Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 20188 FRÉTTIR Lifandi samfélag – samtök um nágrannasamvinnu: Málþing um nágrannasamfélög – Þiggja ábendingar um lausar bújarðir undir starfsemina Lifandi samfélag – samtök um nágrannasamvinnu í sveit og borg, stendur fyrir málþingi 3. nóvember næstkomandi þar sem ræða á nágrannasamfélög eldri borgara; bæði hér á Íslandi og um reynslu Dana af þeim. Lifandi samfélag hefur þann tilgang að vera regnhlífarsamtök sem starfar að mismunandi valkostum í búsetu fyrir alla aldurshópa. Félagsskapurinn á rætur í hugmyndum Árna Gunnarssonar, fyrrverandi bónda á Reykjum í Skagafirði, sem hafði áhuga á að kanna áhuga fólks á sambýlum eldri borgara til sveita – þar sem stundaður væri frístundabúskapur í smáum stíl og eftir atvikum hvað eina sem aðstæður leyfðu. Öllu væri stjórnað af íbúum sjálfum. Lifandi samfélag var formlega stofnað síðasta vor og tekur núna til margs konar búsetuforma og allra aldurshópa – hvort heldur í þéttbýli eða dreifbýli – en kjarninn um nágrannasamvinnu er þó enn hornsteinn hugmyndafræðinnar. Stjórnmálafólk hvatt til þátttöku á málþingi Árni, sem er stjórnarmaður í samtökunum, segir að stjórn félagsins telji mikilvægt að þar sem þessum samtökum sé ætlað að starfa á landsvísu væri heppilegt ef sveitarstjórnarfólk af landsbyggðinni sæi sér fært að mæta á fundinn, ganga í samtökin og nýta sér þá fræðslu sem þarna verði í boði. „Jafnframt væri gott ef allir stjórnmálaflokkar sendu fulltrúa sína til að kynna sér fyrirhugaða starfsemi sem muni að sjálfsögðu verða að einhverju leyti rekin í sátt og samvinnu við stjórnsýslu á hverjum tíma. Auk þess sem í starfsemi af þessum toga megi án vafa finna lausnir á þeim vistunarúrræðum sem nú þegar sé orðið aðkallandi að leysa – eftir nýlegum fréttum að dæma. Einhverjir félagsmenn eru þegar byrjaðir að skima eftir álitlegum stöðum utan borgarinnar til að geta hafist handa þegar búið verður að ljúka skipulegum undirbúningi,“ segir Árni. Ábendingar um lausar bújarðir „Við tækjum því fagnandi ef einhverjir lesendur þekktu til einstaklinga sem annaðhvort hefðu sjálfir hug á að bjóða land eða bújörð til starfseminnar, ellegar vissu um eitthvað slíkt. Við þurfum nauðsynlega að fjölga fólki í samtökunum og tengjast vel inn í alla landshluta. Aflið felst í virkni fjöldans og verkefnin eru vissulega mörg og spennandi,“ segir Árni enn fremur. Dagskráin 3. nóvember í Norræna húsinu verður eftirfarandi: • Aðalfyrirlesari: Rudy Madsen frá Odense. • Kl. 10.00 – Þátttakendur boðnir velkomnir og kynning á dagskránni – (Magni og Rudy). • Kl. 10.10 – Saga samtaka um nágrannafélög í Danmörku og kostir þess að vera félagi – Bofællesskab.dk. • Kl. 10.30 – Hvernig stofnar maður samtök um nágrannafélög? • Kl. 11.00 – Að byggja upp sterkt samfélag. • Kl. 11.30 – Að viðhalda og efla nágrannasamfélag eftir stofnun þess. • Kl. 11.50 – Spurningum svarað. • Kl. 12.00 – Hádegisverður. • Kl. 13.00 – Hópar myndaðir til að vinna úr upplýsingum. • Kl. 13.15 – Hópavinna með áherslu á að stofna nágrannasamfélög. • Kl. 14.45 – Kaffi og te. • Kl. 15.00 – Hvernig vinnuhópar eru myndaðir til að viðhalda starfinu í samtökunum. • Kl. 15.15 – Niðursstöður kynntar úr hópavinnu. • Kl. 16.00 – Mat, upprifjun og námskeiðslok. /smh Landbúnaðarráðherra Kína kom á landbúnaðarsýninguna í Laugardal Kínverski landbúnaðar ráð herr- ann, Han Changfu, mætti með fríðu föruneyti á landbún aðar- sýninguna á laugar daginn var. Ráðherrann var í fylgd sendi- herra Kína á Íslandi ásamt sendinefnd. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, og Ólafur M. Jóhannes son, framkvæmdastjóri sýningar innar, leiddu kínverska ráðherrann um Laugardalshöllina þar sem hann fékk meðal annars að bragða á íslenskum búvörum. Han Changfu stoppaði drjúga stund á bás Bændasamtakanna þar sem hann dreypti á bjórnum Segli og snæddi veitingar í boði Mímis, nýs veitingastaðar sem verður brátt opnaður á Hótel Sögu. Þá var förinni heitið á bás MS þar sem kínverski ráðherrann kynnti sér skyr og íslenska ostagerð. Samstarf á sviði landbúnaðarmála Tilgangur heimsóknar Han Changfu til Íslands var að skrifa undir samstarfsyfirlýsingu um samstarf Íslands og Kína á sviði landbúnaðar- og matvælamála. Nýlega