Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 39
Gróffóðurkeppni Yara
á Íslandi 2018
Almennt má segja að bændur á
Íslandi vilja forþurrka gróffóður
í rúllur talsvert mikið. Hér hafa
bændur ólík markmið sem taka
mið af aðstæðum og reynslu á
hverjum stað. Þegar veðurfar er
eins og í sumar er hins vegar ekki í
boði að forþurrka að sama marki.
Ef stefnt er að því að votverka
fóður í rúllum þá er mikilvægt að
ná þurrefninu upp undir 35-45% til
að tryggja góða verkun og lágmarks
fóðurtap. Meira vatn í fóðrinu hefur
ýmsa ókosti umfram það óhagræði
sem felst í því að geyma og flytja
mikið magn af vatni.
Ef þurrefnið er undir 30% er alltaf
hætta á því að það tapist næringarefni
með afrennsli. Mest er hættan niður
undir 25% þurrefni. Annað vandamál
sem kemur með háu vatnsinnihaldi
er að það þarf meiri gerjun til að
verkunin verði stöðug.
Eftir því sem fóðrið er blautara
þarf meiri gerjun (sýruframleiðslu)
vegna buffer áhrifa vatnsins.
Eftir því sem líður frá æskilegum
sláttutíma fellur orkugildi fóðursins
og þar með þær auðleystu sykrur
sem eru hráefni fyrir gerjunina.
Íblöndunarefni geta hér komið að
góðum notum.
Mest er notað í dag af
íblöndunarefnum með sérhæfðum
mjólkursýrubakteríum. Þær tryggja
að rétt verkun fari afstað. Þær eru
líka sérhæfðar í að nýta sem best
þau auðleystu kolvetni sem til eru
og hámarka þannig sýrugerjun. Með
notkun íblöndunarefna má bæta
verulega árangur gróffóðurverkunar
í bleytutíð. Hins vegar má aldrei
gleyma því að undirstaða góðrar
verkunar gróffóðurs er gott hráefni
og vönduð vinnubrögð. Við óskum
bændum góðs gengis við sína
gróffóðuröflun það sem eftir lifir
sumars.
Nú er komið að því að kynna
næstu tvö búin sem taka þátt í
gróffóðurkeppni Yara þetta árið.
Goðdalir í Skagafirði
Að Goðdölum er rekið sauðfjár-
og hrossabú. Ábúendur eru Smári
Borgarsson og Sigríður Sveinsdóttir.
Gróffóðuröflun:
Gróffóður er ræktað á um 80
ha. Tún eru beitt mikið að vori
og hausti. Reynt er að ná sem
bestum heyjum hverju sinni
fyrir fengieldi og sauðburð.
Lakara fóðrið er nýtt til
miðsvetrarfóðrunar og í hross.
Reynt er að forþurrka eins mikið
og hægt er.
Áburðaráætlun:
Áburðaráætlun er yfirleitt unnin
af heimafólki. Eru nýlega búin
að vera í verkefninu Sprotanum
hjá RML þar sem farið var
yfir áburðaráætlun og tekin
jarðvegssýni. Það er lítið um
tún á mýrlendi hér og ekki þörf
á því að kalka.
Jarðrækt:
Reynt er að endurrækta á hverju
ári hluta af túninu 3-5 ha ári.
Oftast er sáð rýgresi í 2-3 ár og
síðan lokað með grasfræblöndu
sem hentar til beitar sem er þá rík
af vallarsveifgrasi. Rýgresið er
slegið og rúllað og endurvöxtur
nýttur til sauðfjárbeitar.
Stekkjarflatir í Eyjafirði
Að Stekkjarflötum er rekið kúabú.
Auk þess telur bústofn nokkrar
kindur og hross. Ábúendur eru
Hulda Sigurðardóttir og Ágúst
Ásgrímsson.
Gróffóðuröflun
Gróffóður er ræktað á um 100
ha. Markmið hvers árs er að ná
góðum heyjum með lágmarks
notkun á tilbúnum áburði. Fóður
er verkað í rúllur. Reynt er að
forþurrka upp undir 60-70%.
Áburðaráætlun
Mikið er lagt upp úr því að
gera áburðaráætlun fyrir hverja
spildu. Reynt er að nýta búfjár-
áburð sem best og fá sem besta
nýtingu á tilbúnum áburði.
Búfjáráburður er borinn jafnt á
allt ræktunarland. Mikið er lagt
upp úr því að styrkur kalís í fóðri
verði ekki of hár.
Jarðrækt
Á hverju ári eru ræktaðir
um 6-9 ha af korni. Korn
er yfirleitt ræktað í 3 ár og
vallarfoxgrasi skjólsáð með
byggi á 4 ári. Gjarnan er sáð
hreinu vallarfoxgrasi. Hluti
af byggökrum eru slegnir í
grænfóður um skrið og kúnum
beitt á endurvöxtinn.
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Jarðvegsvinur og Plöntunærir
eru ný gerð af lífrænt vottuðum
áburði og jarðvegsbæti á markaði
hér á landi sem ætlað er að örva
starfsemi jarðvegslífvera, bæta
heilsu jarðvegsins og auka vöxt
og uppskeru plantna.
„Undirstaða þess að hægt
sé að stunda lífræna ræktun er
að jarðvegurinn sem notaður er
til ræktunarinnar sé lifandi og
heilbrigður,“ segir doktor Pius
Floris, sérfræðingur í lífrænni
ræktun.
Floris var staddur hér á landi
fyrir skömmu til að kynna lífrænan
áburð og jarðvegsbæti sem hann
framleiðir undir heitinu Plant Health
Cure. Með Floris í för var Hjörtur
Grétarsson, einn eigenda Vege
ehf., sem flytur inn vörur frá PHC
og markaðssetur undir heitunum
Plöntunærir og Jarðvegsvinur
sem er lífrænt vottaður áburður og
jarðvegsbætir.
