Bændablaðið - 22.03.2018, Page 7

Bændablaðið - 22.03.2018, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018 Matreiðslumaðurinn Hinrik Örn Lárusson, sem starfar á Grillinu á Hótel Sögu, vann silfurverðlaun í Norðurlandamótinu Nordic Junior Chefs sem fór fram í Herning í Danmörku síðastliðinn þriðjudag. Samhliða þeirri keppni var keppnin Nordic Chef of the Year og framreiðslukeppnin Nordic Waiter of the Year. Hafsteinn Ólafsson frá Sumac Grill + Drinks, sem bar sigur úr býtum í keppninni Kokkur ársins 2017, keppti í matreiðslukeppninni og í framreiðslunni keppti Lúðvík Kristinsson frá Grillinu. Þeir komust ekki á verðlaunapall. Mótshald samhliða Foodexpo Sænski keppandinn bar sigur úr býtum í Nordic Chef Junior og sá finnski varð í þriðja sæti. Klúbbur matreiðslumeistara sendi þessa þrjá keppendur til leiks og rekur klúbburinn afreksstarf í matreiðslu og keppnisstarf ungra matreiðslumanna í Kokkalandsliðinu og keppnina Kokkur ársins ásamt þátttöku í alþjólegum keppnum eins og hér um ræðir. Skipulag keppninnar er í höndum Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara og fer keppnin fram í Herning samhliða matvælasýningunni Foodexpo. „Mystery basket“-fyrirkomulag Í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara kemur fram að fyrirkomulag matreiðslukeppninnar hafi verið með svokölluðu „mystery basket“-sniði þar sem keppendur fá að sjá skylduhráefnin degi fyrir keppni og skila síðan af sér þriggja rétta matseðli fyrir 12 gesti á keppnisdegi. Framreiðslumaðurinn vinnur með matreiðslumönnum við þjónustu á keppnismatnum og þarf einnig í keppninni að sýna fagleg vinnubrögð í sínum aðgerðum við pörun á vínum við réttina og að útbúa kokkteila. Þjálfari Hafsteins og dómari í matreiðsluhluta keppninnar var Þráinn Freyr Vigfússon frá Sumac Grill + Drinks. Þjálfari Hinriks var Sigurður Laufdal, yfirmatreiðslumaður á Grillinu. Thelma Björk Hlynsdóttir, frá Grillinu, þjálfaði Lúðvík og dæmdi jafnframt í framreiðslukeppninni. /smh Kjötiðnaðarmenn SS sýndu frábæra frammistöðu í fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna og besta skinka Íslands 2018 sem fór nýlega fram. Oddur Árnason, fagmálastjóri SS, varð kjötmeistari Íslands árið 2018. Hann fékk auk þess verðlaun fyrir bestu vöruna úr nautakjöti, einnig fyrir reykgrafið Landnámsnaut, auk þess að fá Lambaorðuna fyrir Tindfjallahangikjet og verðlaun fyrir athyglisverðustu nýjungina fyrir Sveitakonfekt. Jónas Pálmar Björnsson, verkstjóri hjá SS, fékk verðlaun fyrir bestu vöruna úr hrossa/folaldakjöti fyrir grafið lakkrísfolald. Fagmenn SS sendu inn 31 vöru í keppnina og hlutu 30 vörur verðlaun, þar af 19 gullverðlaun. Þess má geta að Göngubiti og Lukkubiti, sem eru nýjar þurrverkaðar snakkpylsur á markaði, fengu báðar gullverðlaun. Auk þess var Hunangsskinkan frá SS kosin besta skinkan 2018. Forkeppnin fór fram á haustdögum þar sem dómnefnd Meistarafélags kjötiðnaðarmanna valdi þrjár bestu skinkurnar úr fjölda innsendra vara, þar átti SS tvær af þremur bestu skinkunum. Aðalkeppnin fór fram í febrúar í Kringlunni þar sem almenningur dæmdi á milli og bar Hunangsskinkan sigur úr býtum. /MHH Sigursælir kjötiðnaðarmenn hjá SS MÆLT AF MUNNI FRAM Á einkar björtum morgni sit ég einn ganginn enn við vísnaþáttargerð fyrir Bændablaðið. Það örlar á