Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 25
561 9200
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - Niðurstöður ársreiknings 2018
BREYTING Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS EFNAHAGSREIKNINGUR Í ÁRSLOK
í milljónum króna 2018 2017 í milljónum króna 2018 2017
Iðgjöld 807 724 Eignarhlutir í félögum og sjóðum 11.835 12.162
Lífeyrir -1.618 -1.533 Skuldabréf og aðrar fjárfestingar 21.011 19.549
Hreinar fjárfestingartekjur 1.766 2.657 Skammtímakröfur og ýmsar eignir 207 192
Rekstrarkostnaður -127 -127 Handbært fé og ýmsar eignir 948 1.273
Breyting á hreinni eign 828 1.721 Eignir alls 34.000 33.176
Hrein eign frá fyrra ári 33.153 31.433 Skuldir 18 22
Hrein eign til greiðslu lífeyris 33.982 33.153 Hrein eign til greiðslu lífeyris 33.982 33.153
KENNITÖLUR 2018 2017 ÁRSFUNDUR 2019
Nafnávöxtun 5,4% 8,6% Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður
Hrein raunávöxtun 1,7% 5,9% föstudaginn 28. júní nk. kl. 14
5 ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar 3,9% 4,1% að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Fjöldi virkra sjóðfélaga 2.300 2.295 Dagskrá: Venjuleg ársfundastörf.
Fjöldi lífeyrisþega 3.822 3.726 Stjórnarkjör skv. samþykktum.
Tryggingafræðileg staða -9,4% -7,3% Önnur mál.
STJÓRN Sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.
Skúli Bjarnason, formaður, Guðrún Lárusdóttir, Sara Lind Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Guðbergsdóttir, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, Örn Bergsson. Framkvæmdastjóri: Ólafur K. Ólafs
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - STÓRHÖFÐA 23 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 563 1300 - LSB@LSB.IS - WWW.LSB.IS
UTAN ÚR HEIMI
Sonny Perdue, landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna í stjórn Trump, hefur
lýst yfir efasemdum um áhrif loftslagsbreytinga og dregið verulega úr
fjárveitingum til rannsókna á áhrifum þeirra á landbúnað í Bandaríkjunum.
Landbúnaðarráðuneyti Bandaríkjanna:
Hættir að birta rannsóknaniðurstöður
um loftslagsbreytingar
Samkvæmt því sem segir á
heimasíðu Politico hefur Trump-
stjórnin hætt að fjármagna
rann sóknir og útgáfu rann-
sókna niðurstaðna sem sýna að
loftslagsbreytingar og hækkun
loftslagshita á jörðinni geti haft
skaðleg áhrif á uppskeru og
heilsufar. Fjölda rannsókna niður-
staðna hefur verið stungið ofan í
skúffu.
Samkvæmt því sem segir í frétt
vefritsins Politico hefur stjórn Trump
þegar neitað og komið í veg fyrir
útgáfu á fjölda ríkisfjármagnaðra
rann sóknaniðurstaðna sem vara
við skaðlegum áhrifum loft slags
breytinga. Rann sóknirnar sem um
ræðir eru unnar af vísindamönnum
á vegum landbúnaðarráðuneytis
Bandaríkjanna og því í eigu
ráðuneytisins.
Aukinn koltvísýringur dregur
úr heilnæmi plantna
Skýrslurnar sem um ræðir fjalla
meðal annars um minnkandi
magn næringarefna í hrísgrjónum
og öðrum nytjaplöntum vegna
hækkandi magns koltvísýrings í
andrúmslofti. Slíkur samdráttur í
næringarefnum er talinn munu hafa
neikvæð áhrif á heilsu hundruð
milljóna manna um allan heim og þá
sérstaklega þeirra 600 milljóna sem
reiða sig á hrísgrjón sem daglega
fæðu.
Aukinn koltvísýringur í and
rúmslofti hefur einnig neikvæð áhrif
á næringargildi fóðurjurta sem aftur
hefur áhrif á vöxt búfjár og leiðir til
aukinnar notkunar á fóðurbæti.
