Bændablaðið - 26.09.2019, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 7
LÍF&STARF
Iceland Comedy Film Festival fór fram á
Flateyri um helgina að viðstöddu miklu
fjölmenni, en hátíðin hefur tæplega tífaldað
gestafjölda sinn á sínum fyrstu fjórum
árum. Er þetta í í fjórða sinn sem hátíðin
var haldin og hefur dagskrá aldrei verið
eins vegleg.
Meðal helstu viðburða hátíðarinnar í ár
má nefna Tónleika-bíósýningu Tónlistarskóla
Ísafjarðar, þar sem nemendur léku undir Buster
Keaton-myndinni The Boat undir troðfullu
húsi. Þá var Edda Björgvinsdóttir heiðruð fyrir
framlag sitt til gamanmyndagerðar á Íslandi
á undan sérstakri hátíðarsýningu á Stellu í
orlofi ásamt því sem Arctic Fish bauð upp á
Laxaveislu í anda Stellu Löve.
Þann 25. september verða 10 ár frá því að
Algjör Sveppi og leitin að Villa var frumsýnd
og var því fagnað með barnasýningu að
viðstöddum Sveppa.
Vinnusmiðjur leiklistarskóla
Borgarleikhússins
Haldnar voru tvær vinnusmiðjur í tengslum
við hátíð ársins, leiklistarskóli Borgar-
leikhússins var með námskeið í persónu-
sköpun fyrir börn og þá var í fyrsta sinn
haldin 48 stunda gamanmyndakeppni,
þar sem þrjú lið voru skráð til leiks og
unnu gamanmynd á 48 klukkustundum
undir handleiðslu Arnórs Pálma, þar sem
þema ársins var Fiskur. Myndin Ballarhaf
eftir þá Margeir Haraldsson, Andra Fannar
Sóleyjarson og Rúnar Inga Guðmundsson var
kosin fyndnasta mynd 48 stunda keppninnar
af áhorfendum.
Heimildamyndin Kanarí var
fyndnasta mynd hátíðarinnar
Einnig var kosið um fyndnustu mynd
hátíðarinnar og var það heimildamyndin
Kanarí eftir þær Magneu B. Valdimarsdóttur
og Mörtu Sigríði Pétursdóttur sem áhorfendum
þótti fyndnust og skemmtilegust. Myndin
fjallar um þá einstöku íslensku menningu sem
hefur tekið sér bólfestu á Kanarí.
Fyndnasta erlenda stuttmyndin, að mati
áhorfenda, var Robbish Robbers eftir Anders
Teig, myndin fjallar um nokkra bankaræningja
og eina flugu.
Fyndnasta erlenda gamanmyndin í fullri
lengd var Sawah eftir leikstjórann Adolf El
Assal, þar sem íslenska leikkonan Elísabet
Jóhannesdóttir fer með eitt aðalhlutverkið.
Myndin fjallar um Skaarab, plötusnúð frá
Egyptalandi, sem er boðið að spila í Brussel.
Á leiðinni glatar hann vegabréfinu sínu sem
verður til þess að hann er álitinn flóttamaður
og þarf að beita öllum ráðum til að komast á
leiðarenda.
Nokkuð „fjárbragð“ var yfir síðasta vísnaþætti, og verður svo einnig með þennan þátt. Af berri heimsku
og þekkingarleysi þar á ofan, tókst mér
að klúðra upplýsingum um höfund
lokavísu síðasta þáttar. Þar var að sönnu
höfundurinn Páll Guðmundsson frá
Holti. En bærinn Holt er einnig til á Ásum,
og þar var einmitt Páll Guðmundsson,
höfundur vísunnar, búandi. Þökk sé þér,
Guðmundur Arason, fyrir að leiðrétta
mig. Guðmundur Arason er nefnilega
bróðursonur Páls Guðmundssonar. En
aftur að kveðskap tengdum sauðfjárhaldi og
heiðaferðum. Enn er sögusviðið í Austur-
Húnavatnssýslu. Jónas Tryggvason frá
Finnstungu orti til heiðarinnar. Jónas var
búinn ríkum hæfileikum þrátt fyrir að sjón
hans tæki að daprast um tvítugt, og endaði
fullorðinn maður nánast alblindur:
Þú hefur bak við bölva gnótt
búið í draumum mínum,
þó hef ég aðeins eina nótt
átt í faðmi þínum.
