Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd þér.
Hinn bágstaddi felur
þér málefni sitt,
þér sem hjálpar
munaðarlausum.
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Varahlutir og viðgerðarþjónusta fyrir JCB lyftara
Til sölu DFSK C31 pallbíll
Árgerð 2017. Burðargeta 1.200 kg. Bifreiðin er ekinn aðeins 514 km.
Lipur og duglegur vinnubíll. Verð 2.100.000 kr. +vsk.
Upplýsingar í síma 863-2548.
www.bbl.is
Vantar þig:
•
•
•
•
Sturla s. 899-3004
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
Nánari upplýsingar um ofangreindar eignir má finna á fasteignavef MBL og heimasíðu Ríkiskaupa
Um er að ræða ríkisjörðina Tjörn, fyrrum kirkjujörð sem er staðsett utarlega á
vestanverðu Vatnsnesi í Húnaþingi vestra. Land jarðarinnar er talið vera um 442
ha. og þar af ræktað um 19 ha. Einnig fylgir helmingshlutur í óskiptu u.þ.b. 820 ha.
fjallendi á móti Tjörn 2.
Jörðin er staðsett á Vatnsnesi þar sem undirlendi er hvað mest og fjalllendið er
mikið og gott beitarland. Jörðin á land að Tjarnará og Katadalsá og veiðirétt í þeim.
Jörðinni fylgir greiðslumark 78,8 ærgildi.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita starfsmenn Ríkiskaupa í síma 530 1400,
í gegnum netfangið fasteignir@rikiskaup.is og inni á fasteignavef morgunblaðsins
https://www.mbl.is/fasteignir/fasteignasala/rikiskaup/
TIL SÖLU - RÍKISJÖRÐIN TJÖRN 1
Matvælastofnun hefur innkallað
kjötið frá Birkihlíð í Skagafirði
Frá því var greint í síðasta
Bændablaði að bændur á
bænum Birkihlíð í Skagafirði
hefðu slátrað lömbum heima á
bæ á dögunum í samstarfi við
starfsfólk Matís, samkvæmt
verklagi sem fyrirtækið hefur
lagt til að gildi um svokölluð
örsláturhús. Sveinn Margeirsson
forstjóri Matís seldi síðan
afurðirnar á bændamarkaði
á Hofsósi 30. september.
Matvælastofnun innkallaði svo
þessar vörur á fimmtudaginn.
Í tilkynningu Matvælastofnunar
kemur fram að ástæða
innköllunarinnar sé sú að slátrun
fór ekki fram í viðurkenndu
sláturhúsi og heilbrigðisskoðun
hafi ekki verið framkvæmd af
opinberum dýralækni. Þeir sem
hafi umræddar vörur undir höndum
geti því skilað þeim heim til bænda
í Birkihlíð, gegn endurgjaldi.
Ákvörðun um viðurlög
liggur ekki fyrir
Hjalti Andrason, fræðslustjóri
Matvælastofnunar, segir að málið
sé enn í skoðun og niðurstaða liggi
ekki fyrir varðandi frekari eftirmála
af lögbrotinu.
Margþætt tilraunaverkefni Matís
Sveinn gaf þá skýringu á uppátækinu
í viðtali í síðasta Bændablaði, að
tilgangur þess hafi verið margþættur
en þörf væri á breytingum á
lagaumgjörðinni á þessu sviði.
„…í fyrsta lagi vorum við að láta
reyna á hvort hægt sé að slátra
heima á bóndabýli við aðstæður
í samræmi við tillögur okkar um
fyrirkomulag á svokallaðri örslátrun.
Staðfest var, fyrir sölu afurðanna,
að örverufræðileg staða kjötsins
var með miklum ágætum og má því
segja að það sé búið að staðfesta að
þetta er hægt. Á næstu vikum verður
unnið frekar úr mælingum, meðal
annars á meyrni kjötsins og arðsemi
örslátrunar og þær birtar, en lögð
var áhersla á það við framkvæmd
tilraunarinnar að meta hversu mikinn
tíma það tók að fylgja ferlinu,“ sagði
Sveinn og benti á að nálgast megi
tillögurnar á vef Matís, matis.is.
„Við viljum líka benda á mikla
þörf fyrir að fram fari heildstætt,
vísindalegt áhættumat, við
ákvarðanir og áhættustjórnun tengt
matvælaöryggi á Íslandi. Einnig
að benda á möguleika til að auka
verðmætasköpun fyrir bændur og
um leið prófa Matarlandslagið.
is sem vettvang til að stuðla að
beinum viðskiptum á milli bænda
og neytenda. Að mínu mati eru
miklir möguleikar fyrir bændur
til að auka verðmæti með þessum
hætti og þannig stuðla að jákvæðri
þróun í byggðum landsins,“ sagði
Sveinn. /smh
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
LESTUR PRENTMIÐLA Á LANDSBYGGÐINNI
BÆNDAHÖLLIN VIÐ HAGATORG
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
0%
10%
20%
30%
40%
50%
DV STUNDIN MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ BÆNDABLAÐIÐ
8,0%
11,2% 9,4%
22%
27,3%
43,1%
Kjötið frá Birkihlíð var innkallað
vegna þess að ekki var slátrað í
viðurkenndu sláturhúsi og ekki
heilbrigðisskoðað af opinberum
dýralækni. Mynd / Matvælastofnun