Bændablaðið - 19.07.2018, Page 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201840
Ólífutré og vínviður í hættu í Evrópu og víðar:
Bakteríusýking veldur
miklum skaða á nytjaplöntum
Alvarleg sýking af völdum
bakteríu sem kallast Xylella
fastidiosa er að valda gríðarlegum
skaða í ólífu- og vínviðarækt í
Evrópu og víðar um heim. Vitað
er að bakterían getur sýkt og
valdið skaða á um 350 tegundum
plantna.
Bakterían sem um ræðir breiðist
út í loft og er útbreiðsla hennar
mjög hröð þar sem hún æðir nú yfir
og sýkir ólífu- og vínviðarplöntur í
löndunum við Miðjarðarhaf.
Ný tækni sem gerir mönnum
kleift að fylgjast með útbreiðslu
bakteríunnar með hitamyndavélum
úr lofti sýnir að útbreiðsluhraði
hennar er mun meiri en ætlað var.
Bakterían, sem auk þess að
valda skaða á ólífum og vínvið,
leggst einnig á sítrustré, möndlur,
eik, álm, hlyn og hátt í 350 aðrar
plöntutegundir með mismiklum
krafti en í flestum tilfellum er
sýking af hennar völdum alvarleg.
Upphaflega kemur bakterían,
sem kallast Xylella fastidiosa,
frá Nýja heiminum þar sem hún
er þekktur skaðvaldur í ræktun.
Bakteríunnar varð fyrst vart í
Evrópu á Ítalíu árið 2013 og talið
að hún hafi borist þangað með
ávaxtafarmi frá Suður-Ameríku.
Árið 2017 var bakterían komin til
Frakklands og Spánar. Auk þess
sem hún er landlæg í Íran og á
Taívan.
Talið er að útbreiðsla bakterí-
unnar til Asíu og Ástralíu á næstu
árum sé óhjákvæmileg í gegnum
alþjóðlega verslun með plöntur og
plöntuafurðir.
Eyðilegging af völdum
bakteríunnar í Evrópu er enn sem
komið er mest á ólífulundum á
sunnanverðri Ítalíu þar hún hefur
drepið þúsundir trjáa og lagt fjölda
aldagamla ólífulunda í rúst.
Ekki er til nein lækning við
sýkingunni enn sem komið er og
eina leiðin til að hefta útbreiðslu
hennar er að fella sýkt tré. Vandinn
er aftur á móti sá að bakterían berst
með lofti og tré geta verið sýkt af
henni í ár án þess að sýna einkenni.
Skordýr sem sjúga plöntusafa geta
einnig borið bakteríuna milli trjáa .
/VH
NýsköpunUTAN ÚR HEIMI
Höfuðstórt avókadó afbrigði
ræktað í Ástralíu
Lengi vel var sagt að allt væri
stórt í Ameríku og enn stærra í
Texas en nú hafa Ástralir skotið
Könunum ref fyrir rass og sett á
markað stærsta avókadóafbrigði
sem sögur fara af.
Lengi vel var sagt að allt væri
stórt í Ameríku og enn stærra í
Texas en nú hafa Ástralir skotið
Könnunum ref fyrir rass og sett á
markað stærsta avókadó afbrigði
sem sögur fara af.
Afbrigðið sem hefur fengið
heitið Avozilla og höfuðið á
japanska skrímslinu Gozilla vegur
rúmt eitt og hálft kíló og er á stærð
við meðal mannshöfuð. Þeir sem
bragðað hafa á Avozilla segja að
það sé eins og venjulegt avókadó
og líti út eins og avókadó en bara
margfalt stærra og, ef eitthvað er,
mýkra undir tönn.
Avozilla kom fyrst fram í
Suður-Afríku og hefur verið
lítillega ræktað þar og hefur
aldið verið fáanlegt í verslunum á
Bretlandseyjum annað slagið.
Frá Suður-Afríku barst afbrigði
til Ástralíu 1957 en það er ekki fyrr
en á allra síðustu árum að farið er
að rækta aldinið í stórum stíl og
selja á almennum markaði.
