Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201916 Íslenska sprotafyrirtækið Atmonia hlaut í maí síðastliðnum alþjóðleg verðlaun frá Iðnþróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna [United Nations Industrial Development Organization – UNIDO] í flokki fyrirtækja með konur í fararbroddi. Voru 440 verkefni frá 100 þjóðlöndum tilnefnd og fá sjö þeirra viðurkenningu af ýmsu tagi. Guðbjörg Rist Jónsdóttir rekstrarstjóri segir þessi verðlaun fela í sér mikinn heiður fyrir Atmonia og sé staðfesting á mikilvægi vörunnar og gildi nýjungarinnar á heimsvísu. Það er búnaður sem framleiðir ammoníak úr vatni, rafmagni og lofti við herbergishita. Það snertir líka heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna þar sem 1% af CO2 losun í dag kemur frá því að búa til köfnunarefnisáburð. Með aðferð Atmonia við framleiðsluna verður engin losun á koltvísýringi og auk þess er hægt að draga umtalsvert úr losun við dreifingu á áburði. Ferlið við að búa til áburðinn heima á býli getur einnig lækkað kostnað við köfnunarefnisáburð í sumum tilfellum um nærri 50%. Sérstaklega þar sem raforkuverð er lágt. Þá dregur það úr losun CO2 vegna flutninga utan úr heimi og á milli landshluta. Verðlaunin munu að mati Guðbjargar hjálpa þessu litla sprotafyrirtæki frá Íslandi til að komast í sviðsljósið á alþjóðlega vísu. Verðlaununum fylgir aðgangur að sérfræðingum á sviði land­ búnaðartækni á heimsvísu sem og aðgangur að 70 hektara tilraunagarði á vegum Future Food Institute á Ítalíu. Þau eru núna í sumar að vinna að frumgerð búnaðar sem á að fara í almenna dreifingu svo hver bóndi geti keypt hann og búið til köfnunarefnisáburð heima á búinu hjá sér. Fimm manna teymi Að Atmonia standa Arnar Svein­ björnsson tæknistjóri, Helga Dögg Flosadóttir framkvæmdastjóri, Magnús Már Guðnason verk­ fræðingur og Guðbjörg Rist, sem er rekstrarstjóri. Þá stjórnar Egill Skúlason, prófessor við Háskóla Íslands, rannsóknum hópsins. Með þeim að rannsóknum starfar um þessar mundir doktorsnemi, sumarnemar, auk eins fyrrverandi doktorsnema. Þá er fyrirtækið í samstarfi við fjölda einstaklinga og fyrirtækja. Rannsóknarhópurinn hlaut einnig nýlega öndvegisstyrk frá Rannsóknarsjóði Íslands og er stefnt á fyrstu prófanir af frumgerðinni í sumar. Atmonia aflar nú fjármagns til að ljúka við smíði á frumgerð að áburðarframleiðslutæki sínu. Haber-Bosch aðferðin skóp grunn að stóriðnaði Aðferð Atmonia við framleiðslu á ammoníaki er sérstök og þar er farið aðrar leiðir en áður hefur verið gert í slíkri framleiðslu. Það voru hins vegar þýsku efnafræðingarnir Fritz Haber og Carl Bosch sem fundu upp Haber­Bosch aðferðina um þarsíðustu aldamót til að gera vinnslu á ammóníaki fýsilega í miklu magni undir miklum þrýstingi úr jarðgasi eða kolum. Fengu þeir nóbelsverðlaun 1918 fyrir þá uppgötvun sína. Var ammoníak fyrst framleitt í miklu magni með Haber­Bosch aðferðarfræðinni í verksmiðju BASF í Oppau í Þýskalandi árið 1913. Þar voru framleidd um 20 tonn á dag. Kallaði fyrri heimsstyrjöldin síðan á stóraukna framleiðslu á ammoníaki til sprengiefnagerðar. Köfnunarefnisáburður er afleiða af ammóníakframleiðslu líkt og framleiddur var í Gufunesi. Slíkur áburður er ekki bara notaður sem vaxtarhvati fyrir gras og annan gróður, því hann er talsvert notaður sem sprengiefni, m.a. við jarðgangagerð. Haber­Bosch aðferðarfræðin var síðan þróuð enn frekar upp af iðnaðarefnafræðingnum Carl Bosh til framleiðslu á ammoníaki með miklum hita [400–500°C] og undir miklum þrýstingi [2.200–3.600 psi]. Fékk hann nóbelsverðlaun fyrir þá aðferðarfræði árið 1931 ásamt Friedrich Bergius. Íslenska fyrirtækið Atmonia með nýja nálgun Fyrirtækið Atmonia rekur uppruna sinn til rannsókna í efna­ og eðlisfræði innan veggja Háskóla Íslands. Þetta er því alíslenskt sprotafyrirtæki sem byggir á byltingarkenndum niðurstöðum úr rannsóknum í rafefnafræði við Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Félagarnir