Bændablaðið - 19.07.2018, Side 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 37
og breiðst út þaðan til annarra svæða
í Suðaustur-Asíu. Í dag er plantan
ræktuð til aldinframleiðslu víða
um heim, meðal annars í Norður-
Ameríku, Ástralíu, Nýja-Sjálandi,
víða í Suður-Asíu og Suður-Afríku.
Talið er að eggaldinsplantan,
sem ekki finnst villt í náttúrunni,
sé ræktunarafbrigði, annaðhvort
S. linnaeanum eða S. incanum,
sem stundum kallast biturepli.
Fylgjendur þess að eggaldinsplantan
sé ræktunarafbrigði S. linnaeanum
segja að sú planta sé upprunnin í
norðanverðri Afríku og hafi náð
útbreiðslu í löndunum við botn
Miðjarðarhafsins og yfir til Asíu
áður en ræktun hennar hófst þar
og úr varð eggaldinsplanta. S.
incanum vex villt við sunnanverða
Saharaeyðimörkina og allt austur
til Kína og talið að ræktun hennar
hefjist í Suður- eða Austur-Asíu og
að af henni þróist sú eggaldinsplanta
sem við þekkjum í dag. Enn aðrir
segja að hvorug þessara plantna sé
forveri ræktaðra eggaldinsplantna og
að hver hann sé eigi eftir að koma
í ljós.
Talið er að upphaflega hafi plantan
verið ræktuð sem lækningajurt en
ekki til matar. Eggaldinsplöntunnar
er getið í indversku Ayurveda-riti frá
því um hundrað árum fyrir upphaf
okkar tímatals og þar er hún sögð
lækningajurt.
Til eru heimildir á sanskrít frá því
um 300 fyrir Krist þar sem sagt er
frá eggaldinum. Plöntunnar er víða
getið í fornum kínverskum ritum,
meðal annars riti sem kallast Tong
Yue og var ritað ríflega hálfri öld
fyrir Kristsburð. Þar segir meðal
annars að umpotta skuli fræplöntum
eggaldinsplantna á sumarsólstöðum.
Ræktunarleiðbeiningar um
eggaldinsplöntuna er að finna í
kínverskum texta sem fjallar um
ýmsar hliðar landbúnaðar. Textinn
er frá árinu 544 eftir Krist og kallast
Qimin Yaoshu. Í textanum segir að
plantan sé með þyrnum og aldinið
grænt, lítið og kúlulaga.
Talið að Alexander mikli
hafi haft með sér nokkur aldin
heim til Grikklands eftir herför
sína til Indlands en líklegt er að
eggaldinsplantan hafi borist til
Mið-Austurlanda með úlfaldalestum
arabískra kaupmanna eftir
Silkileiðinni á sjöttu öld.
Til er arabískt landbúnaðarrit frá
því á 12. öld þar sem meðal annars
er sagt frá ræktum eggaldina. Ritið
er kennt við Ibn Al-Awwam sem
var Arabi búsettur í Andalúsíu og er
það rit fyrirmynd margra seinni tíma
ræktunarleiðbeininga á spænsku.
Eggaldin naut vinsælda íbúa
Napólí á Ítalíu á endurreisnartímanum,
eða snemma á 13. öld. Þaðan barst
aldinið til Þýskalands og voru
Þjóðverjar fyrstir þjóða í Norður-
Evrópu til að tileinka sér eggaldinsát.
Eggaldin barst til Bretlandseyja frá
Frakklandi og til Frakklands frá Spáni
þangað sem Márar fluttu plöntuna
með sér frá Norðvestur-Afríku.
Eggaldin er fyrst nefnt á prenti
á Englandi í grasafræðiriti John
Geralde í lok 16. aldar. Þar segir
meðal annars að plantan vaxi víða
í Egyptalandi og að hún líkist en sé
stærri en agúrka. Sagt er að plantan
finnist í görðum í London og að hún
hafi borið blóm en ekki aldin að einu
óvenju hlýju sumri undanskildu
þegar plantan þroskaði aldin sem
var á stærð við gæsaregg.
Spánverjar fluttu eggaldins-
plöntur með sér til Nýja heimsins.
Sagan segir að Thomas Jefferson,
þriðji forseti Bandaríkja Norður-
Ameríku, hafi haft með sér
eggaldinsfræ heim eftir heimsókn
hans til Evrópu snemma á 19. öld
og hafið ræktun þeirra þar.
S. melongena er á lista yfir plöntur
sem treglega kviknar í. Plantan er
því nokkurs konar eldvarnarplanta
og gott að rækta hana á svæðum sem
hætt er við bruna.
