Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 47
Það er viðtekin venja að við fyrstu
hálku á haustin myndast biðraðir
við öll hjólbarðaverkstæði og
óþolinmóðir einstaklingar furða
sig alltaf jafn mikið á að þeir þurfi
að bíða í röð til að fá vetrardekkin
undir bílinn sinn. Svo eru það hinir
sem reyna að hanga á að keyra
aðeins lengur á sumardekkjunum
fram á haustið og veturinn og
lenda svo í vandræðum þegar
fyrsti alvöru snjórinn kemur.
Þann 1. nóvember 2014 tók í
gildi reglugerð um að munstursdýpt
dekkja ætti að vera að lágmarki
3mm. frá fyrsta nóvember til 14.
apríl. Samkvæmt þeim upplýsingum
sem ég hef þá taka tryggingafélög
þessa reglugerð alvarlega og hafa
áskilið sér rétt til að skerða rétt
þeirra sem lenda í umferðaróhöppum
ef hjólbarðar eru ekki löglegir til
vetraraksturs.
Vanbúnir bílar til vetraraksturs
eiga ekki að vera á ferð í snjó og
hálku
Sé bíll vanbúinn í umferð og er
valdur þess að umferð gengur hægt
eða jafnvel stoppast á sá bíll og
bílstjóri að fá þá einu aðstoð að
koma bílnum úr umferð og út fyrir
veg. Sá sem tefur fyrir umferð og
teppir umferð vegna lélegra dekkja á
einfaldlega ekki að vera í umferðinni
vegna þess að hann er sjálfum sér og
öðrum hættulegur.
Verð á vetrardekkjum er nú í
sögulegu lágmarki og víða hægt að
fá góð vetrardekk á mjög hagstæðu
verði. Séu menn hins vegar að
hugsa um endingu og öryggi þá eru
dekkin sem eru tiltölulega dýrust
í innkaupum hagstæðustu kaupin
því þau endast mjög vel og eru með
besta fáanlega grip í snjó og hálku.
Réttur loftþrýstingur í
hjólbörðum er lykilatriði
Til að fá sem besta endingu og
besta gripið út úr hjólbörðunum
er aðalatriðið að vera með réttan
loftþrýsting í dekkjunum. Í flestum
bílum er réttur loftþrýstingur í
hjólbörðum á bílum gefinn upp
á litlum límmiða í hurðarfalsinu
á bílstjórahurðinni (í einstaka
bílum er þessi miði fyrir innan
bensínlokið).
Ótrúlega oft koma bílar á haustin
og vorin inn á verkstæði með misslitin
dekk eftir sumarið eða veturinn og
oftast eru dekkin óeðlilega mikið
slitin yst á köntunum. Það að sjá
svona misslitin dekk segir bara eitt:
Of lítið loftmagn í dekkjunum, en
Íslendingar eru ótrúlegir trassar í að
fylgjast með loftþrýstingi í dekkjum
og keyra of mikið með alltof lítið
loft í dekkjunum.
Önnur leið til að enda dekkin
betur er að víxla fram- og
afturdekkjunum á u.þ.b. 5000 km
fresti.
Naglar eða ekki naglar
Í Finnlandi var gerð stór könnun
á slysum og banaslysum í finnskri
vetrarumferð þar sem bílar voru á
negldum dekkjum annars vegar og
ónegldum hins vegar. Niðurstaðan
úr rannsókninni var að þeir sem
voru á nöglum voru að meðaltali
30% öruggari í umferðinni á öllum
sviðum. 30% færri slys og banaslys
voru hjá þeim á nöglunum.
Þeir sem vinna við hjólbarðasölu
eru ósjaldan spurðir hvort sé betra
að vera á nöglum eða naglalaus.