Samkvæmt Heimsmetabók
Guinness vó þyngsta avókadó sem
skráð er 2,3 kíló. Ekki kemur fram
í skráningu Heimsmetabókarinnar
hvert afbrigðið er og er það miður.
/VH
Risa avókadó, eða Avozilla eins
og afbrigðið er kallað, er nokkrum
sinnum stærra en venjulegt avókadó.
Skemmdir á ólífutré af völdum Xylella fastidiosa. Fyrstu einkenni eru þornun
Fólk sér ólík tækifæri í landbúnaði
og landbúnaðarafurðum en
hingað til hafa flestir sammælst
um að mykjuna frá nautgripum
sé best að nýta sem áburð á tún.
Síðustu ár hafa svo fleiri og fleiri
farið að nýta mykjuna öðruvísi svo
sem til lífgasframleiðslu eða nýta
úr henni trefjahlutann og nota sem
undirburð eins og þegar er gert
hér á landi. En að nýta mykjuna
sem hráefni til fataframleiðslu
er líklega ekki það fyrsta sem
fólki dettur í hug að hægt sé að
gera við kúadelluna, en það var
einmitt það sem listamanninum
og frumkvöðlinum Jalila Essaïdi
datt í hug!
Hollenskur uppfinningamaður
Jalila þessi er frá Hollandi og í því
litla landi eru gríðarlega margar kýr
og samhliða miklum uppgangi hjá
samvinnufélagi þarlendra kúabænda,
Friesland Campina, hefur búskapur
landsins vaxið en landið auðvitað
ekki og hlutfall af mykju á hvern
hektara því hækkað. Stjórnvöld bæði
í Hollandi og Evrópusambandinu
hafa í auknum mæli horft til
mögulegrar útskolunar næringarefna
frá ökrum aðildarlandanna og vegna
aukins álags í Hollandi var sett þak á
heimildir bænda til að setja fosfór á
tún og akra. Flestir bændanna voru
og eru ekki með nógu stór tún til að
taka við allri mykjunni frá kúnum,
eftir að takmörkun var sett á það
magn sem mátti bera á túnin, og
þurfa því að borga með hverjum
rúmmetra sem er sendur frá búunum.
Þetta losunargjald er í dag 18 evrur
eða um 2.200 krónur á rúmmetrann
af mykjunni.
Það mál allt saman hefur verið
mikið í fjölmiðlum og kallað „stóra
skítamálið“ og vakið töluverða athygli
langt út fyrir landbúnaðinn og það ýtti
við Jalila og hún fór að kanna hvort
hægt væri að nýta skítinn með öðrum
hætti en hingað til.
Nýtir ómeltar trefjar
Mykjutrefjarnar, sem sumir
kúabændur nýta sem lungnamjúkan
undirburð undir kýrnar sínar, eru
líkt og nafnið bendir til trefjaríki
hluti mykjunnar og er sá hluti af
gróffóðrinu sem nautgripirnir hafa
ekki melt. Það eru einmitt þessar
trefjar sem vöktu áhuga Jalila en
þær innihalda cellulósa sem hún
hefur fundið leið til að nýta og
umbreyta yfir í plastþræði sem svo
er hægt að nota í föt! Með því að
nýta umframmykjuna með þessum
hætti er ekki einungis verið að leysa
umhverfisvandamál mykjunnar en
um leið komin leið til að draga úr
notkun á öðrum náttúrulegum efnum
svo sem trjám, bómull, líni og olíu
við framleiðslu á náttúrulegum
grunnefnum til fatagerðar.
Fengið mikla viðurkenningu
Jalila hefur nú unnið að þessu
verkefni í nokkur ár og þegar hlotið
fjölda viðurkenninga fyrir framlag sitt
til þróunar á landbúnaði og bættrar
nýtingar og þó svo að þessi aðferð
sé ekki almennt notuð nú til dags, má
telja líklegt að svo verði í framtíðinni.
