Bændablaðið - 26.09.2019, Qupperneq 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 27
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Plettac vinnupallar
- Protekt fallvarnarbúnaður
Láttu öryggi og lausnir ráða ferðinni
s. 618 8418 • vinnupallarehf@gmail.com
ÞÖKK
UM F
YRIR
FRÁB
ÆRT
SUMA
R
- SJÁ
UMST
Á VE
RK O
G VIT
2020
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Þjórsárdalur:
Kvartað undan sauðfé vegna
skemmda á trjáplöntum
Þorvaldur Örn Árnason, for maður
Sjálfboðaliðasamtaka um náttúru
vernd hefur skrifað sveitar stjórn
Skeiða og Gnúpverja hrepps
bréf þar sem kvartað er undan
síendurteknum skemmdum sauð
fjár á þúsundum trjáplantna í
Þjórsárdal.
Um er að ræða plöntur,
sem félagsmenn samtakanna
hafa plantað og er það hluti af
Hekluskógaverkefninu. Þorvaldur
segir að ítrekað hafi verið kvartað
undan ástandinu við forsvars menn
Hekluskógaverkefnisins en án
árangurs. Hann hvetur sveitarstjórn
til að beita sér í málinu til að stöðva
þessa eyðileggingu á merkilegu
og mjög þörfu skógræktarstarfi.
Sveitarstjóra og oddvita hefur verið
falið að afla betri upplýsinga um
hvað sendandi erindisins á við með
innihaldi þess og óska eftir fundi ef
þurfa þykir. /MHH
Hótel Selfoss:
Fullfrágenginn menningarsalur
kostar 472 milljónir króna
Nú er unnið hörðum höndum að
því að fjármagna menningarsal á
Selfossi í Hótel Selfossi, sem hefur
staðið fokheldur í 40 ár. Vonast
er eftir að ríkissjóður komi með
myndar legt framlag í salinn,
ásamt Sveitarfélaginu Árborg.
Á síðasta fundi Eigna- og
veitunefndar Árborgar kom m.a.
fram að kostnaðaráætlun við að
gera salinn fullkláraðan hljóðar
upp á 472 milljónir króna.
Forsendur áætlunargerðar innar
gera ráð fyrir að salurinn verði
hannaður fyrir „náttúrulegan
hljómburð“ og þannig miðað við
að gera hljóðvist sem besta fyrir
algengustu notkun, s.s. fyrir popp-,
rokk- og djasstónleika, söngleiki,
leiksýningar, kvikmyndasýningar
og ráðstefnur.
„Ljóst er að vegna stærðar-
takmarkana salarins hvað varðar
lofthæð verður hljómburður
sinfónískrar tónlistar og kórsöngs
þó síðri. Ekki er þó lokað fyrir
þann möguleika síðar að setja upp
hljómburðarkerfi ef slík þörf verður
til staðar. Tekið hefur verið tillit til
þeirra framkvæmda sem fara þarf
í þannig að rekstur salarins geti
hafist, s.s. frágang innanhúss,
tæknikerfi og búnað ásamt
endurbótum á stoðrýmum og í lóð“,
segir í texta áætlunargerðarinnar.
Skrifstofustjóri mennta- og
menningarmálaráðuneytis hefur
fengið kostnaðaráætlunina í
hendurnar en forsætisráðherra,
mennta- og menningarmálaráðherra,
ásamt skrifstofustjóra, aðrir ráð-
herrar í ríkisstjórn og þingmenn
Suðurkjördæmis hafa heimsótt og
skoðað aðstæður í menningarsalnum
og lýst áhuga sínum á að salnum
verði komið í notkun sem fyrst.
/MHH
Katrín Jakobsdóttir forsætis ráðherra
skoðaði ófullgerða menningarsalinn
í Hótel Selfossi snemma í vor. Hún
sagði þá að salurinn væri eitt best
varðveitta leyndarmál Suðurlands
og gaf góð fyrirheit um stuðning frá
ríkinu til að ljúka við salinn.
Mynd /MHH
LÍF&STARF