Bændablaðið - 19.07.2018, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 31
Víða um land hafa bændur þurft
að stunda heyskap undanfarnar
vikur í örþurrkum og menn því
oft og tíðum neyðst til að rúlla
grasið mun blautara en æskilegt
er út frá markmiðinu um að
hámarka líkur á góðri verkun
fóðursins í rúllunum.
Í þessum pistli er ætlunin að rifja
upp með bændum nokkur atriði sem
stuðlað geta að bættri fóðurverkun
við þessar krefjandi aðstæður.
Hátt rakastig í fóðri er vandamál
Vatnið virkar eins og „buffer“
og vinnur gegn sýrustigslækkun,
þ.e.a.s. það þarf að framleiða meiri
sýru til að sýrustigið lækki og fóðrið
nái geymslufestu. Jafnframt getur
hátt rakastig fóðursins valdið töf á að
gerjun fari í gang þar sem erfiðara er
að ná loftfirrtum aðstæðum. Einnig
aukast líkur á að þjöppun grassins í
rúllunni verði minni þar sem fóðrið
er þyngra og meira afl þarf því til að
ná sambærilegri þjöppun og þegar
þurrara hey er rúllað.
Í staðinn verður edik og
smjörsýrugerjun ráðandi í rúllunni
með of háu sýrustigi og tilheyrandi
tjóni á verkun fóðursins ásamt
eyðingu auðtekinna sykra úr fóðrinu
sem dregur þ.a.l. úr orkuinnihaldi
fóðursins og lystugleika
Lágmörkum loft í fóðrinu
Óskastaðan er að sjálfsögðu að
þurfa ekki að rúlla við ofangreindar
aðstæður en í árferði eins og nú
hefur ríkt hefur slíkt einfaldlega
ekki verið í boði. Því er mikilvægt
að vera meðvitaður um þær
aðgerðir sem menn geta gripið
til við að lágmarka tjónið og
tryggja sem best kjöraðstæður
fyrir mjólkursýrugerlana. Slíkar
aðstæður eru best tryggðar með
því að lágmarka sem allra mest
það loft sem verður inni í rúllunni
og tryggja um leið að sem minnst
loft komist inn í rúlluna í gegnum
plastið.
Notkun íblöndunarefna er
mikilvægur þáttur í góðri heyverkun
og í óþurrkatíð dregur notkun
íblöndunarefna umtalsvert úr
hættunni á tjóni á fóðri.
Hvernig lágmörkum við
loftmagnið í fóðrinu?
Eins og flestir vita er eina ráðið
til þess að draga úr loftmagni inn
í rúllunni að búa til þéttari rúllur og
hér koma nokkur ráð um hvernig
við gerum það:
Stillum þjöppun rúlluvélar
í botn
Allar rúlluvélar eru með
stillanlega þjöppun þó verulegur
munur sé á hversu mikið
mismunandi gerðir rúlluvélar
geta þjappað grasinu saman.
Notum alla hnífana til að saxa
Því fínsaxaðra sem grasið er í
rúllunni því minni orku þarf til að
þjappa grasinu saman. Hnífafjöldi
í vélunum er mjög mismunandi á
milli framleiðenda en notið alla
hnífana sem rúlluvélin býður upp
á að séu notaðir.
Brýnum hnífana vel
Það segir sig sjálft að vel
brýndir hnífar skera grasið
mun auðveldara en illa brýndir
hnífar. Driflína rúlluvéla er mjög
misöflug milli framleiðenda og
gerða véla en ef hnífarnir bíta illa
þarf meira afl til að þrýsta grasinu
í gegnum hnífana. Því verður
minni orka eftir til að þrýsta
grasinu af afli inn í baggahólfið
áður en leyfðu hámarksafli í
gegnum driflínu vélar er náð.
Þegar leyfðu hámarksafli á
driflínu er náð byrjar kúpling
í drifskafti að snuða eða
öryggisboltar í sumum tilfellum
að brotna. Þar sem algengt er að
menn hafi einungis um helming
hnífanna inni við venjulega
rúllun og eigi þá hinn helminginn
tilbúinn nýbrýndan til að skipta
getur borgað sig fyrir bændur/
verktaka sem eru að rúlla mikið
að fjárfesta í auka hnífasetti til að
geta skipt um hnífa um leið og
bitið í hnífunum fer að minnka.
Aksturshraði
Mjög mismunandi er milli
rúlluvélategunda hversu mikinn
ökuhraða þær þola áður en dregur
úr þjöppun grassins í rúllunni.
