Bændablaðið - 26.09.2019, Side 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 20198
Mjólkurvinnslan Arna í
Bolungarvík fær afbragðs
góða dóma meðal Íslendinga í
sinni fyrstu mælingu á topplista
fyrirtækja hjá MMR. Lendir Arna
þar í fimmta sæti og segjast 40%
Íslendinga nú nota
vörur frá Örnu að
staðaldri.
Annað árið í röð
trónir Fjarðarkaup
á toppi lista
MMR yfir þau
fyrirtæki sem
Íslendingar mæla
helst með. Í með
mælavísitölu MMR
eru 135 þjónustu og
framleiðslu fyrirtæki.
Staða mjólkurvinnslunnar Örnu
vekur þó athygli en þetta er í fyrsta
sinn sem fyrirtækið er mælt í könnun
MMR. Skýst fyrirsætið beint í
fimmta sæti listans. Það sem meira
er þá segjast 40% Íslendinga nú nota
vörur frá Örnu að staðaldri.
Hálfdán Óskarsson, samlags
stjóri og einn af eigendum
mjólkurvinnslunnar Örnu, segist
afar þakklátur fyrir þessa upphefð.
„Neytendur hafa líka staðið mjög
vel með okkur.“
Hefur vaxið um 30–40% á ári
Arna hefur sérhæft sig í framleiðslu
á laktósafríum mjólkurvörum,
en fyrirtækið hóf framleiðslu í
Bolungarvík í september 2013.
„Það hefur verið mjög hraður
vöxtur í framleiðslunni hjá okkur,
eða um 30–40% á ári. Það getur tekið
í að halda í við slíkan vaxtarhraða.
Við höfum samt náð að leysa öll
vandamál sem eru því samfara og
fyrirtækið hefur skilað hagnaði
síðustu þrjú árin,“ segir Hálfdán.
Með 28 starfsmenn og nægt
húsnæði til stækkunar
– Hvað eruð þið með margt starfsfólk
í dag?
„Núna erum við 28 sem störfum
hjá fyrirtækinu og flest í Bolungar
vík. Markaðsstjórinn, Arna, dóttir
mín, er með aðsetur fyrir sunnan
og svo erum við þar líka með
sölumann.“
Framleiðsla Örnu er í húsnæði sem
áður hýsti rækjuverksmiðju og þar
áður frystihús Einars Guðfinnssonar.
Hálfdán segir frábært að hafa getað
byrjað í húsnæði sem var tómt og
gaf mikla möguleika á að útvíkka
starfsemina. Nú er búið að leggja undir
starfsemina í Bolungarvík um 3.500
fermetra af um 5.000 sem mögulegt
er að nýta undir sama þaki. Auk þess
var gamla mjólkurstöðin
á Ísafirði keypt og þar eru
nú framleiddir laktósafríir
ostar.
„Við byrjuðum á
osta fram leiðsl unni í
vor og hún hefur gengið
fínt. Nú erum við að
framleiða sex tegundir,
mozarella, krydd osta,
rifosta og slíkt. Þá hefur
gengið afskaplega vel
sala á haustjógúrtinni
okkar. Við fengum sjö tonn af
aðalbláberjum sem voru komin í
hús um miðjan ágúst. Við notuð
þau í haustjógúrtina og framleiðum
hana fram í miðjan nóvember.
Þessi jógúrt hefur fengið gríðarlega
góðar viðtökur. Við hugsum þetta
bara sem árstíðabundna vöru og
aðalbláberin okkar eru afskaplega
bragðgóð og mun bragðmeiri en
innflutt ber,“ segir Hálfdán.
Nýta nú mun meiri mjólk en
bændur framleiða á Vestfjörðum
Stefnan var strax tekin á að reyna
að framleiða úr allri mjólk sem
framleidd væri á svæðinu. Á
norðanverðum Vestfjörðum eru nú
framleidd um 1,5 milljónir lítra af
mjólk á ári og um 1 milljón lítra á
sunnanverðum Vestfjörðum.
„Arna mun líklega framleiða
úr um fimm milljónum lítra á
yfirstandandi ári. Við erum því að
taka til okkar alla mjólk sem til
fellur hjá bændum á Vestfjörðum
og fáum það sem upp á vantar í
Búðardal. Framleiðsla Örnu er
því komin langt fram úr því sem
framleitt er í fjórðungnum,“ segir
Hálfdán.
Kaupir alla mjólk
í gegnum Auðhumlu
Arna kaupir alla mjólk til fram
leiðsl unnar af Auðhumlu sem
kaupir hana beint af bændum. MS
sér hins vegar um að sækja mjólkina
til bænda. Þeim hluta mjólkurinnar
sem kemur frá bændum á norðan
verðum Vestfjörðum, þ.e. í Hattar
dal, Dýrafirði, Önundar firði og
Súgandafirði, er ekið beint til
vinnslu í Bolungarvík. Við það
sparast mikill akstur sem annars
hefði verið til Búðardals.
Mjólk sem bændur framleiða
á sunnanverðum Vestfjörðum,
um einni milljón lítrum, er enn
sem komið er ekið til Búðardals
og þaðan til Bolungarvíkur. Með
tilkomu Dýrafjarðarganga, sem taka
á í gagnið á næsta ári, skapast hins
vegar möguleiki á að flytja mjólkina
beint til Bolungarvíkur.
„Ég myndi halda að það verði
mun hagkvæmara að flytja mjólkina
beint af Barðaströndinni til okkar
við tilkoma jarðganganna,“ segir
Hálfdán.
