Bændablaðið - 26.09.2019, Síða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201924
Aðlögunarstyrkir að lífrænt vottaðri ræktun:
Hefði ekki verið mögulegt fyrir mig að byrja
vottunarferlið strax nema vegna styrksins
– segir Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, sem keypti eyðijörðina Breiðargerði í Skagafirði undir ræktun sína
Í ágúst samþykkti Matvæla
stofnun sex umsóknir af sjö um
aðlögunarstyrk að lífrænum
framleiðslu háttum. Elínborg
Erla Ásgeirs dóttir er ein þeirra
sem fá úthlutað þetta árið, en hún
keypti fyrir fáeinum árum eyði
jörðina Breiðargerði í Skaga firði,
þar sem hún hefur hreiðrað um
sig með sína lífrænu úti ræktun
á grænmeti.
Hún bætist þar væntanlega í hóp
fárra garðyrkjubænda sem stunda
lífræna útiræktun og framleiða
markvisst fyrir almennan markað.
Aðlögunartímabilið að lífrænni
vottun fyrir einært grænmeti eru
tvö ár. Lítil nýliðun hefur verið á
Íslandi á undanförnum misserum
hvað framleiðendur snertir á lífrænt
vottuðu grænmeti, þrátt fyrir að
markaðurinn fyrir slíkar vörur virðist
hafa stækkað nokkuð ört.
Markmið aðlögunarstyrkjanna er
einmitt að aðstoða framleiðendur að
uppfylla skilyrði lífrænt vottaðrar
framleiðslu og auka framboð
lífrænna vara á markaði, en þetta er
í þriðja sinn sem slíkir styrkir eru
veittir. Fyrir tveimur árum bárust
Matvælastofnun einungis tvær
umsóknir en í fyrra sóttu fimm fram
leið endur um styrki.
Alltaf haft áhuga á garðyrkju
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir er
alin upp í sveit, á bæ skammt frá
Breiðar gerði þar sem stunduð var
sauðfjárrækt.
„Ég hafði alltaf takmarkaðan
áhuga á henni,“ segir Elínborg.
„En hef aftur á móti alltaf haft
áhuga á allri ræktun og gróðri
almennt – og vann fyrst í garðyrkju
stöð þegar ég var 16 ára gömul.
Líklega kviknaði áhugi minn á
lífrænni ræktun þó fyrst og fremst
þegar ég vann við gulrótaupptöku
hjá Akurseli ehf. í Öxarfirði fyrir
nokkrum árum síðan. Þá sannfærðist
ég allavega um að lífræn ræktun
væri möguleg á Íslandi í útiræktun
á grænmeti. Þegar ég svo hélt áfram
að kynna mér hlutina, lesa mér til og
afla mér vitneskju um hugmyndir
lífrænnar framleiðslu, heillaðist ég
og hef í dag þá skoðun að það sé besta
leiðin til þess að framleiða matvæli.
Mikil áhersla er lögð á frjósemi
jarðvegs, að ganga ekki á landsins
gæði, nota ekki eiturefni og almennt
að vinna allt í sátt við náttúruna,“ segir
Elínborg.
Greip tækifærið þegar
Breiðargerði var auglýst
Elínborg hafði velt fyrir sér mögu
leikanum á eigin garðyrkju fram
leiðslu í nokkurn tíma þegar hún sá
jörðina Breiðargerði auglýsta til sölu.
„Þar var þá hvorki föst búseta
né búskapur og enginn húsakostur
á jörðinni utan eitt lítið íbúðarhús.
Hún er auðvitað stutt frá heimili
foreldra minna og því sá ég
möguleikann í því að geta samnýtt
tækja búnað með þeim. Fyrir vikið
sá ég fram á að fjárfestingin gæti
verið viðráðanleg, sló til og keypti
jörðina. Kaupin gengu í gegn í
apríl 2015. Ég flutti þangað og
bý þar ein. Ég hef síðan smám
saman verið að koma mér upp
nauðsynlegri aðstöðu og búnaði
til þess að framleiða og pakka
grænmeti á staðnum. Þar er ég
fyrst og fremst að hugsa um
útiræktun og jafnvel ræktun í
óupphituðum gróðurhúsum.
