Bændablaðið - 19.07.2018, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201826
Hestaleigan Laxnesi 50 ára
Um þessar mundir eru hvorki meira
né minna en 50 ár síðan Hestaleigan
í Laxnesi í Mosfellsdal hóf starfsemi
sína. Hjónin Þórarinn Jónasson og
Ragnheiður Bergsdóttir, eða Póri og
Heiða eins og þau eru jafnan kölluð,
hafa staðið vaktina á hestaleigunni
allt frá 1967.
Saga fyrirtækisins er um margt
merkileg og áhugaverð, eink-
um í ljósi þess hversu stóran sess
afþreyingargeirinn er farinn að
skipa í atvinnulífinu. Hestaleigan
í Laxnesi var ein fyrsta hestaleigan
hér á landi með skipulagðar ferðir,
og sú elsta sem enn er starfandi.
Póri hafði frá ýmsu að segja þegar
hann var sóttur heim á dögunum.
Það leynir sér ekki að það er hama-
gangur í öskjunni á hlaðinu við að
koma fólki í hnakk, gestir koma og
fara, ýmist til að fá að komast í tæri
við hesta eða til að heimsækja heim-
ilisfólkið á bænum. Öllum er vel
tekið og vinsemdin leynir sér ekki.
Þótti framúrstefnulegt framtak
Þegar Póri og Heiða fluttu í Laxnes
árið 1967 sáu þau strax fyrir sér
möguleika og tækifæri til að nýta
jörðina á nýjan hátt. Það skyldi verða
komið upp sveitaklúbbi, eða country
klúbbi, hestaleigu, golfvelli, útivist-
arsvæði og fleira. Þessar hugmyndir
þóttu algjörlega út í hött, sérstaklega
af því að Laxnes væri svo langt frá
Reykjavík. Golfvöllurinn var útbú-
inn með 9 holum og var starfræktur
í nokkur ár. Einnig var starfræktur
hálfgerður næturklúbbur, því félags-
mönnum golfklúbbsins var heimilt að
hafa með sér eigið áfengi og geyma í
golfskálanum. Þar hittist fólk gjarnan
og skemmti sér. Hestaleigan tók við
af golfvellinum sem fljótlega var
breytt í beitiland.
Hestaleigan hófst fyrir tilviljun
Í bókinni Hestaleigan Laxnesi sem
gefin var út árið 2013 er sagt frá
upphafi hestaleigunnar. Þar kemur
fram að Póri hafi verið beðinn fyrir
hópi ferðamanna hjá Loftleiðum
(þar sem hann vann áður fyrr) og
fara með þá í reiðtúr. Upp frá því
hófst starfsemin með óformlegum
hætti. Póri segist alltaf hafa gengið
með þessa hugmynd í maganum.
„Ég hef alltaf haft gaman af
dýrum og fólki. Það átti ekki við
mig læknisfræðin og flugið, svo ég
hætti því bara og fór í það sem mér
líkaði best og vildi gera.“
Í fyrstu voru aðeins sex hestar á
leigunni og hún aðeins starfrækt yfir
sumartímann. Meðfram hestaleig-
unni var starfrækt tamningastöð
og hross voru sömuleiðis tekin í
hagagöngu. Fljótlega var fjósi og
hlöðu sem voru á staðnum breytt
í hesthús og stendur það fyllilega
undir nafni enn í dag. Starfsemin
færðist svo alfarið yfir í hestaleig-
una í lok 8. áratugarins. Lengi vel
voru farnar lengri ferðir (6 dagar)
frá Laxnesi að Geysi og til baka.
Hins vegar eru nú aðeins farnar
styttri ferðir sem taka aðeins nokkra
klukkutíma. Aðallega er riðið að
Tröllafossi, sem er í Leirvogsá.
Hestarnir á bænum eru um 120 og
eru eins ólíkir og þeir eru margir.
„Að eiga hestaleigu er svolítið
eins og að eiga fataverslun, þú þarft
að eiga allar mögulegar stærðir og
gerðir. Hingað kemur fólk með
mismikla reynslu, oft eru krakkar
með, svo það þarf að eiga hesta sem
hentar öllum.“
Ýmsir annmarkar fylgdu því að
reka ferðaþjónustu á þessum tíma.
Til að mynda gerðist það nokkrum
sinnum að fólk sem átti bókað í
lengri ferðir mætti ekki þegar það
var sótt á hótelið sitt. Þegar farið
STÁLGRINDARHÚS
Stálgrindarhús hafa
fyrir löngu sannað
notagildi sitt við
íslenskar aðstæður
frá
Hafðu samband: bondi@byko.is
Mynd tekin í nýju fjósi að Búrfelli í Svarfaðardal
Hér má sjá hvernig var umhorfs í Mosfellsdal á árum áður. Horft er í átt að
Hraðastöðum af hlaðinu í Laxnesi. Mynd fengin úr bókinni Hestaleigan Laxnesi. Birt
Hestarnir voru frelsinu fegnir þegar þeim var hleypt út í grænan hagann.
Hér sést Laxnes í vetrarbúningi.