Bændablaðið - 19.07.2018, Síða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 25
Rennandi vatn
allt árið - í garðinum
• Garðhanann þarf að setja upp á frostfríu svæði, 80cm niður í jörðina.
• Allar leiðslur að honum verður að leggja undir frostlínu.
• Við tæmingu á vatni úr Garðhananum, skal láta vatn renna út í jarðveg-
inn. Hentugur jarðvegur í kringum vatnstæmingarboxið er möl sem tekur
vel við vatni.
• Áður en frosta-tími hefst skal snúa Garðhana lokanum í „closed” stöðu
til að tæma leiðslur niður í frostfrítt svæði.
• Á frost-tíma, eða ef frosthætta er, skal snúa Garðhana lokanum í
„closed” stöðu eftir hverja notkun. Þessi aðferð gerir þér kleift að nota
rennandi kranavatni í frosti - allan veturinn.
• Til þess að afrennsli sé virkt, skal aftengja slöngur og aðra tengihluti sem
geta komið í veg fyrir vatnstæmingu.
Garð hani
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Sigurður Sæmundsson, hrossa-
bóndi á Skeiðvöllum í Lands veit
og fyrrum afreksknapi, hefur fylgst
með hraðri framþróun íslenska
gæðingsins síðastliðin 50 ár. Hann
var gestur á Landsmóti hesta-
manna.
Hestakostur Íslendinga er sífellt
að batna ef marka má kynbótadóma,
sem eru á stöðugri uppleið. „Það sem
við erum að sjá núna eru hestar sem
eru að fá einkunnir fyrir byggingu
upp á 8,60 – 8,70 og jafnvel yfir það.
Slíkar tölur heyrði maður ekki fyrir
20 – 30 árum síðan. Svona rosalegar
framfarir í ræktun meðal annars hvað
byggingu varðar eiga sér að öllum
líkindum nokkrar forsendur, marg-
viss ræktun betur byggðra hrossa og
svo ekki síður allt uppvaxtarferlið.
Hestur sem er sýndur og fær 8,00 fyrir
byggingu eða jafnvel undir því á vart
orðið séns á að vera meðal þeirra efstu
nema leggja að velli öll heimsmet
hvað varðar hæfileikaeinkunn.“
Sigurður vonast til þess að betri
gæði í ræktuninni eigi eftir að nýtast
á fjölþættan hátt fyrir hinn almenna
hestamann.
„Hrossarækt þarf að ganga út á að
búa til betri vöru. Ekki bara betri vöru
til að hlaupa eftir kynbótabrautunum
og keppnisvöllum heldur og vöru til
almennrar notkunar. Þar þurfa kröfur
tveggja hópa að fara saman. Annars
vegar hópsins sem hefur gaman af
keppni. Svo er það hinn, þessi venju-
legi útreiðamaður. Hann þarf að hafa
sitt pláss í hestinum í framtíðinni
líka,“ segir Sigurður og bendir á tölur
sem sýna að 85-95% allra hestamanna
heyri undir hinn almenna útreiða-
mann, 5-15% eru keppnisknapar.
„Ræktunarstarfsemi dagsins þarf
að beinast að þeirri framtíðarhugsjón
að rækta bæði keppnis- og útreiðar-
gæðing. Það er hins vegar ekki einfalt
mál að framleiða þennan framtíðar-
hest, þar er í mörg horn að líta t.d.
hvað varðar geðslag og ganglag.“
Góðar útsendingar á kostnað
áhorfenda í brekku
Sigurður var ánægður með
Landsmótið. „Hér er afbragðs að-
staða fyrir mannfólk og veitingar
um allt. Ég held að það eigi við um
hestana líka. Hér eru hesthús fyrir
alla og hægt að koma hrossum í skjól
um leið og sýningar eru búnar.“
Hann telur tækniframfarir
jákvæðar. „Nú eru veðrabrigði svo
bændur þora ekki að fara mikið frá.
En þeir geta gripið til útsendinganna
sem eru frábærar. Ég hef aldrei séð
svona góðar upptökur áður. Slík
tækni hefur og á eftir að þróast
mikið. En miðað við gæði útsending-
anna þá gæti sá tími komið að ef
leiðinlegt veður væri þá sæti fólk
bara heima í stað þess að mæta á
mót,“ segir Sigurður. /ghp
Sigurður Sæmundsson var nýkominn af fræðslufyrirlestri um skeiðgenið í tjaldi Horses of Iceland þegar blaðamaður
Bændablaðsins rakst á hann. Mynd / ghp
RÆKTUN & SALA
896 1838
litlabrekka@litlabrekka.is
Litla Brekka Horsebreeding
Keppnishestabú
ársins 2017
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Hefur þú kynnt þér
Smávirkjanaverkefni
Orkustofnunar?
Smærri virkjanir geta verið lyftistöng fyrir bæði
bændur og fleiri aðila
Þær geta stuðlað að auknu orkuöryggi í landinu
Geta verið svar við orkuskorti víða um land
Geta tryggt vaxtarmöguleika í dreifðari
byggðum landsins
Kynntu þér málið á vef Orkustofnunar:
https://orkustofnun.is/raforka/smavirkjanir/
Gestur á Landsmóti greinir framfarir í tækni og hrossarækt:
Fallegri skepnur og
skarpari útsendingar
Ljósvaki frá Valstrýtu og Árni Björn