Því er mjög mikilvægt að menn
hugi vel að ökuhraða við rúllun
með tilliti til þeirra véla sem
menn eru með. Rúlluvélar sem
eru með veika drifrás þurfa að
fá góðan tíma til að koma sem
mestu grasi inn í rúlluna meðan
rúlluvélar með öfluga drifrás geta
haldið nánast fullum afköstum
að því gefnu að dráttarvélin sem
knýr rúlluvélina sé nógu öflug því
umtalsvert meira afl fer í rúllun
á blautu fóðri með fullri söxun
en við hefðbundna rúllun með
minni söxun.
Nota ríflegt af rúlluneti
Því miður er algengt að menn
spari verulega netmagnið sem
notað er á rúlluna og fari jafnvel
niður undir 2 hringi af neti á
rúllu. Í aðstæðum eins og nú
eru ráðlegg ég að nota ekki
minna en 3,5 hringi af neti á
rúlluna til að minnka sem mest
stækkun rúllunnar þegar hún
kemur úr baggahólfinu. Algengt
er að rúllur stækki um 6–8 cm í
þvermál þegar baggahólfið opnar
þar sem verulega teygist á netinu
auk þess sem það getur hæglega
dregist til á rúllunni þegar net er
sparað. Öll stækkun rúllunnar
þegar baggahólfið opnar er ávísun
á minni þjöppun rúllunnar og
aukið loft í rúllunni. Þeir sem
eru með rúlluvélar sem geta hvort
sem er notað net eða plast utan um
rúlluna ættu undantekningarlaust
að nota plast þar sem límið í
plastinu tryggir að rúllan þenst
ekkert út þegar rúlluhólfið er
opnað og tryggir þannig að
þéttleiki rúllunnar helst í hámarki
og lofti í lágmarki.
Gera strax við göt sem koma
á plastið
Ef slysagöt koma á plastið og/
eða fugl gatar plast er mjög
mikilvægt að gera við slík göt
strax þar sem tjónið af slíkum
götum á mjög blautum rúllum
getur orðið verulegt samanber
ofangreindan texta um mikilvægi
loftfyrrtrar gerjunar til að tryggja
fóðurgæðin.
Loftleki í gegnum plast
Í huga flestra okkar er rúllan
orðin loftþétt um leið og við
erum búin að pakka hana en
því miður er það ekki svo sem
sjá má best á því að margir láta
sig ekki dreyma um að pakka
einungis fjórfalt heldur pakka
allt sexfalt því menn telja sig sjá
verulegan mun á hvað fóðurgæði
verða betri við sexfalda pökkun.
Þegar rúllað er mjög blautt gras
eykst hætta á því að laust vatn/
safi safnist saman í rúllunni eftir
pökkun og leitist við að komast
út. Það segir sig sjálft að ef vatnið
finnur leið á milli plastlaga út úr
rúllunni eru líkurnar á að loft geti
einnig komist inn um sömu leið
verulegar. Því mæli ég eindregið
með að menn skoði vel hvort
ekki muni borga sig að pakka
það fóður sem menn ætla að gera
að gæðafóðri áttfalt.
Stöflun í stæður og á vagna
Ef gras í rúllum er mjög blautt og
þungt eykst hættan á leka vatns /
lofts í gegnum plastið verulega
og því þarf öll meðhöndlun
rúllanna að taka mið af slíku.
Þarna skiptir líka miklu máli
hversu vel til hefur tekist við að
þjappa í rúllurnar þar sem hætta
á aflögun á rúllum í stæðum er
verulega meiri á lítið þjöppuðum
rúllum en vel þéttum. Því þurfa
menn að skoða vel stöðuna
hjá sér og meta í framhaldinu
hvort gæti borgað sig að stafla
rúllum sem eru mjög blautar
einungis í 2 hæðir til að draga
úr geymslutöpum í stæðum.
/Finnbogi Magnússon
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Láttu dæluna
ganga!
Hjá Dynjanda færðu öflugar
háþrýstidælur fyrir fjölbreyttar
aðstæður og verkefni.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Rúlluheyskapur í óþurrkatíð – lágmörkum tjónið
Eplauppskeru- og ævintýraferð
til Noregs 3. – 7. október 2018
Verð á mann í tvíbýli: 134.800,-
Verð á mann í einbýli: 147.800,-
(Allt innifalið fyrir utan 2 hádegisverðir og 2 kvöldverðir ásamt drykkjum)
Fararstjóri:
ÖRFÁ SÆT
I LAUS!
Bændur á vestan- og sunnanverðu landinu þurfa að ýmsu að huga við hirðingu á heyi í þeirri bleytutíð sem ríkt
hefur í þessum landshlutum í sumar.