Bændablaðið - 26.09.2019, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 20192
FRÉTTIR
Afurðaverð sláturleyfishafa 2019 fyrir komandi sauðfjárslátrun:
Landsmeðaltalshækkun er nú rúm níu prósent
– enn vantar verðskrá frá Fjallalambi
Sex af sjö sláturleyfishöfum
hafa birt verðskrár sínar fyrir
komandi sauðfjársláturtíð.
Ein ungis Fjallalamb á
eftir að birta upplýsingar
um afurðaverð til bænda.
Samkvæmt upplýsingum af vef
Landssamtaka sauðfjárbænda
greiðir Sláturfélag Suðurlands
áfram hæsta meðalverðið fyrir
lambið, eða tæpar 455 krónur á
kílóið.
Mesta hækkunin tæp 15 prósent
Næsthæsta meðalverðið fyrir lambið
greiða Kaupfélag Skagfirðinga og
SKVH, eða tæpar 452 krónur á kílóið.
Mesta hækkunin nú í ár á
meðalverði fyrir lamb, miðað við
verð með uppbótum síðasta árs, er
hjá Norðlenska sem hækkar verð um
tæp 15 prósent á kílóið.
Sláturtíð hefst hjá Norðlenska
29. ágúst. Forslátrun hófst 9. ágúst
hjá KS og SKVH og hefðbundin
sláturtíð byrjar 4. september og einnig
hjá Sláturfélagi Suðurlands. Slátrun
hefst 3. september hjá Sláturfélagi
Vopnfirðinga, hjá SAH verður
byrjað að slátra 6. september og 12.
september hjá Fjallalambi. /smh
23. eða 30. MAÍ 2020 - 5 DAGAR
Á MANN M.V. TVO FULLORÐNA
VERÐ FRÁ 79.900 KR.
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
Netverslun sækir í sig veðrið:
Selja matvörur fyrir hundruð milljóna á netinu
Netfyrirtækið Heimkaup hefur
hafið sölu á matvörum og heim
sendingu á vörunum í gegn um
netið og fer salan vel af stað, að
sögn Guðmundar Magnasonar
hjá Heimkaupum. Áætlað er að
sala fyrirtækisins á matvörum
fyrsta árið muni velta hátt í 400
milljónum króna.
„Við byrjuðum að selja matvöru
fyrir rétt rúmum átta mánuðum.
Hlutfall íslenskrar matvöru er mjög
hátt hjá okkur og spilar ferskvaran
stóran þátt þar. Yfir 90 prósent af
pöntunum hjá okkur eru heimsendar.
Þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu
geta fengið fría heimsendingu alla
daga vikunnar frá morgni til kvölds
og þurfa bara að panta 60 mínútum
fyrir þann afhendingarglugga sem
þeir velja. Þar að auki höfum við
afhent samdægurs (að kvöldi til)
á Reykjanesinu og Suðurlandi en
annars staðar er afhent daginn eftir.
Eins og gefur að skilja getum við
ekki afhent frosna eða kælda vöru
nema að hún komist til viðskiptavina
á innan við nokkrum tímum og þá
með kælipoka í pakkanum. En þetta
hefur farið vel af stað og miðað
við ganginn sem við sjáum núna í
sölunni gerum við ráð fyrir að fyrsta
árið í sölu á matvöru fari í hátt í
400 milljóna króna sölu,“ útskýrir
Guðmundur Magnason. /ehg
Kjöt og aðrar matvörur eru á boðstólum á netinu. Ef pantað er fyrir ákveðna
upphæð er frí heimsending hvert á land sem er. Íslandspóstur sér um
dreifingu á landsbyggðinni. Skjáskot / Heimkaup.is
Slátrun Matís dregur dilk á eftir sér:
Sveinn Margeirsson í skýrslutöku hjá lögreglunni
– tæpu ári eftir að hann stóð fyrir örslátrun í Birkihlíð og afurðasölu á Hofsósi
Sveinn Margeirsson, fyrrverandi
forstjóri Matís, var á dögunum
kallaður á skrifstofur lögreglunnar
á Blönduósi til skýrslutöku vegna
mála frá því í október í fyrra.
Þá stýrði hann nýrri aðferð við
heimaslátrun á lambi (svokallaðri
örslátrun) á bænum Birkihlíð í
Skagafirði – og seldi afurðir þess
síðan í kjölfarið á bændamarkaði á
Hofsósi. Í nóvember fór Mat væla
stofnun fram á opinbera rannsókn
á málinu vegna sölunnar á þessum
afurðum.