Nafnaspeki
Aldin eggaldinsplöntunnar ganga
undir ýmsum nöfnum. Í Norður-
Ameríku og Ástralíu kallast
þau eggplant en aubergine á
Bretlandseyjum, Þýskalandi,
Frakklandi og Hollandi. Í Danmörku
og Svíþjóð eru heitin ægplante,
äggplanta og aubergine notuð.
Í Suðurríkjum Bandaríkjanna
kallast aldinið mad-apple eða
galepli. Heitið aubergine er dregið
portúgölsku kallast aldinið bringella
og mun það heiti komið frá Indlandi,
brinjal eða brinjaul, í gegnum
Arabíu.
Ættkvíslarheitið Solanum
stendur fyrir náttskugga en
tegundarheitið melongena á rætur í
ítölsku, melanzane, og samanstend-
ur af mela insane og þýðir epli og
geðveiki eða sturlun.
Mörg staðbundin heiti plöntunn-
ar eru arabísk eða norður-afrísk að
uppruna en minna er um gömul
grísk og rómversk nöfn og bend-
ir það til að Arabar hafi flutt hana
með sér og kynnt í löndunum við
Miðjarðarhaf.
Íslenska heitið eggaldin er lík-
lega hingað komið frá Danmörku
eða Norður-Ameríku.
Heitið eggplant eða eggaldin
kemur fyrst fram árið 1763 og í
tengslum við umfjöllun á afbrigði
plöntunnar með hvítu egglaga aldini
sem eru á stærð við hænuegg.
Þjóðtrú og þjóðhættir
Vegna ætternis var eggaldin lengi
vel talið eitrað og reyndar bráðeitrað
eins og margar plöntur innan
Náttskuggaættarinnar. Eins og flestir
vita eru eggaldin vel æt en aftur á
móti geta blómin og blöðin valdið
eitrun sé þeirra neytt í miklum mæli.
Samkvæmt ítalskri þjóðtrú frá 13.
öld átti eggaldinsát að valda geðveiki
og samkvæmt sögum frá Egyptalandi
á 19. öld er ofbeldi algengara hjá
þeim sem þjást af geðsjúkdómum
um uppskerutíma eggaldina og þegar
mest er af þeim á markaði.
Síðar, eftir að aldinið var tekið í
sátt í Evrópu, var neysla þess sögð
limstyrkjandi og lostavekjandi.
Í Kína var húð aldinsins
notað til að lita álnavöru dökka
og til að sverta tennur og gera þær
málmlitaðar. Þar eystra taldist
kvenkostur að brúður kynni að
minnsta kosti tólf eggaldinsuppskriftir
á brúðkaupsdaginn.
Á Tinder og öðrum sam-skipta-
miðlum mun eggaldin vera emoji eða
myndlíking fyrir vel fylltan karlmann.
Ræktun
Eggaldinsplöntur þrífast best við
hitabeltisloftslag þar sem loftraki
er hár. Auðvelt er að rækta eggaldin
af fræi eða með græðlingum. Til
að flýta spírun er gott að skola
fræin í volgu vatni og leggja þau
til þerris í tvo til þrjá daga. Eftir
það má geyma fræið á köldum stað
í nokkur ár. Halda skal mold sem
eggaldinsfræjum er sáð í rakri án
þess að hún sé rennandi blaut. Að
öllu jöfnu tekur viku til tíu daga fyrir
fræin að spíra.
Plantan kýs eilítið súra mold, pH
5,5 til 7,0, og mikið að lífrænum
efnum og að standa á björtum stað
en ekki beinni sól.
Hrátt eggaldin er 92% vatn, 6%
kolvetni og 1% prótein og með lágt
innihald næringarefna. Aldinið er
því upplagt sem uppfyllingarfæða
fyrir fólk í megrun.
Eggaldin á Íslandi
Á Kvennasíðu Vísis 6. september
1968 er að finna eftirfarandi um-
fjöllun um eggaldin sem þá var nýj-
ung á markaði hér.
„Ef þið hafið rekizt á eggaldin í
verzlunum nýlega furðar okkur ekki
á því þótt þið hefðuð staðið ráðþrota
frammi fyrir þessa óþekkta aldini
hérlendis. Grænmeti hefur verið
með fjölbreyttasta móti í verzlun-
um. Utan eggaldinsins þá höfum við
séð steinselju í ríkara mæli en áður,
sömuleiðis nýjar asíur, sólselju og
ýmislegt annað af grænmeti. Þetta
er lofsvert og e. t. v. er nú sá tími að
renna upp fyrir húsmæðurnar að þær
geti haft aðgang að grænmeti allt árið
og þá í úrvali.
En víkjum nú að eggaldininu
sem nefnist „eggplant“ á ensku og
„aubergme“ á frönsku. Eggaldinið
tilheyrir sömu plöntuætt og kartaflan
og tómaturinn.
