Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 41 Sigurður Sævar Gunnarsson, fram kvæmdastjóri Ístex, segir að unnið hafi verið að breytingum á flokkun ullar í samráði við bændur til að auka verðmætasköpun í ullarvinnslu. Þá sér í lagi til að mæta þörf á jafnara hráefni og auka sérstöðu lakari flokka í augum viðskiptavina. Sigurður segist þó vilja taka það fram að langflestir bændur skila af sér góðri og vel flokkaðri ull. Hins vegar megi alltaf gera betur til að auka verðmætin fyrir bændur. Staða ullarmarkaða „Í íslenska lopann er notuð betri ullin, eins og H-Lamb, H-2-Lamb og H-1 flokkur. Lakari flokkar eins og H-2 og M-2 eru aðallega seldir erlendis, þá aðallega í gólfteppaband. Undanfarin 5 ár hefur aukist talsvert framboð af nýsjálenskri ull og af ódýrum gerviefnum, m.a. vegna lágs olíuverðs. Margir framleiðendur á gólfteppabandi hafa fylgt þessari þróun, þar sem framleiðsla verður ódýrari og jafnari. Þegar þessir aðilar fá ullarballa með mjög góðri ull í einu horni og lélegri ull í öðru þá vilja þeir alltaf miða verð við lakari hlutann sökum óvissu. Ístex hf. fjárfesti í ullarblöndunarklefum, sem voru settir upp síðastliðinn vetur, til að fá jafnara og betra hráefni. Þessi áhersla á aukin gæði hefur skilað því að trú á íslenska ull hefur aftur aukist, engin kvörtun hefur borist og fleiri vilja prófa ullina. Íslenska ullin þykir gefa gólfteppabandi meiri styrk miðað við aðrar ullargerðir,“ segir Sigurður Nú er tími til að undirbúa sókn „Það eru nokkrir þættir sem gefa ástæðu til að ullarverð fari hægt og sígandi að hækka á erlendum ullarmörkuðum, m.a. vegna hækkandi olíuverðs. Þess vegna viljum við í samstarfi við bændur finna leiðir til að auka sérstöðu íslensku ullarinnar og finna aukin verðmæti í lakari ullarflokkunum og greina betur á milli flokka. Þess vegna leggur Ístex til að nokkrar breytingar á ullarflokkum verði prófaðar. Nú ætlum við að bjóða bændum að bæta við sérflokk fyrir grófa ull af lærum, kvið og þess háttar. Þessi flokkur kallast H-3-H og er tilraunaflokkur. Þannig að gamli flokkurinn, H-2-H, batnar í gæðum og hækkar í verði.“ H-3-H hvítt – haustrúin ull „H-3-H er ætlaður fyrir hvíta haustull sem er gróf og/eða gölluð. Læraull, kviðull og ull af jöðrum H-1-H og H-2-H reyfa skal nú setja í H-3-H. Langtíma markmiðið með þessum flokk er að auka mýkt íslensku ullarinnar bæði í fyrsta og öðrum flokk. Þumalputtaregla segir að 2 mikron mýkri ull er um 20% verðmætari. Þetta er tilraun er vert er að láta reyna á.“ Vetrarull – Hvítt snoð Á vorin hefur heilsársull og snoð verið sett saman undir einn flokk H-2-V. Nú breytist það þannig að snoðið fer sér og heilsársullin sér, fyrir hvít reyfi. „Snoðið verður sér flokkur einfaldlega vegna þess að það hentar viðskiptavinunum betur. Þeir vilja fá þetta hvort í sínu lagi. Þessi ull hefur í gegnum tíðina verið erfið í þvotti og blönduð við heilsársull. Nú hefur fundist beinn markaður fyrir svona stutt hár, en þetta er fallegt og mjúkt efni eftir þvott.“ Vetrarull – Hvít heilsársull „Gæði á þessari ull hafa aukist talsvert eftir að snoðið var tekið úr og blöndunarklefunum var bætt við á Blönduósi. Þetta þykir m.a. sterk og góð ull í gólfteppaband.“ Mislit M-2-Lamb „Til þess að auka verðmæti M-2 flokksins þá bjóðum við bændum nú að flokka mislita lambsull í M-2- Lamb sem áður hefði farið beint í M-2. Lambsull er fínni en önnur ull í M-2 og eru ýmis tækifæri með þann flokk. Þarna er örugglega hægt að bæta í. Með þessum breytingum eigum við að geta hækkað meðalverðið og náð betri nýtingu. Þetta ætti ekki að vera flókið því menn eru með þetta aðskilið þegar verið er að rýja.“ Sigurður segir að þó mislita ullin sé verðminnst, þá sé nú í gangi töluverð þróunarvinna í kringum þann flokk. „Við höfum keypt 99% af allri ull og þvoum. Okkar bestu flokkar sem við getum notað er 1. flokkur og lambsull. Annað er of gróft. Það höfum við að hluta verið að selja úr landi sem hráull í teppaframleiðslu. Sá markaður hefur verið mjög erfiður og lágt verð fyrir ullina. Það hefur þó aðeins verið að hækka, en það tengist dálítið sveiflum í olíuverði og framleiðslu á Nýja-Sjálandi. Síðan hefur krónan verið að síga líka.