Bændablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna:
Kjötmeistari Íslands 2018
er Oddur Árnason hjá SS
Fagkeppni Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna var haldin
8. og 9. mars í Menntaskólanum
í Kópavogi. Þar mátu dómarar
125 mismunandi vörur frá
kjötiðnaðarmönnum víða af
landinu. Stigahæsti kjötiðnaðar-
maðurinn reyndist vera Oddur
Árnason frá Sláturfélagi
Suðurlands og hlaut hann um
leið sæmdarheitið „Kjötmeistari
Íslands“.
Af 125 vörum sem sendar
voru inn í keppnina fengu 105
verðlaun. Þar af fengu 54%
innsendra vara gullverðlaun, 21%
fengu silfurverðlaun og 9% fengu
bronsverðlaun. Vörurnar voru
dæmdar í húsnæði Matvælaskólans
í Kópavogi og þar gafst gestum og
gangandi tækifæri til að skoða og
smakka innsendar vörur.
Byrjað var að dæma um kl 14
á fimmtudeginum og voru úrslit
kynnt á verðlaunaafhendingu
á degi Meistarafélags kjöt-
iðnaðarmanna á Hótel Natura
(Hótel Loftleiðum) laugardaginn
10. mars.
Yfirdómari keppninnar var
Eðvald Sveinn Valgarðsson.
Aðrir dómarar voru Árni Níelsson,
Ingólfur Baldvinsson, Ómar B.
Hauksson, Kristján Kristjánsson,
Magnús Friðbergsson og Hreiðar
Örn Stefánsson.
Í fagkeppnisnefnd MFK
voru Þorsteinn Þórhallsson sem
var formaður og Sigurfinnur
Garðarsson. Ingólfur Baldvinsson
og Arnar Sverrisson.
Aðstoð við fagkeppni
veitti Erla Jóna Guð-
jónsdóttir og Björk
Guð brandsdóttir var
ritari.
Kristján Þór
Júlíus son, ráðherra
sjávarútvegs og land-
búnaðar, heiðraði sam-
komuna með nærveru
sinni og aðstoðaði við
verðlauna afhendingu .
Búgreinafélögin
hafa í gegnum tíðina
verið okkar bestu
sam starfsaðilar í
þessari keppni og hafa
komið að keppninni
hvert með sínu lagi.
Tindfjallahangikjet
Landssamtök sauðfjárbænda veittu
,,Lambaorðuna“. Hún er veitt þeim
kjötiðnaðarmanni sem á bestu
einstöku vöruna úr lambakjöti í
fagkeppninni. Þau verðlaun hlaut
Oddur Árnason hjá Sláturfélagi
Suðurlands fyrir vöru sem hann
nefndi „Tindfjallahangikjet“.
Landnámsnaut/reykgrafið
Landssamband kúabænda
veitti viðurkenningu þeim
kjötiðnaðarmanni sem átti bestu
vöruna unna úr nautakjöti. Þar er
um að ræða farandverðlaunagrip
og annan minni til eignar. Þessi
verðlaun hlaut Oddur Árnason hjá
SS fyrir réttinn „Landnámsnaut/
reykgrafið.“
Spægipylsa
Svínaræktarfélag Íslands
veitti viðurkenningu þeim
kjötiðnaðarmanni sem átti bestu
vöruna unna úr svínakjöti.
Þar var einnig um að ræða
farandverðlaunagrip og annan minni
til eignar. Þar var Pétur Karlsson hjá
Esju Gæðafæði hlutskarpastur með
réttinn „Spægipylsa.“
Kjúklinga-ostapylsa
Félag kjúklingabænda veitti
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
Mynd/HKr.
Mynd/HKr.
Mynd/Björk Guðbrandsdóttir.