Bændablaðið - 19.07.2018, Side 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 13
Ekki hefur verið jafnlangt
þurrkatímabil í Noregi í yfir 70 ár
og eru veðurskilyrðin því einstök
og hafa valdið erfiðleikum hjá
mörgum bændum. Talið er að þörf
sé á um 100 þúsund heyrúllum
fyrir bændur í Noregi sem margir
hverjir horfa á eftir svæðum sínum
inn í hina miklu þurrka án þess
að geta mikið aðhafst. Sömu sögu
má segja frá nágrönnum þeirra í
Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku
ásamt bændum í Norður-Evrópu.
„Þessi staða er mjög erfið fyrir
marga bændur, sérstaklega hjá þeim
sem skortir fóður fyrir skepnurnar
sínar. Ríkið hefur vegna þessara
aðstæðna ákveðið að einfalda reglu-
gerðir sem snúa að bótum fyrir upp-
skerubrest til að hjálpa þeim bændum
sem verða svo illa úti vegna þurrk-
anna. Ef til dæmis bóndi slær kornið
sitt og nýtir það sem gróffóður fær
hann samt sem áður beingreiðslur
fyrir korn. „Við höfum ákveðið að
flýta bótagreiðslum til bændanna.
Frá og með 13. júlí höfum við komið
því á að engir tollar verða á innfluttu
heyi og hálmi til að koma til móts
við bændurna. Við getum því miður
lítið stjórnað veðrinu og án þess að
fá nokkra rigningu í svo langan tíma
göngum við inn í krefjandi haust og
vetur,“ segir landbúnaðar- og mat-
vælaráðherra Noregs, Jon Georg
Dale.
Svipað ástand víðar
Ástandið er svipað í Svíþjóð,
Danmörku og Finnlandi ásamt
mörgum löndum í Norður-Evrópu.
Nautgripa- og sauðfjárbændur í
Svíþjóð eiga við miklar áskoranir
að stríða vegna hinna miklu þurrka
þar sem erfitt getur reynst að útvega
nægilegt fóður fyrir veturinn fyrir
búfénaðinn. Síðast voru álíka þurrkar
árin 1992 og 1959 í Svíþjóð en allt
stefnir í að árið í ár muni slá öll met.
Í Finnlandi er áætlað að uppskeru-
brestur verði um 30 prósent en
heildartjónið gæti orðið meira þegar
upp er staðið. Þar hafa félög bænda
verið dugleg að standa saman á
þessum erfiðu tímum ásamt því að
eiga gott samstarf við stjórnvöld í
landinu og Evrópusambandinu.
Allt að helmingi minni uppskera
Christian Lund, upplýsinga-
og markaðsstjóri Norsku
Landbúnaðarráðgjafarinnar, segir
að norskir bændur standi nú frammi
fyrir erfiðum aðstæðum vegna hinna
miklu þurrka og sérstaklega séu það
bændur í Suður- og Austur-Noregi
sem verða verst úti ásamt ákveðnum
svæðum bænda á Vesturlandinu.
„Þurrkarnir hafa í för með sér
fjárhagslegt tap en einnig fer þetta
á sálina hjá mörgum. Aðilar sem
koma að landbúnaði í Noregi hafa
komið á sameiginlegri áætlun til að
finna lausnir og bera saman bækur
sínar. Norska Landbúnaðarráðgjöfin
hefur komið á gróffóðurmiðlun
á flestum svæðum þar sem við
veitum bændum ráðgjöf um
meðal annars fóðuráætlanir,
ræktunarráð, fjárhagsleg ráð ásamt
öryggisráðum,“ segir Christian og
bætir við:
„Afleiðingarnar eru fyrst og
fremst þær að magnið af gróffóðri
sem þarf að framleiða verður mun
minna en í venjulegu ári, við gætum
séð fram á helmingi minni uppskeru.
Þetta er nú þegar staðreynd. Það
er aðeins of snemmt að segja
til um hvaða áhrif þetta hefur á
matvælaframleiðsluna en það er
líklegt að mörgum bændum muni
skorta fóður fyrir dýr sín og það
þýðir fjárhagslegt tap.“
Búast við háu fóðurverði
Það sem gerir stöðuna enn erfiðari
og alvarlegri er að bændur í Noregi
eru ekki þeir einu sem eiga við þurrka
að stríða þessa dagana því sömu sögu
er að segja um alla Norður-Evrópu
og því alls óvíst hversu mikið fóður
verður hægt að flytja inn.
„Það eru þurrkar einnig á hinum
Norðurlöndunum fyrir utan á Íslandi
og í Færeyjum en einnig í Norður-
Evrópu. Ef þess mun þurfa að flytja
inn fóður mun auðvitað reglan um
framboð og eftirspurn gilda þar
sem líklegt er að verðið verði hátt
þar sem eftirspurnin verður mikil.
