Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201914
HLUNNINDI&VEIÐI
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
• Allar almennar vélaviðgerðir
• Almenn renni- og fræsivinna
• Rennum og slípum sveifarása
• Málmsprautum slitfleti, t.d.
á tjakkstöngum
• Gerum við loftkælingu bíla
• Almenn suðuvinna
• Plönum hedd
• Tjakkaviðgerðir
alhliða
vélaverkstæði
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Hann er á í Norðurá í Borgarfirði á fyrsta degi hjá Guðrúnu Sigurjónsdóttur, formanni félagsins, með fyrsta
flugulaxinn sinn. Mynd / María Gunnarsdóttir.
Tíu til fimmtán þúsund
færri laxar en í fyrra
Veiðisumarið er að verða búið
í laxinum, en mun minna hefur
veiðst af honum en í fyrra. Það
er samt hellingur eftir í sjó birt
ingum og hann hefur gengið vel
fyrir austan, Tungufljótið og
Tungulækur að gefa vel.
„Við vorum í Geirlandsá um
daginn og fengum 4 laxa og einn
sjóbirting, birtingurinn var bara alls
ekki mættur en hann kemur,“ sagði
veiðimaður sem var á veiðislóðum
fyrir austan og veiddi mest lax, það
sem hefur vantað í laxveiðiárnar í
sumar víða um land.
Við erum að tala um líka 10 til
15 þúsund færri laxa í laxveiðiánum
þetta sumarið og það munar um
minna í veiðinni. Kíkjum aðeins á
veiðilistann, í efsta sæti er Eystri-
Rangá, síðan kemur Ytri-Rangá og
Sela í Vopnafirði, svo Miðfjarðará.
„Það var gaman í Miðfjarðará
um daginn og áin er skemmtileg,“
sagði Hafþór Óskarsson, sem var
á árbökkunum undir það síðasta í
ánni. Svo kemur Þverá í Borgarfirði,
Urriðafoss í Þjórsá, svo Laxá á
Ásum og síðan Hofsá, svona mætti
lengi telja.
Góðar laxveiðiár eru ekki ofar-
lega eins og Norðurá í Borgarfirði
og Laxá í Kjós en það kemur
sumar eftir þetta sumar. Bara
verst að enginn veit hvernig næsta
sumar verður, það er heila málið.
Við skulum sjá stöðuna þegar
nær dregur. Allt getur gerst á
árbökkunum en þetta þarf að batna
verulega.
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Laxá í Leirársveit lokað snemma
„StóraLaxá er hrikalega skemmti
leg á sem við fengum að kynnast
8.–10. september þegar við veiddum
ána í fallandi vatni,“ sagði Dagur
Árni Guðmunds son sem var að
koma úr StóruLaxá í Hreppum sem
hefur heillað margan veiðimanninn.
Fegurðin við ána er stórkostleg
og hver hylurinn á fætur öðrum sem
hefur eitthvað að geyma á góðum
degi.
„Fyrstu vaktina komum við að
ánni eftir miklar rigningar, en daginn
áður hafði áin hækkað frá 5 rúm-
metrum í yfir 18. Lítið gerðist fyrri
partinn af vaktinni, þar sem það var
smá litur á ánni eftir rigningar. En um
sex leytið byrjaði allt að gerast og við
settum í nokkra laxa, og enduðum
með 5 stykki. Sá stærsti var 87
sentímetrar. Næsta morgun var sól og
áin búin að lækka töluvert. Þar með
fengum við laxa á alls konar aðferðir,
frá „hitch“ yfir í litlar silungapúpur.
Lax var á flestum stöðum, og fiskur
að ganga á fullu úr Hvítá.
Fyrir utan laxinn var töluvert af
fallegri bleikju úti um allt, mest frá
Bergsnös og langt fyrir neðan brú,
og eitthvað var af vænum sjóbirting
á svæðinu. Síðasta kvöldið rigndi
mikið og því hækkaði áin mikið
um nóttina, sem skilaði enn meiri
göngum úr Hvítá inn í ána, og við
fengum sex laxa síðasta morguninn
í grenjandi rigningu og roki. Stóra-
Laxá er klárlega með skemmtilegri
og fallegri laxveiðiám sem ég hef
veitt, sérstaklega þegar maður er
heppin með vatnsmagnið,“ sagði
Dagur Árni enn fremur.
Það er minni veiði í Stóru-Laxá en
í fyrra og vantar svolítið upp á það,
en áin gaf vel þegar fór að rigna vel.
Sjóbirtingsveiðin er að byrja á
fullu þessa dagana og stendur
fram í október. Veiðin lofar
góðu og vel hefur veiðst á
nokkrum stöðum, eins og fyrir
austan Kirkjubæjar klaustur á
sjóbirtings slóðum þessa dagana.
Og Í Leirá í Leirársveit tók veiðin
kipp þegar fór að rigna.
„Já, við fengum fína veiði, flotta
fiska,“ sagði Stefán Sigurðsson, sem
var á veiðislóðum með fjölskyldunni
og áin var í fínu vatni og það rigndi
meira.
„Þetta voru flott skilyrði og
fiskur víða um ána, sjóbirtingur
og lax,“ sagði Stefán.
Hann kastaði flugunni og
fiskurinn stökk, skömmu seinna
negldi hann sig á fluguna og það
var tignarleg sjón. Honum var
landað eftir snarpa baráttu og fékk
frelsið aftur, feginn því, og og lét
sig hverfa út í straum árinnar. – Við
létum okkur hverfa líka.
Guðlaugur P. Frímannsson með laxinn úr Steinholtskvörn fyrr í sumar.
Dagur Árni Guðmundsson með flottan lax úr Stóru-Laxá.
Fengum sex laxa morguninn eftir
„Ég var undir það síðasta í
Laxá í Leirársveit og veiddi
skemmti legan fisk í Steinholts
kvörn og var fiskurinn 85
sentímetrar,“ sagði Guðlaugur
P. Frímannsson, veiðimaður inn
snjalli, og bætti við: „Laxinn tók
„sunray“ og þetta var gaman.“
Það vakti athygli að Laxá í
Leirársveit var lokuð fyrr en
heimilt var að hafa opið þetta
sumarið og það vegna þess að
minna var af fiski en oft áður í
ánni. Þetta var líka skynsamleg
ákvörðun með tilliti til aðstæðna
í ánni en áin þarf að vera með
eitthvað af fiski til að hrygna þegar
tilhugalífið byrjar fyrir alvöru í
henni.
Þetta hefði kannski átt að gera
í fleiri laxveiðiám og það fyrr í
sumar, lítið af fiski í sumum ánum
og það á eftir að hafa sitt að segja
þegar fram líða stundir.
„Jú, maður er aðeins búinn að
veiða í sumar og fá nokkra fiska,
ég fer oft með soninn með mér
að veiða,“ sagði Anthony Evans
Berry er við hittum hann við
veiðar í Minnivallarlæk. Kastaði
hann flugunni fyrir fiska í
Stöðvarhylnum þar sem fiskurinn
vakti, en var tregur að taka flugur
veiðimanna.
„Fiskurinn er tregur en þetta er
bara gaman, mér finnst skemmtilegt
að veiða hérna. Aldrei veitt hérna
áður,“ sagði Anthony og hélt áfram
að kasta flugunni fimlega fyrir
fiskana í læknum. Við kvöddum
hann og í ljósaskiptunum fengu
hann og veiðifélaginn fiskinn til að
taka hjá sér.
Silungsveiðin hefur gengið vel í
sumar og margir fengið góða veiði,
Arnarvatnsheiði, Skagaheiðin og
Veiðivötn sem dæmi.
„Við vorum á Skagaheiði fyrr í
sumar, oft komið þangað áður og
veitt vel, alltaf einhver veiði þar
efra,“ sagði Pétur Pétursson um
Skagaheiðina.
Alltaf gaman að veiða
Gekk vel í Leiránni
Stefán Sigurðsson við Leirá í Leirársveit. Mynd / Harpa.
Anthony Evans Berry með flottan
fisk úr Minnivallarlæk.