Margir hafa miklar áhyggjur af því
hvernig við göngum um jörðina og
með því að nýta umframmykjuna
svona, sem hingað til hefur líklega
ekki verið vel nýtt í mörgum löndum,
opnast nýjar leiðir til bættrar nýtingar.
Í samstarfi með bændum
Jalila stofnaði fyrirtæki í kringum
þessa vinnsluaðferð og skýrði
fyrirtækið sitt Mestic, sem hefur
skemmtilega skírskotun til mykju
enda er hollenska nafnið á mykju
„Mest“. Mestic er starfrækt í
suðurhluta Hollands og vinnur í
samstarfi við hollensku samtökin
ZLTO, sem eru samtök bænda í
suðurhluta Hollands. Samtökin eru
með í dag um 15 þúsund félagsmenn
og hafa á stefnuskrá sinni að framleiða
hollar landbúnaðarvörur með
sjálfbærum hætti. Samtökin styðja
við bakið á ótal verkefnum sem stuðla
að aukinni sjálfbærni og því lá beint
við að fara í samstarf með Mestic. Það
er afar mikilvægt fyrir áframhaldandi
þróun hollenskrar mjólkurframleiðslu
að leysa vandamálið með mykjuna
og standa vonir nú til þess að þessi
lausn Mestic muni styrkja verulega
þróunina í Hollandi.
100 þúsund tonn á ári
Nú er unnið að því að fullþróa
vinnsluaðferðina og staðla gæðin
á vinnsluefninu sem kemur út úr
framleiðslunni og er unnið með 12
kúabúum í því ferli og mykjan unnin
í fataþræði í tilraunastofu. Eins og
allir kúabændur vita er mykja frá
einu búi ekki eins og mykjan á
næsta búi og fer það algjörlega eftir
því hvaða gróffóður gripirnir fá,
hvers konar undirburð bændurnir
nota, vatnsmagn sem fer í mykjuna
o.s.frv. Það er því ólíkt hráefnið sem
er í boði og þarf að finna leiðir til
að nýta sem best ólíka gæðaflokka
mykjunnar. Þessi grunnvinnsla
og þróunarvinna er vissulega
kostnaðarsöm en nauðsynleg áður
en lengra er haldið, en stefnt er
að því að skala framleiðsluna upp
í afkastagetu sem getur unnið úr
1.000 tonnum af mykju á ári. Það er
þó einungis fyrsta skrefið hjá Mestic
og ZLTO samtökunum þar sem þau
stefna á verksmiðju sem getur unnið
úr 100.000 tonnum á ári. Þó svo að
það sé vissulega mikið magn þá er
það í raun alls ekki mikið, miðað við
það sem fellur til af mykju í Hollandi
og hefur t.d. verið reiknað út að hægt
væri að setja upp 10 verksmiðjur
með 100.000 tonna framleiðslugetu
í Noord-Brabant héraðinu sem er í
syðsta hluti landsins.
Framtíðin?
Þó svo að framleiðslan á fötum úr
mykjutrefjum sé afar takmörkuð
sem stendur, þá er aðferðin og
nýtingarhugmyndin afar áhugaverð
og gæti vel verið sú leið sem fleiri
geta hugsað sér að fara á komandi
árum. Mikil og vaxandi eftirspurn
eftir mjólkurvörum um allan heim
kallar á aukna mjólkurframleiðslu
og samhliða henni fellur mykjan til
sem hluti framleiðslunnar. Að nýta
hana sem best og án álags á náttúruna
er auðvitað grundvallar skilyrði
svo telja má líklegt að stjórnvöld,
afurðastöðvar og bændur víða um
heim horfi með eftirvæntingu á þetta
frumkvöðlastarf í Hollandi.
- Byggt á: Made from manure: One
entrepreneur‘s solution to dairy
excrement. Progressive Dairyman
(10) 2018.
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Þessi skjóllitli klæðnaður er unninn
úr trefjum kúamykju.
Myndir / Ruud Balk
Í skyrtu úr skít
– Er hægt að nota mykju sem hráefni til fataframleiðslu?