Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 29
Noregi. Áhugi Breta á færeyska
hestinum dróst saman við aukna
tæknivæðingu kolanámanna og
segja má að færeyski hesturinn hafi
orðið atvinnulaus. Með minnkandi
áhuga á færeyska hestinum dró
úr eftirspurn og um tíma var litið
á hann heima fyrir sem hálfgerða
plágu sem ekkert gagn var af.
Petersen segir að fyrsti formaður
félagsins Föroysk ross hafi haft góð
tengsl við Landbúnaðarháskólann
í Svíþjóð og að gerðar hafi verið
skyldleikarannsóknir á þeim
sem leiddu í ljós að síðustu fjórir
hestarnir voru það fjarskyldir að
óhætt var að nota þá til áframeldis.
„Á níunda áratug síðustu aldar
var erfðaefni færeysku hestanna
skoðað og sýndi niðurstaða þeirrar
rannsóknar fram á hið sama.“
Mikilvægt að viðhalda færeyska
hestinum
Petersen segir að verndun færeyska
landnámshestsins sé mjög mikilvæg
fyrir Færeyinga. „Við höfum glatað
upprunalega fénu sem var flutt
til eyjanna og líka upprunalega
hundinum, nautgripunum og
landnámshænunni þannig að það
skiptir miklu fyrir okkur að viðhalda
færeyska hestinum.“
Að sögn Petersen vonast hann
til að í framtíðinni verði hægt að
flytja færeyska hestinn út til annarra
landa og fjölga honum þannig því
að bæði vegna smæðar eyjanna
og hestsins geti Færeyingar ekki
viðhaldið nema ákveðnum fjölda
hrossa. Af þeim 93 færeysku hestum
sem til eru í dag eru um 20 í eigu
landsstjórnarinnar.
„Stjórnvöld í Færeyjum eru
jákvæð í okkar garð og hafa veitt
okkur fé til verkefnisins og fyrir
það erum við hjá Föroysk ross mjög
þakklát, auk þess erum við sem að
verkefninu stöndum mjög þakklát
fyrir þá aðstoð sem Bændasamtök
Íslands hafa veitt okkur,“ segir
Hans Petersen.
Överaasen DLS-270
A. Wendel ehf.
Tangarhöfða 1
110 Reykjavík
Sími 551 5464
www.wendel.is
Vacuum pökkunarvélar og pokar
Búsáhöld – Brýni – Hamborgarpressur – Kjötexi
Heyrnahlífar – eyrnatappar
Sodastream og fylgihlutir Erum á facebook
Áratuga reynsla í sölu á vacuum pökkunarvélum, pokum og fylgihlutum.
Kíkið á netverslun okkar, www.esjugrund.is
Verslun í Hólagarði, Lóuhólum 2-4, 111 Reykjavík
Færeyskir hestar þykja ekki síður
barnvænir en frændur þeirra á
Mynd / smh.
Auglýsingsíminn er:
563 0300
Eldri blöð má
finna hér á PDF: