Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201850 LESENDABÁS Ögurstund Nú er ögurstund hjá íslenskum landbúnaði og innlendri matvælaframleiðslu. Atvinnugrein sem hefur í meira en 1.100 ár byggt upp landið og haldið lífi í þjóðinni stendur frammi fyrir stórkostlegri ógn. Ef ekki verður brugðist við núna er hætta á að eyðileggjandi keðjuverkun færist í aukana. Afleiðingarnar yrðu slíkar að erfitt yrði að ráða á því bót. Að minnsta kosti er ljóst að það yrði mun dýrara fyrir samfélagið að reyna að bæta úr stöðunni síðar fremur en að grípa til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð. Það er líka ljóst að þær hremmingar sem fólk sem hefur helgað líf sitt því að rækta landið gætu upplifað yrðu aldrei bættar, jafnvel þótt samfélagið kynni síðar að sjá eftir því hvernig fór og átta sig á mistökunum. Greinin sem bjargaði landinu Það er kaldhæðni örlaganna að á sama tíma og við minnumst þess að áratugur sé liðinn frá efnahagshruninu og við blasir ótrúlegur viðsnúningur í efnahagsmálum skuli mikilvægi þessarar undirstöðugreinar íslensks samfélags ekki vera virt og metið að verðleikum. Nú eru liðin 10 ár frá því að Ísland rambaði á barmi gjaldþrots. Raunveruleg hætta var á að við gætum ekki flutt inn nauðsynleg lyf og eldsneyti. Ef ekki hefði verið fyrir þann stórkostlega gjaldeyrissparnað sem innlend matvælaframleiðsla tryggir okkur hefðum við tapað þeim slag og ómögulegt er að segja hvaða hremmingar það hefði leitt yfir þjóðina og hversu langan tíma hefði tekið okkur að vinna úr afleiðingunum. Bætt kjör allra nema bænda Undanfarin ár hefur kaupmáttur allra stétta á Íslandi aukist til mikilla muna, allra stétta nema einnar. Bændur hafa setið eftir og verið afskiptir. Ekki nóg með það heldur birtist í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sú nöturlega framtíðarsýn að eini hópurinn sem ekki geti átt von á kjarabótum séu bændur. Gert er ráð fyrir stiglækkandi framlögum til landbúnaðar ár eftir ár á meðan útgjöld vegna allrar annarrar þjónustu sem ríkið kaupir fara hækkandi. Samanburðurinn við kjaraþróun annarra hópa er sláandi og það er óhugnanlegt að sjá að jafnvel forystumenn launþegasamtaka skuli hvetja til þess að kjör bænda verði rýrð enn frekar. ASÍ berst eðlilega af hörku fyrir því að ekki eigi sér stað undirboð á vinnumarkaði. Þeir sem ráða útlendinga til starfa eiga að tryggja að þeir njóti sömu réttinda og kjara, búi við sömu skilyrði og sömu kvaðir á atvinnurekendur og Íslendingar. Á sama tíma er krafa um að íslenskir bændur uppfylli allar þær nýju kvaðir sem á þá eru lagðar en keppi við vinnuafl í öðrum löndum. Vinnuafl sem þiggur í mörgum tilvikum smánarlaun fyrir störf í verksmiðjubúum sem uppfylla ekki þær ströngu kröfur sem gerðar eru til íslenskra bænda. Í ýmsum þessara landa eru dýrasjúkdómar og sýklalyfjagjöf regla frekar en undantekning. Hvað myndi forseti ASÍ segja við því ef bændur færu að krefjast þess að þeir fengju að flytja inn ódýrt vinnuafl sem ekki ætti að njóta sömu kjara og vinnuverndar og tíðkast á Íslandi? Hvað ef þeir myndu svo tala um að það þyrfti að hverfa frá gæðakröfum enda væri það mikið hagsmunamál neytenda að fá sem ódýrasta fjöldaframleidda vöru? Ætli viðbrögðin yrðu ekki einhver? Hvernig stendur þá á því að sama fólk ætlast til þess að ein stétt samfélagsins, bændur, séu í beinni samkeppni við erlent verkafólk sem nýtur ekki lágmarkskjara