Bændablaðið - 18.10.2018, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 41
Sigurður Sævar Gunnarsson,
fram kvæmdastjóri Ístex, segir að
unnið hafi verið að breytingum á
flokkun ullar í samráði við bændur
til að auka verðmætasköpun í
ullarvinnslu. Þá sér í lagi til að
mæta þörf á jafnara hráefni og
auka sérstöðu lakari flokka í
augum viðskiptavina.
Sigurður segist þó vilja taka það
fram að langflestir bændur skila af
sér góðri og vel flokkaðri ull. Hins
vegar megi alltaf gera betur til að
auka verðmætin fyrir bændur.
Staða ullarmarkaða
„Í íslenska lopann er notuð betri
ullin, eins og H-Lamb, H-2-Lamb
og H-1 flokkur. Lakari flokkar eins
og H-2 og M-2 eru aðallega seldir
erlendis, þá aðallega í gólfteppaband.
Undanfarin 5 ár hefur aukist talsvert
framboð af nýsjálenskri ull og af
ódýrum gerviefnum, m.a. vegna lágs
olíuverðs. Margir framleiðendur á
gólfteppabandi hafa fylgt þessari
þróun, þar sem framleiðsla verður
ódýrari og jafnari. Þegar þessir aðilar
fá ullarballa með mjög góðri ull í
einu horni og lélegri ull í öðru þá
vilja þeir alltaf miða verð við lakari
hlutann sökum óvissu. Ístex hf.
fjárfesti í ullarblöndunarklefum, sem
voru settir upp síðastliðinn vetur, til
að fá jafnara og betra hráefni. Þessi
áhersla á aukin gæði hefur skilað
því að trú á íslenska ull hefur aftur
aukist, engin kvörtun hefur borist
og fleiri vilja prófa ullina. Íslenska
ullin þykir gefa gólfteppabandi meiri
styrk miðað við aðrar ullargerðir,“
segir Sigurður
Nú er tími til að undirbúa sókn
„Það eru nokkrir þættir sem gefa
ástæðu til að ullarverð fari hægt
og sígandi að hækka á erlendum
ullarmörkuðum, m.a. vegna
hækkandi olíuverðs. Þess vegna
viljum við í samstarfi við bændur
finna leiðir til að auka sérstöðu
íslensku ullarinnar og finna aukin
verðmæti í lakari ullarflokkunum
og greina betur á milli flokka. Þess
vegna leggur Ístex til að nokkrar
breytingar á ullarflokkum verði
prófaðar. Nú ætlum við að bjóða
bændum að bæta við sérflokk fyrir
grófa ull af lærum, kvið og þess
háttar. Þessi flokkur kallast H-3-H
og er tilraunaflokkur. Þannig að
gamli flokkurinn, H-2-H, batnar í
gæðum og hækkar í verði.“
H-3-H hvítt – haustrúin ull
„H-3-H er ætlaður fyrir hvíta
haustull sem er gróf og/eða gölluð.
Læraull, kviðull og ull af jöðrum
H-1-H og H-2-H reyfa skal nú setja
í H-3-H. Langtíma markmiðið
með þessum flokk er að auka mýkt
íslensku ullarinnar bæði í fyrsta og
öðrum flokk. Þumalputtaregla segir
að 2 mikron mýkri ull er um 20%
verðmætari. Þetta er tilraun er vert
er að láta reyna á.“
Vetrarull – Hvítt snoð
Á vorin hefur heilsársull og snoð
verið sett saman undir einn flokk
H-2-V. Nú breytist það þannig að
snoðið fer sér og heilsársullin sér,
fyrir hvít reyfi.
„Snoðið verður sér flokkur
einfaldlega vegna þess að það hentar
viðskiptavinunum betur. Þeir vilja fá
þetta hvort í sínu lagi. Þessi ull hefur
í gegnum tíðina verið erfið í þvotti
og blönduð við heilsársull. Nú hefur
fundist beinn markaður fyrir svona
stutt hár, en þetta er fallegt og mjúkt
efni eftir þvott.“
Vetrarull – Hvít heilsársull
„Gæði á þessari ull hafa aukist
talsvert eftir að snoðið var tekið úr
og blöndunarklefunum var bætt við
á Blönduósi. Þetta þykir m.a. sterk
og góð ull í gólfteppaband.“
Mislit M-2-Lamb
„Til þess að auka verðmæti M-2
flokksins þá bjóðum við bændum
nú að flokka mislita lambsull í M-2-
Lamb sem áður hefði farið beint í
M-2. Lambsull er fínni en önnur ull
í M-2 og eru ýmis tækifæri með þann
flokk. Þarna er örugglega hægt að
bæta í.
Með þessum breytingum eigum
við að geta hækkað meðalverðið og
náð betri nýtingu. Þetta ætti ekki að
vera flókið því menn eru með þetta
aðskilið þegar verið er að rýja.“
Sigurður segir að þó mislita ullin
sé verðminnst, þá sé nú í gangi
töluverð þróunarvinna í kringum
þann flokk.
