Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 1
20. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 18. október ▯ Blað nr. 525 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Sala íslenskra orkufyrirtækja á upprunaábyrgðum úr landi er slæmt ímyndarmál fyrir Ísland:
Þetta er augljóslega afar sérkennilegt
segir umhverfis- og auðlindaráðherra
– Samræmist ekki markmiðum stjórnvalda um ímynd Íslands og að hér sé eingöngu framleidd og seld endurnýjanleg raforka
Bændablaðið óskaði eftir svörum
frá Guðmundi Inga Guðbrands-
syni umhverfis- og auðlinda-
ráð herra þann 24. ágúst sl. um
afstöðu hans til sölu íslenskra
orku fyrirtækja á hreinleika-
vottorðum. Í svari ráðherrans
kemur m.a. fram að honum þyki
sala slíkra vottorða koma mjög
spánskt fyrir sjónir.
Í forsíðufrétt Bændablaðsins 23.
ágúst sl. er frétt um sölu íslenskra
orkufyrirtækja á „hreinleika-
vott orðum“ til erlendra orku- og
iðn fyrirtækja. Þar kom fram
að samkvæmt gögnum Orku-
stofnunar var hlutfall hreinnar
endur nýjanlegrar raforku á Íslandi
þá komið niður í 13% af heildar-
framleiðslunni árið 2017 vegna
sölu á hreinleikavottorðum. Þá var
raforka framleidd með kolum, olíu
og gasi sögð vera 58% af heildinni
og 29% var sögð framleidd með
kjarnorku. Samanlagt er þetta 87%.
Koldíoxíð sem Íslendingar voru
sagðir spúa út í andrúmsloftið í
fyrra vegna raforkuframleiðslu
nam 447,12 g/kWh og geislavirkur
úrgangur 0,87 mg/kWh.
Ef það er sett í samhengi við
þá mengun sem Íslendingar tóku á
sig í fyrra fyrir erlend orkuver og
verksmiðjur, þá sitjum við uppi eftir
vottorðasöluna á síðasta ári með 8,6
milljónir tonna ígildis af koldíoxíði
og 16,74 tonn af geislavirkum
úrgangi.
Ljóst er að erlend orkufyrirtæki
sem framleiða raforku með kolum,
olíu, gasi eða kjarnorku, nota íslensk
hreinleikavottorð til að fegra sína
ímynd og segjast framleiða hreinni
orku en þau gera í raun. Það
gefur þeim síðan möguleika á að
framleiða áfram óáreitt raforku með
jarðefnaeldsneyti. Þetta skýtur mjög
skökku í allri umræðu um að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda. Auk
þess sem orkuframleiðsla af þessum
toga er utan sviga í samningum eins
og Parísarsamkomulaginu um að
draga úr losun CO2.
Á árinu 2017 náði heildarlosun
gróðurhúsalofttegunda vegna
raforkuframleiðslu nýjum hæðum,
eða 32,5 gígatonnum af CO2 og jókst
þá á milli ára um 420 milljónir tonna.
Aukningin samsvarar mengun frá 170
milljónum bíla. Stendur losun CO2
vegna orkuframleiðslu fyrir um 25%
allrar losunar gróðurhúsalofttegunda
af mannavöldum á heimsvísu. Ef
iðnaður er tekinn með, sem er líka
fyrir utan sviga, þá er hlutfallið 46%
samkvæmt tölum IPPC.
Kemur mjög spánskt fyrir sjónir
Bændablaðið spurði um afstöðu
umhverfis- og auðlindaráðherra
varðandi þessa vottorðasölu frá
Íslandi. Svar barst 16. október og
þar segir m.a.:
„Þetta kann að virka vel í Evrópu
þar sem raforka getur flætt frá einu
landi til annars, og skapað hvata
fyrir endurnýjanlega orku. Hérlendis
orkar þetta hins vegar mjög svo
tvímælis, enda alveg ljóst að við
framleiðum t.d. ekki kjarnorku –
og því kemur mjög spánskt fyrir
sjónir að rafmagnsreikningurinn
sýni eitthvað slíkt.
Hér á landi heyrir málið undir
atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið
sem lét vinna skýrslu árið 2016 um
upprunaábyrgðir raforku í íslensku
samhengi. Í henni er meðal annars
bent á að sala upprunaábyrgða úr
landi geti skaðað ímynd Íslands,
þ.e. þá ímynd að orkuframleiðsla
landsins sé hrein og endurnýjanleg
(og þar með orkunotkun). Undir
þetta tek ég.”
Samræmist ekki markmiðum
stjórnvalda
„Ég er sammála því sem kom fram
þegar skýrslan var kynnt að ef
markmið stjórnvalda er að tryggja
ímynd Íslands og að framsetning á
raforkusölu á Íslandi sé með þeim
hætti að hér sé eingöngu framleidd
og seld endurnýjanleg raforka,
þá virðist sala orkufyrirtækja á
upprunaábyrgðum úr landi ekki
samræmast því markmiði.“
Einnig var spurt hvort það sé
eðlilegt að Íslendingar taki á sig
ómælda mengun á pappírunum
vegna sölu hreinleikavottorða, á
sama tíma og íslensk stjórnvöld
hafa það að markmiði að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda.
„Það þykir mér ekki. –
Rétt er þó að undirstrika að
þetta breytir engu um okkar
alþjóðlegu skuldbindingar í
loftslagsmálum, hvorki hvað
varðar hlutfall endurnýjanlegrar
orku né loftslagsbókhald, enda
byggir bókhald okkar þar á
raunframleiðslu íslenskrar raforku.
Sala hérlendra orkufyrirtækja á
upprunaábyrgðum þýðir þannig til
dæmis ekki að Ísland fái bókfærða
losun frá kolaorkuverum í Evrópu.
Þetta tengist alþjóðlegum
skuldbindingum okkar í loftslags-
málum með öðrum orðum ekkert,
en er á hinn bóginn til dæmis
ímyndarmál. Og sem slíkt tel ég
það slæmt,“ segir ráðherra.
– Sjá nánar um svör ráðherra og
Landsvirkjunar við fyrirspurnum
Bændablaðsins um sama mál á bls.
20 og 21 /HKr.
Landbúnaðarsýningin Íslenskur landbúnaður 2018 var haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík um síðustu helgi eftir 50 ára hlé. Aðsókn var langt umfram væntingar og er talið að á milli 80 til 100
við það sem áður þekktist. Stálpaðri kökkum þótti ekki síður mikið til koma, eins og sést á innfelldu myndinni. – Sjá nánar um sýninguna á innsíðum. Myndir / HKr.
Markmiðið að rækta arfhreint
og heilbrigt útsæði
24–25
Gagnagrunnur fyrir
færeyska hestinn
byggður á WorldFeng
28–29
til bænda við Djúp
32–33