Uppskera í Evrópu fer
minnkandi
Hjörtur segir að samstarf Vege
ehf. og Floris hafi staðið í fimm
ár og að tilgangur þess hafi verið
að finna jarðvegsbætandi efni sem
hægt væri að nota til lífrænnar
ræktunar og framleiðslu hér á landi.
„Þekking og reynsla dr. Floris og
fyrirtækis hans, Plant Healt Cure, er
mikilvæg fyrir okkur á Íslandi. Það
er gott að byggja á áratuga reynslu
rannsókna og þróunar á lífrænni
ræktun sem hefur miðað að því að
auka framleiðslu, heilbrigði plantna
og hafa jafnframt jákvæð áhrif á
umhverfið.“
Floris segir að landbúnaður í
dag standi frami fyrir mörgum og
sífjölgandi vandamálum. „Uppskera
við hefðbundinn landbúnað fer víða
minnkandi og á öðrum stöðum í
Evrópu stendur hún í stað og það
hlýtur að vera vísbending um að það
sé ekki allt í lagi. Þessu er öfugt
farið þar sem er lögð stund á líf-
rænan landbúnað þar sem uppskera
hefur verið að aukast.“
Ástæða samdráttar í uppskeru,
að sögn Floris, er sú að í tæpa öld
hafi menn notað tilbúinn áburð og
önnur efni til að ná hámarks upp-
skeru. „Þetta hefur gengið eftir en
nú er komið að skuldadögunum og
kolefnið í jarðveginum að mestu
uppurið. Slíkt á ekki síst við í jarð-
vegi sem inniheldur mikið af stein-
efnum og lítið af lífrænum efnum
eins og víða er á Íslandi.
Ég sé því fyrir mér að Íslendingar
eigi að leggja meiri áherslu á að
auka magn lífrænna efna í jarðvegi
frekar en steinefna þar sem lífið í
jarðveginum skiptir í raun meira
máli en steinefnainnihald hans til
langs tíma.
Ókostur þess er að þegar
jarðvegur er efnagreindur að það
fást einungis upplýsingar um
steinefnainnihald hans en engar
upplýsingar um innihald lífrænna
efna í honum.“
Heilbrigði jarðvegs undirstaða
góðrar uppskeru
Floris segir að með því að stuðla
að heilbrigði jarðvegs verði
plönturnar hraustari og uppskeran
bæði meiri og betri. „Plant Health
Cure framleiðir jarðvegsbæti úr
pressuðu vínberjahrati sem breytt
er í lífrænan jarðveg. Ferlið tekur
níu mánuði og eftir það má dreifa
bætinum yfir jarðveginn til að
auka heilbrigði hans,“ segir Floris.
Slagorð Plant Health Cure er Við
ræktum jarðveg.
Lifandi Jarðvegsvinur
Hjörtur segir að jarðvegsbætirinn
sem Vege ehf. flytur inn kallist
annars vegar Jarðvegsvinur og sé
ætlaður til að rækta örverugróður
í jarðveginum eins og til dæmis
svepparætur og um leið að stuðla
að auknu heilbrigði hans. Hins
vegar er það Plöntunæririnn sem
ætlaður er til að auka plöntuvöxt
og uppskeru.
„Jarðvegsvinurinn er ótrúlega
fljótvirkur og getur aukið lífið
í jarðveginum og um leið gæði
hans á tveimur til þremur árum.
Rannsóknir sýna einnig að
jarðvegur sem meðhöndlaður er
með Jarðvegsvininum helst betur á
næringarefnum.
Ég sé því fyrir mér að efnið geti
reynst vel þar sem hætta er á að
næringarefni leki út í vatnsból eða
vötn eins og til dæmis Mývatn og
annars staðar þar sem vatnskerfi eru
í hættu vegna mengunar af völdum
tilbúins áburðar,“ segir Hjörtur.
Floris segir að Jarðvegsvinurinn
hafi það fram yfir annan lífrænan
áburð að í honum sé auk steinefna
lífræn efni eins og fólinsýrur og
önnur lífræn sambönd.
„Til þess að jarðvegur teljist
heilbrigður verður C/N, kolefnis
og köfnunarefnishlutfall hans, að
vera í jafnvægi. En með því að ausa
köfnunarefni eða nitri í jarðveginn,
eins og hefur verið gert undanfarna
áratugi til að auka uppskeruna, hefur
þessu jafnvægi verið riðlað. Mikil
notkun á tilbúnum áburði dregur
úr starfsemi jarðvegalífvera auk
þess sem þeim fækkar. Jarðvegur
þolir ekki þess konar meðferð nema
í takmarkaðan tíma og að lokum
tapast næringarefnin og fram kemur
jarðvegsþreyta og jarðvegshrun.“
Mikil möguleikar á notkun
„Framleiðsla PHC er mikið notuð
af þeim sem stunda lífræna ræktun
í Evrópu og tel ég að framleiðslan
ætti að geta nýst hér á landi líka.
Bæði fyrir þá sem leggja stund á
lífræna ræktun og í hefðbundnum
landbúnaði þar sem bændur
vilja stuðla að auknu heilbrigði
jarðvegsins. Jarðvegsvinurinn og
Plöntunæririnn henta reyndar við
hvaða ræktun sem er, hvort sem það
er fyrir pottaplöntur í stofuglugga,
heimilismatjurtagarðinn, garðyrkju,
landbúnað eða golf- og íþróttavelli,“
segir Hjörtur. /VH
Pius Floris og Hjörtur Grétarsson.