Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 43
Sigurður Sigurðarson dýralæknir hvetur bændur og stjórnvöld til að halda vöku sinni:
Merking á miltisbrunagröfum hefst á ný
Síðasta sumar fóru Sigurður dýra-
læknir á Selfossi og Ólöf Erla kona
hans um landið og merktu miltis-
brunagrafir, en þær eru um allt
land. Mikilvægt er að þekkja og
merkja grafirnar.
Sýkillinn sem veldur miltis-
brandi lifir sem dvalargró nær
endalaust niðri í jörðinni en virð-
ist verða hættulítill í yfirborðinu í
grennd við grafirnar eftir fáar vikur
fyrir áhrif sólarljóss og veðrunar.
Ef jörð er raskað, t.d. við skurð-
gröft, vegalagningar, byggingar
og við flagmyndun sem verður við
nauðbeit hrossa svo að hræ dýranna
eða hlutar þeirra kunna að koma
upp á yfirborðið er hætta á ferðum.
Veikin er þekkt í flestum suðlægum
löndum, sums staðar er hún skæð
og algeng.
Miltisbrandurinn kom frá Afríku
Sýkingin barst til Íslands með
innfluttum ósútuðum húðum um
1865, fyrst og fremst frá Afríku.
Veikin kom fyrst upp í Miðdal í
Mosfellssveit. Árið 1866 fórust á
þeim bæ 20 stórgripir (12 hross og
8 nautgripir) og árið eftir 4 hross
og 2 naut og auk þess 3 lömb og 2
hundar, sem snuðruðu í hræjunum.
Síðast fannst miltisbrandur hér
á landi árið 2004 á Sjónarhóli í
Vatnsleysuströnd. Þá hafði sjórinn
brotið sjávarkamb og dreift efni úr
honum yfir beitiland 4 hrossa, sem
þar voru. Þrjú hrossanna veiktust
og drápust og það 4 veiktist og var
lógað. Sagnir herma að 130 árum
áður hafi miltisbrunahræ verið grafið
í sjávarkambinum.
Dauðsföll þekkt hér á landi
Smithætta er fyrir flestar
dýrategundir með heitu blóði og
fyrir fólk. Að minnsta kosti 10
manns hafa látist af þeim sökum hér
á landi og margir tugir manna hafa
veikst, sem tekist hefur að lækna.
Skepnur, sem drápust úr miltisbrandi
voru grafnar djúpt og girt í kring um
grafirnar. Þær girðingar eru flestar
fallnar nú.
Engin hætt á ferð
ef jörð er óhreyfð
Ef jörðin er látin óhreyfð, á stöðum,
sem merktir hafa verið, þá er hættan
engin. Þekktar eru um 150 grafir á
um 120 stöðum. Merkingarnar eru
varanlegri en fyrr, þ.e. stálplata með
ágröfnu númeri, sem gæti enst í 100
ár og endurskinslímborði, sem gæti
enst í 20 ár. Ekki vannst tími eða
nægilega góð veðrátta sumarið 2017
til að ljúka merkingunum, en þeim
verður fram haldið nú í sumar og
vonandi tekst okkur Ólöfu að ljúka
því verki. Merkin eru hvítur sívalur
stólpi 50 cm hár og 7 cm í þvermál á
jarðföstum teini (kambstál).
Fjöldi staða og bæja þar sem
veikin hefur fundist eða má ætla
að hún hafi fundist eru tilgreindir í
meðfylgjandi töflu eftir landsvæðum
og einnig hvernig merkingum hefur
verið háttað á hverju svæði. Fjölda
staða og bæja þarf að taka með
svolitlum fyrirvara. Bókstafurinn A
stendur fyrir Anthrax:, sem er hið
erlenda heiti á miltisbrandi.
Margir hafa lagt hönd á plóg
Ég fór að undirbúa merkingar á gröf-
unum árið 2004, en eftir að ég hætti
störfum hjá yfirdýralækni um 2006
hefur þetta starf, þ.e.: öflun upplýs-
inga, staðsetning, merking og skrán-
ing að mestu verið sjálfboðavinna,
en kostnaður, sem undirritaður hefur
greitt úr eigin vasa vegna þessa verks
er kominn í 850.000 krónur. Í þeirri
upphæð eru engin vinnulaun, enda
hafði ég ætlað mér að láta eftirlaunin
mín duga til þess.
Í fyrravor var ég orðinn vondauf-
ur um að geta lokið þessu verkefni,
einkum vegna daufra undirtekta
og æpandi þagnar stjórnvalda við
beiðni minni um aðstoð. Þá gekkst
Guðni Ágústson, fyrrum landbúnað-
arráðherra, fyrir því að útvega bíl og
eldsneyti svo að fara mætti á milli
miltisbrunastaðanna til að merkja og
safna upplýsingum. Guðni er sá, sem
mestan skilning hefur á þessu verk-
efni mínu og hve nauðsynlegt það er.
Heiður og þökk sé honum fyrir það.
Svo fékk ég Ólöfu konu mína til að
vinna með mér við merkingarnar,
en það var og er ómetanlegt. Ýmsir
fóru að styrkja þetta verkefni, þegar
þeir fréttu af því og fjölmargir hafa
lýst ánægju sinni. Hjartans þökk. Það
hjálpar okkur Ólöfu af stað. B&L,
Bifreiðar og landbúnaðarvélar, leggja
til tvídrifa bíl og N1 leggur til elds-
neyti. Það gerðu þeir á síðasta ári
og ætla að sýna þann skilning og
vináttuvott, að endurtaka aðstoðina
á þessu sumri.
