Bændablaðið - 19.07.2018, Síða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201822
Alls hlutu 160 hross fullnaðardóm
á kynbótasýningu Landsmóts
hestamanna. Var það mat dómara
og manna að þar hafi komið fram
afkastamikill hópur hrossa í
hverjum aldurs- og kynflokki.
Auk þeirra komu fram gæðingar
í afkvæmasýningum stóðhesta
sem hlutu bæði heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun.
Aldrei hefur hærra hlutfall
klárhrossa komið fram á
kynbótasýningum Landsmóts, en
þau reyndust 27% af hópnum og
fór hinn 6 vetra gamli Kveikur frá
Stangarlæk fyrir þeim glæsta hóp
og var hann óumdeilanleg stjarna
mótsins.
Efstu hross
Hæst dæmda hross mótsins var
sigurvegari 6 vetra flokks stóðhesta,
Þráinn frá Flagbjarnarholti,
skrefmikill og glæsilegur
alhliðahestur. Hann er undan
Álf frá Selfossi og Þyrlu frá
Ragnheiðarstöðum, undan Svart frá
Unalæk. Ræktandi Þráins og eigandi
er hollendingurinn Jaap Groven.
Þráinn hlaut m.a. 9,5 fyrir skeið og
vilja og geðslag. Sýnandi hans var
Þórarinn Eymundsson.
Sigurvegari í elsta flokki
stóðhesta, Glúmur frá Dallandi
hlaut næsthæstu einkunn allra
kynbótahrossa á sýningunni,
8,77. Glúmur eru undan Glym frá
Flekkudal og Orradótturinni Orku frá
Dallandi. Eigendur og ræktendur eru
Gunnar og Þórdís í Dallandi. Sýnandi
hans var Halldór Guðjónsson.
Fyrrnefndur Kveikur hlaut þriðja
hæsta dóm mótsins, 8,76. Kveikur er
sýndur sem klárhestur og hlaut m.a.
10 fyrir tölt og vilja og geðslag og 9,5
fyrir fegurð í reið, brokk og stökk.
Hann er er undan Sjóði frá Kirkjubæ
og Rakettu frá Kjarnholtum I, sem er
undan Glað og Heru frá Kjarnholtum.
Ræktendur og eigendur Kveiks
eru Ragna Björnsdóttir og Birgir
Leó Ólafsson. Sýnandi hans var
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem
hlaut þrjú reiðmennskuverðlaun við
mótslok.
Önnur athyglisverð
Í hópi 4 vetra hryssna vakti mikla
athygli Askja frá Efstu-Grund sem
sprakk út á yfirlitssýningu, bætti sig
í mörgum þáttum og stóð að lokum
efst. Askja er undan Ský frá Skálakoti
og Kötlu frá Ytri-Skógum, dóttur Pilts
frá Sperðli.
Einnig heillaði klárhryssan Krafla
frá Austurási, Hágangsdóttir, sem
blómstraði á yfirliti og endaði í 4.
sæti flokksins.
Í flokki 4 vetra stóðhesta var efsti
hesturinn hinn glæsilegi og prúði
Eldjárn frá Skipaskaga, undan Jarli
frá Árbæjarhjáleigu II. Þá komu þar
fram áhugaverðir klárhestar. eins
og Fenrir frá Feti sem fékk með 10
fyrir hægt stökk og 9,5 fyrir vilja og
geðslag og fegurð í reið og Útherji
frá Blesastöðum 1A undan Framherja
frá Flagbjarnarholti en Framherji átti
frabærileg afkvæmi á mótinu.
Elsti flokkur hryssna var mjög
sterkur, þar var efst hin tignarlega
Tign frá Jaðri sem reyndist hæst
dæmda hryssa mótsins. Hún er
undan Kjarna frá Þjóðólfshaga 1
og Orradótturinni Sylgju frá Ytri-
Skógum.
Í þeim flokki var einnig Kolka
frá Breiðholti í Flóa en hún hlaut
hæstu hæfileikaeinkunn mótsins og
hlaut að launum Hestasteininn sem
gefinn er til minningar um Svein
Guðmundsson, hrossaræktanda á
Sauðárkróki. Kolka er undan Grun frá
Oddhóli og Gunnvör frá Miðsitju en
Gunnvör þessi kom víða við á mótinu.
