Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201850
Hvað finnur þú í sumar?:
Lífveruleit í Laugardalnum
Í júlímánuði stendur gestum
Grasagarðsins og Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins til boða að
taka þátt í lífveruleit í lífríki
Laugardalsins.
Alls konar lífverur, dýr, plöntur
og sveppir hafa valið Laugardalinn
sem sín heimkynni. Þá er átt við
þær lífverur sem eru þar á eigin
vegum, ekki plönturnar sem eru
ræktaðar í Grasagarðinum eða
húsdýrin í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum.
Þetta eru t.d. þrestirnir í
trjánum, ánamaðkarnir í moldinni,
hunangsflugurnar sem suða í
blómabeðunum, fíflarnir sem vaxa
upp úr stéttinni og svo framvegis.
Það opnast fyrir manni heill heimur
þegar grannt er skoðað. Alls staðar
finnur lífið sér pláss.
Til að taka þátt í lífveruleitinni
má nálgast fróðleiksspjöld,
annaðhvort í afgreiðslu Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins, eða í anddyri
garðskálans í Grasagarðinum.
Spyrjið starfsfólkið ef þið finnið
ekki spjöldin. Á spjöldunum
eru nokkur einföld verkefni/
viðfangsefni þar sem þátttakendur
eru hvattir til að leita að ákveðnum
gerðum lífvera og velta fyrir sér
nokkrum áhugaverðum spurningum.
Verkefnin henta fólki á öllum aldri.
Lífveruleitin er samstarfsverkefni
Fjölskyldu- og húsdýragarðsins,
Grasa garðs Reykjavíkur og Reykjavík
– iðandi af lífi, en hið síðastnefnda er
sérstakt fræðsluátak um líffræðilega
fjölbreytni í borginni. /VH
MENNING & LISTIR
Útgáfa og fræðsla:
Náttúrufræðingurinn í nýjum búningi
Náttúrufræðingurinn, 1.–2. hefti
88. árgangs er komið út í nýjum
búningi, en síðast var útliti
tímaritsins breytt árið 2002. Að
venju er í tímaritinu fjölbreytt og
spennandi efni um rannsóknir á
náttúrufari á Íslandi.
Náttúrufræðingurinn hefur nú
88. árgang sinn en erindið er enn hið
sama: Að vera alþýðlegt fræðslurit
um náttúrufræði. Frá 1931 hefur
tímaritið átt farsælt samstarf við
íslenska náttúruvísindamenn sem
hafa miðlað fróðleik um fræðasvið
sín og rannsóknir á síðum ritsins.
Meðal efnis sem fjallað er um
í Náttúrufræðingnum að þessu
sinni er eldgos á fyrstu öldum
Íslandsbyggðar, skollakoppur:
Líffræði og veiðar yfirlitsgrein
um líffræði ígulkersins og veiðar.
Auk þess sem fjallað er um áhrif
skollakopps á landrof. Fjallað
er um áhrif eitrunar á útbreiðslu
skógarkerfils og gróður í
beitarfriðuðum hólmum.
Af öðru efni í ritinu má nefna
skýrslu stjórnar Hins íslenska
náttúrufræðifélags og reikninga
fyrir árið 2017 og eftirmæli um
Svein P. Jakobsson jarðfræðing.
/VH
Handverk í Ásahreppi:
Jórunn Eggertsdóttir
sýnir handavinnuna sína
Jórunn Eggertsdóttir í Lækjartúni
2 í Ásahreppi er ein af öflugustu
handavinnukonum landsins enda
hefur hún frá unga aldri haft mikla
ánægju af því að vinna eitthvað í
höndunum. Af því tilefni hefur
hún ákveðið að sýna verk sín á
heimili sínu í björtum og fallegum
sýningarsal sem hefur verið settur
upp í bílskúr þeirra hjóna, Jórunnar
og Sveins Tyrfingssonar. Þar má m.a.
sjá, útsaum, hekl, prjón, orkeraða
muni, glermuni, postulínsmálun og
fleira frá Jórunni.
„Ég er svo lánsöm að eftir mig
liggur ótrúlega mikið af handavinnu,
sem mig langar að safna saman og
sýna. Elsti sýningargripurinn er
frá því ég var 7 ára gömul, en ég á
nokkra muni allt frá barnæsku, ég
tími engu að henda ef það tengist
handavinnu. Ég vona að sýningin
mín verði hvatning til annars
handverksfólks að skoða í skúffur og
skápa og sýna afrakstur ævistarfsins.
