Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 201748
Á Vatnsleysu 1 í Biskupstungum
er rekið blandað bú með sauðfé,
kýr og hross.
Býli:
Vatnsleysa 1.
Staðsett í sveit:
Biskupstungur í Bláskógabyggð.
Ábúendur:
Guðmundur Sigurðsson og
Sigríður Egilsdóttir, Egill Björn
Guðmundsson, Rúnar Björn
Guðmundsson og Birta Berg
Sigurðardóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Guðmundur og Sigríður eiga fjögur
börn. Birta og Rúnar eiga einn son.
Stærð jarðar?
Um 600 ha, þar af ræktað land um
110 ha auk þess heyjaðir um 25 ha
á Vatnsleysu 2.
Gerð bús?
Blandað bú. Guðmundur og
Sigríður eru með kýrnar og
Rúnar og Birta eru með féð.
Fjöldi búfjár og tegundir?
48 kýr auk geldneyta, 650 kindur,
26 hross, hundarnir Stína og
Móri, tvær læður auk kettlinga.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Mjaltir kvölds og morgna, annars
eru verk bundin árstíðum eins
og gengur. Yfir vetrartímann
snýst vinnudagurinn aðallega
um gjafir, á vorin um sauðburð
og jarðvinnslu, á sumrin heyskap
og á haustin smalamennskur og
fjárrag.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Skemmtilegast er þegar vel
gengur og veðrið er gott.
Leiðinlegast er þegar skepnur
veikjast eða tæki bila á ögur-
stundu.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár?
Með svipuðu sniði en þó með
bættum aðbúnaði fyrir nautgripi
og menn.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda?
Það ber að þakka því fólki sem vinnur
þau störf en jafnframt mikilvægt að
halda vel á spöðunum. Margt vel
gert og annað má betur fara.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Honum á eftir að farnast vel,
ef stjórnmálamenn hafa dug í
sér að standa með íslenskum
landbúnaði og láta ekki stjórnast af
skammtímasjónarmiðum.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Tækifærin liggja í því að skapa
sérstöðu með hreinni gæðavöru.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Þar sem hér er verið að fjalla um
tvær fjölskyldur er það ef til vill
breytilegt en í báðum ísskápum
er alltaf til mjólk, ostur og fjöldi
krukkna með ýmiss konar innihaldi.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Ofnsteikt lambakjöt gengur vel
ofan í alla.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Þegar húsakynni hafa verið
endurnýjuð á síðustu árum, svo sem
vélaskemma, hesthús og það nýjasta,
fjárhúsin.
Það er gott að grilla grænmeti og
jafnvel salat – og mjög við hæfi á
sumrin.
Grillað avocado og romaine „BLT“-salat
Hráefni:
› ¼ bolli hreint grískt jógúrt
› ¼ búnt söxuð steinselja
› 2 matskeiðar lime safi
› 1 miðlungs avocado (lárpera)
› ¾ bolli kalt vatn
› Góður ostur (ef fólk vill)
› Salt, eftir smekk
Fyrir avocado BLT-salat:
› 3 höfuð romaine-salat, skorin í helm-
inga á lengdina
› 1 pakki þykkt skorið beikon
› 2 matskeiðar lime safi
› 2 miðlungs avocado skorið í tvennt,
steinninn tekinn úr og flysjað
› 1 box kirsuberjatómatar, skornir til
helminga
› 1 stk. saxaður vorlaukur
› 100 ml ólífuolía
Aðferð
Forhitið grill að miðlungshita.
Gerið dressinguna: Blandið öllu
saman í matvinnsluvélinni nema
vatni og salti. Á meðan vélin er í
gangi, þynnið blönduna með vatni
þar til blandan er slétt. Kryddið með
salti og setjið í skál.
Á heitu grillinu skaltu bæta við
salati og avocado helmingunum.