Vilja koma í veg fyrir
fjölmiðlaumfjöllun
Samkvæmt heimildum Politico
eru allar rannsóknaniðurstöðurnar
sem um ræðir ritrýndar af virtum
vísindamönnum. Einnig er bent á að
þrátt fyrir að sumar rannsóknirnar
hafi ekki verið gerðar til að skoða
áhrif loftslagsbreytinga hafi þær samt
sem áður haft áhrif á niðurstöðurnar
og sýnt fram á ótvíræð og neikvæð
áhrif loftslagsbreytinga. Er þar
meðal annars átt við þætti eins og
hækkandi hitastig og breytingar á
veðri.
Tilgangur stjórnar Trump,
samkvæmt því sem vísindamenn
sem hlut eiga að máli segja, er
að koma í veg fyrir að fjölmiðlar
fjalli um rannsóknaniðurstöðurnar
og uppvísi almenning um innihald
þeirra og raunverulega stöðu
loftslagsmála og hætturnar sem af
þeim stafa.
Vísindamaður við Pennsylvaníu
háskóla, sem vinnur að loft slags
rannsóknum, segir að eini tilgangur
þess að birta ekki rannsókna
niðurstöðurnar sé að leyna
raunverulegri stöðu mála fyrir
almenningi. Hann segir einnig að
það sé almenningur sem líði mest
og muni koma til með að taka á
sig fullan þunga slæmra áhrifa
yfirstandandi loftslagsbreytinga.
Máli sínu til stuðnings bendir hann
á aukna tíðni óveðra, bráðnun jökla
og hækkandi sjávarmál, hitabylgjur,
þurrka og skógarelda.
Efast um sannleiksgildi
loftslagsbreytinga
Sonny Perdue, landbúnaðarráðherra
Bandaríkjanna í stjórn Trump,
hefur lýst yfir efasemdum um
áhrif loftslagsbreytinga og dregið
verulega úr fjárveitingum til
rannsókna á áhrifum þeirra á
landbúnað í Bandaríkjunum.
Mike Pencer, varaforseti
Bandaríkjanna, hefur hvað eftir
annað neitað að loftslagsbreytingar
og áhrif þeirra sé ógn við Bandaríkin
og segir á sama tíma að hann
byggi skoðun sína á nýjustu
rannsóknaniðurstöðum færustu
vísindamanna.
Í yfirlýsingu frá landbúnaðar
ráðuneytinu segir að fyrirliggjandi
rannsóknaniðurstöður verði birtar
eftir að þær hafi verið metnar af
ráðuneytinu og samþykktar til
birtingar.
Bent er á að frá því í janúar
2017 hafi landbúnaðar ráðuneyti
Bandaríkjanna einungis birt opin
berlega tvær rannsókna niðurstöður
sem tengjast loftslags málum.
Niður stöður beggja voru jákvæðar
gagnvart starfsemi tveggja stórra
og pólitískt valdamikilla kjöt
vinnsla.
Niðurstaða annarrar rann
sóknarinnar sýndi fram á tiltölulega
litla losun koltvísýrings við kjöt
vinnslu og hin að ef dregið væri úr
kjötneyslu af umhverfisástæðum
mundi slíkt líklega leiða til
útbreiðslu næringarskorts í heim
inum.
Starfsmenn fluttir til í starfi
Annað sem vakið hefur athygli
í núverandi stefnu landbúnaðar
ráðherrans og virðist vera þversögn
er að hann vill nú beina rann
sóknum á loftslagsbreytingum í átt
að fjárhagslegum áhrifum þeirra,
áhrifum á viðskipti og hugsanlegri
þörf á útgáfu matarmiða.
Ráðherrann virðist einnig hafa
það á stefnuskrá sinni að losa sig
við pólitíska andstæðinga Trump
sem starfa innan ráðuneytisins með
því að flytja þá til í starfi. Oft og
tíðum þurfa starfsmenn sem á að
flytja til í starfi að flytja sig og sína
milli ríkja vilji þeir starfa áfram hjá
ráðuneytinu. Margir kjósa því að
hætta og leita sér að vinnu annars
staðar. /VH