Það getur í raun líka orðið erfitt
að nálgast fóður erlendis frá. Því
verðum við að nota öll þau svæð-
isbundnu úrræði sem við getum
eins og hagana, miðlun á hálmi
sem er í boði, svæði með fræfram-
leiðslu ásamt endursáningu til að
ná aukaslætti fyrir haustið ásamt
fleiru,“ segir Christian hjá Norsku
Landbúnaðarráðgjöfinni.
Samstaða og samvinna mikilvæg
Norsku Bændasamtökin fá margar
fyrirspurnir frá bændum sem óttast
um heilsufar sitt vegna þurrkatíðar-
innar því ástandið fer á sálina hjá
bændum í sveitum landsins.
„Nú er samstaða og samvinna
innan samtakanna mikilvægari sem
aldrei fyrr. Það er mikil hætta á, sér-
staklega þegar þessu þurrkatímabili
lýkur, að bændur fari með sig and-
lega. Margir eru áhyggjufullir og
nú þegar hafa nokkrir bændur sent
hluta af gripum sínum til slátrunar
vegna óvissunnar. Mörgum bænd-
um finnst þeir vera varnarlausir í
þessum krefjandi aðstæðum sem
hugsa um fjárhagslegar afleiðingar
og virði sem hverfur fyrir framan
augun á þeim,“ segir Lise Boeck
Jakobsen, upplýsingafulltrúi norsku
Bændasamtakanna.
„Nú erum við mjög upptekin af því
að bændurnir, með sjálfboðavinnu,
hjálpi hver öðrum eins vel og mikið
og þeir geta. Við eigum mjög gott
samstarf við ráðuneytið og félög sem
tengjast landbúnaði og það er mjög
jákvætt að stjórnvöld sjá alvöru
málsins og hafa brugðist við vegna
þess,“ útskýrir Lise.
Skógareldar og smitsjúkdómar
Það eru margar hliðar á
þurrkatímabilinu sem kemur við
marga á þeim svæðum þar sem þeir
geisa. Nú eru skógareldar til dæmis
farnir að valda mönnum miklum
áhyggjum í Suður-Noregi.
Nýsköpunarsjóður Noregs sendi
frá sér yfirlýsingu á dögunum þess
efnis að bændur sem verða fyrir
þurrkunum geta fengið frest á
afborgunum lána. Matvælaeftirlitið
í Noregi hefur nú áhyggjur af því
að alvarlegir smitsjúkdómar geti
borist með kaupum á innfluttu gróf-
fóðri og rannsaka nú hvort tryggt
sé að kaupa slíkt. Telur eftirlitið að
ekki sé nægileg yfirsýn yfir hvað-
an innflutt er og nefnir í því sam-
bandi hættuna á hinum hættulega
dýrasjúkdómi afríkanskri svínapest
sem herjar í Eystrasaltslöndunum
Póllandi, Tékklandi, Rúmeníu og
Ungverjalandi. Óttast menn að
sjúkdómurinn geti borist til Noregs
með innfluttu fóðri. Bendir eft-
irlitið á að einnig sé hætta á smiti
með jarðvegi sem er utan á umbúð-
um og að gæta skuli sérstaklega
að því að umbúðir séu án nokkurs
jarðvegs. Talin er lítil hætta á að
flytja inn gróffóður frá Svíþjóð
og Finnlandi en einnig er leyfi-
legt að flytja inn til Noregs hey
og hálm frá nokkrum löndum utan
Evrópusambandsins, þar á meðal
Íslandi. /ehg – BT, BN
Packo býður upp á lausnir fyrir þarfir hvers og
eins mjólkurframleiðanda um allan heim.
Þetta leiðir til mikils úrvals af mjólkurtönkum
sem kæla niður mjólkina á áreiðanlegan og
skilvirkan hátt.
Við höfum til sölu Packo mjólkurtankana
í öllum stærðum og gerðum.
Gunnbjarnarholti, 801 Selfoss
Sími 480 5600
Opið alla virka daga kl. 8 - 17
Kaupvangi 10, 700 Egilsstöðum
Sími 471 1901
Opið alla virka daga kl. 9 - 17
landstolpi.is
landstolpi@landstolpi.is
Við erum líka á Fésbók!
Dagbjört Dís Pálsdóttir og Kári Kiljan
Pálsson eru eplabændur með for-
eldrum sínum í Álavík í Harðangurs-
geði við að vökva eplatrén nokkrum
sinnum í viku og eru svo lánsöm að
geta tekið vatn úr bæjarlæknum.
þessum slóðum.
Christian Lund, upplýsinga- og
-
arráðgjafarinnar, segir að norskir
bændur standi nú frammi fyrir erf-
iðum aðstæðum vegna hinna miklu
þurrka og sérstaklega séu það
sem verða verst úti.
geta notað vatn ótakmarkað allan daginn vegna takmarkana.
UTAN ÚR HEIMI
Langvarandi þurrkar ógna fóðuröflun í Skandinavíu:
Varnarlausir bændur á þurrkatímum
Í Ási, sem er nálægt Osló, slógu bændur á dögunum bygg sem nýtist sem gróffóður. Myndir / ehg, cl og bg