Frá 2016 hef ég svo ræktað
grænmeti í litlu magni og selt í
verslunum í nágrenninu undir
merkjum Breiðargerðis. Vinsælastar
eru líklega gulræturnar sem ég
rækta í alls konar litum. Ég er
ákveðin í að halda áfram að rækta
þær, en er ekki fyllilega búin að
ákveða hvaða annað grænmeti ég
verð með í árvissri ræktun. Ég er
einmitt að taka upp gulrætur þessa
dagana og þrátt fyrir mikla þurrka
í byrjun ræktunartímabilsins þá líta
þær ágætlega út, enda fengið bæði
vætu og yl seinnipart sumars og í
haust.“
Nemur lífræna ræktun
í fjarnámi við LbhÍ
„Ég er í námi í lífrænni ræktun
við garðyrkjudeild Landbúnaðar
háskóla Íslands að Reykjum í
Ölfusi. Námið er tvö ár í dag
skóla, en ég tek það á fjórum árum
í fjarnámi með vinnu. Garðyrkju
skólinn er magnaður staður. Þar
er mikill mann auður og haf sjór
fróðleiks fyrir ræktendur að sækja
í. Ég mæli með fyrir alla þá sem
ætla að stunda garðyrkju að fara
í nám við skólann. Ekki síst í
lífrænni ræktun þar sem oft getur
verið erfitt að nálgast upplýsingar
um hvað virkar í lífrænni ræktun
á Íslandi.
Stétt lífrænna framleiðenda
á Íslandi er því miður fámenn
og lítið til af upplýsingum og
niðurstöðum rannsókna á vefnum.
Oft er því ekki í boði að setjast
við tölvuna og leita á vefnum
að þeim upplýsingum sem mann
vantar, heldur nauðsynlegt að
forvitnast um reynslu annarra,“
segir Elínborg.
Ræktar lífrænt en vottunin bíður
Draumurinn hjá Elínborgu var að
vera búin að skapa sér atvinnu
grundvöll þegar náminu lyki.
„Mig dreymdi um að vera búin að
koma mér upp ræktunarlandi, aðstöðu
og tækjum til þess að geta framleitt
grænmeti í meira magni og stækkað
sölusvæðið.
Frá byrjun hef ég einungis notað
lífræna áburðargjafa og ekki notað
nein eiturefni. Ræktunin er þó ekki
lífrænt vottuð eins og er, en hún
kemur vonandi að aðlögun lokinni.
Lífræn vottun er auðvitað mikill
gæðastimpill og neytendur ættu að
vera mjög öruggir um að vottuð vara
uppfylli öll skilyrði,“ segir hún.
En lífrænt vottuð ræktun er líka
kostnaðarsöm að sögn Elínborgar og
útheimtir oft meiri vinnu.
„Lífrænt vottuð fræ eru dýrari,
lífrænir áburðargjafar bæði dýrari
og oft meiri vinna að koma þeim í
ræktunarlandið, meira þarf að nota af
yfirbreiðslum alls konar og það þarf
meira pláss til þess að passa upp á
frjósemi jarðvegsins með því að rækta
ekki sömu tegundina lengi á sama
stað. Þá er illgresiseyðing tímafrekari
þegar ekki eru notuð eiturefni, það
þarf pláss og aðstöðu til að jarðgera
úrgang frá býlinu og svo framvegis.
Síðan er alltaf ákveðinn kostnaður
við aðlögunarferlið og vottunina sjálfa
og ég leit því þannig á að ekki væri
raunhæft að leggja í þann kostnað
fyrr en ræktunin hefði náð ákveðinni
stærð, nægilegri veltu til þess að
standa undir kostnaðinum,“ útskýrir
Elínborg.
En vottunarferlið tekur líka tíma.
