Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201924
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Verkefnið Landbúnaður og náttúruvernd:
Bændur geta haft margvíslegan
hag af náttúruverndarstörfum
– segir Sigurður Torfi Sigurðsson, verkefnisstjóri í samstarfsverkefni Bændasamtaka Íslands og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar
ins hefur umsjón með verk efninu
Landbúnaður og náttúru vernd
(LOGN), sem er samstarfs
verkefni Bændasamtaka Íslands
og umhverfis og auðlinda
ráðu neytisins. Sigurður Torfi
Sigurðsson verkefnisstjóri kynnti
stöðu þess á ráðunautafundi Ráð
gjafarmiðstöðvar land búnaðar
ins og Landbúnaðar háskóla
Íslands á Hvanneyri á dögunum.
Þar kom fram að bændur
geti haft margvíslegan hag af
náttúruverndarstörfum.
Tilgangur þess er að kanna
möguleika á samþættingu land
búnaðar og náttúruverndar, greina
tækifæri, hindranir, samlegðar
áhrif – og mögulegan ávinning af
náttúruverndaraðgerðum á land
búnaðar svæðum.
„Verkefnið hefur farið mjög
vel af stað og fengið mjög jákvæð
viðbrögð, við erum búin að ljúka
fyrstu tveimur áföngum og línur
farnar heldur að skýrast,“ segir
Sigurður Torfi. „Við höfum haft
sambærileg verkefni erlendis frá til
hliðsjónar, sem hafa verið byggð
upp á samtölum við bændur og
nýsköpunarvinnu. Markmiðið þar er
að snúa hindrunum í tækifæri og nota
nýsköpunarhugsun eða aðferðir
í þeim tilgangi og gera verkefnin
að minnsta kosti að einhverju leyti
sjálfbær.“
LOGN á að höfða til þeirra bænda
og/eða landeigenda sem hafa áhuga
á að stunda náttúruvernd af einhverju
tagi á skilgreindu landbúnaðarsvæði
og tengdum svæðum samkvæmt
skipulagi sveitarfélagsins.
Sigurður Torfi segir að reynsla
erlendis frá sýni að verkefni af
þessu tagi hafi stutt við byggðir í
sveitum, sérstaklega á jaðarsvæðum
og svæðum sem hafa verið í
samfélagslegri hnignun.
„Þetta hefur helst verið á þann
hátt að gert er meira úr verðmætum
auðlinda og bændur þar af leiðandi
fá hærra verð fyrir afurðir en einnig
þá skapast oft ný störf og þá oft
í kjölfarið aukning í nýliðun eða
ættliðaskiptum. Þar sem best hefur
tekist hefur öflugt fræðslu og
kynningarstarf verið unnið samhliða
„LOGN“verkefnum, bæði um
náttúruvernd og landbúnað þar sem
undirstrikað hefur verið samhengi
þessara hugtaka og mikilvægi þeirra
beggja.“
Margskonar ábati mögulegur af
náttúruverndarstörfum
Í erindi sínu tiltók Sigurður
Torfi nokkrar birtingarmyndir
náttúruverndar. Friðlýsing er aðferð
sem hefur verið notuð í náttúruvernd
og þær eru tvenns konar; afmörkun
landsvæða annars vegar og svo
geta þær átt við vistgerðir, vistkerfi
og náttúrufyrirbæri hvers konar.
Hann nefndi líka nokkra þætti
sem bændur gætu haft hag af í
náttúruverndarstörfum sínum og
möguleg hlutverk. Ábati gæti orðið
með beinum styrkjum, tekjur gætu
skapast beint af friðuninni, bændum
gæti verið falin umsjónarstörf
friðlýstra svæða og tekjur gætu
komið sem afleiðing af friðuninni.
Þá gæti skapast sérstaða og tækifæri
í kynningar og markaðsmálum með
náttúruverndarstörfum.
Þá nefndi hann nokkur óefnisleg
verðmæti sem geta hlotist af
náttúruverndarstörfum; huglægur
ábati, hugsjónir og stolt og bætt
lífsskilyrði.
Umhverfisstyrkir tíðkast
annarsstaðar
Hann sagði að ýmis verkefni væru
í gangi hér á landi, þar sem bændur
vinna í samstarfi við opinberar
stofnanir í þágu náttúruverndar, en
víða erlendis væri komin talsverð
meiri reynsla á samþættingu
landbúnaðar og náttúruverndar.
Þar tíðkist til að mynda í nokkrum
mæli að bændum séu greiddir
umhverfisstyrkir sem eiga að stuðla
að bættri umgengni við náttúru,
verndun og viðhaldi á lífbreytileika
og búsvæðum.
„Við erum búin að eiga
samtöl við bændur, stóðum fyrir
kynningar og vinnufundum í apríl
og þessa daga er ég að keyra á milli
bænda og taka viðtöl til að reyna að
fanga það sem er sameiginlegt en
einnig til að leita að hugmyndum.
Úr þessum upplýsingum komum
við til með að vinna tillögur að
stefnu og leiðum í þessu verkefni,“
segir Sigurður Torfi um næstu skref
verkefnisins. /smh
Sigurður Torfi Sigurðsson.
