einn
æskuvinir mínir.
Alltaf var í anda hress
sá eðalgóði drengur.
Sífellt mun ég sakna þess
að sjá hann ekki lengur.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
HROSS&HESTAMENNSKA
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir alþingiskona fór
fyrir hópreið hestamanna á setningarhátíðinni
en hún er kunnug Fákskona sem lét til sín taka
í keppnum á sínum yngri árum.
fá að koma fram á Landsmótinu frammi fyrir
þúsundum áhorfenda með hestinn sinn.
Tvö pör af bræðrum. Guðni Ágústsson, tvíburarnir Þorgeir
og Jón Vigfússynir ásamt Sverri Ágústssyni.
Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktar-
ráðunautur og Hulda Gústafsdóttir,
tamningakona og knapi, eru miklir mátar.
tamningamanna og prúður vindóttur hestur í forgrunni.
Doug Smith, fyrrum sportleiðtogi alþjóðasamtakanna
FEIF og núverandi varaformaður, og Gunnar Sturluson,
lögfræðingur, hrossabóndi og fyrrum formaður FEIF.
Útbúnaður sem va
kti athygli. Þessi h
jón
voru við öllum ve
ðrum og vindum b
úin,
lokuðu svo að sé
r á milli atriða.
Stúlka úr hestamannafélaginu Létti ásamt fák sínum.
Jóna Dís Bragadóttir, varaformaður LH, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurbjörn Bárðarson afreksknapi og
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnarráðherra tóku þátt í setningarathöfninni. Myndir / ghp
ársins 2017. Vignir Sigurðsson hrossabóndi kom
fram með nokkra úrvalsgæðinga úr ræktuninni.