vorkomunni, farið að svía ögn um á Svalbarðsströnd, og örsmátt flugnamor vaknað af dvala, tifandi ráðaleysislega á rúðum stofunnar. Merki vorsins munu sjást víðar, þó hvergi eins óræk og í Langadal Einars Kolbeinssonar í Bólstaðarhlíð: Vorið færist vinur nær, vaknar líf um dalinn, enda komnar álftir tvær aftur í Langadalinn. Nokkrum mínútum síðar tísti aftur í símann: Loksins vetur langur senn liggja mun í valnum. Núna sá ég eina enn álft í Langadalnum. Jakob Ó. Pétursson ( 1907-1977) kenndur við Hranastaði í Eyjafirði var afburða ritfær maður og lipur hagyrðingur. Hann var ritstjóri Íslendings, blaðs sjálfstæðismanna á Akureyri, um langa hríð. Enn fremur var Pétur mikill vísnasafnari. Af ýmsu má ráða að Pétur hafi ekki verið ákafur bindindismaður, enda meðal vina kallaður „Peli“ og kenndur við „Pelagerði“. Einhverju sinni léði hann Sigurði Gíslasyni vísnasafn sitt til einhverra nota. Sigurður skilar Pétri safninu ásamt nokkrum stökum: Ég á kafi alveg er í því hafi vísna, sem án vafa verður mér vitaðsgjafi býsna. Ekki mundi ég una því öllum þessum vísum sleppa, fyrst ég komst hér æti í, úrvalsstökur margra greppa. Sú er bót að ei sér á af þótt tekið verði, en öllu skila skal og má skáldi í Pelagerði. Brynjólfur Einarsson skipasmiður í Vestmannaeyjum, f. 1903 í Lóni, var um tíma búsettur á Eskifirði. Ölfús granni Brynjólfs þurfti nauðsynlega áfengis með og braut sér leið gegnum glerrúðu í áfengisleit. Þá orti Brynjólfur: Hverjir, sem um heilar rúður höfði stinga, í hálsinum með glerbrot ganga, glóðarauga og bláan vanga. Eitt sinn, í ákafri norðan stórhríð á Eskifirði, stóð Brynjólfur daglangt við að moka frá útidyrum hússins, og hafði hvergi við: Þegar afla á Íslandsmiðum þraut, og atvinnan því dragast saman hlaut, maðurinn sér maklegt verksvið fann: -Að moka snjó í kapp við skaparann. Svo ein heilræðavísa eftir Ágúst Jónsson í Höskuldarkoti: Mikilsvert er meðalhóf, meðan varir lífsins þóf. Of og van er einatt böl, er eykur strit og sálarkvöl. Vel er við hæfi, undir hótunum Kóreu- ríkjanna undanfarið, að birta vísur sr. Sigurðar Norland (gagaraljóðaháttur) sem hann orti meðan hið eiginlega Kóreustríð geisaði: Þingið kannar þjóðarföng, þvingar annir lands um hring, kringum mann er klípitöng, klingir bann og formæling. Landi þjóðin bindur bönd, blandast góðu ferlegt grand, handaóður vindur vönd, vandast róður, fer í strand. Sjaldan bíða brekagjöld, baldinn lýður heimtar völd, kalda stríðið ógnar öld, aldan ríður, fellur tjald. 198 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com LÍF&STARF Keppendur SS í fagkeppninni við verðlaunin sín. Frá vinstri: Jónas Pálmar Björnsson verkstjóri, Benedikt Benediktsson framleiðslustjóri, Oddur Árnason fagmálastjóri, Bjarki Sigurjónsson verkstjóri, Björgvin Bjarnason, gæðastjóri Reykjagarðs, Steinar Þórarinsson verkstjóri. Á myndina vantar Hrafn Magnússon, Jónas Helgason og Hermann Bjarka Rúnarsson, en þeir tóku einnig þátt í keppninni. Mynd / Björk Guðbrandsdóttir Hinrik á Grillinu fékk silfur á Norður- landamótinu Nordic Chef Junior Hafsteinn Ólafsson og Lúðvík Kristinsson. Hinrik Örn Lárusson á Grillinu, silfurverðlauna- Frá verðlaunaafhendingunni. Hinrik er þriðji frá vinstri. Myndir / Klúbbur matreiðslumeistara

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.