„Við höfum keypt 99% af allri
ull og þvoum. Okkar bestu flokkar
sem við getum notað er 1. flokkur
og lambsull. Annað er of gróft. Það
höfum við að hluta verið að selja úr
landi sem hráull í teppaframleiðslu.
Sá markaður hefur verið mjög erfiður
og lágt verð fyrir ullina. Það hefur
þó aðeins verið að hækka, en það
tengist dálítið sveiflum í olíuverði og
framleiðslu á Nýja-Sjálandi. Síðan
hefur krónan verið að síga líka.“
Með hækkandi gengi krónu
minnkaði innanlandssalan á lopa
Varðandi sölu á lopa segir Sigurður
að það hafi orðið mikil aukning
á sölu hér innanlands til 2014
og 2015. Þá hafi gengið farið að
hækka og innflutningur að lækka og
innanlandssalan á lopa dróst saman.
Segir hann að slíkar sveiflur hafi
ekki sést í sölunni erlendis. Þar hafi
verið jöfn og stöðug 10% aukning
ár eftir ár.
„Sá markaður sem hefur verið
með mestu aukninguna er Svíþjóð.
Síðan eru Danmörk, Þýskaland og
Bandaríkin stærstu vaxtarsprotarnir.“
Sagði Sigurður að aukin eftir-
spurn erlendis hafi kallað á meiri
vinnu hjá Ístex.
„Við bættum við okkur fólki í
spunaverksmiðjunni í sumar. Nú
erum við byrjuð að vinna á dag- og
kvöldvöktum. Það eru 43 skráðir á
launaskrá hjá okkur og talan fer upp í
53 yfir veturinn þegar við bætum við
mannskap á þvottastöðinni.“
Verið að búa til
skýringarmyndband
Sigurður segir að verið sé að
vinna að myndböndum, appi og
heimasíðu til að aðstoða bændur við
meðhöndlun og flokkun ullar. Þá séu
bændur hvattir til að hika ekki við
að hafa samband við Ístex til að fá
nánari útskýringar um hvernig megi
auka gæði íslenskrar ullar.
„Þá er verið að taka upp kerfi
sem gefur bændum fyrr og betri
upplýsingar ef breyting er gerð á
flokkun ullar við þvott á Blönduósi.
Innleggjendur eru hvattir til að hafa
allar upplýsingar á Bændatorgi eins
réttar og kostur er. Þannig má tryggja
að allt ferlið gangi sem greiðast,“
segir Sigurður. /HKr.
Mosfellsbær Ístex hf. Völuteig 6 566-6300 Ístex hf. Völuteig 6 566-6300
Borgarnes Magnús Kristjánsson 832-1557 KB. Búrekstrardeild 430-5500
Snæfellsnes Velverk. Ystu Görðum 894-7257 Ragnar og Ásgeir Grundarfirði 430-8100
Búðardalur Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Saurbær Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Króksfjarðarnes Biggi Upp ehf 691-4995 KM þjónustan Búðardal 434-1611
Barðaströnd Biggi Upp ehf 691-4995 Barði Sveinsson Innri-Múla 456-2019
Þingeyri Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364
Flateyri Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364
Ísafjarðardjúp Biggi Upp ehf 691-4995 Hákon S. Unnsteinsson Ketilseyri 849-8364
Hólmavík Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt 892-4646
Bitrufjörður Strandafrakt 892-4646 Strandafrakt 892-4646
Borðeyri Strandafrakt 892-4646 Kaupfélag V-Hún, pakkhús 455-2325
Hvammstangi Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag V-Hún, pakkhús 455-2325
Blönduós Ullarþvottastöð 483-4290 Lífland Blönduósi 540-1155
Sauðárkrókur Ullarþvottastöð 483-4290 Kaupfélag Skagfirðinga, Verslunin Eyri 455-4610
Akureyri Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi Oddeyrargötu 460-3350
Húsavík Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi-Húsavík. Trausti 458-8980
Mývatn Rúnar Jóhannsson 847-6616 Bústólpi-Húsavík. Trausti 458-8980
Kópasker Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Þórshöfn Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Vopnafjörður Vökvaþjónusta Eyþórs 893-1277 Vökvaþjónusta Eyþórs, Kópaskeri 893-1277
Egilsstaðir Sverrir Þór Sverrisson 865-0240 Jötunvélar, Egilsstöðum 480-0448
Höfn Víðir Gíslason 864-4819 KASK Höfn Hornafirði 470-8222
Kirkjubæjarklaust
ur
Víðir Gíslason 864-4819 N1 - Kirkjubæjarklaustri 487-4628
Vík Víðir Gíslason 864-4819 Ragnar S. Þorsteinsson 864-9628
Hvolsvöllur Þórður Jónsson 893-2932 Þórður Jónsson 893-2932
Flúðir Biggi Upp ehf 691-4995 Fóðurblandan Selfossi 570-9840
Selfoss Biggi Upp ehf 691-4995 Fóðurblandan Selfossi 570-9840
Móttökustaðir fyrir ull og afhending umbúða 2018/19
SAUÐFJÁRRÆKT&ULLARVINNSLA
Aukin verðmætasköpun og sókn í ullarframleiðslu
– Flokkun verður aukin til að bæta verðmæti ullarinnar
Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ístex. Mynd / HKr.