Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 1
12. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 27. júní ▯ Blað nr. 541 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Riðið upp með Merkurhrauni suðaustan við Búrfell og Þjórsá á Suðurlandi, skammt vestan við Heklu og efsta hluta Ytri-Rangár. Merkurhraun kallast hraunspilda á mörkum Flóa og Skeiða og er
hluti af Þjórsárhrauni sem rann fyrir um 6.000 árum. Jarðvegur á þessu svæði er þunnur, svo hraunstrýtur standa á mörgum stöðum upp úr mosaþembunum. Nafn sitt dregur hraunið af bænum
Mörk sem var á þessu svæði samkvæmt Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín. Mynd / Hörður Kristjánsson
Könnun sem Maskína gerði fyrir Heimssýn um viðhorf Íslendinga til innflutnings á hráu kjöti:
Flestir Íslendingar nema þeir tekjuhæstu ósáttir
við innflutning á fersku og ófrosnu kjöti
– Af þeim sem afstöðu taka eru 59% á móti innflutningi en 41% eru fylgjandi – Konur eru mun harðari í andstöðu sinni en karlar
Könnun sem Maskína gerði fyrir
Heimssýn og birt var 18. júní um
viðhorf Íslendinga til innflutnings
á fersku/ófrosnu kjöti, kemur
fram hörð andstaða við áform
ríkisstjórnarinnar í þeim málum.
Svarendur voru 793 sem
fengnir voru með slembiúrtaki úr
Þjóðskrá. Voru gögnin vegin með
tilliti til kyns, aldurs og búsetu.
Var svarhlutfall gildra svara mjög
gott, eða 96%. Stærsta hlutfallið í
þessum hópi reyndist vera andvígt
innflutningi á ófrosnu kjöti.
Spurt var, ert þú fylgjandi
eða andvíg(ur) því að heimila
innflutning á fersku/ófrosnu kjöti?
Gefnir voru fimm svar
möguleikar. Þar reyndust 15,2%
mjög fylgjandi innflutningi
á fersku/ófrosnu kjöti. Fremur
fylgjandi voru 18,9%. Í meðallagi
[hvorki né] voru 16,8%. Fremur
andvíg(ur) 20,4%. Mjög andvíg(ur)
28,7%.
Ef einungis er tekið tillit til
þeirra sem tóku afstöðu til málsins
voru 59% á móti því að heimilaður
yrði innflutningur á fersku/ófrosnu
kjöti. Reyndust 41% því fylgjandi.
Hvergi á landinu er
hreinn meirihlutastuðningur
við innflutning
Þegar skoðuð er afstaða fólks í
samræmi við búsetu reyndist hvergi
vera hreinn meirihlutastuðningur
við innflutning. Hann var þó
mestur í Reykjavík, eða 42,4%
og í nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur 39,5%. Andstaðan
við innflutning reyndist nærri
eins mikill á báðum stöðum, eða
39,9% í Reykjavík og 40,6% í
nágrannasveitarfélögunum.
Á öllum stöðum utan
höfuðborgarsvæðisins var
meirihluti svarenda á móti
innflutningi. Þannig var andstaðan
76,8% á Austurlandi, 73,7% á
Norðurlandi, 60,8% á Vesturlandi
og Vestfjörðum og 56% á
Suðurlandi og Reykjanesi.
Andstaða í flestum aldurshópum
Í öllum aldursflokkum nema í aldurs
flokki 30–39 ára var andstaðan við
innflutning meiri en stuðningurinn.
Meirihluti 50 ára og eldri var á
móti innflutningi, en athygli vekur
að í yngsta aldursflokknum, 18–29
ára, voru andstæðingar innflutnings
47,4% en fylgjendur einungis 26,9%.
Í þeim hópi var líka stærst hlutfall
þeirra sem tóku ekki afstöðu, eða
25,6%. Hins vegar studdu 46,9%
30–39 ára innflutning en 41,3% voru
á móti.
Þá gilti einu hvaða menntun
svarendur höfðu, í öllum tilfellum
í slíkri flokkun voru andstæðingar
innflutnings fleiri en fylgjendur.
Athygli vekur að konur eru miklu
harðari í andstöðunni en karlar, eða
60,5% á móti 38,4% andstöðu hjá
körlum.
Þeir tekjuhæstu vilja innflutning
Þegar litið var á tekjuskipingu fólks
sem þátt tók í könnun Maskínu
reyndist stuðningur við innflutning
á fersku og ófrosnu kjöti vera mestur
í hópi þeirra ríkustu. Það var eini
tekjuhópurinn þar sem stuðningurinn
var meiri en andstaðan.
Mestur var stuðningurinn í
hópi þeirra sem voru með 1,2
milljónir á mánuði eða meira. Þar
var stuðningurinn 49,3%. Þann
hóp virðist helst að finna meðal
stuðningsmanna Viðreisnar, en
þar vildi 63,1% leyfa innflutning á
fersku og ófrosnu kjöti.
Næstmestur var stuðningurinn
meðal áhangenda Samfylkingarinnar,
eða 56,6%. Meðal stuðningsmanna
Flokks fólksins var stuðningurinn
líka mikill, eða 48,8%, sem skýrist þó
varla af miklum tekjum. Mögulega
gæti það skýrst af hörðum áróðri
sem haldið hefur verið á lofti um
að frjáls innflutningur væri sérstakt
hagsmunamál neytenda. Reyndar
er nær jafn hátt hlutfall kjósenda
flokksins andsnúið innflutningi,
eða 48,3%
Fleiri Sjálfstæðismenn á móti
en þeir sem eru fylgjandi
Þá vekur líka athygli að einungis
37,2% stuðningsmanna Sjálfstæðis
flokksins eru fylgjandi þessum
innflutningi, sem er þó lagður til af
ráðherra flokksins til að mæta kröfum
dómstóla, en 43,1% er á móti. Meðal
Pírata má meira að segja finna fleiri
stuðningsmenn, eða 39,8%, en þar
eru samt 41,7% á móti.
Ekki þarf að koma á óvart að
andstaðan við innflutning skuli
vera mest meðal stuðningsmanna
Framsóknarflokksins, eða 83,5%,
og 70,4% meðal stuðningsmanna
Miðflokksins. Þá er andstaðan líka
mikil hjá stuðningsmönnum Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs
(VG), eða 67,4%. Stuðningsmenn
þessara þriggja flokka skera sig
reyndar úr og eru með hreinan
meirihluta í sínum röðum gegn
innflutningi á fersku og ófrosnu
kjöti. Tveir þessara flokka sitja nú
í ríkisstjórn. /HKr.
Skógar binda 83% af árlegri
CO2 losun í Svíþjóð
26–27 28
Ræktuð verða lífrænt
vottuð epli í úrvalsflokki
Gæðastýring er til bóta en
ekki hafin yfir gagnrýni
33