Bændablaðið - 26.09.2019, Qupperneq 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 23
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Velosit SL 503
Iðnaðarflot
Desjamýri 8 Mosfellsbæ
s. 4204010 - www.murefni.is
Eru steyptu gólfin slitin ? Frábær lausn á gömul
sem ný gólf. Notkunarstaðir gripahús,
vélaskemmur , stéttar og fl. inni sem úti.
Þykktarsvið 3 - 38 mm. Styrkur 60 mpa
Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2019
verði til verkefna samkvæmt b) lið 7. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð en
þar segir:
„Styrkir til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda
rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga“.
Til greina kemur meðal annars: Uppsetning varmadæla, uppsetning eða
endurbætur hitastýringar- kerfa og önnur verkefni sem leiða til minni
raforkunotkunar við hitun.
Um er að ræða fjárfestingarstyrki, sem hæst geta numið 50% af áætluðum kostnaði
við einstök verkefni, þó að hámarki 5 m.kr.
Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til:
• Að verk- og kostnaðaráætlun sé vönduð og ítarleg.
• Að raunsætt mat sé lagt á áætlaðan raforkusparnað.
• Hlutfalls orkusparnaðar miðað við kostnað.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2019
Skrifleg staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi síðar
en 20. nóvember 2019
Umsóknum skal skila rafrænt af vef Orkustofnunar www.os.is undir Orkusjóður
Nánari upplýsingar á www.os.is og hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg,
603 Akureyri. Símar 569 6083 – 894 4280 – Netfang jbj@os.is
ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN
ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir sérstaka styrki 2019
Bændablaðið Auglýsingar 56-30-300
Tjörneshreppur:
Segir sig úr Sambandi íslenskra
sveitarfélaga og Eyþingi
„Þetta er fyrst og fremst tákn
ræn mótmæli hjá okkur og við
gerum ekkert frekar ráð fyrir að
fleiri fylgi okkar fordæmi,“ segir
Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson,
oddviti Tjörneshrepps, sem á
dögunum sagði sig úr Sambandi
íslenskra sveitarfélaga og Eyþingi,
samtökum sveitar félaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslu.
Með úrsögninni vilji hreppurinn
mótmæla þingsályktun sem kveður
á um að 1000 íbúar skuli að lágmarki
vera í hverju sveitarfélagi en hún
var samþykkt á aukalandsþingi
Sambands íslenskra sveitarfélaga
nýverið.
Kristaltært að þetta er stefnan
Aðalsteinn segir að gert sé ráð fyrir að
við næstu sveitarstjórnarkosningar
árið 2022 verði gengið út frá því
að ekki verði færri en 250 íbúar í
hverju sveitarfélagi. Í Tjörneshreppi
eru nú um 55 íbúar. „Þetta snýst ekki
svo mikið um Tjörneshrepp, miðað
við þróunina síðustu áratugina erum
við deyjandi sveitarfélag, við gerum
okkur grein fyrir því að fyrr eða
síðar þurfum við að sameinast
öðum nema miklar breytingar eigi
sér stað í íbúðaþróun sem eru ekki
í kortunum. Engu að síður hefðum
við kosið að vera ein áfram þangað
til við sjálf hefðum ákveðið annað.
Við viljum með þessu mótmæla
þessari aðferðafræði sem við teljum
ranga. Það er síður en svo að hægt
sé að sýna fram á að sameining
muni setja öll samfélög í betri
stöðu en nú er. Það er verið að
dæma ákveðin sveitarfélög til þess
að verða jaðarsvæði í sínu samfélagi
sem er aldrei spennandi kostur. Ég
einhvern veginn trúði því að þessi
tilskipun næði ekki fram að ganga
núna en eftir aukalandsþingið um
daginn er það orðið kristaltært að
þetta er stefnan og ekki aftur snúið
með það. Satt best að segja hélt ég
alltaf að sveitarfélögin yrðu ekki
þvinguð til sameiningar, ég hélt
í þá von að svo yrði ekki,“ segir
Aðalsteinn.
Skuldlaust sveitarfélaga
með góða inneign í banka
Hann segir að sitt sjónarmið sé að
hreppurinn hafi ekki neitt að gera
með að vera innan samtaka sem
vilji ekki að það sé til. Samband
íslenskra sveitarfélaga eigi að vera
samband allra sveitarfélaga en sé
það augljóslega ekki lengur. Hvað
Eyþing varðar hafi hreppurinn lagt
fram sitt framlag til starfseminnar,
en þurfi nú að horfa í hverja krónu
og betra sé að verja þeim fjármunum
sem það hafi úr að spila í annað, nú
þegar ljóst er að hreppurinn verði
ekki til nema í rúm tvö ár í viðbót
Tjörneshreppur er að hans sögn
í góðum málum fjárhagslega, er
skuldlaust sveitarfélag með góða
inneign á bankareikningi. „Það eru
ekki mörg sveitarfélög á landinu í þeirri
stöðu,“ segir Aðalsteinn. Hreppurinn
á í ágætu samstarfi við Norðurþing
og önnur nágrannasveitarfélög m.a.
í skóla-, öldrunar- og félagsmálum.
/MÞÞ
Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson.
Frá Tjörnesi. Mynd / HKr.