Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201820 Enn er ekkert lát á sölu hrein - leika vottorða íslenskra orku- fyrirtækja úr landi. Það er þrátt fyrir að ráðherrar og þingmenn hafi lýst furðu sinni á þessu athæfi fyrir þrem árum. Eru slík vottorð í hávegum höfð hjá jarðefnaeldsneytisknúnum erlendum raforkuverum. Enda geta þau með slíkum vottorðum sagst framleiða raforku með hreinum og endurnýjanlegum orkugjöfum. Þrátt fyrir að þetta sé vitað, neitar hið opinbera fyrirtæki Landsvirkjun að upplýsa hvert vottorðin eru seld og hvað fáist nákvæmlega greitt fyrir þau. Í staðinn fyrir útflutning uppruna- vottorða verða Íslendingar að taka á sig og skrá það inn í bókhaldið hjá Orkustofnun um orkuframleiðslu að íslenska orkan, sem framleidd er með vatnsafli og jarðvarma, sé menguð í takt við það sem erlendu fyrirtækin losa sig við á pappírunum. Þannig var einungis 13% af raforku sem framleidd var á Íslandi 2017 sögð vera framleidd með endurnýjanlegri orku í gögnum Orkustofnunar. Hins vegar var 58% orkunnar sögð eiga uppruna sinn í jarðefnaeldsneyti og 29% í kjarnorku. Er verið að blekkja almenning? Landsvirkjun segir í svari til Bændablaðsins um þessi mál að sala upprunaábyrgða hafi engin tengsl við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Ef það er svo þá hljóta erlend orkuver sem kaupa þessar ábyrgðir einungis að vera að fegra sína ímynd og eru þá um leið að blekkja viðskiptavini sína með fölsunum á uppruna sinnar orku. Það er þá gert með dyggri aðstoð íslenskra orkufyrirtækja og velvilja íslenskra stjórnvalda. Stærstu mengunarvaldarnir utan sviga Þetta er hluti af gríðarlega umfangs- mikilli umræðu um loftslagsmál þar sem stór hluti þeirrar mengunar sem þjóðir heims sögðust vera að kljást við t.d. í Parísarsamkomulaginu er utan sviga og ósnertanleg. Þess vegna hefur meginaflinu í baráttunni hingað til verið beint að orkunotkun almennra borgara og þá ekki síst að notkun fólks á ökutækjum. Þar eru stærðir sem tiltölulega auðvelt er að skilgreina og skattleggja ef svo ber undir. Það er allavega talið geta friðað samvisku sumra, en á meðan fá allir stærstu mengunarvaldarnir frið, m.a. með beitingu á blekkingum á borð við flöggun hreinleikavottorða. Þar á meðal eru orkuver sem knúin eru með jarðefnaeldsneyti og kjarnorku, sem og allur flugrekstur eins og hann leggur sig. Árið 2014 var áætlað að flug í íslenskri lofthelgi mengaði margfalt á við stóriðjuna í landinu. Síðan hefur flugið margfaldast. Í skýrslu Carbon Footprint of Inbound Tourism to Iceland frá 2016 segir meira að segja að hlutur íslensku flugfélaganna í losun CO2 á Íslandi sé meiri en frá álverunum. Þá menga álverin fjórfalt meira en allur bílafloti landsmanna. Utan sviga er líka koltvísýrings- og brennisteinsvetnislosun frá skipum, stóriðnaður eins og stál-, áliðnaður og kísilver sem og losun mýrlendis. Svo ekki sé talað um gríðarlega losun á metangasi úr freðmýrum Rússlands og Kanada og koltvísýringslosun, m.a. úr íslenskum eldfjöllum eins og nýlegar vísindarannsóknir sýna. Þær rannsóknir komu mönnum mjög á óvart, en þær sýndu að Katla er stöðugt að losa um 20 þúsund tonna af koltvísýringi út í andrúmsloftið á dag. Töldu vísindamenn að þetta ástand gæti allt eins hafa varað í áratug eða jafnvel marga áratugi. Þá hafa menn engar slíkar mælingar yfir öll önnur eldfjöll og háhitasvæði á Íslandi. Þessi nýju sannindi vörpuðu óneitanlega ljósi á hvað vísinda menn virðast í raun hafa litlar forsendur til að áætla hvaðan heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á jörðinni er upprunnin. Eina haldbæra reiknanlega nálgunin virðist vera losun af mannavöldum. Hún er svo að stærstum hluta utan sviga í markmiðum og samningum sem gerðir hafa verið um að draga úr losun. Svo furða