Bændablaðið - 19.07.2018, Page 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201846
Fyrir nokkru ók ég fram hjá BL
og sá þar þrjá nýja, mismunandi
á litinn, Dacia bíla sem ég hafði
ekki prófað. Bíllinn er frá
Rúmeníu og heitir Dacia Sandero
og búinn til í samvinnu Reunault
og Dacia.
Verðið á bílnum er undir tveim
milljónum og fer hann þá í ódýrasta
flokk bíla sem oftast eru smæstu
bílarnir, en Sandero er aðeins stærri
en smæstu bílarnir og er í raun
einum flokki ofar hvað stærð varðar
miðað við verð. Til að komast að
því hvers vegna bíllinn er svona
ódýr miðað við stærð var ekkert
annað að gera en að prófa gripinn.
Vélin ekki nema 900 cc en skilar
góðum krafti
Strax og ég settist inn í bílinn
varð ég þess áskynja að maður
fær það sem maður borgar fyrir,
engin aksturstölva er í bílnum sem
segir til um hita á olíu og vatni,
ekki eyðslumæling sem segir til
um bensíneyðslu og meðaleyðslu,
né hvað maður kemst langt á
því eldsneyti sem á tanknum er.
Hliðarspeglar stilltir með handafli
inni í bílnum á gamla mátann, ekki
hiti í sætum og ekki hraðastillir
(cruise control). Sem sagt, þarna er
kominn stór hluti af svarinu hvers
vegna bíllinn er svona ódýr.
Að keyra bílinn er ágætt, sætin
þægileg og fótapláss gott. Bíllinn er
fimm gíra og vinnur ágætlega miðað
við að bensínvélin er ekki nema 900
cc. og á að skila 90 hestöflum, þessi
litla vél er nefnilega að þrælvirka.
Bíllinn er glettilega snöggur að ná
umferðarhraða úr kyrrstöðu með
tvær persónur inni í bílnum, en mig
grunar að hann sé frekar latur og
svifaseinn fullhlaðinn úr 0–90 km
hraða.
Skriðvörnin kemur frekar seint
inn á malarvegum
Eins og svo oft áður hef ég nefnt
að mér leiðist bílar sem eru með
smá ljóstírur að framan en engin
ljós að aftan. Sandero er svona út-
búinn og ef maður vill tryggja að
maður fái ekki 20.000 króna sekt í
akstri verður maður alltaf að muna
að kveikja og slökkva ökuljósin
til að vera löglegur í akstri. Það er
mikill misskilningur á lögum um
ljósabúnað ef menn halda að það
þurfi bara ljós að framan í umferð.
Samkvæmt lögum og staðfestingu
frá Samgöngustofu eiga að vera ljós
á bílum í umferð allan hringinn í
akstri.
Á 90 km hraða á bundnu slitlagi
er töluvert veghljóð inni í bílnum
og þegar ekið er á malarvegi er
töluvert smásteinahljóð upp undir
bílnum aftan til. Þegar ekið er á
lausri möl tekur skriðvörnin yfir
stjórn bílsins ef hann fer að renna
til, en það gerist frekar seint og er
bíllinn kominn töluvert út, sérstak-
lega að aftan (skriðvörnin fer fyrr
á ef bíllinn byrjar að renna til að
framan).
„Er ekki frá því að útvarpið hafi
verið besti hluturinn í bílnum“
Eftir rúmlega 100 km prufuakstur
er mín skoðun að þessi bíll sé
ágætis kostur sem „snattbíll“ til
smærri verka fyrir þá sem ekki
gera miklar kröfur til þæginda.
Dacia Sandero er, þegar á heildina
er litið, meðalbíll á
verði smábíla með
mikið farangurs-
rými og fullbúið
varadekk.
Verðið er ekki
nema 1.990.000
og uppgefin eyðsla
er ekki nema 4,9
lítrar af bensíni á
hundraðið. Hins
vegar vantar flest
þægindi í bílinn, en
í því felst væntan-
lega þetta lága verð
á bílnum. Að lokn-
um prufuakstrinum
var mér hugsað til
þess hvað mér hefði fundist best
við bílinn, en það mun hafa verið
útvarpið sem er mjög gott og kom
úr því þessi fíni hljómur (hef oft
prófað mun dýrari bíl með verra
útvarp). Fyrir áhugasama um að
kynna sér Dacia Sandero nánar vil
ég benda á sölumenn BL eða á vef-
síðuna www.bl.is.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Hæð 1.519 mm
Breidd 1.733 mm
Lengd 4.069 mm
Helstu mál og upplýsingar
Myndir / HLJ
jasti Dacia bíllinn heitir Sandero:ýN