Hún átti þrjú afkvæmi í kynbótadómi,
Kolku, Kröflu og Jökul frá Breiðholti
í Flóa en einnig varð sonur hennar
Villingur í 3. sæti í A-flokki gæðinga.
Gunnvör hlaut heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi í fyrra.
Afkvæmahestar á
keppnisbrautinni
Eftirtekt vakti hversu mörg
afkvæmi þeirra stóðhesta sem
hlutu afkvæmaverðlaun voru í
einstaklingssýningu á mótinu. Meiri
hluti ættfeðranna fylgdu afkvæmum
sínum í sýningu á reið, enda margir
þeirra enn í keppnisformi.
Sleipnisbikarhafi Landsmótsins
í ár var Spuni frá Vesturkoti.
Tólf afkvæma hans komu fram á
kynbótasýningum á mótinu. Sex
afkvæmi Kiljans frá Steinnesi
komu fram en þeirra á meðal var
Rauðskeggur frá Kjarnholtum I og
Draupnir frá Stuðlum sem voru
í öðru og þriðja sæti í elsta flokki
stóðhesta.
Sjö afkvæmi Óms frá Kvistum
fengu fullnaðardóm, þeirra á meðal
efsta hryssa í 5 vetra flokki, Sigyn frá
Feti og Krafla frá Breiðholti í Flóa,
næsthæsta hryssa í 6 vetra flokki.
Tvær 6 vetra hryssur undan Aðal frá
Nýjabæ fengu dóm á Landsmóti, þar
á meðal Hugmynd frá Ketilsstöðum
sem var í 3. sæti í sínum flokki.
Skýr frá Skálakoti stóð efstur til
fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi en
5 þeirra hlutu dóm á Landsmóti, en
bæði efsta 4 vetra hryssan, fyrrnefnd
Askja frá Efstu-Grund, efsta 6 vetra
hryssan, Katla frá Hemlu II, auk
þeirra hryssu sem var í öðru sæti
í fimm vetra flokki, Paradís frá
Steinsholti.
Arion frá Eystra-Fróðholti átti
6 afkvæmi í einstaklingssýningum,
auk þess sem hann keppti sjálfur
í A-flokki gæðinga og þótti
sigurstranglegur, enda í 2. sæti eftir
forkeppni en var dreginn úr keppni
fyrir milliriðla.
Óskasteinn frá Íbishóli átti fjögur
afkvæmi auk þess sem hann var
meðal efstu hrossa ungmennaflokki
með knapa sínum Guðmari
Frey Magnússyni. Hákon frá
Ragnheiðarstöðum átti eina hryssu
í einstaklingsdómum en afkvæmi
hans voru áberandi í keppnishluta
mótsins. Hann er m.a. faðir Ljósvaka
frá Valstrýtu, Sæþórs frá Stafholti
og Hönsu frá Ljósafossi. Eldur frá
Torfunesi átti einnig einn fulltrúa
í kynbótasýningunni en var sjálfur
mættur í ungmennaflokkinn með
Birtu Ingadóttur. Þá fengu fjögur
afkvæmi Trymbils frá Stóra-Ási
fullnaðardóm.
Efsti 4 vetra stóðhestur mótsins,
Eldjárn frá Skipaskaga, er sonur
Jarls frá Árbæjarhjáleigu II sem
fékk einnig afkvæmaverðlaun en
tvö afkvæmi í viðbót komu fram á
einstaklingssýningum. Sjálfur tók
Jarl þátt í A-flokki gæðinga. Þá
komu tvö afkvæmi Lukku-Láka frá
Stóra-Vatnsskarði komu fram m.a.
Lukkudís frá Bergi sem var í 3. sæti
í 6 vetra flokki.
Fimm afkvæmi Hrannars frá
Flugumýri II komu fram á þ.á.m.
stóðhestar sem urðu í 3. og 4. Sæti,
þeir Viðar frá Skör og Neptúnus
frá Garðshorni á Þelamörk. Sjálfur
mætti Hrannar ásamt Eyrúnu Ýri
Pálsdóttur til titilvarnar í A-flokki
gæðinga en því miður lá hann ekki
á skeiði í forkeppni. Eyrún reið
hins vegar Sjóði frá Kirkjubæ í
A-flokks úrslitunum, sem einnig
hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
Fjögur afkvæmi hans komu fram í
kynbótasýningu og kemur Kveikur
frá Stangarlæk þar aftur við sögu.