Grillið þetta þar til dökk grillmerki
eru komin og ekki snúa þessu strax
við. Eftir 1-3 mínútur (fer eftir hita)
snúið hráefninu við. Takið romaine
af grillinu eftir tvær mínútur og
setjið á bakka til að kæla. Takið
avocado helmingana af grillinu eftir
2 mínútur. Eldið beikonið þangað til
fitan hefur runnið af og sneiðarnar
eru gullnar.
Skerið romane salatið niður og
blandið saman við kirsuberjatómata,
beikonið og avocado. Berið fram
með dressingu til hliðar.
Hunangsgljáð kjúklingalæri með nýjum
kartöflum
Hráefni:
› 1 pakki kjúklingalæri með fitu
› 3 msk. ósaltað smjör
› 1 tsk. hakkað ferskt engifer
› 2 hvítlauksrif, hakkað
› ¼ teskeið reykt paprika
› ¼ tsk. olía
› 4 matskeiðar hunang
› 6 msk. sriracha chilisósa eða ½
ferskur chili, skorinn fínt
› 1 matskeið lime safi
Aðferð
Hitið grill að miðlungs háum hita,
um 160 gráður.
Í litlum potti, setjið smjörið ásamt
fersku engifer og hvítlauk. Hrærið
þar til það er rjúkandi heitt, í um
eina mínútu.
Bætið næst reyktu paprikudufti við,
hunangið, sriracha og lime-safa.
Hrærið til að blanda saman og látið
malla í 4-5 mínútur.
Þurrkið kjúklingalæri og þurr-
kryddið með salti og pipar á báðum
hliðum.
Penslið grillgrindur með fitu eða
nuddið með ólífuolíu í klút.
Setjið kjúklingalæri á grillið, fituhlið
niður fyrst. Grillið í 4-5 mínútur.
Snúið kjúklingnum við og grillið á
hinni hliðinni í 4-5 mínútur.
Haldið áfram að elda kjúklinginn
rólega á óbeinum hita þar til náð
hefur kjarnhita (um 70 gráður í um
25-30 mínútur).
Á síðustu 5 mínútum er gott að
pensla vel með hunangsgljáanum.
Takið af grillinu og framreiðið með
soðnum eða bökuðum nýjum kart-
öflum, með smjöri og salti.
Er ekki tilvalið að nota hitann af
grillinu svo til að gera eftirrétt?
Pitsa með Nutella og ferskum berjum
› 1 tilbúið heimabakað eða keypt
pitsudeig
› 2 msk. ósaltað smjör, brætt
› ½ bolli Nutella eða annað
heslihnetusúkkulaði (eða allt
súkkulaði)
› 1 box íslensk hindber (hægt að fá
marglit frá Kvistum garðyrkjustöð)
› 1 bolli jarðarber, sneidd
› Flórsykur
Aðferð
Setjið pitsu- eða baksturssteina á
grillið eða álpappír.
Setjið deigið í stofuhita (það ætti að
vera tvöfalt stærra) og á hveitistráðu
yfirborði skuluð þið teygja á því eða
rúlla því út í fallegan hring.
Færið á pönnu, bökunarplötu eða
álpappír.
Penslið bræddu smjöri á deigið.
Gerið holur í deigið með gaffli til
að koma í veg fyrir að það hefist of
mikið.
Flytjið deigið á grillið og bakið í
um 10 mínútur, þar til skorpan er
gullbrún.
Takið deigið af grillinu og dreifið
Nutella eða öðru góðu áleggi
vandlega ofan. Setjið hindber og
jarðarberjasneiðar ofan. Einnig má
setja annað álegg ofan á eins og
heslihnetur, pecan hnetur, þurrkaðan
kókos, súkkulaðiflögur eða aðra
ávexti.
Skreytið með flórsykri, ef þess er
óskað, og berið strax fram.
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Grillað salat, grænmeti og kjúklingalæri
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Vatnsleysa 1
Fjölskyldan á Vatnsleysu 1 í Biskupstungum.