“ Með hækkandi gengi krónu minnkaði innanlandssalan á lopa Varðandi sölu á lopa segir Sigurður að það hafi orðið mikil aukning á sölu hér innanlands til 2014 og 2015. Þá hafi gengið farið að hækka og innflutningur að lækka og innanlandssalan á lopa dróst saman. Segir hann að slíkar sveiflur hafi ekki sést í sölunni erlendis. Þar hafi verið jöfn og stöðug 10% aukning ár eftir ár. „Sá markaður sem hefur verið með mestu aukninguna er Svíþjóð. Síðan eru Danmörk, Þýskaland og Bandaríkin stærstu vaxtarsprotarnir.“ Sagði Sigurður að aukin eftir- spurn erlendis hafi kallað á meiri vinnu hjá Ístex. „Við bættum við okkur fólki í spunaverksmiðjunni í sumar. Nú erum við byrjuð að vinna á dag- og kvöldvöktum. Það eru 43 skráðir á launaskrá hjá okkur og talan fer upp í 53 yfir veturinn þegar við bætum við mannskap á þvottastöðinni.“ Verið að búa til skýringarmyndband Sigurður segir að verið sé að vinna að myndböndum, appi og heimasíðu til að aðstoða bændur við meðhöndlun og flokkun ullar. Þá séu bændur hvattir til að hika ekki við að hafa samband við Ístex til að fá nánari útskýringar um hvernig megi auka gæði íslenskrar ullar. „Þá er verið að taka upp kerfi sem gefur bændum fyrr og betri upplýsingar ef breyting er gerð á flokkun ullar við þvott á Blönduósi. Innleggjendur eru hvattir til að hafa allar upplýsingar á Bændatorgi eins réttar og kostur er. Þannig má tryggja að allt ferlið gangi sem greiðast,“ segir Sigurður. /HKr. Mosfellsbær Ístex hf. Völuteig 6 566-6300 Ístex hf. Völuteig 6 566-6300 Borgarnes Magnús Kristjánsson 832-1557 KB. Búrekstrardeild 430-5500 Snæfellsnes Velverk. Ystu Görðum 894-7257 Ragnar og Ásgeir Grundarfirði 430-8100 Búðardalur Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611 Saurbær Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611 Króksfjarðarnes Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611 Barðaströnd Biggi Upp ehf 691-4995 Barði Sveinsson Innri-Múla 456-2019 Þingeyri Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364 Flateyri Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364 Ísafjarðardjúp Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364 Hólmavík Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt 892-4646 Bitrufjörður Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt 892-4646 Borðeyri Strandafrakt 892-4646 Kaupfélag V-Hún, pakkhús 455-2325 Hvammstangi Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag V-Hún, pakkhús 455-2325 Blönduós Ullarþvottastöð 483-4290 Lífland Blönduósi 540-1155 Sauðárkrókur Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag Skagfirðinga, Verslunin Eyri 455-4610 Akureyri Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi Oddeyrargötu 460-3350 Húsavík Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi-Húsavík. Trausti 458-8980 Mývatn Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi-Húsavík. Trausti 458-8980 Kópasker Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277 Þórshöfn Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277 Vopnafjörður Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277 Egilsstaðir Sverrir Þór Sverrisson 865-0240 Jötunvélar, Egilsstöðum 480-0448 Höfn Víðir Gíslason 864-4819 KASK Höfn Hornafirði 470-8222 Kirkjubæjarklaust ur Víðir Gíslason 864-4819 N1 - Kirkjubæjarklaustri 487-4628 Vík Víðir Gíslason 864-4819 Ragnar S. Þorsteinsson 864-9628 Hvolsvöllur Þórður Jónsson 893-2932 Þórður Jónsson 893-2932 Flúðir Biggi Upp ehf 691-4995 Fóðurblandan Selfossi 570-9840 Selfoss Biggi Upp ehf 691-4995 Fóðurblandan Selfossi 570-9840 Móttökustaðir fyrir ull og afhending umbúða 2018/19 SAUÐFJÁRRÆKT&ULLARVINNSLA Aukin verðmætasköpun og sókn í ullarframleiðslu – Flokkun verður aukin til að bæta verðmæti ullarinnar Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ístex. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.