Að sögn Elínborgar er aðlögunar
tíminn í ræktun á einærum plöntum
– líkt og flestu því grænmeti sem er
ræktað úti á Íslandi – yfirleitt tvö ár.
Ekki er leyfilegt að merkja vöruna sína
með vottunarmerki Túns sem lífrænt
vottaða fyrr en að aðlögunartíma
loknum, að því gefnu að þú uppfyllir
öll skilyrðin auðvitað.
„Núna í vor fór þó jörðin hjá mér
í lífræna aðlögun. Öll jörðin fór í
aðlögun, grænmetisgarðarnir, skóg
rækt sem er nýlega hafin á jörðinni og
einnig það land sem í raun er ekkert
notað eins og er. Þar eru þá til dæmis
tækifæri í framtíðinni til þess að safna
villtum jurtum af vottuðu landi,“ segir
Elínborg.
Umsóknarferlið ekki mjög flókið
„Í fullri hreinskilni þá hefði ekki
verið mögulegt fyrir mig að byrja
vottunarferlið strax nema vegna
aðlögunar styrksins sem í boði er,“
segir Elínborg þegar hún er spurð
að því hversu miklu það breyti fyrir
hana að hafa fengið styrkinn.
„Hægt er að sækja um styrk
vegna alls þess kostnaðar sem fellur
til beinlínis vegna aðlögunarinnar
– sem ekki væri í boði ef ræktunin
væri ekki lífræn.
„Auðvitað er einhver skriffinnska
á bak við svona umsókn, það þarf
til dæmis að gera kostnaðar áætlun.
Þar naut ég þó dyggrar aðstoðar
starfs manns hjá Ráðgjafar miðstöð
landbúnaðarins og þegar upp var
staðið var umsóknarferlið ekki mjög
flókið. Ef Matvæla stofnun gerir ekki
athugasemdir við kostnaðaráætlunina
getur maður fengið að hámarki
úthlutað upphæð sem samsvarar
50 prósent af áætlun. Það munar
heldur betur um minna. Það er þó
skilyrði fyrir úthlutun að vottunarferli
sé þegar hafið, að þú hafir skrifað
undir samning við vottunarstofu.
Það er kannski það sem er mest
taugatrekkjandi í ferlinu. Þú ert
þegar búinn að skuldbinda þig til að
leggja út í kostnaðinn við vottunina
áður en þú veist hvort þú færð
aðlögunarstuðninginn.
Ef allt gengur að óskum verð ég
því komin með vottun á grænmetið
hjá mér í seinasta lagi 2021 og
mér því leyfilegt að selja það með
vottunarmerki Túns á umbúðunum.
Í framtíðinni verður svo hægt að
tína sveppi í lífrænt vottaðri skógrækt
og fara í berjamó á lífrænt vottuðu
landi hjá mér. Ef upp koma tækifæri til
nýtingar á þessum eða öðrum afurðum
svæðisins þá er vottunin til staðar.“
Bjartsýn á framtíð
lífrænnar ræktunar
„Ég er almennt nokkuð bjartsýn á
framtíð lífrænnar ræktunar á Íslandi,“
segir Elínborg, spurð um stöðu og
horfur í þessum geira.
„Mér finnst neytendur alltaf
verða meira og meira meðvitaðir
um hvað þeir eru að kaupa og þá
meðal annars hvað liggur að baki
lífrænni vottun. Lífræn framleiðsla er
líka umhverfisvæn og losar yfirleitt
minna kolefni en almenn ræktun, það
skiptir fólk miklu máli í dag.
Líklega þyrfti helst að kynna
lífrænar aðferðir enn betur til að
hraða þróuninni og fjölga þeim fram
leiðendum sem sækja sér vottun.
Sýna fólki fram á að þetta er ekki
bara vel gerlegt heldur vænlegt og
að í lífrænni framleiðslu liggi fullt
af tækifærum.“ /smh
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir í gulrótargarði sínum í Breiðargerði. Myndir / úr einkasafni
Gulræturnar frá Breiðargerði fara á markað í nálægum verslunum.