í Atmonia hafa verið að glíma við aðra nálgun en þýsku efnafræðingarnir og leituðu að efnum sem næðu að mynda ammoíak úr vatni og lofti, en við lágan þrýsting og við herbergishita. Þá þarf ekki að reiða sig á jarðgas eða kol eins og oftast er gert við ammoníaksframleiðslu. Aðferðin er því afar vistvæn ef raforkan sem notuð er fæst úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Þá eru félagarnir í Atmonia m.a. að glíma við að ná sem bestri orkunýtni í vinnsluferlinu. Ammoníak í vatnslausn árangur tilraunar sem gekk upp „Þetta hefur nú tekist,“ segir Guðbjörg Rist. „Nú erum við að smíða frumgerð af tækinu sem byggir á rafgreiningu. Þar sem við þurfum ekki hita né þrýsting, þá getum við framkvæmt þetta í pínulitlum tækjum sem hægt er að koma fyrir á hvaða bóndabæ sem er. Hver bóndi er þá með sitt tæki sem framleiðir ammoníak í vatnslausn með rafgreiningu úr lofti og vatni.“ Um hreina snilldaruppfinningu virðist vera að ræða, en þó hægt sé að framleiða ammóníak með einfaldri aðferð að hætti Atmonia, þá þarf samt talsverða raforku við rafgreininguna. Fyrir þá bændur sem hafa kost á að virkja bæjarlækinn væri þetta því kjörið tækifæri. Leysir af hólmi óvistvæna áburðarframleiðslu Með tækni Atmonia er í raun verið að leggja af aldagamla aðferð við áburðarframleiðslu sem skilur eftir sig tröllaukið vist­ og kolefnisspor. Áburður Atmonia er framleiddur í vatnslausn og því er einfalt að skammta áburð með vatnsúðakerfi. Það tryggir betri upptöku næringarefna og minni losun efna í nánasta umhverfi „Þar sem ammoníakið er alltaf í vatnslausn, þá er auðvelt að stilla styrk efnisins í vatninu eftir því sem hentar hverri ræktun. Það sem við höfum verið að horfa svolítið til í byrjun er tæki sem framleiddi beint inn á úðakerfi sem beitt er á ökrum. Þá er þegar til sérhæfður tækjabúnaður til að úða vatnsleystu ammoníaki á tún. Er slíkt mjög mikið notað í Bandaríkjunum. Þá er því sprautað ofan í jarðveginn,“ segir Guðbjörg. Einnig eru vel þekkt tæki til að dreifa skordýraeitri og gróðureyðingarefnum á akra. Er slíkt víða gert erlendis þó svona búnaður hafi ekki verið notaður á Íslandi í miklum mæli. Úr stórum verksmiðjum í örframleiðslueiningar Guðbjörg segir að aðferðarfræði Atmonia þyki afar sérstök þar sem ekki þarf að byggja risaverksmiðjur til að gera framleiðsluna hagkvæma. Þess í stað er hægt að beita litlum tækjum sem koma má fyrir nánast hvar sem er þar sem aðgangur er að nægu rafmagni. Þannig gæti hver bóndi verið með eigin framleiðslu. Fátækir bændur í þróunarlöndum eiga þá líka möguleika á að stunda sína eigin áburðarframleiðslu og verða óháðir aðkeyptum áburði. „Þegar niðurstöður rannsóknar­ hóps sýndu að það var búið að finna efni sem nær að draga nitur úr andrúmsloftinu og nýta það beint við herbergishita, þá var fyrirtækið stofnað 2016. Við erum komin með skráð einkaleyfi á þeim efnum sem notuð eru við framleiðsluna. Það gildir í í Bandaríkjunum, Evrópu, Rússlandi, Kína og á helstu mörkuðum heims.“ Með tæki á stærð við þvottavél Tækið sem til þarf er lítið og hentugt og á stærð við þvottavél. Það tekur inn loft, vatn og rafmagn og framleiðir úr því nituráburð fyrir hvern bónda fyrir sig. Þannig getur hver bær haft sína eigin, umhverfisvænu áburðarframleiðslu, sem kemur í stað gríðarlegra flutninga frá stórum og miðlægum áburðarverksmiðjum. Prófanir gerðar úti á akrinum næsta vor – Hvenær reiknið þið með að vera komin með allan búnað í nothæft form? „Við búumst við að geta gert tilraunir með þetta við raunaðstæður úti á akri næsta vor 2020. Þá verðum við komin með frumgerðir sem við getum prófað við mismunandi aðstæður. Að öllum líkindum munum við fyrst gera prófanir á Ítalíu þar sem við fengum aðgang að ökrum Future Food Institute í sambandi við verðlaunin sem við fengum. Þá er verið að skoða hvort við gerum líka prófanir á Íslandi. Við höfum einnig verið í sambandi við jarðarberjaræktendur og aðra