Bændablaðið - 27.06.2019, Page 1

Bændablaðið - 27.06.2019, Page 1
12. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 27. júní ▯ Blað nr. 541 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Riðið upp með Merkurhrauni suðaustan við Búrfell og Þjórsá á Suðurlandi, skammt vestan við Heklu og efsta hluta Ytri-Rangár. Merkurhraun kallast hraunspilda á mörkum Flóa og Skeiða og er hluti af Þjórsárhrauni sem rann fyrir um 6.000 árum. Jarðvegur á þessu svæði er þunnur, svo hraunstrýtur standa á mörgum stöðum upp úr mosaþembunum. Nafn sitt dregur hraunið af bænum Mörk sem var á þessu svæði samkvæmt Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín. Mynd / Hörður Kristjánsson Könnun sem Maskína gerði fyrir Heimssýn um viðhorf Íslendinga til innflutnings á hráu kjöti: Flestir Íslendingar nema þeir tekjuhæstu ósáttir við innflutning á fersku og ófrosnu kjöti – Af þeim sem afstöðu taka eru 59% á móti innflutningi en 41% eru fylgjandi – Konur eru mun harðari í andstöðu sinni en karlar Könnun sem Maskína gerði fyrir Heimssýn og birt var 18. júní um viðhorf Íslendinga til innflutnings á fersku/ófrosnu kjöti, kemur fram hörð andstaða við áform ríkisstjórnarinnar í þeim málum. Svarendur voru 793 sem fengnir voru með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Voru gögnin vegin með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Var svarhlutfall gildra svara mjög gott, eða 96%. Stærsta hlutfallið í þessum hópi reyndist vera andvígt innflutningi á ófrosnu kjöti. Spurt var, ert þú fylgjandi eða andvíg(ur) því að heimila innflutning á fersku/ófrosnu kjöti? Gefnir voru fimm svar­ möguleikar. Þar reyndust 15,2% mjög fylgjandi innflutningi á fersku/ófrosnu kjöti. Fremur fylgjandi voru 18,9%. Í meðallagi [hvorki né] voru 16,8%. Fremur andvíg(ur) 20,4%. Mjög andvíg(ur) 28,7%. Ef einungis er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu til málsins voru 59% á móti því að heimilaður yrði innflutningur á fersku/ófrosnu kjöti. Reyndust 41% því fylgjandi. Hvergi á landinu er hreinn meirihlutastuðningur við innflutning Þegar skoðuð er afstaða fólks í samræmi við búsetu reyndist hvergi vera hreinn meirihlutastuðningur við innflutning. Hann var þó mestur í Reykjavík, eða 42,4% og í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur 39,5%. Andstaðan við innflutning reyndist nærri eins mikill á báðum stöðum, eða 39,9% í Reykjavík og 40,6% í nágrannasveitarfélögunum. Á öllum stöðum utan höfuðborgarsvæðisins var meirihluti svarenda á móti innflutningi. Þannig var andstaðan 76,8% á Austurlandi, 73,7% á Norðurlandi, 60,8% á Vesturlandi og Vestfjörðum og 56% á Suðurlandi og Reykjanesi. Andstaða í flestum aldurshópum Í öllum aldursflokkum nema í aldurs­ flokki 30–39 ára var andstaðan við innflutning meiri en stuðningurinn. Meirihluti 50 ára og eldri var á móti innflutningi, en athygli vekur að í yngsta aldursflokknum, 18–29 ára, voru andstæðingar innflutnings 47,4% en fylgjendur einungis 26,9%. Í þeim hópi var líka stærst hlutfall þeirra sem tóku ekki afstöðu, eða 25,6%. Hins vegar studdu 46,9% 30–39 ára innflutning en 41,3% voru á móti. Þá gilti einu hvaða menntun svarendur höfðu, í öllum tilfellum í slíkri flokkun voru andstæðingar innflutnings fleiri en fylgjendur. Athygli vekur að konur eru miklu harðari í andstöðunni en karlar, eða 60,5% á móti 38,4% andstöðu hjá körlum. Þeir tekjuhæstu vilja innflutning Þegar litið var á tekjuskipingu fólks sem þátt tók í könnun Maskínu reyndist stuðningur við innflutning á fersku og ófrosnu kjöti vera mestur í hópi þeirra ríkustu. Það var eini tekjuhópurinn þar sem stuðningurinn var meiri en andstaðan. Mestur var stuðningurinn í hópi þeirra sem voru með 1,2 milljónir á mánuði eða meira. Þar var stuðningurinn 49,3%. Þann hóp virðist helst að finna meðal stuðningsmanna Viðreisnar, en þar vildi 63,1% leyfa innflutning á fersku og ófrosnu kjöti. Næstmestur var stuðningurinn meðal áhangenda Samfylkingarinnar, eða 56,6%. Meðal stuðningsmanna Flokks fólksins var stuðningurinn líka mikill, eða 48,8%, sem skýrist þó varla af miklum tekjum. Mögulega gæti það skýrst af hörðum áróðri sem haldið hefur verið á lofti um að frjáls innflutningur væri sérstakt hagsmunamál neytenda. Reyndar er nær jafn hátt hlutfall kjósenda flokksins andsnúið innflutningi, eða 48,3% Fleiri Sjálfstæðismenn á móti en þeir sem eru fylgjandi Þá vekur líka athygli að einungis 37,2% stuðningsmanna Sjálfstæðis­ flokksins eru fylgjandi þessum innflutningi, sem er þó lagður til af ráðherra flokksins til að mæta kröfum dómstóla, en 43,1% er á móti. Meðal Pírata má meira að segja finna fleiri stuðningsmenn, eða 39,8%, en þar eru samt 41,7% á móti. Ekki þarf að koma á óvart að andstaðan við innflutning skuli vera mest meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins, eða 83,5%, og 70,4% meðal stuðningsmanna Miðflokksins. Þá er andstaðan líka mikil hjá stuðningsmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs (VG), eða 67,4%. Stuðningsmenn þessara þriggja flokka skera sig reyndar úr og eru með hreinan meirihluta í sínum röðum gegn innflutningi á fersku og ófrosnu kjöti. Tveir þessara flokka sitja nú í ríkisstjórn. /HKr. Skógar binda 83% af árlegri CO2 losun í Svíþjóð 26–27 28 Ræktuð verða lífrænt vottuð epli í úrvalsflokki Gæðastýring er til bóta en ekki hafin yfir gagnrýni 33

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.