menn sig á slökum árangri í þessari baráttu. Skýrsla IPCC veltur miklu uppnámi Þessi skekkja í umræðunni kom berlega í ljós eftir mikið upp- hlaup í kjölfar birtingar 400 blaðsíðna harðorðrar skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) þann 8. október sl. Hefur skýrslan valdið miklu fjaðrafoki, enda er þar örlítið komið við kaun stórra mengunarvalda eins og í kolaiðnaði, sem eru enn utan sviga í alþjóðasamningum. Öfgaraddir á báða bóga fengu þar sannarlega byr undir báða vængi. Gæti þetta hæglega dregið dilk á eftir sér og valdið uppnámi í frekari takmörkunum á losun CO2 sem flestir telja þó mikilvæg markmið. Baráttan getur hæglega snúist upp í andhverfu sína Það er stundum þannig að þegar menn beita of miklum ákafa í baráttunni og taka of djúpt í árinni til að koma sínum málstað áfram, þá getur viðleitnin fætt af sér harða andstöðu. Talsvert hefur bryddað á slíku í síaukinni skattlagningu á sumar eldsneytistegundir. Nú vilja sumir ganga þar enn harðar fram á meðan stærstu mengunarvaldarnir fá frið. Um leið er ekki verið að taka tillit til þess að á notendahliðinni sem helst verður fyrir barðinu á skattlagningu er oftar en ekki venjulegt fjölskyldufólk, ásamt öldruðum og öryrkjum. Þetta fólk þolir illa endalausar skattahækkanir. Krafa um 45% samdrátt í losun á CO2 Í skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna segir að þörf sé á skjótum og víðtækum breytingum í orkumálum, landnýtingu, iðnaði, samgöngum og skipulagi borga í heiminum til að afstýra loftslagsbreytingum sem geti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir mannkynið. Minnka losun koltvísýrings af mannavöldum um 45% fyrir árið 2030 frá því sem hún var árið 2010. Gert er ráð fyrir því að 85% af orkunni, sem notuð er í heiminum, komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum ekki síðar en árið 2050 og notkun kola verði næstum þá orðin nær engin. Enn fremur er talið að nota þurfi alls sjö milljónir ferkílómetra af landi (svæði sem er heldur minna en Ástralía) til að framleiða lífrænt eldsneyti. Það er þá væntanlega jurtaolía og etanól til notkunar á dísilbíla sem um leið er gert ráð fyrir að verði meira og minna bannaðir. Einhverjir kunna að spyrja hvort í því felist ekki töluverð þversögn. Ástralir æfir Það er kaldhæðnislegt að talað sé um að taka þurfi land á stærð við Ástralíu undir framleiðslu á lífdísil. Enda brugðust Ástralir ókvæða við skýrslunni, en þeir eru einmitt stórframleiðendur á kolum og standa kol fyrir 60% af þeirra raforkuframleiðslu. Neita áströlsk yfirvöld algjörlega að gefa kolavinnslu og notkun upp á bátinn eins og IPCC gerir ráð fyrir og telja þessi áform algjörlega óraunhæf. Michael McCormack, varaforsætisráðherra Ástralíu, segir að stefnu stjórnvalda í notkun á kolum verði ekki breytt. Bent er á að fjölmörg þróunarríki reiði sig á kol frá Ástralíu og vandséð hvar þau eigi að fá nægilega ódýra orku í staðinn. Landsvirkjun neitar að upplýsa um tekjur af hreinleikavottorðum Menn hafa farið ýmsar leiðir í viðleitni til að draga úr losun gróðurhúsa lofttegunda. Snjallir fjármálamenn hafa jafnvel fundið þarna leiðir til að búa til nýjar matarholur til að braska með. Ein þeirra eru huglæg viðskipti með hreinleika orkunnar eins og sölu upprunavottorða. Þar er búið að koma á kerfi í kringum sölu á hreinni ímynd. Þetta dregur samt alls ekkert úr mengun en slíkir hreinleikastimplar geta hins vegar stuðlað að því að fyrirtæki fái frið til að halda áfram að menga andrúmsloftið. Bændablaðið sendi Landsvirkjun margítrekaðar fyrirspurnir um sölu hreinleikavottorða eftir birtingu forsíðufréttar 23. ágúst síðastliðinn um sölu íslenskra orkufyrirtækja á „hreinleikavottorðum“ til erlendra orku- og iðnfyrirtækja. Svar barst loks þann 18. september og þar segir m.a.: „Landsvirkjun hefur ekki gefið upp sundurliðaðar tekjur af sölu til einstakra viðskiptavina eða eftir tegund viðskiptavinahópa í ársreikningum, en hægt er að áætla útflutningsverðmæti fyrir Ísland í heild með því að skoða viðskipti orkufyrirtækjanna samanlagt. Verð á markaði fyrir uppruna- ábyrgðir fer eftir samningum: tegund vinnslunnar, stærð virkjunar, aldri virkjunar og gæðavottunar sem virkjun hefur fengið. Verð á mörkuðum er síbreytilegt en hefur á síðustu árum verið frá 0,3 EUR til 2 EUR fyrir hverja MWst.