og verndar? Verðmæti landbúnaðar Á þessari ögurstundu verða íslensk stjórnvöld að meta störf bænda og annarra sem starfa í innlendri matvælaframleiðslu að verðleikum. Öflugur landbúnaður er forsenda þess að okkur takist að viðhalda byggð í landinu öllu. Tjónið sem hlytist af því, beint og óbeint, að svíkja greinina nú yrði margfalt meira en hugsanlegur kostnaður við aðgerðir sem geta tryggt öflugan íslenskan landbúnað til framtíðar. Stjórnvöld tala jafnan um framlög til hinna ýmsu málaflokka sem hlutfall af landsframleiðslu. Þannig sagði fjármálaráðherra nýverið að báknið væri ekki að stækka þrátt fyrir stóraukin framlög í báknið vegna þess að þau væru ekki að aukast sem hlutfall af landsframleiðslu. Nú rennur aðeins sem nemur 0,5% af landsframleiðslu í það gríðarlega mikilvæga hlutverk að framleiða innlend matvæli og viðhalda með því byggðunum. Það er u.þ.b. einn áttundi af því sem það var fyrir 30 árum. Ástandið nú kallar á aukin framlög til landbúnaðarmála. Fyrst í formi björgunaraðgerða við afgreiðslu fjárlaga og svo til að byggja upp greinina til framtíðar. Ríkið hefur svo sannarlega efni á því eftir vel heppnaðar efnahagsaðgerðir undanfarinna ára. Aðgerðir sem óvíst er að hefðu verið mögulegar nema vegna þess að landbúnaðurinn gerði okkur kleift að verja efnahagslegt fullveldi landsins. Ríkið hefur hins vegar ekki efni á er að láta þessa grein lenda í spíral sem erfitt eða ómögulegt verður að komast út úr. Af því hlytist ómælt tjón fyrir byggðir landsins og samfélagið allt. Sóknarfærin eru til staðar Ég mun halda áfram að ræða við sérfræðingana, þ.e. bændur sjálfa, um hvernig við getum best byggt upp til framtíðar. Nú þegar er ég sannfærður um að það sé hægt, bæði á grundvelli núverandi framleiðslu en einnig með nýjum áherslum. Jón Bernódusson fagstjóri hjá Samgöngustofu nefndi t.d. nýverið í útvarpsviðtali að við gætum hæglega ræktað næga repjuolíu til að knýja allan íslenska fiskiskipaflotann. Um leið værum við að skila gríðarlega jákvæðum umhverfisáhrifum og ýmsum hliðarafurðum á borð við kjarngott dýrafóður og matvæli. Auk þess eru mikil sóknarfæri í skógrækt og landgræðslu svo framarlega sem staðið verður við áratugargömul fyrirheit um að fá bændur með í þá vinnu. Þess í stað er nú verið að moka ofan í skurði til að breyta ræktarlandi í ónýtar mýrar. Árangurinn af því er í besta falli óljós eins og komið hefur fram í þessu blaði. Í raun bendir margt til þess að með þessum aðgerðum sé verið að vinna umhverfistjón. Á kreppuárunum voru menn stundum ráðnir í atvinnubótavinnu við að grafa skurði. Nú á góðæristímum eru menn ráðnir við að moka ofan í skurði og eyðileggja vinnu fyrri kynslóða og ræktunarmöguleika framtíðarinnar. Hvatning Oft hef ég nefnt að eitt af því sem ég sá helst eftir við að ríkisstjórn minni skyldi ekki endast þol til að klára verkefni sín hafi verið að ekki hafi gefist tækifæri til að skila árangrinum til þeirra sem bjuggu hann til og byggja upp samfélagið til framtíðar. Það á ekki hvað síst við um undirstöðuatvinnugrein landsins. Atvinnugrein sem bjó til þetta samfélag og berst nú fyrir lífi sínu. Ég heiti því að ég og bandamenn mínir munum berjast með íslenskum landbúnaði og hvet bændur landsins til að láta í sér heyra. Þeir eiga það svo sannarlega inni að greinin sem byggði upp landið njóti stuðnings í stað viðvarandi aðfarar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Norðausturkjördæmis