Mig hefur oft langað að sjá hvað
aðrir eru að gera og elti allt svona á
ferð um landið,“, segir Jórunn.
Sýningin verður opin frá klukkan
13.00 til 17.00 dagana 3.–6. ágúst,
11.og 12. ágúst og 18. og 19. ágúst.
Aðgangur er ókeypis.
/MHH
Jórunn Eggertsdóttir.
Forsíða 1. og 2. heftis 88. ár-
gangs Náttúrufræðingsins.
Hér má sjá handavinnu eftir Jórunni sem hún vann síðasta vetur. Undir er
teppi sem hún heklaði ung að árum. Allt verður þetta til sýnis í bílskúrnum
hennar helgarnar þrjár í ágúst. Ljósmynd / Úr einkasafni
Hvanneyri:
Myndlistarsýning á gömlu
skólastjóraskrifstofunni
Listakonan og bóndinn Josefina
Morell á Giljum í Hálsasveit
opnaði sýningu á verkum sínum
á gömlu skólastjóraskrifstofunni
á Hvanneyri á dögunum.
Í Skólastjórahúsinu sýnir hún
fjölbreytt verk, m.a. vatnslitamyndir
og kolateikningar sem hún hefur
rissað upp á gamlar hurðir og fleka.
Þá er handverk úr þæfðri ull eftir
Josefinu til sölu og sýnis ásamt
myndunum.
Á Giljum stundar Josefina
búskap með manni sínum og
börnum. Þar reka þau hestaleigu og
sauðfjárbú. Hún segist taka að sér
að mála myndir og teikna fólk og
hesta. Þeir sem vilja hafa samband
geta nálgast nánari upplýsingar á
vefsíðunni www.giljar.com. /TB
Myndir / TB
Spunasystur heiðursgestir
á Handverkshátíð
Spunasystur verða heiðursgestir
á Handverkshátíð á Hrafnagili
sem haldin verður í 26. sinn
í ágústmánuði. Spunasystur
eru hópur um 16 kvenna í
Rangárvallasýslu sem hittast
reglulega til að spinna og vinna
úr íslenskri ull. Spunasystur hafa
sótt ýmis konar námskeið í vinnslu
og meðferð ullarinnar og miðlað
öðrum í hópnum af þekkingu
sinni.
Sjónarspil að fylgjast með
Spunasystrum!
Á vefsíðu Handverkshátíðar segir
að þeir sem ekki hafi áður séð
Spunasystur ættu að sperra eyrun
því það sé mikið sjónarspil að
fylgjast með þeim stöllum. „Þær hafa
komið með ferskan blæ inn í heim
handverksins á undanförnum árum
og eins og nafnið á hópnum þeirra
gefur að kynna þá kemur spuni við
sögu,“ segir þar.
Varðveita gamalt handverk
Markmið spunasystra eru þau
að breiða út þekkingu á þeim
möguleikum sem íslenska ullin
býður upp á hvað varðar ýmis konar
handverk. Einnig vilja þær sýna fram
á að hægt sé að skapa meiri verðmæti
úr ullinni sem fellur til í sveitinni og
nýta hana á fjölbreyttari hátt en áður
hefur verið gert. Eins er markmiðið
að varðveita gamalt handverk og ekki
síður að þróa nútímalegri aðferðir,
þá hafa þær að markmiði að efna til
sýninga og aðgangs að mismunandi
gerðum rokka, kembivélum,
þæfingarvélum, vefstólum og öðrum
tækjum og tólum til tóvinnu. Sem og
að sýna vinnubrögð á ýmis konar
handverki sem Spunasystur hafa
unnið úr íslensku ullinni og koma
í veg fyrir að þessi gerð handverks
falli í gleymsku.
Lifandi sýning þar sem rokkarnir
munu ekki þagna
Á Handverkshátíðinni í
Eyjarfjarðarsveit munu Spunasystur
setja upp sýningu á handunnum
ullarvörum. Áhersla verður lögð
á lifandi sýningu með kynningu á
spuna á snældu og rokk. Að auki
verður sýndur spjaldvefnaðarrammi í
notkun, ásamt vefstól, ullarkömbum,
kembivél og vattarsaumsnálum.
Auk sýningargripa verða m.a.
handspunnið band, sjöl, taumar
og þæfðar ullarvörur til sölu.
Spunasystur munu einnig blása til
Hópspuna.
/MÞÞ
Blásið verður til hópspuna á Handverkshátíð á Hrafnagili síðar í sumar.
Það er ætíð mikið litskrúð í kringum
Myndir / Handverkshátíðin