„Já, ég var í skýrslutöku hjá
lögreglunni þar sem ég var spurður út
í framkvæmdina á þessari tilraun fyrir
tæpu ári síðan. Ég var auðvitað ábyrgur
fyrir þessu en ég taldi mig bara vera
að sinna hlutverki félagsins, sem er að
auka verðmæti landbúnaðarafurða og
bæta matvælaöryggi,“ segir Sveinn.
Meint brot mun felast í því að hann
hafi tekið sauðfé til slátrunar utan
löggilts sláturhúss og sett kjötafurðir
af því á markað án þess að þær hafi
verið heilbrigðisskoðaðar í samræmi
við lög.
Fyrirkomulag heimaslátrunar
víða vandamál
Sveinn segir að flestir viti að
heimaslátrun tíðkist mjög víða.
„Vandamálið við þá slátrun alla alla
er m.a. meðhöndlunin á lífrænum
úrgangi. Á meðan heimaslátrun
grasserar undir yfirborðinu er verið
að skapa slík vandamál en ekki leysa.
Tillögur okkar hljóðuðu á þá lund að
bændur gætu komið sér upp aðstöðu
til að slátra sjálfir og stunda bein
viðskipti með sínar afurðir. Í þeim
voru verklagsstaðlar sem gera ráð
fyrir eðlilegu innra eftirliti og þeim
fylgdum við í hvívetna í tilrauninni
í Birkihlíð. Til dæmis voru öll sýni
örverumæld og reyndust langt innan
þeirra marka sem miðað er við - og
þegar það lá fyrir ákvað ég að setja
kjötið á markað. Þá tók við næsti hluti
tilraunarinnar; að athuga hvort áhugi
væri á slíkum afurðum á markaði og
það kom á daginn að það reyndist svo
sannarlega vera.
Ég hef farið víða á undanförnum
misserum og skoðað svipað fyrir—
komulag í ýmsum löndum þar sem
þetta virkar vel, til dæmis í Sviss.
Þar er litið á þetta sem eðlilega
verðmætasköpun til sveita. Með
slíku fyrirkomulagi gætu bændur
líka stýrt betur sláturtíma sinna gripa
og haft margvíslegt hagræði af því
að auki.“
Rangar áherslur
„Mér finnst skjóta skökku við að
eltast við svona mál í stað þess að
einbeita sér að því að búa bændum
betra umhverfi til þess að skapa sér
verðmæti úr sínum afurðum, ekki
síst vegna þess hvernig lögin hljóma
sem ég er kærður fyrir brot á [lög
um slátrun og sláturafurðir], þar
sem segir að tilgangur laganna sé
að tryggja svo sem kostur sé gæði,
heilnæmi og hollustu sláturafurða,“
segir Sveinn.
„Þarna virðist gleymast stundum
þáttur gæðanna í þessu öllu saman.
Einn aðaltilgangurinn okkar í þessari
tilraun var til að mynda að hámarka
gæði kjötsins og meyrni þess.
Sveinn segir að í stóra
samhenginu skipti það hann ekki
aðalmáli hverjar málalyktir verða
í þessu, heldur hvað gerist varðandi
afkomumöguleika sauðfjárbænda á
næstu misserum. „Þetta snýst dálítið
um pólitískan vilja til að breyta
regluverkinu þannig að bændum séu
gefin eðlileg tækifæri til að stunda
atvinnurekstur eins og þeir vilja gera
það.“ /smh
Verð 2018 með uppbótum
Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið Samtals
SS 430 kr. 120 kr. 415 kr.
NL 376 kr. 111 kr. 364 kr.
SAH 395 kr. 115 kr. 382 kr.
KS og SKVH 419 kr. 118 kr. 406 kr.
Fjallalamb 382 kr. 122 kr. 371 kr.
SV 397 kr. 117 kr. 383 kr.
Landsmeðaltal 401 kr. 116 kr. 388 kr.
Verð 2019
Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið Samtals
SS 455 kr. 122 kr. 439 kr.
NL 432 kr. 111 kr. 418 kr.
SAH 435 kr. 115 kr. 420 kr.
KS og SKVH 452 kr. 139 kr. 438 kr.
SV 442 kr. 117 kr. 427 kr.
Landsmeðaltal 439 kr. 125 kr. 424 kr.