„Annars hefur Auðhumla staðið
sig ágætlega í því að skaffa þá mjólk
sem við höfum þurft. Fyrir mjólkina
borgum við 11% hærra verð en
grundvallarverðið er til bænda. Inni
í því er flutningurinn á mjólkinni,
sýnataka og annað.“
Í dag er mjólk á norðanverðum
Vestfjörðum framleidd á bæjunum
Gemlufalli í Dýrafirði, Hóli og
Vöðlum í Önundarfirði, Botni í
Súgandafirði og í Hattardal við
Álftafjörð. Þessir bæir framleiða
um 1,5 milljónir lítra í ár. Bærinn
Ós í Bolungarvík hætti framleiðslu
á mjólk á síðastliðnu vori.
Fjarðarkaup og Arna
toppa matvælageirann
Í fréttatilkynningu frá MMR segir,
líkt og áður sagði, að Fjarðarkaup
sé efst á lista íslenskra fyrirtækja
í Meðmælakönnun MMR annað
árið í röð.
„Það er því greinilegt að verslun
in hafnfirska kann að höfða til
viðskiptavina sinna en fyrirtækið
hefur hvað eftir annað skákað
stærri verslunarkeðjum og hefur
verið á meðal 10 efstu fyrirtækja
í meðmælavísitölunni frá því að
mælingar hófust árið 2014.
Þá vekur sérstaka athygli að Arna
rýkur upp lista ársins og hafnar
í fimmta sæti en 40% svarenda
könnunarinnar kváðust reglulega
versla vörur fyrirtækisins, hærra
hlutfall viðskiptavina en hjá nokkru
öðru fyrirtæki á lista þeirra fimm
efstu. Það er því nokkuð ljóst að
landsmenn hafa heldur betur tekið
vel við tilraunum þessarar ungu og
efnilegu mjólkur vinnslu til að hrista
upp í mjólkurvöru markaðn um.“
Meðmælavísitalan byggir á Net
Promoter Score aðferða fræðinni
en meðmæla vísitalan byggir, líkt
og nafnið bendir til, á mælingum
á því hversu líklegir einstaklingar
eru til að mæla með
(eða hallmæla) fyrir
tækjum sem þau hafa
átt viðskipti við. Niður
stöður mæling anna gefa
því góða tilfinningu
fyrir stöðu fyrirtækja á
íslenskum markaði, enda
hafa rannsóknir sýnt að
meðmæli eru stór áhrifa
þáttur í ákvörðunar töku
neytenda um hvort
stofna eigi til viðskipta
sambands við fyrirtæki.
Smærri fyrirtæki skáka risunum
Þá segir að fleiri smærri fyrirtæki
skáki risunum í atvinnugreinum
sínum og má þar nefna nýliða
Hreyfingar og Reebok Fitness sem
koma með látum inn á lista efstu
fyrirtækja meðmælavísitölunnar.
„Það er greinilegt að líkamsrækt
á stóran sess í hjörtum landsmanna
en Hreyfing fylgir fast á hæla
Fjarðarkaups í öðru sætinu og
Reebok Fitness vermir það níunda.
Eldsneytissala Costco skorar
hærra en verslun fyrirtækisins
Einnig er áhugavert að sjá breyti
leika í vinsældum eldsneytis
og smásöluþjónustu Costco en
alþjóðlegi verslunarrisinn var
þetta árið bæði mældur í atvinnu
greinum matvöru verslana og
olíu félaga eftir að hafa einungis
verið fyrir í flokki matvöru
verslana síðustu tvö ár. Nokkurn
mun er að finna á velgengni
fyrirtækisins í þessum tveimur
flokkum en eldsneytisþjónusta
Costco kemur sér fyrir í þriðja
sæti meðmælavísitölunnar í ár,
allnokkru ofar en smávöruverslun
Costco sem fellur af lista tíu
efstu fyrirtækja,“ segir í frétta
tilkynningu MMR. /HKr.
Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík í fimmta sæti á topplista MMR yfir þau fyrirtæki sem Íslendingar mæla helst með:
Um 40% Íslendinga segjast nota vörur Örnu að staðaldri
– Erum afar þakklát, segir framkvæmdastjórinn en fyrirtækið hefur vaxið um 30–40% á ári
Hálfdán Óskarsson, mjólkurfræðingur og samlagsstjóri Örnu, segir
neytendur hafa staðið mjög vel með fyrirtækinu. Myndir / HKr.
FRÉTTIR
Skoðaðu úrvalið á: www.hekla.is/mitsubishisalur
L200 4x4 Intense, 33” breyttur
Verðlistaverð 6.070.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri | Bílasala Selfoss | Bílás Akranesi | BVA Egilsstöðum
Veiðitilboð Mitsubishi
Tilboðsverð 5.370.000 kr.
Sjávarútvegssýning í Laugardalshöll
Sjávarútvegs sýning
in Iceland Fishing
Expo 2019 er haldin
í Laugardals höllinni
í Reykjavík þessa
dagana. Sýningin er
ennþá stærri en sú
síðasta, sem haldin
var árið 2016.
Sýnendur eru í
þremur sölum hallar
innar og einnig á
útisvæði. Alls taka 120
fyrirtæki þátt, bæði
innlend og erlend.
Þau sýna m.a. tækja
búnað og kynna ýmsa
þjónustu sem tengist
sjávarútveginum.
Að sögn sýningar
haldara eru íslensk tækni
fyrirtæki í fremstu röð á
sýningunni, sem hefur
vakið athygli víða um
heim.
Von er á fjölda erlendra
gesta. Sýningin verður
opin á fimmtudag og
föstu dag frá kl. 10.00 til
18.00 báða dagana.