Eitt afkvæmi Blæs frá Hesti kom
fram í kynbótasýningu.
Mikill fjöldi knapa
Þeim fjölgar sem sýna hross á
kynbótasýningum og það mátti
glögglega sjá á Landsmóti, því fjöldi
knapa hefur sjaldan verið jafn mikill.
Alls sýndu 54 knapar
kynbótahross á Landsmótinu og
var meðaltal hrossa á hvern knapa
4-5 hross. Árni Björn Pálsson sker
sig þó nokkuð úr hópnum og sýndi
langflest hross, eða 24 talsins.
/ghp
HROSS&HESTAMENNSKA
Efstu kynbótahrossin
Stóðhestar Hryssur
Nafn Sköpul. Kostir Aðale. Nafn Sköpul. Kostir Aðale.
4 vetra
Eldjárn frá Skipaskaga 8,63 8,3 8,44 Askja frá Efstu-Grund 8,13 8,55 8,38
Fenrir frá Feti 8,33 8,39 8,37 Sigurrós frá Stuðlum 8,23 8,37 8,31
Viðar frá Skör 8,5 8,14 8,29 Sýn frá Hólum 8,54 8,14 8,3
5 vetra
Adrían frá Garðshorni á Þelamörk 8,63 8,63 8,63 Sigyn frá Feti 8,48 8,62 8,56
Þór frá Torfunesi 8,63 8,61 8,62 Paradís frá Steinsholti 8,74 8,28 8,47
Spaði frá Stuðlum 8,36 8,68 8,55 Hugmynd frá Ketilsstöðum 8,13 8,66 8,45
6 vetra
Þráinn frá Flagbjarnarholti 8,7 9,06 8,92 Katla frá Hemlu II 8,48 8,75 8,64
Kveikur frá Stangarlæk 1 8,57 8,88 8,76 Krafla frá Breiðholti í Flóa 8,33 8,79 8,61
Marel frá Aralind 8,17 8,92 8,62 Lukkudís frá Bergi 8,48 8,53 8,51
7 vetra og eldri
Glúmur frá Dallandi 8,73 8,8 8,77 Tign frá Jaðri 8,6 8,81 8,73
Rauðskeggur frá Kjarnholtum 8,68 8,77 8,74 Elja frá Sauðholti 2 8,49 8,86 8,72
Draupnir frá Stuðlum 8,7 8,73 8,72 Kolka frá Breiðholti í Flóa 8,16 9,07 8,71
Hæstu einkunnir fyrir kosti
Kolka frá Breiðholti í Flóa 9,07
Þráinn frá Flagbjarnarholti 9,06
Árblakkur frá Laugasteini 8,97
Marel frá Aralind 8,92
Kveikur frá Stangarlæk I 8,88
Trausti frá Þóroddsstöðum 8,87
Elja frá Sauðholti 2 8,86
Kylja frá Stóra-Vatnsskarði 8,84
Tign frá Jaðri 8,81
Glúmur frá Dallandi 8,8
Álfrún frá Egilsstaðakoti 8,8
Hæstu einkunnir fyrir sköpulag
Ísak frá Þjórsárbakka 8,79
Bylgja frá Seljatungu 8,76
Krús frá Skipaskaga 8,75
Júpiter frá Lækjamóti 8,74
Paradís frá Steinsholti 8,74
Glúmur frá Dallandi 8,73
Vörn frá Hólum 8,71
Draupnir frá Stuðlulm 8,7
Þráinn frá
Flagbjarnarholti
8,7
Tíur
Hestur Eiginleiki
Kveikur frá Stangarlæk I Tölt
Kveikur frá Stangarlæk I Vilji og geðslag
Fenrir frá Feti Hægt stökk
Glúmur frá Dallandi Prúðleiki
Áhorfendur Landsmóts hylltu Ollu í Nýjabæ þegar hún veitti heiðursverð-
launum fyrir stóðhest sinn, Aðal, móttöku.
(t.h.) efstur með hæstu einkunn allra hrossa á mótinu ásamt því að Kveikur
Mynd/ghp
Aldrei hefur jafn hátt hlutfall klárhesta komið fram á kynbótasýningu Landsmóts áður:
Ný kynslóð afkvæmahesta strax
farin að sanna gildi sitt