undirritaði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra samning við kínversk stjórnvöld sem gera íslenskum bændum kleift að hefja útflutning á lambakjöti til Kína. Á næstunni standa vonir til þess að sambærilegir samningar verði undirritaðir fyrir lax, mjöl og lýsi. Á sunnudeginum fór kínverski ráðherrann í ferð um Suðurland og kynnti sér m.a. starfsemi kúabúa, garðyrkjustöðva og ferðaþjónustu. Auk fundar með íslenska starfsbróður sínum heimsótti Han Changfu fyrirtækin Stofnfisk og Bláa lónið. Han Changfu er fæddur árið 1954 og er meðal valdamestu manna í Kína. Ásamt því að vera landbúnaðarráðherra er hann byggðamálaráðherra. Han Changfu er með doktorspróf í lögum en áður en hann varð ráðherra var hann landstjóri í Jilin-héraði. /TB Árni Gunnarsson er hér fyrir miðri mynd. Mynd / smh Kínverski landbúnaðarráðherrann, Han Changfu, kynnti sér íslenskan landbúnað á landbúnaðarsýningunni í Laugardal. Myndir / TB Á bás Bændasamtakanna skálaði kínverski landbúnaðarráðherrann í bjórnum Segli við íslenska starfsbróður sinn, sendiherra Kína á Íslandi og formann BÍ. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í atvinnuvegaráðuneytinu, fylgist með og fylgdarmenn Han Changfu standa álengdar. Áfengur drykkur unninn úr íslenskri mjólk: Rjómalíkjörinn Jökla kemur senn á markað Rjómalíkjörinn Jökla sló rækilega í gegn á landbúnaðarsýningunni um síðustu helgi. Drykkurinn er búinn til úr íslenskri mjólk og er fyrsti sinnar tegundar hér á landi og þótt víðar væri leitað. Feðginin Pétur Pétursson og Stefanía Ósk Pétursdóttir kynntu Jöklu á bás Bændasamtakanna og gáfu gestum að bragða. Pétur, sem er mjólkurfræðingur að mennt, hefur unnið að þróun Jöklunnar um árabil og nú hillir undir að líkjörinn komi á markað. Jökla er búin til úr íslenskri mjólk og áfengið sjálft verður unnið úr mysu í nýrri verksmiðju Heilsupróteins í Skagafirði. Framleiðslutæki á leið til landsins Pétur segir að það hafi tekið langan tíma að þróa þennan fyrsta alíslenska rjómalíkjör. „Samningar um framleiðsluna eru í vinnslu en ég vona að Jöklan komi í vínbúðir ÁTVR og á veitingahús um mitt næsta ár. Það eru að koma framleiðslutæki til landsins og þá tekur við að slípa framleiðsluferlið til. Framleiðsluaðferðin sjálf og uppskriftin er pottþétt eftir langt og strangt þróunarferli. Viðtökurnar sem við höfum fengið eru frábærar og lofa góðu um framhaldið,“ segir Pétur. Á landbúnaðarsýningunni í Laugardal lagði Pétur könnun fyrir þá sem smökkuðu og segist hann vera að vinna úr svörunum þessa dagana. „Ég spurði fólk um álit þeirra, t.d. um lykt og bragðupplifun. Ég vil ná fram rjómabragðinu og góðu samspili við bragðefnin,“ segir Pétur. Jöklan sem var í boði á sýningunni var með lakkrísbragði og rann ljúflega niður hjá gestum að sögn Péturs. „Við gáfum 15 lítra á laugardeginum og þeir kláruðust á einum og hálfum klukkutíma. Daginn áður vorum við á bás Fóðurblöndunnar og þar var sama sagan. Það var heilmikil ös og gaman að geta kynnt Jökluna við þessar aðstæður.“ /TB Lagaumgjörð heimaslátrunar og -sölu: Ráðherra er jákvæður gagnvart breytingum Í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á mánudaginn lýsti Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra því yfir að hann væri jákvæður gagnvart þeim möguleika að breyta lagaumgjörðinni fyrir heimaslátrun og -sölu kjötafurða beint frá býli. Telur hann að sauðfjárbændur ættu sjálfir að geta slátrað heima sínum gripum og selt afurðir þeirra til að auka verðmæti þeirra, en það er ekki heimilt í dag. „Mér finnst sjálfsagt að skoða allar leiðir fyrir bændur til að auka verðmæti úr þeirri vöru sem þeir eru að framleiða – og ef þetta er liður í því, er það sjálfsagt mál,“ sagði Kristján Þór spurður um hvort ekki væri kominn tími til að breyta þessum lögum og bændum yrði leyft að slátra heima og selja afurðirnar þaðan. „Eðlilega þurfa að vera einhverjar kröfur um öryggi matvæla sem þyrfti að uppfylla en ég hef enga trú á öðru en það sé hægt að yfirstíga erfiðleika í því,“ sagði Kristján Þór enn fremur. /smh Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Mynd / VH Feðginin Pétur Pétursson og Stefanía Ósk Pétursdóttir kynntu rjómalíkjörinn Jöklu á landbúnaðarsýningunni í Laugardal. Mynd / TB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.