Bændablaðið - 26.09.2019, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201926
RÉTTIR
Bændablaðið tekur saman og birtir yfirlit um fjár- og
stóðréttir. Listinn er unninn með þeim hætti að leitað
er til sveitarfélaga og bænda um upplýsingar.
Rétt er að minna á að villur geta slæðst inn í listann
og eins getur veðrátta orðið til þess að breyta þarf
tímasetningum á smalamennsku og þar með réttarhaldi.
Því er gott ráð að hafa samband við heimamenn á hverjum
stað til að staðfesta réttar dag- og tímasetningar.
Upplýsingar um viðbætur og leiðréttingar sendist á
netfangið tb@bondi.is.
Uppfærslur á listanum eru gerðar jafnóðum og eru
aðgengilegar á vef Bændablaðsins, bbl.is. /TB
Fjárréttir haustið 2019
Suðvesturland
Kjósarrétt í Kjós seinni réttir sun. 13. okt. kl. 15.00
Vesturland
Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. seinni réttir sunnudaginn 29. sept.
Brekkurétt í Saurbæ, Dal. seinnir réttir sun. 29. sept. kl. 13.00
Fellsendarétt í Miðdölum, Dal. seinnir réttir 29. sept kl. 14.00
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. seinni réttir lau. 28. sept.
Fljótstungurétt á Hvítársíðu, Mýr. seinni réttir lau. 28. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. seinni réttir sun. 29. sept. kl. 16.00
Grafarrétt í Breiðuvík, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. seinni réttir mán. 30. sept. kl. 14.00 og 7. okt. kl. 14.00
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. seinni réttir 29. sept og 7. okt.
Hólmarétt í Hörðudal, Dalabyggð seinni réttir sun. 29. sept. kl. 10.00
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. seinni réttir lau. 28. sept.
Klofningsrétt í Beruvík, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Mýrdalsrétt í Hnappadal seinni réttir sun. 13. okt.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. seinni réttir sun. 6. okt. kl. 10.00
Ósrétt á Skógarströnd, Dal. laugardaginn 5. okt. kl. 10.00
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. seinni réttir 6. okt. kl. 14.00
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. seinni réttir sun. 29. sept. kl. 14.00
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. seinni réttir sun. 29. sept. kl. 13.00
Svarthamarsrétt á Hvalfj.str., Borg. seinni réttir sun. 29. sept.
Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. seinni réttir mán. 30. sept. og mán. 7. okt.
Vörðufellsrétt á Skógarströnd, Dal. seinni réttir sun. 13. okt. kl. 13.00
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. seinni réttir mán. 23. sept. og mán. 30. sept.
Ölkeldurétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 28. sept.
Vestfirðir
Miðhús í Kollafirði, Strand. seinni réttir sun. 6. okt.
Suðurland
Kjósarrétt í Kjós seinni réttir sun. 13. okt. kl. 15.00
Krýsuvíkurrétt v. Suðurstrandarveg, Gullbr. laugardaginn 28. sept. kl. 13.00
Landréttir við Áfangagil, Rang. fimmtudaginn 26. sept. kl. 12.00
Árhólarétt í Unadal, Skag. föstudaginn 27. sept.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 27. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 28. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 5. okt. kl. 13.00
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 5. okt.
Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag. föstudaginn 27. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 5. okt. kl. 11.00
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 5. okt. kl. 10.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 28. sept. kl. 12.30
Stóðréttir haustið 2019
Mikill áhugi er fyrir stóðréttum
ekki síður en fjárréttum. Bænda-
blaðið tekur líka saman lista yfir
þær stóðréttir á landinu sem
upplýsingar lágu fyrir um þegar
blaðið fór í prentun.
Upplýsingar um viðbætur og
leiðréttingar sendist á netfangið
tb@bondi.is. Uppfærslur á listanum
eru gerðar jafnóðum og leiðrétt-
ingar berast á vef Bændablaðsins,
bbl.is. /TB
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Sími 480 0480
byggingar@jotunn.is // www.jotunn.is
Tilbúin
hótelherbergi
Gerum tilboð í herbergiseiningar
fyrir hótel og gistiheimili.
Frekari upplýsingar í síma 480 0480
Frá Hrunaréttum. Mynd / MHH
Frá Melgeðismelum. Mynd / MÞÞ
Íslenska sauðkindin er harð-
ger, úrræðagóð og ævintýra-
gjörn, það vita allir sem
hana þekkja. Í nýrri bók
Guðjóns Ragnars Jónssonar
og Aðalsteins Eyþórssonar
sem kallast Kindasögur
eru rifjaðar upp sögur af
íslenskum kindum að fornu
og nýju, afrekum þeirra,
uppátækjum og viðureignum
við óblíða náttúru og kapps-
fulla smala.
Í bókinni kynnumst við meðal
annars Herdísarvíkur-Surtlu,
Eyvindarmúla-Flekku, villifé
í Tálkna, hrútnum Hösmaga í
Drangey og forystusauðnum
Eitli. Útgefandi er Sæmundur.
Í eftirfarandi texta grípum við
niður í sögu af Herdísarvíkur-
Surtlu.
Herdísarvíkur-Surtla
„Veturinn 1951 til 1952 var frekar
snjóþungur. Hugðu menn þá gott til
glóðarinnar að ná Surtlu því vel ætti
að sjást til svartrar kindar á hvítri
hjarnbreiðunni. Um veturinn var
því farinn sérstakur leiðangur til
að handsama hana. Ekki tókst það
fremur en áður en þó náðist lambið
í þessari ferð með hjálp hunda. Á
útmánuðum var þess enn freistað
að ná Surtlu. Í þann leiðangur fór
Sæmundur Eyjólfsson, bóndi á Þurá
í Ölfusi, við annan mann. Um þá
viðureign sagði hann í viðtali við
Morgunblaðið:
Við fundum hana og ég vildi
setja hundinn strax á hana því ég
var viss um að það væri eina leiðin
til að ná henni. Sá sem var með
mér vildi ekki fara þannig að henni
strax. Ekki hafði Surtla lengi haft
vitneskju um okkur þegar hún tók
á sprett undan okkur og það get ég
svarið að ég hef aldrei séð neina
skepnu hlaupa eins og hana. Hún
hreinlega kom tæpast við jörðina og
víst er það þurfti fótfráan mann til
að fylgja henni eftir. Við misstum
Surtlu í þetta skiptið.
Sumarið 1952 var allt gert til
að ná Surtlu, lifandi eða dauðri,
enda styttist nú óðum í að nýtt
fé frá ósýktum landshlutum yrði
flutt á svæðið. Gekk það svo langt
að fengin var meistaraskytta frá
varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli
til að reyna að skjóta ána. Lá
skotmaðurinn við í tjaldi í fjall-
lendinu ofan við Herdísarvík og
beið færis, en allt kom fyrir ekki.
Sagan segir að hann hafi ekki hleypt
af einu einasta skoti í hálfan mánuð
því aldrei komst hann í færi við
hina ljónstyggu og fótfráu Surtlu.
Að hálfum mánuði liðnum á hann
að hafa skotið á vörðu, svona til
þess að sjá hvort vopnin virkuðu
ekki, en í sömu mund skaust Surtla
fram undan vörðunni og var óðara
horfin sjónum. Þá gafst bandaríski
byssumaðurinn upp og frábað
sér frekari viðskipti við íslenskt
sauðfé.“ /VH
Kindasögur:
Íslenskt sauðfé
að fornu og nýju
BÆKUR&MENNING