Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 41
Kjarr, 816 Ölfus / S. 482 1718 & 846 9776 / kjarr@islandia.is / kjarr.is
úrvali
Tré
og runnar í
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Gluggar og hurðir með eða
-8 vikur
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
iblb . s F obcea ok
Sígild og ný sumarnámskeið á Hvanneyri
– Nemendur öðlast þekkingu á náttúrunni frá fyrstu hendi
Nýverið stóð Landbúnaðarháskóli
Íslands fyrir sumarnámskeiðum
sínum, bæði í háskóladeild og
búfræðideild.
Námskeiðin sem nemendur á
starfsmennta- og endurmenntunar-
sviði gátu tekið að þessu sinni voru
plöntugreining, jarðrækt og járn-
ingar. Í háskóladeild voru haldin
námskeið í plöntugreiningu og farið í
vistfræðiferð og jarðfræðiferð.
Bera kennsl á íslenska flóru
Plöntugreiningin er fastur liður í
búfræðináminu. Tilgangur þess
er að nemendur læri að þekkja og
greina túngrös og aðrar plöntur
sem finna má í íslenskri náttúru.
Samkvæmt áfangalýsingu er ætl-
ast til að nemendur geti fjallað
um plöntur sem tilheyra íslensku
flórunni og gert sér grein fyrir
breytileika gróðurlenda á Íslandi og
hvað einkennir viðkomandi gróður-
lendi. Nemendur útbúa sér plöntu-
safn og skila af sér. Plöntugreining
fer einnig fram í háskóladeild, en
þar þurfa nemendur að skila af sér
ítarlegra plöntusafni og dvelja í eina
viku á staðnum.
Spekingar spjalla um jarðrækt
Verkleg jarðrækt var nú kennd í fyrsta
skipti sem sumarnámskeið. Hópnum
var skipt í tvennt og tóku nemendur
að sér að endurrækta túnspildu frá
upphafi til enda. Kennarar í nám-
skeiðinu eru Haukur Þórðarson og
Jóhannes Kristjánsson. Í upphafi var
spildan mæld upp fyrir plægingu og
því næst var teigplógurinn settur við
og plægt eftir kúnstarinnar reglum.
Að því loknu var spildan tætt með
pinnatætara og jöfnuð með flag-
jafnara. Til að fullkomna verkið var
herfað létt yfir stykkið og valtað yfir
með tunnuvaltara. Að lokum var svo
að sjálfsögðu sáð í það rýgresi með
blástursknúinni randsáðvél sem út-
búin er með gjarðavaltara og einnig
keflavaltara. Í hverjum verkþætti var
rætt um hvernig væri rétt að standa
að viðkomandi verki og ýmsu velt
upp í sambandi við vinnsludýptir,
ökuhraða, snúningshraða, sáðmagn
og þess háttar. Slíkar samræður
eru ekki síst mikilvægar til að efla
þekkingu á jarðrækt. Það gekk þó á
ýmsu við jarðræktina því hjá öðrum
hópnum var bleytan slík að erfitt var
að komast um. Allt hafðist það þó
að lokum.
Járning er ekki bara járning
Á járninganámskeiðinu er farið
yfir helstu þætti góðrar járningar
og nemendum ætlað að gera sér
grein fyrir áhrifum járninga á
fótaheilbrigði hesta. Jafnframt er
þeim gert að tengja samspil járn-
inga og fótstöðu við hreyfingar
og ganglag hesta. Námskeiðið var
valnámskeið og fór það fram að
Mið-fossum. Gunnar Halldórsson
sá um að kenna nemendum réttu
handtökin. /BR
Verðandi búfræðingar spá í spilin ásamt Hauki Þórðarsyni, kennara í bútækni.
Menn uppskera eftir því hvernig sáð
er.
Háskólanemar láta rigninguna ekki stoppa sig í plöntusöfnun. Góð regnkápa
gerir sitt gagn. Myndir / LbhÍ