“ Landsvirkjun vísar einnig til þess að Noregur flytji út miklu meira af hreinleikavottorðum en Ísland hefur gert, eins og það sé einhver afsökun. Það er hins vegar ekki tekið fram að hlutfall Norðmanna í sölu hreinleikavottorða af heildar- orkuframleiðslu er mun lægra en þekkist á Íslandi. Virðist hlutfallið vera hæst samkvæmt tölum AIB samtakanna, á Íslandi, í Hollandi og í Danmörku. Fáum í raun smáaura fyrir að menga 87% af okkar raforku Þótt Landsvirkjun gefi ekki upp hvað fyrirtækið fær fyrir sölu upprunavottorða, þá er hægt að áætla heildarsöluna á Íslandi með meðaltalsreikningi samkvæmt þeirra eigin tölum. Á árinu 2017 voru framleiddar 19.237 gígawattstundir (GWst) af raforku á Íslandi með vatnsafli, jarðhita og vindorku. Það jafngildir 19.237.000 megawattstundum (MWst). Meðaltalsverð fyrir hverja MWst samkvæmt tölum Landsvirkjunar gæti verið 1,15 evrur. Það þýddi að fyrir alla orkuna ætti þá að fást 22.122.550 evrur fyrir sölu hreinleikavottorða. Landsvirkjun selur þó 80% af sinni orku til stóriðju sem ekki er í þessu vottunarkerfi. Ef miðað er við að 80% af heildarorkuframleiðslunni fari líka til stóriðju, þá sætu eftir 4.424.510 evrur fyrir þau 20% sem eftir eru. Aaðeins146 milljónir fyrir þátttöku í samevrópskum blekkingarleik? Þar sem Landsvirkjun segir að 15% af sinni orku fari til fyrirtækja og heimila á Íslandi sem væntanlega eru enn ekki látin greiða fyrir hreinleikavottorð og ef það hlutfall yrði til einföldunar yfirfært á allan orkugeirann, þá standa eftir 5% eða rúmar 1.106.127 evrur fyrir sölu hreinleikavottorða. Það gerir á miðgengi Seðlabanka 16/10. 2018 rúmar 148 milljónir króna. Þátttakan í þessu samevrópska upprunaábyrgðakerfinu kostar Íslendinga það að þurfa opinberlega að vera með í bókhaldi sínu 87% af allri sinni raforkuframleiðslu 2017 skilgreinda sem skítuga orku. Orku sem framleidd er með kolum, olíu, gasi og kjarnorku. Fyrir þessa fórn eru menn einungis að fá samkvæmt meðalverði á markaði um 148 milljónir króna. Það hlýtur að vekja spurningar um hvort þátttakan í FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Blekkingarleikurinn um uppruna orkuframleiðslu heldur áfram og mestu mengunarvaldar CO 2 enn utan sviga: Landsvirkjun neitar að gefa upp tekjur af sölu upprunavottorða á raforku – Líkur benda þó til að Íslendingar fái lítið fyrir að taka á sig risa-mengunarstimpil frá Evrópu sem nemur 87% af allri raforku Ef við setjum þessar tölur Orkustofnunar í samhengi við þá mengun sem Íslendingar tóku á sig í fyrra fyrir erlend orkuver og verksmiðjur, þá sitjum við uppi eftir vottorðasöluna á síðasta ári með 8.602.141.680.000 grömm, eða rúmlega 8,6 mill jónir tonna ígildi af koldíoxíði og 16.737.930.000 milligrömm af geislavirkum úrgangi, eða 16,74 tonn. Þetta eru opinber gögn em vísa til hreinleikaímyndar Íslands af raforkuframleiðslu. Landsvirkjun segir aftur á móti að engin tengsl séu vegna sölu hreinleikavottorða og þátttöku Íslands í í loftslagsmálum. – Er sá leikur þá bara blekking? Sala á hreinleikavottorðum orkufyrirtækja samræmist alls ekki og vinnur gegn þeim áherslum sem bændur í garðyrkju og öðrum greinum hafa lagt á hreinleikaímynd Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.