Framræst votlendi á Íslandi losar mest af kolefni á Norðurlöndunum samkvæmt skýrslum IPCC:
Skortur á gögnum gefur mögulega villandi mynd
– segir tilraunastjóri við Landbúnaðarháskóla Íslands
Þóroddur Sveinsson, tilraunastjóri
og lektor við Landbúnaðarháskóla
Íslands (LbhÍ), hélt erindi á
ráðunautafundi Ráðgjafar
miðstöðvar landbúnaðarins og
LbhÍ á dögunum þar sem hann
bar saman losunargildi kolefnis
úr framræstu landi á Íslandi við
önnur norðlæg lönd samkvæmt
landsskýrslum vísindanefnda (NIR)
sem unnar eru eftir regluverki
vísindanefndar Sameinuðu
þjóðanna í loftslagsmálum
(IPCC). Í máli Þórodds kom fram
að brýnt væri að Ísland aflaði
sér eigin haldbærra vísindalegra
gagna til að minnka óvissu um
losun gróðurhúsalofttegunda á
framræstu landi.
IPCC landnýtingarflokkarnir
sem hann skoðaði voru annars vegar
akurlendi (Crop land) og graslendi
(Grassland). Skilgreiningar á þessum
landnýtingarflokkum eru þó ólíkar á
milli Íslands annars vegar og hinna
Norðurlandanna hins vegar sem gerir
samanburðinn erfiðan. Til dæmis eru
öll tún á Íslandi flokkuð með akurlendi
á meðan einungis tún í reglulegum
sáðskiptum eru í þessum flokki á
hinum Norðurlöndunum. Í flokknum
graslendi á hinum Norðurlöndunum
eru síðan einungis graslendi (tún) sem
nýtt eru í landbúnaði og þá aðallega
til sláttar og/eða beitar en eru ekkert
eða óreglulega endurunnin, líkt og er
raunin með flest íslensk tún. Að mati
Þórodds ætti stór hluti íslenskra túna
að vera í IPCC flokki graslendis í stað
akurlendis ef samræmis væri gætt.
Skortur á gögnum gefur mögulega
villandi mynd
Samkvæmt IPCC er akurlendi á
Íslandi um 120 þúsund hektarar, þar
af um 54 þúsund hektarar (45 prósent)
á framræstu landi og graslendi um 5
milljón hektarar, þar af 320 þúsund
hektarar (6 prósent) á framræstu landi.
Þóroddur sagði að jarðveginum
í þessum landnýtingarflokkum
IPCC væri einungis skipt upp í
tvær jarðvegsgerðir. Annars vegar
lífrænan jarðveg sem losar mikið
kolefni í andrúmsloftið og hins vegar
steinefnajarðveg sem telst vera nánast
kolefnishlutlaus, það er hvorki bindur
eða losar kolefni.
„Á Íslandi er allt framræst land
flokkað með lífrænan jarðveg vegna
skorts á upplýsingum um hlut
einstakra jarðvegsgerða á framræstu
landi. Það hefur þó verið áætlað að
meira en fjórðungur votlendis sé
með steinefnajarðveg. Hins vegar
hefur ekki verið áætlað hversu stór
hluti framræsts votlendis hefur
steinefnajarðveg þó vitað sé að hann
er verulegur. Framræst land með
steinefnajarðveg er svo til kolefnis
hlutlaust samkvæmt IPCC. Bara þess
vegna er ekki ólíklegt að heildarlosun
kolefnis vegna framræslu hér á landi
sé ofmetin,“ segir Þóroddur.
Hann bendir á að samkvæmt NIR
skýrslum sé kolefnislosun í akurlendi
frá lífrænum jarðvegi mest í Noregi
og á Íslandi af þeim norðlægu
löndum sem voru borin saman, eða
7,9 tonn kolefnis af hverjum hektara
árlega.
Í öðrum löndum (Svíþjóð,
Finnlandi, Kanada og Rússlandi) er
losunin umtalsvert minni, eða frá 5,0
6,6 tonn kolefnis á hektara. Í sömu
skýrslum er kolefnislosun í graslendi
frá lífrænum jarðvegi hins vegar
mest á Íslandi, eða 5,7 tonn kolefnis
á hektara samanborið við Finnland,
Svíþjóð og Noreg þar sem losunin í
þessum flokki er metin 1,9–3,6 tonn
kolefnis á hektara.
Engar losunarrannsóknir
„Engar losunarrannsóknir hafa
verið gerðar í framræstu akurlendi
á Íslandi en rannsóknir á graslendi
(utan túna) eru nokkrar en
takmarkaðar. Þess vegna er notast
við IPCC sjálfgildi (default) sem eru
með mjög há uppgefin öryggismörk
(skekkjumörk). Hin Norðurlöndin
nota að stórum hluta losunargildi
sem byggð eru á eigin rannsóknum
og mælingum. Þau losunargildi eru
yfirleitt lægri en sjálfgildi IPCC,“
segir Þóroddur.
Brýnt að aflað sé
vísindalegra gagna
Í erindi sínu á Hvanneyri lagði Þór
oddur til að Landbúnaðarháskóli
Íslands og Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins færu í samstarf um
að afla vísindalegra gagna með
því að kortleggja og skipuleggja
jarðvegsgerðir í framræstu
ræktunarlandi. Valið yrði með
slembiúrtaki framræst land af
öllu landinu, þar sem tekin yrðu
30 sentimetra jarðvegssýni sem
öll yrðu rúmþyngdarmæld til
að ákvarða kolefnishlutfallið í
jarðveginum.
Úrtakið úr sýnunum yrði svo
notað til að efnagreina jarðveginn
fyrir aðhvarfsjöfnur og samtímis
yrðu gerðar öndunarmælingar á
völdum stöðum. Fyrr væri í raun
ekki hægt að meta með nokkurri
vissu hvað framræst land á Íslandi
losar mikið kolefni. /smh
Þóroddur Sveinsson flytur erindi sitt á Hvanneyri. Mynd / smh