Baldur Baldursson, BB-skilti ehf
(bbskilti@bbskilti.is), hefur gengið
fram af drengskap og krafti við að
koma þessu verkefni af stað. Hann
útvegaði stálplöturnar og fékk ýmsa
góða menn til að styðja þetta verkefni
t.d. Micro ryðfrí sérsmíði, Wurth,
Verkfæralagerinn, Arkir ehf. o.fl.
Björn Jenson rennismiður hefur
lánað rafmagnsborvél og draghnoða-
töng.
Aðrir verða að taka við
ábyrgðinni
Ég geri mér ljóst, að ég mun ekki
geta tekið þetta verkefni með mér
yfir í aðra heima. Aðrir verða að
taka við ábyrgðinni. Ég hef nú rætt
við Matvælastofnun. Hún tekur því
vel að taka við starfi mínu og eft-
irliti og gera tillögur um reglugerð,
sem tryggi öryggi merkinganna og
endurnýjun merkja, sem kunna að
falla útaf eða týnast, en sem betur fer
virðist merkingarlag okkar traust og
endingargott. Hrossum verður þó að
halda frá slíkum merkjum.
MERKTAR MILTISBRUNAGRAFIR
Svæði Bæir/staðir, fjöldi
Grafir,
fjöldi
A1-A100* - Suðurland 32 43
A101-A200 Vesturland og
Vestfirðir
31 36
A201- 300 Norðurland 16 21
A301-400 Austurland 41 45
A401-500 Suðausturland 4 6
ALLS 124 151
* Bókstafurinn A stendur fyrir Anthrax, sem er hið erlenda heiti á militsbrandi.
grundvelli úttektar á starfsemi um-
sækjanda. Þjálfaður úttektarmaður
annast úttektina fyrir hönd vottun-
arstofunnar.
Vottunin er staðfest með vottorði
sem tilgreinir nafn þess sem hlýtur
vottun, þær reglur eða staðal sem
vottað er samkvæmt, gildistíma
vottunar og umfang hennar.
Vottunin veitir handhafa heimild
til að nota vottunarmerki og tilvís-
un samkvæmt samningi þar um á
umbúðir og við markaðssetningu
vottaðrar framleiðslu
Rekjanleikakeðja
Rekjanleiki er grundvallaratriði við
vottun matvæla, fóðurs, búfjár og
búfjárafurða - og allra aðfanga og
efna til slíkrar framleiðslu.
Skilgreining á rekjanleika er
möguleikinn á að rekja feril þess
sem framleitt er í gegnum öll
stig frumvinnslu, úrvinnslu og
dreifingar.
Sannprófun rekjanleika er
mikilvægur þáttur í úttektum og
vottun. Rofni rekjanleiki er ekki
unnt að sýna fram á hvaðan vara
eða þjónusta hefur borist og hvort
framleiðsla hennar hafi uppfyllt
kröfulýsingu staðals eða löggjafar.
Í næstu grein verður fjallað um
helstu alþjóðastofnanir og samtök
á sviði vottunarmála.
- Oddný Anna Björnsdóttir er
bóndi og sjálfstætt starfandi
ráðgjafi. Greinar í Bændablaðinu
um merkingar og vottanir byggjast
á verkefni sem hún vann fyrir
Íslandsstofu veturinn 2018.
Staðlar og vottanir hjálpa neytendum
að taka upplýstar ákvarðanir við
kaup á matvælum.
Nýlegar breytingar á lögum
kveða á um að refsivert sé
að stjórna skráningarskyldri
vinnuvél án gildra réttinda frá
Vinnueftirlitinu.
Samkvæmt þessum lögum
hefur hámark dagsekta hækkað
úr 100.000 krónum í allt að eina
milljón krónur fyrir hvern dag.
Hafa dagsektir Vinnueftirlitsins
því hækkað sem því nemur.
Dráttarvélar og tæki
með drif skafts tengdum eða
vökvaknúnum vélum eða tækjum
teljast til skráningarskyldra
vinnuvéla. Á dráttarvélum sem
skráðar eru á ökutækjaskrá er
ID númer Vinnueftirlitsins sem
notað er við eftirlit og skráningu
vélanna.
Björn Rögnvaldsson,
lögfræðingur hjá Vinnueftirlitinu,
segir að dráttarvélar með
átengdar vinnuvélar falli undir
skráningarskyldar vinnuvélar en
sé einungis um akstur dráttarvélar
án vinnuvéla gildi almenn
umferðarlög.
Vinnueftirlitið hefur þegar hafið
að framfylgja réttindaskyldunni og
mun stofnunin kæra til lögreglu
öll mál þar sem stjórnandi
skráningarskyldrar vinnuvélar er
án gildra vinnuvélaréttinda. /VH
Refsivert að stjórna skráningarskyldri vinnuvél án réttinda:
Dagsektir allt að einni
milljón króna
Merking við Miðdal í Mosfellssveit.
Stálplata með ágröfnu númer.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Mynd / TB
Kambstál er rekið í jörðu og merkingu á miltisbrunagröf komið fyrir í kjölfarið.
Myndir / SS