Oft þó dável út við strönd
yndi ég gráum leiðum,
átti þráin öll sín lönd
inni á bláum heiðum.
Höskuldur Einarsson frá Vatnshorni eyddi
sínum efstu árum á Mosfelli í Svínadal hjá
syni sínum Einari og konu hans Bryndísi
Júlíusdóttur. Höskuldur orti margar
snotrar heiðarvísur:
Landið mitt er lítið breytt
líti ég upp til fjalla.
Ég kannast við það kalt og heitt,
kosti þess og galla.
Höskuldur og Sigurður Jónsson frá Brún
í Svartárdal voru góðvinir og áttu góðan
félagsskap við öræfaleiðir. Til Sigurðar
orti Höskuldur:
Ef að frysi uppi á heiðum
allt þitt ljóðaspaug
án yfirsöngs og moksturs vígðra presta,
menn kynnu að sjá í kvöldrökkrinu
kjálkalangan draug
sem kvæði vísur bæði um menn og hesta.
Þessi vísa Ásgríms Kristinssonar er hér á
þessum blöðum flokkuð með gangnavísum
úr Austur-Húnavatnssýslu:
Sá ég eina kind í kveld
sem kviðar metur þingin.
Hún ‘hefur opið, að ég held
allan sólarhringinn.
En víkjum nú ögn tali. Þórarinn Þorleifs
son bjó ásamt konu sinni Helgu Kristjáns
dóttur á smábýlinu Vegamótum við
Blönduós. Þórarinn starfaði lengst af sinni
ævi sem verkamaður Kaupfélags Austur-
Húnvetninga á Blönduósi. Þórarinn var
ágætur hagyrðingur og hafa varðveist
margar af vísum hans. Þau hjón bjuggu
með fáeinar kýr og kindur. Þórarinn, eða
„Þóri“ eins og hann var kallaður, þurfti
því að sinna gangnaskilum. Um gæðing
sinn orti Þóri:
Undra grátt mér gaman bjó
gripur fátt sem kunni,
urðum sáttir aftur þó
úti í náttúrunni.
Þóri var í réttum ásamt Jóni í Gröf.
Kalsaveður var á og til að sækja sér yl
fengu þeir sér heitt kaffi bragðbætt:
Ekki má af hólmi hopa,
hér skal kaffi drukkið frekt.
Setjum í það söngvatnsdropa
svo það verði mátulegt.
En fleira getur þó fært yl en blessað
brennivínið. Þórarinn (Þóri) yrkir:
Ég er orðinn fær í flest,
fékk á sárum bætur.
Ævinlega orna best
ungar heimasætur.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
234MÆLT AF
MUNNI FRAM
Heimildamyndin Kanarí sló í gegn
á gamanmyndahátíð á Flateyri
Heimildarmyndin Kanarí eftir þær Magneu B. Valdimarsdóttur og Mörtu Sigríði Pétursdóttur var myndin sem áhorfendum þótti fyndnust og
skemmtilegust. Myndin fjallar um þá einstöku íslensku menningu sem hefur tekið sér bólfestu á Kanarí. Þar sem aðstandendur sigurmyndar
hátíðarinnar Kanarí voru ekki viðstaddir, tóku allir gestir hátíðarinnar, sem hafa farið til Kanarí, við verðlaununum. Myndir / Arjan Wilmsen og Tom Reinders
Edda Björgvins með heiðursverðlaunin ásamt Ársæli Níelssyni og Eyþóri Jóvinssyni,
skipuleggjendum hátíðarinnar.
Nokkrir nemendur leiklistarskóla Borgarleikhússins á Flateyri.
Nemendur Tónlistarskóla leika
undir Buster Keaton-myndina
The boat.
Sigurður Hafberg (t.v.) sem lék
eitt aðalhlutverkið í sigurmynd
48 stunda keppninnar ásamt
aðstandanda myndarinnar.
Gamall bræðslutankur þjónar hlutverki
kvikmyndahúss á gamanmyndahátíðinni.