Bændablaðið - 27.06.2019, Page 25

Bændablaðið - 27.06.2019, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 25 561 9200 LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - Niðurstöður ársreiknings 2018 BREYTING Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS EFNAHAGSREIKNINGUR Í ÁRSLOK í milljónum króna 2018 2017 í milljónum króna 2018 2017 Iðgjöld 807 724 Eignarhlutir í félögum og sjóðum 11.835 12.162 Lífeyrir -1.618 -1.533 Skuldabréf og aðrar fjárfestingar 21.011 19.549 Hreinar fjárfestingartekjur 1.766 2.657 Skammtímakröfur og ýmsar eignir 207 192 Rekstrarkostnaður -127 -127 Handbært fé og ýmsar eignir 948 1.273 Breyting á hreinni eign 828 1.721 Eignir alls 34.000 33.176 Hrein eign frá fyrra ári 33.153 31.433 Skuldir 18 22 Hrein eign til greiðslu lífeyris 33.982 33.153 Hrein eign til greiðslu lífeyris 33.982 33.153 KENNITÖLUR 2018 2017 ÁRSFUNDUR 2019 Nafnávöxtun 5,4% 8,6% Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður Hrein raunávöxtun 1,7% 5,9% föstudaginn 28. júní nk. kl. 14 5 ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar 3,9% 4,1% að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík. Fjöldi virkra sjóðfélaga 2.300 2.295 Dagskrá: Venjuleg ársfundastörf. Fjöldi lífeyrisþega 3.822 3.726 Stjórnarkjör skv. samþykktum. Tryggingafræðileg staða -9,4% -7,3% Önnur mál. STJÓRN Sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu. Skúli Bjarnason, formaður, Guðrún Lárusdóttir, Sara Lind Stjórn Lífeyrissjóðs bænda Guðbergsdóttir, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, Örn Bergsson. Framkvæmdastjóri: Ólafur K. Ólafs LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA - STÓRHÖFÐA 23 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 563 1300 - LSB@LSB.IS - WWW.LSB.IS UTAN ÚR HEIMI Sonny Perdue, landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna í stjórn Trump, hefur lýst yfir efasemdum um áhrif loftslagsbreytinga og dregið verulega úr fjárveitingum til rannsókna á áhrifum þeirra á landbúnað í Bandaríkjunum. Landbúnaðarráðuneyti Bandaríkjanna: Hættir að birta rannsóknaniðurstöður um loftslagsbreytingar Samkvæmt því sem segir á heimasíðu Politico hefur Trump- stjórnin hætt að fjármagna rann sóknir og útgáfu rann- sókna niðurstaðna sem sýna að loftslagsbreytingar og hækkun loftslagshita á jörðinni geti haft skaðleg áhrif á uppskeru og heilsufar. Fjölda rannsókna niður- staðna hefur verið stungið ofan í skúffu. Samkvæmt því sem segir í frétt vefritsins Politico hefur stjórn Trump þegar neitað og komið í veg fyrir útgáfu á fjölda ríkisfjármagnaðra rann sóknaniðurstaðna sem vara við skaðlegum áhrifum loft slags­ breytinga. Rann sóknirnar sem um ræðir eru unnar af vísindamönnum á vegum landbúnaðarráðuneytis Bandaríkjanna og því í eigu ráðuneytisins. Aukinn koltvísýringur dregur úr heilnæmi plantna Skýrslurnar sem um ræðir fjalla meðal annars um minnkandi magn næringarefna í hrísgrjónum og öðrum nytjaplöntum vegna hækkandi magns koltvísýrings í andrúmslofti. Slíkur samdráttur í næringarefnum er talinn munu hafa neikvæð áhrif á heilsu hundruð milljóna manna um allan heim og þá sérstaklega þeirra 600 milljóna sem reiða sig á hrísgrjón sem daglega fæðu. Aukinn koltvísýringur í and­ rúmslofti hefur einnig neikvæð