og formaður Miðflokksins Það er bjargföst trú okkar að það sé skylda okkar sem þjóðar að standa vörð um innlenda matvöruframleiðslu. Búvöru- samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar var gerður árið 2016 og gildir til tíu ára. Samningurinn treystir áframhaldandi stuðningi ríkisins við greinina með því að leggja áherslur á gæðastýringu sem byggir á velferð dýra, heilnæmi afurða, umhverfisvernd og sjálfbæra landnýtingu. Hann stuðlar einnig að fjölbreyttu framboði gæðafurða á sanngjörnu verði fyrir neytendur. Á sama tíma er beingreiðslum hætt í núverandi mynd í lok samningsins og greiðslumarkið muni fjara út á samningstímanum. Búvörusamningur heldur Það er nauðsynlegt að endurskoða ákvæði innan búvörusamningsins til skamms tíma vegna breyttra forsenda og þar eru þættir sem eru framleiðsluhvetjandi. Sauðfjár- bændur hafa sjálfir bent á að nauðsynlegt sé að ná jafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar lambakjöts á innanlandsmarkaði. Það er aðgerð sem er hugsuð til að bregðast við núverandi ytri aðstæðum. Endurskoðun búvöru- samningsins er áætlaður tvisvar á samningtímanum og stendur fyrri endurskoðun nú yfir á haustmánuðum. Afkoman í greininni hefur verið á niðurleið síðustu þrjú ár. Afurðaverð hefur hríðfallið og markaðir lokast eða verið að gefa eftir og ekki eftirsóknarvert að elta þá uppi. Meðalverð til bænda er nú 387 krónur en þyrfti að vera 650- 700 krónur til ná viðunandi rekstrargrunni á meðalsauðfjárbúi. Það er því ljóst að markaðsbrestur hefur orðið í greininni. Framleiðslujafnvægi Sauðfjárbændur hafa bent á að 8-10% niðurskurður væri raunhæft, en frekari niðurskurður gæti orðið til skaða fyrir framleiðsluna sé horft til lengri tíma. Útflutningsskylda er verkfæri til að takast á við markaðsbresti til að koma umframbirgðum á markað, ekki síst í þeim veruleika sem nú er uppi. Þar þarf ríkið að stíga inn að krafti. Þá skiptir máli að lágmarka framleiðsluhvata er að hægja á niðurtröppun á greiðslumarki sem þýðir minni áherslur á greiðslur vegna gæðastýringar. Við teljum mikilvægt að horfa til hagræðingar og rýna í rekstrargrunn afurðageirans og hvort það þurfi að fara í sameiningar. Eins þarf að horfa til leiða til að tryggja gæði og framboð sem svara kröfum neytandans og halda þannig áfram öflugu markaðsstarfi. Með framantöldum aðgerðum er von til þess að framleiðslujafnvægi náist og með því er von til þess að verð til bænda hækki. Horft til framtíðar Það skiptir máli að standa vörð um búvörusamninginn í heild því stuðningur ríkisins við landbúnað í landinu er neytendum nauðsynleg. Þetta eru aðgerðir sem virka til skamms tíma til að koma á móts við þann vanda sem nú er uppi. Vonandi í náinni framtíð er hægt að auka framleiðsluna aftur. Ríkistjórnin hefur sett metnaðar fulla áætlun í loftslagsmálum. Þjóð sem hefur það að leiðarljósi að minnka kolefnisspor okkar og nálgast sjálfbærni til framtíðar hlýtur að hlúa að umhverfi íslenskrar matvælaframleiðslu sem allra best. Þar vegur sauðfjárframleiðsla þungt og tekur á mörgum þáttum eins og matvælaframleiðslu, byggðastefnu og menningar- verðmætum. Halla Signý Kristjánsdóttir 7. þingmaður NV kjördæmis Þórunn Egilsdóttir 4. þingmaður NA kjördæmis Halla Signý Kristjánsdóttir. Þórunn Egilsdóttir. Sauðfjárrækt til framtíðar ó e be 1. n rv m Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.