Lögun þess og litur er breytilegur
eftir tegundum, Aldinið getur verið
aflangt eða egglaga, liturinn rauð-
fjólublár, svartfjólublár, rauður, gulur
og hvítur.
Aldinið, sem sézt hefur hér í verzl-
unum er dökkrauðfjólublátt. Aldinið
hefur ofurlítið beiskt bragð en til þess
að losna við það er hægt að strá salti
yfir aldinið eftir að það hefur verið
hlutað sundur. Eggaldinið er borðað
steikt, ofnbakað og soðið í feiti en
aldrei hrátt. Hér á eftir fara þrjár upp-
skriftir að réttum úr eggaldini.
Steikt eggaldin
1–2 eggaldin
ca 1 tsk. salt
2–4 tómatar
ca 2 matsk. hveiti
½ tsk. pipar
2–3 matsk. smjör
steinselja
Flysjið aldinið og skerið í sneiðar,
stráið yfir salti og látið bíða í 15–20
mínútur. Þurrkið sneiðarnar vel og
veltið upp úr hveiti og steikið í smjöri
á pönnu. Setjið tómatana í eitt andar-
tak í sjóðandi vatn og takið hýðið af.
Skerið tómatana í báta og steikið.
Leggið tómatana yfir eggaldin-
skífurnar. Klippið steinselju yfir
réttinn og berið hann á borð mjög
heitan. Rétturinn er borinn fram
sem grænmetisréttur ásamt fisk- eða
kjötrétti. Hægt er að bera hann fram
á franskbrauðssneiðum og þetta er
góður réttur að kvöldi til með brauði.
Ofnbakað eggaldin
1–2 eggaldin (ca 350
gr.)
ca 1 tsk. salt
2–3 msk. hveiti
1½ dl þykkur súr rjómi
3 msk. rifinn ostur
Flysjið aldinið og skerið í sneiðar,
stráið yfir salti og látið bíða í 15–20
mínútur. Þurrkið sneiðarnar vel og
veltið upp úr hveiti og steikið í smjöri
á pönnu. Leggið sneiðarnar eina af
annarri í smurt mót. Hellið rjómanum
yfir og rifnum osti, setjið mótið á rist
ofarlega í bakarofninn í 10–15 mín-
útur eða þar til rétturinn hefur ljós-
brúnan lit. Ofnhitinn er 225 gráður.
Berið fram strax. Hægt er að skreyta
réttinn með tómatbátum, steinselju
eða sólselju og er hann þá borinn fram
eins og steikt eggaldin.
Eggaldin soðin í feiti
1 eggaldin
½ tsk. salt
feiti
Eggaldinið er flysjað, sneitt niður,
stráð á það salti og látið bíða í 15–20
mínútur. Þurrkað vel og velt upp úr
hveiti og soðið í feiti í feitipotti. Borið
fram eitt sér eða með steiktum fiski
eða kjötréttum.
Að lokum er hér önnur uppskrift
að steiktu eggaldini, ekki mjög frá-
brugðin hinni fyrstu.
Eggaldin
sítrónusafi
salt pipar
ca 2 matsk. hveiti
smjör
2–4 tómatar
steinselja
Það er hægt að nota kartöfluflysjar-
ann til að flysja eggaldinið. Það er
því næst skorið í þunnar sneiðar,
sem settar eru andartak í vatn, sem
sítrónusafa hefur verið blandað í
og vökvinn er látinn renna vel af.
Veltið sneiðunum í hveiti, salti og
pipar. Brúnið sneiðarnar í smjöri á
pönnunni. Takið þær upp og brúnið
steinseljuna í smjöri, sem sítrónu-
safi hefur verið settur í. Að lokum
steikið þið tómatana og berið þá með.
Þennan rétt er hægt að nota sem græn-
meti með öðrum réttum eða sem rétt
út af fyrir sig ásamt brauði.“
Heitið eggaldin er dregið af hvítu
aldinafbrigði sem er á stærð við
hænuegg.
Þessi hnáta notar eggaldin sem
hlustunaráhald líkt og stalla hennar
sem starfar fyrir Íslensku auglýs-
ingastofuna og hlustar eftir gæðum
vökvunarvatns með agúrku.
Kínversk teikning af eggaldinsplöntu
frá því um 1200.
Samkvæmt skilgreiningu grasafræðinnar er eggaldin ber en í almennu tali telst það grænmeti.
arabískra kaupmanna eftir Silkileiðinni á sjöttu öld.
Asíu eggaldinsdjásn.
Kína er langstærsti framleiðandi
eggaldina heiminum og framleiddi
árið 2016 um 32 milljón tonn sem
er um 62,7% heimsframleiðslunnar.
Á samskiptamiðlum er
eggaldin emoji eða
myndlíking fyrir
vel fylltan karlmann.