Breytingar frá 2018
Sláturleyfishafi Lömb Fullorðið Samtals
SS 5,8% 1,5% 5,8%
NL 14,9% 0,00% 14,6%
SAH 10,2% 0,00% 10%
KS og SKVH 7,9% 18,5% 8,1%
SV 11,2% 0,00% 11,3%
Landsmeðaltal 9,4% 7,3% 9,3%
Verð í krónum á kíló. Heimildir fengnar af vef Landssamtaka sauðfjárbænda (LS), saudfe.is. Útreikningarnir byggja á landsmeðaltali í vikum 34-45. Vægi einstakra vikna í verðinu byggir á sláturmagni á landinu
öllu og sömuleiðis kjötmati á landinu öllu eftir einstökum vikum haustið 2018. Vægi afurðastöðva í landsmeðaltali er eftir hlutdeild þeirra í slátrun á tímabilinu í heild. Raunverð sem einstakar afurðastöðvar
greiða er síðan breytilegt, enda er niðurstaða kjötmats hjá hverri fyrir sig ekki sú sama og landsmeðaltalið, né heldur sláturmagn í einstökum vikum. Af sömu ástæðum er meðalverð sem einstakir bændur fá
líka breytilegt. Allir bændur eru hvattir til að reikna út afurðaverð á forsendum þeirra bús, en LS telur útreikninga gefa eins góða mynd og hægt er af meðalverði útfrá forsendum sauðfjárframleiðslunnar í heild.
Greiðslufyrirkomulag sláturleyfishafa í sláturtíðinni
Sláturfélag Suðurlands (SS) Innlegg verður staðgreitt föstudag eftir innleggsviku.
Norðlenska ehf. (NL):
Greitt verður fyrir innlegg í ágúst og september hinn 9. október og
október innlegg hinn 8. nóvember.
SAH Afurðir ehf.: Innlegg verður greitt á föstudegi eftir sláturviku.
Kjötafurðastöð KS SF.: Greitt er fyrir innlegg 1-2 vikum eftir slátrun.
Sláturhús KVH ehf.: Greitt er fyrir innlegg 1-2 vikum eftir slátrun.
Sláturfélag Vopnfirðinga HF.:
Fyrir viku 36 er greitt 26. sept, viku 37 er greitt 3. okt og vikur 38
og 39 er greitt 9. okt. Greitt verður fyrir október 10. nóv og 25. nóv.
Slátrun hafin á
Hvammstanga
„Það gekk allt mjög vel, en ég
hefði gjarnan viljað sjá meiri
viðbrögð,“ segir Davíð Gestsson,
framleiðslustjóri hjá Sláturhúsi
Kaupfélags VesturHúnvetninga,
SKVH.
Þar á bæ hófst sumarslátrun á
föstudag í liðinni viku og var alls
slátrað 427 dilkum þann daginn.
Meðalþyngd var 15,1 kg sem er að
sögn Davíðs ágætt á þessum tíma.
Næsta slátrun hjá SKVH er í dag,
15. ágúst, og er álagsgreiðsla þá
22,5%.
Markaðurinn kallar
á ákveðnar kjötvörur
Í næstu og þarnæstu viku eru
einnig fyrirhugaðir þrír sláturdagar
í hvorri viku og fara álagsgreiðslur
stiglækkandi eftir því sem á líður,
verður 15% í næstu viku og 10% í
þarnæstu. Hefðbundin sláturtíð hefst
hjá SKVH í byrjun september og
er að sögn Davíðs gert ráð fyrir að
um 100 þúsund fjár verði slátrað hjá
félaginu í komandi sláturtíð. Það er
álíka margt og var í fyrra.
Davíð segir að ákveðið hafi verið
að bjóða upp á sumarslátrun nú í
ágúst þar sem markaður hefði kallað
á ákveðnar kjötvörur. Bændur hafi
brugðist við og ætla að koma með
fé til slátrunar nú síðsumars, en
hann kveðst vissulega hafa viljað
sjá hressilegri viðbrögð en raun ber
vitni. „Við getum alveg bætt við
okkur,“ segir hann. /MÞÞ
Norðlenskur hrútur. Mynd / MÞÞ
Sveitasæla í
Skagafirði
Landbúnaðarsýningin og bænda-
hátíðin „Sveitasæla í Skagafirði“
verður haldin um næstu helgi
í Reiðhöllinni Svaðastöðum á
Sauðárkróki. Fjöldi atriða er á
dagskrá og eitthvað fyrir alla
fjölskylduna. Sýningin verður opnuð
klukkan 10 laugardaginn 17. ágúst.
Þar verður m.a. handverksmarkaður,
vélasýning, leiktæki fyrir börnin og
veitingasala. Á sunnudeginum verða
opin bú í sveitinni og söfn opna dyr
sínar fyrir gestum.
Sveinn Margeirsson, fyrrverandi
forstjóri Matís.