Svörin eru misjöfn, en hjá mér er það
alveg á hreinu að naglarnir eru betri
kosturinn, sérstaklega ef menn fara
eitthvað langt á milli byggðarfélaga
og yfir heiðarvegi. Alltof mörg slys
í gegnum árin má rekja til lélegra
hjólbarða í snjó og hálku og fyrir
mér er bara eitt slys of mikið. Sá
sem snýr við eða hættir við ferð út
af vetrarfærð er miklu meiri maður
en sá sem tekur áhættuna vísvitandi
um að dekkin séu ekki nógu góð og
eftirmálin fara á versta veg.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
NÖTRA MJÓLKUR-AFURÐ
ÁNÆGJU-
BLOSSI
REIÐI-
HLJÓÐ Í VAFA VÖKNA
TVEIR
EINS
SSTORKA T O R K U B E R G
MGLÖTUN I S S I R
IÐN
GUFU-
HREINSA F A G
ÆFRÆND-BÁLKUR T T K R E I K ELDSTÆÐI
R U N K GREIÐAFÆRA I N N A
ÓVÆTTUR
MÚGUR
Í RÖÐ S K A R I
MARGVÍS-
LEGAR
SPRÆKUR Ý M S A R
Í RÖÐMINNKA
K
FUGLS
HLJÓÐ
SVEIFLA
RÓL
SKART-
GRIPUR
S M Á N A HLUTI VERKFÆRIS DVÖLTRÉ S E T A SPILA-SORT ÚT-DRÁTTUR INIÐUR-LÆGJA
T A B Ú SKELDÝRDETTA O S T R A
BLESSUN
TVÖ
ÞÚSUND L Á NBANN-HELGI
Ý R FRÁREINÚTVEGA A F R E I N MÁTTURÓVILD M A G NBOGI
R A S
ÞRÓTTUR
ENN
LENGUR A F L FENGUR
SÓNN
NÆR ÖLL Ó M U R GJÓSAÓÐAGOT
I MATJURTSTEINLÍM K Á L BEINN J A F N ÖGNMISSIR F I S
S K A F L
HLÉ
DÝRA-
HLJÓÐ A F L Á T
TVEIR EINS
TÁLBEITA P PSAMFOKINN FÖNN
H A F R A R
AUR
PRÓF-
GRÁÐA L E Ð J A ÁTT ÚKORN
Ú
S
L
K
F
A
A
M
MARGS-
KONAR
M
Ý
T
M
A
I
KVK NAFN
S
T
HÓTA
I
Ó
N
G
N
N
A
ARÁNDÝRA
TAKMARKA
93
POTTUR ÁVÖXTUR SKJÓTUR FUGL ÆXLUN GÁSKI SAMTALS
KLUNNA-
LEGA
ÁÞEKKUR
ÆTTAR-
SETUR
SJÁVARDÝR
ÓHREINKA
SUSS
OFSÖGUR
AUÐN
Í VAFA
TVEIR EINS
STIKK-
PRUFA
HREYFING
ESPA
TVEIR
EINSAMLÓÐI
FISKUR
AKUR
SJOKK
MATARÍLÁT
ARINN
ÁNÆGJU-
BLOSSI
SYSTIR
ILMUR GILDRAKYRTLA
TÚTTA
FELL
TÓNLISTAR-
STEFNA
EFNI
LYGN
Á NÝ
MAGN
ÁMA
HRÆÐA
SMÁORÐ
KK NAFN
RÍKI
GRIMMUR
HÓTUN
KRASSAPILI
UPP-
HRÓPUN
SPENDÝR
NÆGILEGA
STRUNS
MIKILL
TÁLBEITA
HAMINGJA
SKJÓTUR
ÍSKUR
AF-
HENDING
UXI
SKÓLI
SAMTÖK VÖRU-MERKIFRUMEFNI
ÚT
KERALDI SEFAST
KRYDDA
UMSÖGN
TVEIR
EINS
94
Eru dekkin lögleg til vetraraksturs?
Það kemur alltaf vetur og þá er vissara að vera viðbúin
dekkja.