berjaræktendur, því ammoníak hentar mjög vel fyrir ber. Bláber eru sérlega sólgin í ammoníak. Í framhaldi af prófunum sem fyrirhugaðar eru 2020 gerum við ráð fyrir að gera tilraunir með viðskiptavinum, all frá kúabúum til berjabænda,“ segir Guðbjörg Rist Jónsdóttir. /HKr. Við gróðursetningu trjáplantna skiptir mestu að rétt sé staðið að verki, að vinnubrögð séu vönduð og að eingöngu sé plantað út góðum og hraustum plöntum. Sýrustig jarðvegs getur einnig skipt máli þegar valdar eru saman tegundir. Meðan á gróðursetningu stendur skal gæta þess að plönturnar verði fyrir sem minnstu hnjaski og að moldin haldist sem mest á rótunum. Rætur plantna þola illa sólarljós og útfjólubláir geislar sólarinnar fara illa með þær. Því má ekki líða langur tími frá því að berrótarplöntur eru teknar upp eða plöntur teknar úr potti þar til þær eru settar niður aftur. Sé nauðsynlegt að geyma plönturnar áður en þær eru gróðursettar skal koma þeim fyrir á skuggsælum stað og vökva vel. Best er að gróðursetja tré og runna áður en vöxtur hefst á vorin og strax eftir að frost fer úr jörðu, eða á haustin eftir að hæðarvexti plantnanna lýkur. Eftir að hæðar­ og laufvexti lýkur á sumrin og brum hafa náð að þroskast setja plöntur nokkurn kraft í rótarvöxtinn. Það er tilvalið að nota haustið til að gróðursetja eða flytja tré. Eftir gróðursetningu að hausti er gott að setja þokkalegan stein við hliðina á litlum trjám. Hann kemur í veg fyrir frostlyftingu og veitir trénu skjól og yl. Stærri tré verður að festa niður með staur til að koma í veg fyrir að þau fjúki um koll. Gróðursetja má jafnt að vori sem hausti en hefð er fyrir því að gróðursetja að vori, og þá eins snemma og kostur er. Fyrir gróðursetningu skal stinga upp beð eða holu í hæfilegri dýpt fyrir tréð eða runnann og gott er að bæta lífrænum áburði í jarðveginn til að gera hann safaríkari fyrir plöntuna. Æskileg dýpt beða fyrir tré og runna er 60 til 80 sentímetrar eða 3 til 4 skóflustungur. Varast skal að gróðursetja plöntur í dældir á flatlendi þar sem vatn gæti safnast fyrir. Aldrei má gróðursetja tré dýpra en þau stóðu áður og gott er að lyfta jarðveginum upp í svolítinn kúf og gróðursetja í hann þannig að rótarháls plöntunnar nemi við hæstu holubrún. Greiða skal ræturnar út í holuna eins og hægt er og gæta þess að plönturnar standi lóðréttar í holunni. Síðan er moldinni mokað að og þjappað varlega að rótunum þannig að plönturnar standi vel og séu ekki lausar í jarðveginum. Séu tré orðin meira en einn og hálfur metri á hæð er nauðsynlegt að setja staur niður með þeim sem stuðning fyrstu árin á meðan þau eru að ræta sig og koma sér fyrir. Eftir að plöntunni hefur verið komið fyrir á sinn stað þarf að vökva vel og gæta þess næstu daga að ræturnar þorni ekki. Kjörsýrustig nokkurra trjá- og runnategunda Birki 5,0­6,5 pH Greni 4,5­6,0 pH Fura 5,0­6,0 pH Ösp 4,0­5,5 pH Hlynur 6,0­7,5 pH Gullregn 6,5­8,5 pH Lyngrósir 4,4­5,5 pH Kvistir 6,0­7,0 pH Toppar 6,5­7,5 pH Víðir 5,0­6,5 pH Töfratré 6,5­7,5 pH Rósir 5,5­7,0 pH Einir 5,0­6,0 pH pH undir 5 er súr jarðvegur – pH 5,5 til 6,5 er hlutlaus jarðvegur. – pH yfir 6,5 basískur jarðvegur. /VH STEKKUR LÍF&STARFSprotafyrirtækið Atmonia með nýstárlegar hugmyndir fyrir landbúnaðinn: Ný íslensk uppfinning við framleiðslu á ammoníaki vekur athygli úti í heimi – Getur leitt til aukinnar sjálfbærni í landbúnaði og dregið verulega úr koltvísýringslosun Atmonia-hópurinn talið frá vinstri: Egill Skúlason, prófessor við Háskóla Íslands, Arnar Sveinbjörnsson tæknistjóri, Helga Dögg Flosadóttir framkvæmdastjóri, Magnús Már Guðnason verkfræðingur og Guðbjörg Rist Jónsdóttir, rekstrarstjóri. Mynd frá verðlaunaafhendingu UNIDO í Róm. Þarna tekur Guðbjörg við verðlaununum frá Claudiu Laricchia hjá Future Food Institute. Með á myndinni eru Andrea Carapellese og Diana Battaggia sem starfa bæði hjá UNIDO. Kjörsýrustig trjáplantna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.