Bændablaðið - 19.07.2018, Side 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 49
Prjónaður vettlingur og bjórvett-
lingur úr DROPS Eskimo. Rendur
og garðaprjón.
Stærð: S/M – M/L
Mál á bjórvettling:
• Hæð: um 10-11 cm.
• Ummál fyrir flösku: um 21–21 cm.
• Lengd á stroffi: ca 13 cm.
Garn: Drops Eskimo (fæst í Handverkskúnst).
• 150 g litur 24, gulur
• - 0 g litur 46, milligrár
Prjónar: Nr. 5,5 - eða þá stærð sem þarf til að 14
lykkjur og 27 umferðir með garðaprjóni verði 10
cm á breidd og 10 cm á hæð.
Upplýsingar fyrir mynstur: Garðaprjón (prjónað
fram og til baka). Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í
öllum umferðum.
Útaukning (á við um hægri/vinstri vettling):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni upp
á prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn
prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.
Úrtaka: Lykkjum er alltaf fækkað frá réttu.
---------------------------------------------------
Vettlingar:
Báðir vettlingarnir eru prjónaðir fram og til baka
og saumaðir saman í lokin.
Vettlingarnir eru prjónaðir alveg eins óháð hvort
prjónað er á hægri eða vinstri hönd.
Bjórvettlingur:
Fitjið upp 11–13 lykkjur á prjón 5,5 með
milligráum. Stykkið er prjónað með garðaprjóni,
1. umferð = rétta. Prjónið 14 umferðir með
milligráum, síðan eru prjónaðar 4 umferðir
með gulum, 4 umferðir með milligráum, síðan
er prjónað með gulum. Þegar stykkið mælist 13
cm eru fitjaðar upp 17 lykkjur í lok umferðar frá
réttu = 28–30 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20 cm
eru fitjaðar upp 2 lykkjur í lok umferðar frá röngu
fyrir þríhyrning (= botn). Fitjið upp 2 lykkjur í
lok hverrar umferðar frá röngu alls 5 sinnum =
38–40 lykkjur. Prjónið 2 umferðir. Fellið síðan af
2 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu. Fellið
af 2 lykkjur í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum
= 28–30 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34 cm fellið
af fyrstu 17 lykkjurnar í byrjun á umferð frá röngu
= 11–13 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka
þar til stykkið mælist 39 cm. Prjónið 4 umferðir
með milligráum, 4 umferðir með gulum, síðan 14
umferðir með milligráum. Fellið laust af.
Frágangur:
Sjá teikningu. Saumið A við A – saumið í ystu
lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur og
brjótið uppá helminginn inn – sjá strikaða línu.
Saumið B við B (= ofan á hönd), C við C (= önnur
hlið á botni), D við D (= hin hlið á botni) og E við
E (= undir hönd).
Vettlingur:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað
saman í lokin.
Fitjið upp 27–29 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með
milligráum. Stykkið er prjónað með garðaprjóni,
1. umferð = rétta. Prjónið 14 umferðir með
milligráum, síðan 4 umferðir með gulum, 4
umferðir með milligráum, síðan er prjónað með
gulum. Þegar stykkið mælist 13 cm er sett 1
prjónamerki í 14.–15. lykkju (= op fyrir þumal).
HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Nú eru 13–14 lykkjur ofan á hönd og 13–14 lykkjur
innan í hönd. Haldið svona áfram þar til stykkið
mælist 3 cm frá prjónamerki.
Aukið nú út fyrir op fyrir þumal með því að auka
út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með
prjónamerki í - lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út
í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 35–37
lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist
6 cm. Setjið 9 lykkjur fyrir þumal á 1 band, haldið
áfram fram og til baka og fitjið jafnframt upp 1 nýja
lykkju á prjóninn yfir lykkjurnar á bandi = 27–29
lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist
15–16 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 3 cm til
loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri
lengd). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 7–9
lykkjur jafnt yfir – lesið næstu umferð frá réttu og
fækkið um 7–9 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA =
20 lykkjur. Fellið af 4 lykkjur 1 sinni = 16 lykkjur,
síðan eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman alls 2
sinnum = 4 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist nú ca.
18–19 cm frá prjónamerki. Klippið frá og dragið
bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið
að og festið vel. Saumið hliðarsaum á vettling í ystu
lykkjubogana, svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Þumall:
Setjið 9 lykkjurnar af bandi á prjón 5,5, prjónið að
auki upp 1 lykkju aftan við þumal = 10 lykkjur.
Prjónið garðaprjón með gulum. Þegar þumallinn
mælist ca 6 cm eru allar lykkjur prjónaðar slétt
saman 2 og 2 = 5 lykkjur. Klippið frá og þræðið
bandið í gegnum allar lykkjur sem eftir eru, herðið
að og festið vel. Saumið hliðarsaum á þumli í ystu
lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
Mynstur:
= kantur með uppábroti
= op fyrir hönd
Bjórvettlingar
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 1 9 7 8
3 7 2 1 6
9 8 3 4
6 2 4 5 3
8 4 5 1
5 4 2 7 3
2 9 1 5
3 4 6 8 7
5 4 9 6 1
Þyngst
3 2 7 4
2 6 1 8
3 8 9
2 5 4 9 7
1 6 7 8
6 4 9 2 3
9 4 2
8 5 9 1
7 5 1 3
8 9 7
4 9 5
6 2 5 3
5 3
5 2 6 1
1 4
1 4 6 9
5 1 8
8 5 9
7 3 4 6
6 9 8
7 9
5 9 1 7
4 6 9 8
1 6
8 7 1
4 2 3 8
Skemmtilegast í
stærðfræði
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Sindri Jóel býr á Laugum í Þing-
valla sveit. Honum finnst skemmti-
legast í stærðfræði og uppáhalds-
maturinn er slátur.
Nafn: Sindri Jóel Hjartarson.
Aldur: 6 ára, verð 7 ára í nóvember.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Á heima á Laugum í
Þingeyjarsveit.
Skóli: Þingeyjarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Mér finnst skemmti-
legast í stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Það
er hundur.
Uppáhaldsmatur: Það er sko slátur.
Uppáhaldshljómsveit: Jón Jónsson.
Uppáhaldskvikmynd: Hin ótrúlegu
2.
Fyrsta minning þín? Ég veit það
ekki.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu
á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og
frjálsar og er að fara að læra á gítar
í vetur.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Flugmaður, held ég.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Veit ekki.
Gerir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Leika mér, fara á fótbolta-
æfingar og fara til Reykjavíkur.