Bændablaðið - 19.07.2018, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201836
Heitið eggaldin vísar til afbrigðis
plöntunnar sem gefur af sér hvít
aldin sem eru á stærð við hænu-
egg. Ræktun aldinsins hófst í Asíu
fyrir um 4000 árum og barst til
landanna við Miðjarðarhaf með
úlfaldalestum arabískra kaup-
manna. Samkvæmt skilgreiningu
grasafræðinnar er egg aldinið ber.
Samkvæmt samantekt FAOSTAD,
tölfræðideildar Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, var heimsframleiðsla
á eggaldini 51,3 milljón tonn árið
2016. Áætlað er að um 1,8 milljónir
hektarar lands fari undir ræktunina.
Árið 2010 var framleiðslan 41,8
milljón tonn og hefur því aukist um
rúm 10 milljón tonn á innan við
áratug. Langmest var aukningin
á þessum sjö árum í Kína um 7,5
milljón tonn.
Kína er langstærsti framleiðandi
eggaldina og framleiddi árið 2016
um 32 milljón tonn, sem er um 62,7%
heimsframleiðslunnar. Indland er í
öðru sæti með 12,6 milljón tonn,
þar næst er Egyptaland með tæp
tvö milljón tonn og síðan Tyrkland
og Íran sem framleiddu 850 og 680
þúsund tonn af eggaldinum árið
2016.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn 82,4
tonn af nýjum eggaldinum árið
2017. Mestur var innflutningurinn
frá Hollandi og Spáni 46,2 og 31,8
tonn og þar langt á eftir, hvað magn
varðar, Ítalíu, 1,3 tonn.
Náttskuggaættin
Fjöldi plantna sem teljast til
Náttskuggaættarinnar er um 2700
og finnast þær víða um heim.
Plönturnar eru fjölbreytilegar, ein-,
tví- og fjölærar, jurtkenndar, runna,
tré og klifurplöntur. Flestar eiga
plönturnar það sameiginlegt að vera,
eða hluti þeirra, eitraðar.
Innan ættarinnar er að finna
vinsælar nytjaplöntur bæði til
skrauts, átu og nautna, til dæmis
petúníur, tóbaksplöntuna og chili.
Flestar tegundir nytjaplantna innan
Náttskuggaættarinnar tilheyra
ættkvíslinni Solanum. Þekktastar
þeirra eru kartöflur og tómatar sem
eru upprunnar í Suður-Ameríku.
Asískur ættingi þeirra, eggaldin
Solanum melongena, kemur frá
Indland.
Eggaldin eru ber
Eggaldinsplöntur eru fjölærar en
oft ræktaðar sem einærar. Plantan
er fínleitur margstofna runni með
trefjarót. Þyrnóttir stofnarnir geta
náð yfir tveggja metra hæð, en er
40 til 150 sentímetra háir í ræktun.
Mörg nýrri afbrigði eru án þyrna.
Laufblöðin, ljósgræn á stuttum stilk,
stór og flipótt, 10 til 20 sentímetra
löng og 5 til 10 sentímetra breið.
Krónublöðin fimm hvít eða
fjólublá og mynda stjörnu með
gulum frævlum. Skordýra- og
sjálffrjóvgandi. Aldinið glansandi,
fjólublá, svört, græn, hvít, gul eða
marglit á ytra borði en ljóst og hold-
eða svampkennt að innan. Aldin
allt frá því að vera þrír og yfir 30
sentímetrar eftir yrkjum. Samkvæmt
skilgreiningu grasafræðinnar er
aldinið ber en í almennu tali telst
það grænmeti. Fræ eggaldins
innihalda nikótín eins og frænka
þeirra Nicotina tabacum.
Yrki, afbrigði og staðbrigði
Fjöldi ræktunaryrkja og -afbrigða
sem eru ólík að stærð, lit og lögun.
Til eru perulaga, hnöttótt, ílöng og
bjúglaga eggaldin sem geta verið
hvít, blá, rauðleit, fjólublá og marglit
og misjafnlega stór. Það yrki sem
algengast er á markaði í Evrópu og
Norður-Ameríku er dökkfjólublátt
að lit, 12 til 25 sentímetrar að lengd
og 6 til 9 sentímetrar að þvermáli.
Í Indlandi og Asíu er fjöldi ólíkra
yrkja, afbrigða og staðbrigða í boði
og hægt að fá risaeggaldin sem vega
tvö kíló eða aldin sem eru á stærð
á við baunir.
Yrkið Oval er bjúglaga og svart-
glansandi og afbrigði þess kallast
'Harris Special Hibush', 'Burpee
Hybrid', 'Bringal Bloom', 'Black
Magic', 'Classic', 'Dusky', og
'Black Beauty'. Slim er fingurlaga
og fjólublátt yrki og kallast 'Little
Fingers', 'Ichiban', 'Pingtung Long'
og 'Tycoon'. Algeng hvít yrki kallast
'Casper' og 'Easter Egg' eða páska-
egg. Af tvílitum yrkjum má nefna
'Listada de Gandia' of 'Udumalapet'
og meðal marglitayrkja eru 'Rosa
Bianca', 'Violetta di Firenze', 'Bianca
Sfumata di Rosa'.
Talsvert hefur verið fitlað við
erfðamengi margra ræktunarafbrigða
eggaldina til að auka vöxt þeirra og
sjúkdómaþol. Dæmi um slíkt er ind-
verska yrkið Bt brinjal sem hefur
verið í ræktun og sölu frá 2009.
Saga og ritaðar heimildir
Eggaldinsplantan er upprunnin í
Suðaustur-Asíu, líklega þar sem
nú er Indland. Talið er að ræktun
plöntunnar hefjist á Indlandi og
Kína fyrir um 4000 þúsund árum
Fjölbreytileiki ólíkra yrkja eggaldins er mikill hvað varðar stærð, lit og lögun.
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Margbreytileiki eggaldina er mikill.
Afbrigðið Ratna er hnöttótt. Hvítt og dökkt eggaldin, Bianca og Black Beauty.