áhrif á næringargildi fóðurjurta sem aftur hefur áhrif á vöxt búfjár og leiðir til aukinnar notkunar á fóðurbæti. Vilja koma í veg fyrir fjölmiðlaumfjöllun Samkvæmt heimildum Politico eru allar rannsóknaniðurstöðurnar sem um ræðir ritrýndar af virtum vísindamönnum. Einnig er bent á að þrátt fyrir að sumar rannsóknirnar hafi ekki verið gerðar til að skoða áhrif loftslagsbreytinga hafi þær samt sem áður haft áhrif á niðurstöðurnar og sýnt fram á ótvíræð og neikvæð áhrif loftslagsbreytinga. Er þar meðal annars átt við þætti eins og hækkandi hitastig og breytingar á veðri. Tilgangur stjórnar Trump, samkvæmt því sem vísindamenn sem hlut eiga að máli segja, er að koma í veg fyrir að fjölmiðlar fjalli um rannsóknaniðurstöðurnar og uppvísi almenning um innihald þeirra og raunverulega stöðu loftslagsmála og hætturnar sem af þeim stafa. Vísindamaður við Pennsylvaníu­ háskóla, sem vinnur að loft slags­ rannsóknum, segir að eini tilgangur þess að birta ekki rannsókna­ niðurstöðurnar sé að leyna raunverulegri stöðu mála fyrir almenningi. Hann segir einnig að það sé almenningur sem líði mest og muni koma til með að taka á sig fullan þunga slæmra áhrifa yfirstandandi loftslagsbreytinga. Máli sínu til stuðnings bendir hann á aukna tíðni óveðra, bráðnun jökla og hækkandi sjávarmál, hitabylgjur, þurrka og skógarelda. Efast um sannleiksgildi loftslagsbreytinga Sonny Perdue, landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna í stjórn Trump, hefur lýst yfir efasemdum um áhrif loftslagsbreytinga og dregið verulega úr fjárveitingum til rannsókna á áhrifum þeirra á landbúnað í Bandaríkjunum. Mike Pencer, varaforseti Bandaríkjanna, hefur hvað eftir annað neitað að loftslagsbreytingar og áhrif þeirra sé ógn við Bandaríkin og segir á sama tíma að hann byggi skoðun sína á nýjustu rannsóknaniðurstöðum færustu vísindamanna. Í yfirlýsingu frá landbúnaðar­ ráðuneytinu segir að fyrirliggjandi rannsóknaniðurstöður verði birtar eftir að þær hafi verið metnar af ráðuneytinu og samþykktar til birtingar. Bent er á að frá því í janúar 2017 hafi landbúnaðar ráðuneyti Bandaríkjanna einungis birt opin­ berlega tvær rannsókna niðurstöður sem tengjast loftslags málum. Niður stöður beggja voru jákvæðar gagnvart starfsemi tveggja stórra og pólitískt valdamikilla kjöt­ vinnsla. Niðurstaða annarrar rann­ sóknarinnar sýndi fram á tiltölulega litla losun koltvísýrings við kjöt­ vinnslu og hin að ef dregið væri úr kjötneyslu af umhverfisástæðum mundi slíkt líklega leiða til útbreiðslu næringarskorts í heim­ inum. Starfsmenn fluttir til í starfi Annað sem vakið hefur athygli í núverandi stefnu landbúnaðar­ ráðherrans og virðist vera þversögn er að hann vill nú beina rann­ sóknum á loftslagsbreytingum í átt að fjárhagslegum áhrifum þeirra, áhrifum á viðskipti og hugsanlegri þörf á útgáfu matarmiða. Ráðherrann virðist einnig hafa það á stefnuskrá sinni að losa sig við pólitíska andstæðinga Trump sem starfa innan ráðuneytisins með því að flytja þá til í starfi. Oft og tíðum þurfa starfsmenn sem á að flytja til í starfi að flytja sig og sína milli ríkja vilji þeir starfa áfram hjá ráðuneytinu. Margir kjósa því að hætta og leita sér að vinnu annars staðar. /VH

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.